Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 33
MINNINGAR 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
hafði hann látið af störfum en
hann kom í heimsóknir og spurði
frétta og vildi fá að vita hvað
væri umleikis og hvernig gengi.
Hann hefur setið alla aðalfundi
Síldarvinnslunnar frá stofnun og
verður hans saknað á þeim vett-
vangi.
Það var jafnan fróðlegt og
þroskandi að eiga samtal við
Lilla. Hann gladdist yfir því sem
gert var til að auka veg félagsins,
hvort sem um var að ræða skipa-
kaup eða annað sem til framfara
horfði. Það er okkur sem yngri
erum og treyst er fyrir rekstri
félaga á borð við Síldarvinnsluna
hollt að þekkja til sögunnar; það
hefur svo sannarlega verið lær-
dómsríkt fyrir mig að fá að heyra
reynslusögur frá Lilla og kynn-
ast lífsskoðunum hans. Hann var
stoltur af sínu fyrirtæki og vildi
að það þjónaði bæjarbúum sem
best og stæði að baki íþrótta- og
góðgerðamálum í samfélaginu.
Hann hafði skilning á því hversu
samofin velgengni fyrirtækisins
og samfélagsins er. Hann mátti
aldrei neitt aumt sjá og vildi veg
allra sem bestan.
Með Lilla er genginn góður
maður. Ég votta afkomendum
hans samúð mína um leið ég
þakka honum störfin í þágu Síld-
arvinnslunnar.
Gunnþór Ingvason.
Þórði M. Þórðarsyni kynntist
ég árið 1982, þegar ég fór fyrst til
Síldarvinnslunnar til að vinna við
endurskoðun. Á þessum árum
var ekki algengt að fara til fyr-
irtækjanna í þeim tilgangi, enda
fannst Lilla Matt, eins og hann
var alltaf kallaður, mjög skrýtið
að ég skyldi koma á svæðið. Við
náðum strax vel saman þó svo að
pólitískar skoðanir okkar væru
ólíkar. Samstarfið gekk vel og
ekki bar skugga á. Lilli var mikill
Norðfirðingur og allt var best
sem tengdist staðnum, ekki síst
veðrið. Í einhverri heimsókn
austur, að vetrarlagi, kom ég á
skrifstofuna á nær sama tími og
Lilli. Ég hafði orð á því hve veðr-
ið væri vont, Lilli leit út og sagði:
„Nú, það var ágætt þegar ég
kom.“
Þegar ég tók við sem forstjóri
Síldarvinnslunnar var Lilli að
láta af störfum hjá félaginu.
Samband okkar var samt alltaf
mikið og gott á þeim sjö árum
sem ég starfaði fyrir félagið. Það
var alltaf gott að leita til hans og
ræða málin á opinn og heiðar-
legan hátt. Hann hafði alltaf
skoðun á rekstrinum, kaupum á
fleiri skipum og kvóta, styrkingu
félagsins og byggðarinnar þar
með. Þetta voru hans ær og kýr
alla tíð.
Eftir að ég flutti frá Neskaup-
stað hefur það verið fastur liður í
dagskrá minni að fara á Komma-
blótið svokallaða. Mikilvæg venja
í þeim ferðum var að fara og
heimsækja Lilla á blótsdaginn.
Þá var dregin upp flaska af
viskýi eða koníaki og málin rædd.
Eftir slíkar umræður vorum við
oftast orðnir vel hreifir og tilbún-
ir í blótið. Nú í janúarlok fór ég
og heimsótti hann og koníak var
dregið upp. Við ræddum allt og
ekkert, pólitík og ekki pólitík og
Lilli var alveg skýr. En eitthvað
sagði mér að heimsækja hann á
sunnudeginum áður en ég færi
suður aftur. Það var góð ákvörð-
un, enda mun ég hvorki njóta
veitinga Lilla fyrir ókomin blót
né umræðna um daginn og veg-
inn, pólitík og ekki pólitík. Þessa
mun ég sakna.
Mikill höfðingi, sem var hvers
manns hugljúfi, er genginn.
Hans verður sárt saknað af öllum
sem kynntust honum og af sam-
félagi sem var samofið lífi hans.
Við Malla vottum ættingjum
Þórðar M. Þórðarsonar dýpstu
samúð við fráfall hans.
Björgólfur Jóhannsson.
Fleiri minningargreinar
um Þórð M. Þórðarson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
✝ Þorbjörg RagnaÞórðardóttir
fæddist 13. júlí 1954
í Reykjavík. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnuninni á
Blönduósi 15. febr-
úar 2016.
Foreldrar hennar
voru Þórður Ingvi
Sigurðsson prent-
ari, f. 29. janúar
1930, d. 3. ágúst
1998, og Ingibjörg Guðlaugs-
dóttir húsmóðir, f. 6. júlí 1935, d.
2. mars 1976.
Ragna ólst upp í Reykjavík og
Hafnarfirði og átti tíu systkini,
þrjár alsystur og sjö hálfsystkini.
Alsystur: Birna Elín, f. 1952,
Guðlaug Katrín, f. 1956, og
Ágústa Sigríður, f. 1960. Hálf-
systkin, sammæðra: Sigríður
Steina, f. 1951, Kristjana, f. 1963,
Guðlaugur Davíð, f. 1965, d.
2006, og Þorsteinn Magnús, f.
1971. Hálfsystkin, samfeðra:
Eva, f. 1966, Guðmundur, f. 1967,
apríl 1997, og Freydís Ósk, f. 14.
nóvember 2002.
2) Þórunn Elfa Ævarsdóttir, f.
16. ágúst 1978. Sambýlismaður
hennar er Björn Sigurðsson, f. 1.
júní 1974. Börn þeirra eru Sig-
urður Aron, f. 27. septmber 2000,
Sindri Freyr, f. 13. júní 2004, og
Elísa Bríet, f. 5. janúar 2008.
Árið 1982 hóf Ragna sambúð
með Einari Gunnarssyni, f. 26.
ágúst 1955. Þau eignuðust tvö
börn saman:
1) Jón Gunnar, f. 29. apríl
1983. Hann er kvæntur Guðrúnu
Hjálmtýsdóttur, f. 18. ágúst
1985. Börn þeirra eru: Einar
Hjálmtýr f. 27. ágúst 2004, Katr-
ín Ragna, f. 30. október 2007,
Elsa Fanney, f. 15. september
2008, Patrick Svavar, f. 27. júlí
2010, Hanna Ýr, f. 31. maí 2013,
og María Margrét, f. 31. desem-
ber 2015. 2) Ragnar Ásmundur,
f. 23. febrúar 1986. Sambýlis-
kona hans er Guðbjörg Ólafs-
dóttir, f. 18. júní 1992, og eiga
þau eina dóttur, Thelmu Ýri, f.
16. desember 2012.
Ragna og Einar slitu sam-
vistum árið 1996.
Ragna verður jarðsungin frá
Hólaneskirkju á Skagaströnd 27.
febrúar og hefst athöfnin klukk-
an 14.
og Pétur, f. 1969.
Þann 9. apríl
1970 eignaðist hún
Ingibjörgu Maríu
Reynisdóttur.
Barnsfaðir: Reynir
Línberg Marteins-
son, f. 12. október
1949. Ingibjörg
María á tvö börn
Þau eru: Sig-
urbjörg Laufey, f.
27. janúar 1999, og
Jóhannes Hólmar, f. 4. nóvember
2000. Faðir þeirra er Sigurpáll
Hólmar Jóhannesson, f. 11. apríl
1974.
Þann 2. september 1972
kvæntist Ragna Ævari Sigfús-
syni, f. 26. ágúst 1953, d. 10. okt.
2009. Þau skildu eftir níu ára
hjúskap. Börn þeirra eru: 1)
Linda Björk Ævarsdóttir f. 13.
júlí 1973. Hún er kvænt Kristjáni
Steinari Kristjánssyni. Börn
þeirra eru Kristján Heiðmar, f. 1.
júlí 1991, Andrea Björk, f. 23.
ágúst 1993, Gunnþór Ingi, f. 1.
Elsku mamma, ég er enn að ná
því að þú sért fallin frá og er í raun
ekki búin að átta mig á því ennþá
en góðu minningarnar geymi ég
hjá mér og ylja mér við þær við
hvert tækifæri.
Ég gleymi seint símtalinu sem
ég fékk þegar að ég var stödd á
tannlæknastofunni með börnin
mín há tannlækni, þegar læknirinn
hringdi og sagði mér strax eftir að-
gerðina þína að þeir hefðu ekki
getað fjarlægt æxlið og að þetta
væri komið í lífhimnuna. Þarna
hrundi veröldin hjá mér í smá
stund á meðan ég reyndi að átta
mig á þessu og lét systkinin mín
vita. Ég keyrði heim frá Sauðár-
króki hálf dofin og kvíðin yfir því
sem koma skyldi, en það sem ég er
stolt af því að hafa átt þig sem
mömmu. Þú þessi hörku mamma
sem tókst þessum fréttum of vel að
mínu mati en þú vildir sko ekki
fara að leggjast í eitthvað volæði.
Þú vissir að það þýddi ekkert en
kveiðst engu að síður þessu öllu
sem átti eftir að ganga á hjá þér
þessa síðustu mánuði.
Í janúar og fyrripart febrúar
var þín búseta inni á heilbrigðis-
stofnun á Blönduósi og þar leið þér
mjög vel og dásamaðir hjúkrunar-
fólkið þar alveg í bak og fyrir enda
dásamlegar allar saman. Þessi eini
og hálfi mánuður var dásamlegur
með þér, ég fór í vinnu og svo brun-
aði ég beint til þín á Blönduós með
prjónana með mér og sat hjá þér
tímunum saman og spjallaði og
prjónaði. Þetta fannst þér svo dýr-
mætt, að við systur skyldum koma
og vera svona lengi hjá þér í hvert
sinn og oft, við eigum nú eftir að
sakna þessa tíma verulega mikið.
Ég er svo ánægð að við systur
eyddum síðustu nóttunum með þér
á spítalanum. Þegar þú tókst síð-
asta andardráttinn vorum við allar
hjá þér og héldum í hönd þína, þú
vildir alls ekki vera ein þegar kallið
kæmi og sáum við til þess að vaka
yfir þér, elsku mamma.
Ég kveð þig nú með miklum og
djúpum söknuði. Það verður skrít-
ið að geta ekki hringt í þig daglega
eins og það var, við vorum svo
rosalega háðar hvor annarri. Ég
man þegar þú sagðir við mig að ef
þú heyrðir ekki í mér í einn dag
værir þú alveg ómöguleg. Já, sam-
band okkar var mjög sérstakt og
gott. Ég elska þig að eilífu elsku
mamma mín, þín litla stelpa eins og
þú sagðir alltaf við mig. Hvíldu í
friði.
Þórunn Elfa Ævarsdóttir.
Elsku mamma, það er eitthvað
svo ótrúlegt að þú sért bara farin
frá okkur og ekki hægt að hringja
til þín og spjalla saman lengur.
Þegar ég hugsa til baka þá var
líf þitt svolítið þyrnum stráð. Alltof
snemma þurftir þú að axla ábyrgð
á systkinum þínum, eignast svo
barn 15 ára, lendir í Vestmanna-
eyjagosinu 1973, ólétt að mér,
missir móður þína ung og fleira
sem var lagt á þig. En einhvern
veginn tókst þér að hrista þetta af
þér og halda áfram ótrauð.
Mér er minnisstætt frá Raufar-
hafnarárunum þegar þú varst að
baka, hlustaðir á Rio Speedwagon
og söngst með og við systur biðum
eftir að fá að smakka kökurnar.
Eins þegar þú heklaðir kjóla, hatta
og veski á barbídúkkurnar okkar.
Einnig eftir að þú varst orðin ein-
stæð með okkur systurnar þrjár í
Kópavoginum, þá var allt svo
skipulagt, þá voru kleinubaksturs-
dagar á fimmtudögum og þú varst
með matseðil fyrir vikuna á ís-
skápnum. Þú hafðir unun af því að
spá í matreiðslubækur og upp-
skriftir.
Síðan eignaðist þú strákana
þína tvo og þá var nú friðurinn úti
hjá okkur systrum og mikið fjör á
heimilinu en þú varst stolt af hópn-
um þínum og hélst alltaf heimilinu
hreinu og fínu. Eiginlega er hægt
að segja að þér hafi liðið best þeg-
ar þú varst búin að baka og áttir
mat í ísskápnum, en oft var erfitt
að láta enda ná saman. Einn siður
sem var þér kær var að við börnin
þín fengum alltaf ný nærföt og
náttföt fyrir jólin.
Það að verða amma fannst þér
ótrúlega gaman aðeins 36 ára.
Þegar heim var komið með prins-
inn töluðum við oft á dag saman til
að þú gætir nú fylgst með hvað
hann gerði hverju sinni.
Eitt af því sem við deildum sam-
an var áhugi á saumaskap og
handavinnu. Var oft gaman að spá
og spekúlera um sníðablöð og
bútasaum, skipti þá ekki máli á
hvaða tungumáli þau voru því þú
varst svo klár í þeim.
Þú varst svo hæfileikarík á
mörgum sviðum, allt sem þú tókst
þér fyrir hendur var svo vel gert.
Þú kenndir mér fljótt að það væri
ekkert gaman að gera fallegan
hlut sem væri illa frágenginn.
Annað sem við deildum saman var
afmælisdagurinn okkar, 13. júlí.
Síðustu ár var svo gaman að
smella saman í kvöldhitting hjá
þér og mættum við systur með
handavinnuna okkar og þú með
þína og hlógum við oft eins og vit-
leysingar og höfðum gaman af.
Þegar þú svo veiktist og þurftir
að fara ófáar ferðir til Akureyrar
þá reyndum við systur alltaf að
fara allar saman því þó tilgangur
ferðarinnar væri alvarlegur þá var
alltaf svo gaman hjá okkur. Þegar
kom að því að þú legðist inn á
Sjúkrahúsið á Blönduósi vitandi
það að þú gætir ekki lengur búið
ein og þyrftir aðstoð tókstu því af
æðruleysi og sættir þig bara við
það, vitandi það að þú ættir ekki
afturkvæmt heim. Dauðinn var
þér hugleikinn og ræddum við
mikið um hann, þú vildir helst fá að
vita daginn og er ómetanlegt hvað
þú varst raunsæ og hreinskilin í
sambandi við það sem koma
skyldi. Síðustu dagana varstu mik-
ið veik og sváfum við systur hjá
þér þrjár síðustu næturnar og töl-
uðum um hvað það væri eiginlega
langt síðan við hefðum sofið allar í
sama herbergi, ekki síðan þú varst
einstæð með okkur í Kópavogin-
um sennilega. Starfsfólkið á
sjúkrahúsinu á heiður skilið og tal-
aðir þú oft um það hvað það væri
gott að vera hjá því. Elsku
mamma, ég kveð þig með söknuði,
hafðu þökk fyrir, sofðu rótt.
Þín
Linda Björk.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku amma, mér finnst svo
skrýtið að þú sért bara farin. Það
var alltaf svo gaman að koma í
heimsókn til þín og spjalla við þig.
Þú varst alltaf svo skemmtileg og
fyndin og alltaf til í að grínast, og
meira að segja líka þegar þú varst
orðin veik og varst lögð inn á
Blönduósi, þá varstu alltaf til í að
grínast.
Ég mun alltaf muna eftir því
þegar þú varst oft að hrósa mér
fyrir hvað ég væri dugleg að baka.
Ég mun aldrei gleyma því þegar
þú varst einu sinni að passa mig og
við saumuðum saman Barbie-föt.
Ég mun heldur aldrei gleyma því
hvað þú gerðir margt flott, til
dæmis allt sem þú prjónaðir, allt
sem þú málaðir. Ég var líka ekkert
smá glöð þegar mamma sagði mér
að ég fengi að eiga saumavélina
þína, eitt af því dýrmætasta sem
þú áttir. Elsku amma, hvíldu í
friði.
Freydís Ósk.
Elsku amma, ég trúi því ekki að
þú sért dáin, þú varst eina amman
sem ég átti og það er sorglegt að
þú sért dáin. Ég á góðar minning-
ar um þig. Það var svo gaman að
þú varst alltaf á jólunum hjá okkur
að borða góðan mat og taka upp
alla pakkana með okkur. Ég geymi
sko vel Frozen-hárgreiðslubókina
sem þú gafst mér í afmælisgjöf
núna í janúar. Oh, amma ég man
líka þegar þú prjónaðir flottu uglu-
grifflurnar mínar, ég skal passa
þær vel. Það er skrítið að geta ekki
komið og bankað hjá þér og fengið
sleikjó eða bara hringt í þig. Elsku
besta amma, þú varst langbesta
amma mín og vonandi líður þér vel
í Sumarlandinu hjá Möggu ömmu
og Ævari afa. Þín ömmustelpa,
Elísa Bríet.
Þorbjörg Ragna
Þórðardóttir
Fleiri minningargreinar
um Þorbjörgu Þórðardóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
Ástkær systir mín,
KRISTJANA ÁRSÆLSDÓTTIR
(Kiddý),
lést á Landspítalanum þann 22. febrúar.
Útförin verður gerð frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 1. mars klukkan 13.
.
Einar G. Ársælsson.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
EDITH ELSA MARÍA NICOLAIDÓTTIR
(amma Lillý),
Heiðargerði 92,
lést sunnudaginn 21. febrúar á Skjóli.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju
þriðjudaginn 1. mars klukkan 15.
Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlega láti Barnaspítala
Hringsins njóta.
.
Sigríður Eyjólfsdóttir, Magnús Gunnarsson,
Unnur Magnúsdóttir, Sigurður Birkir Bjarkason,
María Edith Magnúsdóttir, Baldur Örn Baldursson,
Stefán Örn Magnússon, Nanna Jónsdóttir,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Innilegar þakkir til ættingja og vina fyrir
auðsýnda samúð vegna fráfalls eiginkonu,
móður og ömmu,
ERLU BJÖRGÓLFSDÓTTUR,
Sóleyjarima 15.
Bestu þakkir til starfsfólks Eirar í
Grafarvogi, Landspítalans og
heimahjúkrunar.
.
Gylfi Theodórsson,
börn og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
bróðir, afi og langafi,
ARNKELL JÓSEPSSON
bóndi,
Breiðumýri, Reykjadal,
lést aðfararnótt 24. febrúar á
Sjúkrahúsinu á Húsavík. Jarðarför fer fram
í Einarsstaðakirkju laugardaginn 5. mars kl. 13.30.
.
Guðný Edda Gísladóttir,
Guðmundur Jón Arnkelsson, Óttar Jósepsson,
Lára Kristjana Hannesdóttir, Guðrún Jósepsdóttir,
Kristjana Ylja Guðmundsd.,
Sóley Arna Þ. Garðarsdóttir,
Guðný Edda Guðmundsdóttir.
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
MAGNHILDUR GÍSLADÓTTIR
þroskaþjálfi,
Norðurbakka 25c,
Hafnarfirði,
lést þann 25. febrúar. Útförin fer fram
frá Garðakirkju fimmtudaginn 3. mars kl. 15.
.
Þórólfur Árnason,
Hallur Guðmundsson, Ásdís Huld Helgadóttir,
Hildur Þóra Hallsdóttir,
Helga Guðný Hallsdóttir.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR GUÐNI PÁLMARSSON,
Mávabraut 1b,
Reykjanesbæ,
lést þann 22. febrúar á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
mánudaginn 29. febrúar klukkan 13.
.
Logi H. Halldórsson, Þórhanna Þórðardóttir,
Jóhann Halldórsson, Karen Ward Halldórsson,
Halldór P. Halldórsson, Helga G. Bjarnadóttir,
Herdís Halldórsdóttir, Ingvar G. Georgsson
og barnabörn.