Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Láttu okkur
létta undir fyrir
næstu veislu
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • Sími 553 1380
Serviettu- og
dúkaleiga
Gardínuhreinsun
Dúkaþvottur
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu þér ekki bregða, þótt þú upp-
götvir einhver mistök, það geta víst allir gert
þau. Landið og heimilið skipta þig miklu máli
núna.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert mjög sjálfstæður í dag og ættir
því ekki að þiggja ráð frá öðrum. Frestaðu
áformum þínum ef mögulegt er.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ágreiningur við vini eða hóp er lík-
legur á næstu vikum. Leitaðu svara við því
sem þig langar til að vita. Gott skipulag getur
bjargað miklu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Vertu ekki vonsvikinn þótt þér hafi
mistekist eitthvað. Hálfbakaðar eða óljósar
skuldbindingar þarfnast úrlausnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Skoðaðu hjarta þitt áður en þú tekur
ákvörðun sem marka mun spor í líf þitt. Ein-
hver sem þú áleist síður en svo vitran gefur
þér góð ráð í kvöld.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Varastu að láta aðra ráðskast með líf
þitt þótt þeir þykist vita betur. Sinntu bara
þínu og varastu að dragast inn í deilur
manna. Sýndu þolinmæði og þá mun allt
leysast farsællega.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ábyrgð þín á börnum liggur þungt á þér
enda er einhver svartsýni að angra þig í dag.
Vonandi að fólkið í kringum þig sé á sama
máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt þú hafir í mörg horn að líta
máttu ekki gleyma vinum þínum. Fylgdu
innsæi þínu. Gefðu þér tíma til þess að und-
irbúa þig, þó að margir bíði eftir þér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú mátt ekki vanmeta vinsældir
þínar en mátt heldur ekki misnota þér velvild
annarra. Dekraðu við þína nánustu og sjálfan
þig í kvöld.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur komið sér vel að þekkja
til samstarfsmanna sinna þegar eitthvað
óvænt kemur upp á. Ekki skuldbinda þig ef þú
mögulega kemst hjá því.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það hefur mikið að segja að þú
komir þannig fram að fyrstu kynni séu já-
kvæð. Gefðu þér tíma til þess að eiga með
fólki stund utan vinnutíma.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Áhugaverðu tilboði verður skotið inn á
borð hjá þér í dag. Hvort sem leiðin liggur til
annars lands innan tíðar eða ekki, verðurðu
að minnsta kosti búinn að setja þig í hnatt-
rænar stellingar.
Síðsta gáta var sem endranær eft-ir Guðmund Arnfinnsson:
Valfaðir í Valhöll heitir,
Vinsæll þorrablótum á.
Margur sitt í reiði reytir.
Á róðrarbát er þollur sá.
Harpa á Hjarðarfelli svarar:
Eitt mun Óðins heiti Hár.
Hákarlinn ég fékk í ár.
Mitt í reiði reyti hár.
Róðrarbáts er þollur hár.
Árni Blöndal á þessa lausn:
HÁR ég tel hér Óðin heita.
HÁR er nefndur hákarlinn.
HÁRIÐ argir ýmsir reyta.
Einnig HÁR er þollurinn.
Helgi Seljan leysir gátuna þannig:
Hár var Óðins annars heiti
ómar söngur hár á blótum
Hár mitt lítið hér ég reyti
hárs í áratökum njótum.
Hér kemur loks skýring Guð-
mundar:
Óðinn Hárs og heiti ber.
Hár á blótum þorra er.
Reytir margur af heift sitt hár.
Hár er þollur til stuðnings ár.
Og síðan fylgir limra:
Reiðskjóti Gústa var grá meri,
gangþýð var sú og frá meri,
svo féll hún frá,
hann fékk sér þá
í staðinn hrekkjótta hámeri.
Og ný gáta eftir Guðmund:
Bungu á landi lítum vér.
Leynist undir höfuðskel.
Víða snýst á vegum hér.
Í vegg íbogið skarð það tel.
Jósefína Dietrich yrkir á Boðn-
armiði:
Meðal þess sem mætti af okkur
……………......mannfólk nema
er meiri svefn í mjúku fleti
og miklu betri skammt af leti.
x
Gísli Ásgeirsson bætti við:
Höfði mínu halla þarf
……………….. og huga að draumum.
Kveðju góða kettir senda
kvæðarófu þarf að enda.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Margt hangir á hárinu
Í klípu
„ÉG SLAPP EINU SINNI, EN NÁÐIST OG
VAR SENDUR TIL AUGNLÆKNIS. HANN
HJÁLPAÐI MÉR MEÐ GANGASÝN MÍNA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
SYSTIR MÍN VAR AÐ GEFA MÉR
ÞÚSUNDKALL TIL ÞESS AÐ SEGJA
ÞÉR EKKI EITTHVAÐ.
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... mantran þín.
VINSAMLEGA EKKI GRAFA
BEININ ÞÍN ÞARNA
EN HVAÐ
EF VATNIÐ
ER KALT?
Enn meira um aksturshæfileikaVíkverja. Þannig er mál með
vexti að Víkverji telur sig vera
prýðilega góðan ökumann eins og
hann hefur áður greint frá. En það
eru víst ekki allir sammála þeirri
staðreynd. Þar á meðal litli aðstoð-
arökumaðurinn, afkvæmi Víkverja
sem þreytist ekki á því að biðja
Víkverja um að hægja á sér.
x x x
Alveg nýlega þá barst litla að-stoðarökumanninum liðsauki:
vinkona hans úr leikskólanum.
Börnin sátu makindalega í aft-
ursætinu einn daginn þegar Vík-
verji skutlaðist með þau. Að því er
Víkverja sýndist þá nutu þau sín
vel í aftursætinu. Alveg þar til af-
kvæmið byrjaði á ný að biðja Vík-
verja um að hægja ferðina. „Keyri
ég hratt? finnst þér það?“ spurði
Víkverji vinkonuna. „Já,“ var svar-
að afdráttarlaust.
Víkverji neyddist til að hægja
ferðina og spurði „en núna?“ þegar
hann hafði slegið töluvert af og
fannst hann silast um göturnar.
„Þetta er þægilegra og betra,“
heyrðist aftur í. Þá veit Víkverji
það. Hann keyrir enn of hratt þrátt
fyrir að hafa veitt því athygli og
reynt að draga úr hraðanum. Keyra
í núvitund – er það ekki eitthvað?
x x x
Enn annar liðsmaður bættist íhópinn: „Hægðu á þér Víkverji
í umferðinni“ úr óvæntri átt. Vík-
verji sótti vinnufélaga sinn einn
morguninn sem oftar. Víkverji var
með útvarpið í botni eins og ávallt
og keyrði af festu í átt að vinnu-
félaganum sem hopaði undan bíln-
um þegar hann nálgaðist. „Hvað?
ekki hélstu að ég ætlaði að keyra á
þig, drengur?“ sagði Víkverji um
leið og samstarfsfélaginn steig inn í
bílinn. Það kom hik á hann og svar-
aði dræmt: „neeei“. „Ég ætlaði að
segja það,“ sagði Víkverji og tjáði
honum að dóttir hans kvartaði und-
an aksturslagi hans „Ég er með
henni liði. Allan daginn,“ sagði
vinnufélaginn. „Þú ættir að vera í
bíl með mömmu. Hún er rosaleg,
ég er skíthrædd með henni,“ sagði
Víkverji og hló. „Þú veist að við er-
um ekkert annað en léleg útgáfa af
foreldrum okkar,“ fullyrti vinnu-
félaginn. víkverji@mbl.is
Víkverji
Eins og hindin þráir vatnslindir þráir
sál mín þig, ó Guð. Sálm 42:2
- með morgunkaffinu