Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Söfn • Setur • Sýningar
Síðasta sýningarhelgi:
Sjálfstæðar mæður á Veggnum
Andvari í Myndasal
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal
Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni
Norðrið í norðrinu á 3. hæð
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Listasafn Reykjanesbæjar
Iceland Defense Force - Ásbrú
6. febrúar - 24. apríl
Íslensk náttúra, landslagsverk
úr safneign 15. janúar - 24. apríl
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Herinn sem kom og fór
6. febrúar-24. apríl
Þyrping verður að Þorpi
Bátasafn Gríms Karlssonar
Opið alla daga 12.00-17.00
Duusmuseum.is
LISTASAFN ÍSLANDS
KVARTETT 15.1 - 1.5 2016
Chantal Joffe, Gauthier Hubert, Jockum Nordström, Tumi Magnússon
UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST
UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN 21.1 - 11.9 2016
PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS;
JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 11.9. 2016
Leiðsagnir á ensku alla föstudaga kl. 12:10
SJÓNARHORN
Sunnudagsleiðsögn í Safnahúsinu við Hverfisgötu, 28. febrúar kl. 14. Ókeypis aðgangur.
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánud.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
GYÐJUR 5.2. - 29.5.2016
Opið laugard. og sunnud. kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2. - 16.9.2016
Opið sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sunnudagur 28. febrúar kl. 14: Leiðsögn á vegum Listasafns Íslands
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist,
plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 10-17.
Verið
velkomin
DUUS SAFNAHÚS
DUUS MUSEUM
Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
Síðasta sýningarhelgi
Leiðsögn sun. kl. 14
ÍSLAND ER SVO KERAMÍSKT
Steinunn Marteinsdóttir
9.1.-28.2.2016
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Snapshots er plata Tonik En-semble en þar fer AntonKaldal Ágústsson með öllvöld. Söngvarar á þessari
plötu eru Hörður Már Bjarnason
(M-Band), Jóhann Kristinsson,
Ragnhildur Gísladóttir og Shipsi.
Einnig leika
Tumi Árnason
(saxófónn), Ve-
ronique Jac-
ques (selló) og
Þórður Her-
mannsson
(selló) á plöt-
unni.
Anton Kaldal er eldri en tvæ-
vetur hvað íslenska raftónlist varð-
ar og hefur gefið út slatta af efni
undir nafninu Tonik á umliðnum
árum. Snapshots er hins vegar það
fyrsta sem hann gerir undir nafn-
inu Tonik Ensemble og er viðskeyt-
inu ætlað að undirstrika að þetta er
ekki bundið við svefnherbergisdútl,
hér er unnið með hljómsveita-
hugtakið og Anton hefur gert nokk-
uð af því að þróa þennan nýja hljóð-
heim á tónleikum, þar sem
söngvarar og hljóðfæraleikarar
koma við sögu. Skemmst er frá því
að segja að þessi samsetning er al-
gerlega að virka og Snapshots hæg-
lega ein af betri plötum sem út
komu hérlendis á síðasta ári.
Anton er á mála hjá atomna-
tion, er með ágæta dreifingu er-
lendis og er það vel. Á vissan hátt
má segja að hann sé blóm sem hefur
tekið sér tímann sinn í að springa
að fullu út, bæði hvað varðar fer-
ilinn og svo þessa plötu hér en hún
var unnin á um fimm ára tímabili.
Innihaldið er lífræn „hús“-
tónlist ef svo má kalla („house“),
eiginlega djúphús en slitrur af
teknói og sveimi eru þarna líka.
Þetta er plata sem tekur sinn tíma í
að sökkva inn en verðlaunar eftir
því. Hvert og eitt lag er haglega of-
ið, hljóðrásum sem innihalda
trommutakta, bassa, strengi,
áhrifshljóð og söng er listavel flétt-
að saman þannig að úr verður höf-
ugt og áreynslulaust streymi. Það
er úthugsað jafnvægi í öllu, ekkert
sem ógnar því að stela sviðsljósinu
af hinu, allt vinnur þetta saman á
ególausan hátt (þið afsakið frjáls-
lega notkun mína á egóhugtakinu).
Að því leytinu til er þetta eitt
og óslitið ferðalag, lögin búa öll yfir
þessu einkenni en þó eru lúmsk blæ-
brigði á sveimi. „Prelude“ opnar
plötuna þar sem heyra má hljóð
sem minna á snarkandi eld undir
hljómfögrum og seiðandi söng.
Áhrifamikið, dulúðugt og gæti þess
vegna verið upphafsstef einhverrar
þungarokksplötunnar. „Landsca-
pes“ er hins vegar í meira dæg-
urlagaformi, sungið af Röggu Gísla
og enn eitt tilbrigðið við hústónlist
Antons má og finna í „Powers of
Ten“ sem er melankólískt og nokk-
uð tilraunakennt. Það lag er líkast
til besta dæmið um þann fumlausa
árangur sem er að nást hér, þar
sem samsláttur raftónlistar, tilfinn-
ingaþrungins söngs og svo hljóð-
færaleiks (selló og saxafónn) mætist
glæsilega í einum skurðpunkti.
Hörður Már Bjarnason syngur lag-
ið frábærlega og á stórleik á plöt-
unni. Plötunni er lokað með „Until
We Meet Again“, einkar melódískri
og fallegri smíð og önnur lög rúlla
áfram af reisn eins og lýst hefur
verið. Það er pláss fyrir orðið
„vandað“ hérna en alls ekki í ein-
hverri sterílli merkingu, heldur er
svo auðheyranlegt að hér hefur
virkilega verið legið yfir málum.
Umslagið hér er þá einkar vel
heppnað, er eftir Jack Vanzet sem
hefur m.a. unnið með Chet Faker.
Allur pakkinn er þannig einkar að-
laðandi. Stórgott stöff!
Ljósmynd/Ernir Eyjólfsson
Vandvirkni Anton Kaldal Ágústsson hefur starfað undir nafninu Tonik
um langa hríð. „Stórgott stöff!“ skrifar rýnir hrifinn um plötuna.
Höfugt, áreynslu-
laust streymi...
» Það er pláss fyrirorðið „vandað“
hérna en alls ekki í ein-
hverri sterílli merkingu,
heldur er svo auðheyr-
anlegt að hér hefur
virkilega verið legið yfir
málum.
Vínardrengjakórinn heldur tónleika
sem nefnast frá Mozart til Michael
Jackson í Norðurljósasal Hörpu í dag
og á morgun kl. 15. Eins og nafnið
gefur til kynna þá er efnisskrá tón-
leikanna mjög fjölbreytt og flytja
drengirnir klassísk verk eftir Mozart
sem og poppstjörnuna Michael Jack-
son og Lionel Ritchie og allt þar á
milli. Listrænn stjórnandi er Gerald
Wirth og kórstjóri er Manolo Cagnin.
Vínardrengjakórinn er einn fræg-
asti drengjakór í heimi – og einn
frægasti kórinn yfir höfuð – og kem-
ur á ári hverju frram á yfir 300 tón-
leikum sem sóttir eru af meira en
hálfri milljón áheyrenda. Kórinn er
skipaður um 100 kórdrengjum á aldr-
inum 9 til 14 ára sem skipt er í fjóra
kóra.
Þess má geta að einn kórdrengja,
Magnús Hlynsson á íslenskan föður
sem búsettur er í Vínarborg ásamt
móður sinni sem kennir íslensku.
Frá árinu 1926 hefur Vín-
ardrengjakórinn skipulagt fyrir 1000
tónleikaferðir til yfir 100 landa.
Starfsemi kórsins byggir á aldagam-
alli hefð. Drengirnir hafa sungið í
kapellu keisarans í Vín frá árinu
1296. Árið 1498 flutti Maximilian I
hirð sína og kapellu til Vínar. Frá
þeim tíma hafa kórdrengirnir í Vín-
ardrengjakórnum, ásamt Vínarfíl-
harmóníunni og Vínaróperukórnum,
séð um tónlistarflutning í sunnudags-
messum í kapellu keisarans. Tónlist-
armenn á borð við Mozart, Salieri og
Bruckner hafa allir unnið við Vín-
arhirðina; tónskáldin Joseph Haydn,
Michael Haydn og Franz Schubert
voru sjálfir kórdrengir. Frá miðöld-
um hefur Vínarkapellan fylgt keis-
aranum á ferðalögum. Tónleikaferðir
eru enn hluti af menntun kórdrengj-
anna.
Utan kapellu keisarans í Vín má
njóta söngs Vínardrengjana í tón-
leikasal þeirra í Muth. Tvær nýlegar
heimildamyndir eftir Curt Faudon
gefa innsýn í list drengjanna: Lög um
Mary (2013) er ævisaga Maríu í 21
mótettum og lögum og Að byggja brú
– styrkurinn í söng kom út á DVD ár-
ið 2014.
Frá Mozart til Jackson
Vínardrengjakórinn Drengjakórinn er einn sá þekktasti í heimi.
Drengir Haldnir eru um 300 tón-
leikar árlega sem eru vel sóttir.
Fjallað er um Víking Heiðar Ólafs-
son píanóleikara í nýjasta tölublaði
tónlistartímarits BBC í Bretlandi,
BBC Music Magazine. Hann er við-
fangsefni fasts dálks sem fjallar um
rísandi stjörnur, undir yfirskrift-
inni „Rising Stars – Great artists of
tomorrow“.
Stiklað er á stóru yfir feril Vík-
ings og sagt að þótt ferill kons-
ertpíanistans hafi snemma blasað
við honum, þá hafi hinn 31 árs
gamli píanóleikari haft fleiri hug-
myndir. Hann sé þegar listrænn
stjórnandi tveggja tónlistarhátíða,
Vinterfest í Svíþjóð og Midsummer
Music í Reykjavík, hafi gefið út þrjá
geisladiska hjá eigin útgáfu og auk
þess verið með sjónvarsþátt á besta
tíma þar sem hinn heimskunni pí-
anóleikari Alfred Brendel hafi ver-
ið meðal gesta. „Þegar ég var lítil
leit ég á píanóið sem leikfang – og
ég geri það að mörgu leyti enn,“ er
haft eftir Víkingi Heiðari.
Víkingur rísandi stjarna í tímariti BBC
Morgunblaðið/Einar Falur
Píanistinn Víkingur Heiðar Ólafsson.