Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 42

Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt Hálkubroddar Bensínbrúsar Plast/Blikk 5, 10, 20L VIAIR loftpressum Vasaljós og lugtir, yfir 30 gerðir Rúðupiss 5L 20° Turbo Sámur 5L frá 1.495 Bílrúðusköfur frábært úrval Snjóskóflur margar gerðir frá 1.999 Startkaplar 985 Snjósköfur margar gerðir frá 1.495 frá 495 Strekkibönd 2.895 Frábært úrval af 12 Rósalind Guðmundsdóttir er stödd á skíðum með systur sinni,Maríu Dröfn Garðarsdóttur, í Val di Fiemme í Trentino-héraði á Norður-Ítalíu, í tilefni fertugsafmælis síns. „Ég er mikil skíðakona en hef lítið komist á skíði í vetur, hef ekki haft tíma til þess.“ Rósalind ólst upp í Reykjavík en býr í Hafnarfirði. Hún lauk prófi í viðskiptafræðum og er núna framkvæmdastjóri og annar eigenda að Vélsmiðju Guðmundar ehf. ásamt bróður sínum, Aðalsteini Guð- mundssyni vélvirkjameistara. Faðir þeirra, Guðmundur Aðal- steinsson, stofnaði fyrirtækið árið 1984, en árið 2007 keyptu þau systkinin vélsmiðjuna af honum. „Vélsmiðja Guðmundar er framleiðslufyrirtæki og framleiðir gröfuskóflur og hraðtengi við góðan orðstír. Við erum einu framleið- endurnir á þessum vörum á Íslandi og framleiðum þær undir vöru- merkinu Skoflur.is.“ Í frístundum sínum kennir Rósalind fólki á öllum aldri reikning. „Mér finnst samt stærðfræðikunnátta fólks vera með fádæmum góð.“ Sambýlismaður Rósalindar er Björn Þórðarson byggingatækni- fræðingur. Börn þeirra eru Telma Dögg Björnsdóttir, f. 1996, Guð- mundur Snorri Eysteinsson, f. 1999 og Þórður Hugo Björnsson, f. 2008. Foreldrar Rósalindar eru Guðmundur Aðalsteinsson vél- virkjameistari og Svanhildur Ágústsdóttir tækniteiknari. Rósalind og börnin Frá vinstri: Rósalind, Þórður Hugo, Guðmundur Snorri, kötturinn Nala og Telma Dögg. Er í skíðaferðalagi í tilefni afmælisins Rósalind Guðmundsdóttir er fertug í dag S teingrímur Sigurgeirsson fæddist í Reykjavík 27. febrúar 1966. Hann ólst upp í Reykjavík, fyrst í Hlíðunum en síðan í Árbæ og Vesturbænum. „Ég var í Árbæjarskóla og Aust- urbæjarskóla þar til fjölskyldan flutti til Svíþjóðar 1976 þar sem pabbi var lektor í íslensku við há- skólann í Uppsölum. Við fluttum heim 1982 og ég byrjaði í MH og varð stúdent 1986. Við bjuggum í Vesturbænum þar sem foreldrar mínir höfðu keypt hús er langafi minn byggði um aldamótin 1900, Brekku við Brekkustíg. Ég hef ávallt skilgreint mig sem Vestur- bæing þótt ég hafi ekki búið þar síðustu árin, hann togar alltaf í mann.“ Steingrímur stundaði nám í þýsku og stjórnmálafræði við Trier- háskóla á bökkum Mosel-árinnar í Þýskalandi 1988-1990, varð BA í stjórnmálafræði við HÍ 1997 og Master of Public Administration (MPA), frá Harvard Kennedy School í Cambridge í Massa- chusetts-ríki í Bandaríkjunum árið 2002. Vín og störf Steingrímur er einn helsti vínsér- fræðingur þjóðarinnar. „Ég fékk vínáhugann á Þýskalandsárunum og byrjaði með vikulega pistla í Morgunblaðinu, fyrst um vín og síð- ar mat og vín sem birtust í aldar- fjórðung eða svo.“ Steingrímur stofnaði sælkera- síðuna Vínótekið – vinotek.is árið Steingrímur Sigurgeirsson, vínsérfræðingur og ráðgjafi – 50 ára Hjónin Steingrímur og María á siglingu í Costa Rica í Mið-Ameríku árið 2002. Samsetning Cabernet og Merlot í uppáhaldi Morgunblaðið/Ásdís Afmælisbarnið Steingrímur. Kópavogur Artúr Magni Maslanka fæddist 11. febrúar 2015 kl. 9.04. Hann vó 3.540 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Malgorzata Kedziora og Maciej Maslanka. Nýir borgarar Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.