Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 47

Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 47
MENNING 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Ég hef haft mikinn áhuga á og dálæti á óperum síðan ég sá Carmen 51 sinnum í Þjóðleikhúsinu árið 1975. Á þeim tíma vann ég í sminkinu og um leið og ég var búin að sminka allan barnakórinn hljóp ég upp á efstu svalir og hlustaði hugfangin á óp- eruna til enda. Þarna kviknaði óp- eruáhuginn og þess vegna er það langþráð tækifæri fyrir mig að fá að takast á við svona dramatíska óp- eru,“ segir Kol- brún Halldórs- dóttir sem leikstýrir Don Giovanni sem Ís- lenska óperan frumsýnir í Eld- borgarsal Hörpu í kvöld kl. 19. „Mig hefur dreymt um það mjög lengi að fá að setja upp óp- eru af þessu tagi og hef raunar komið að máli við alla óperustjóra Íslensku óperunnar á einhverjum tímapunkti og óskað eftir því að fá að setja upp stóra óperu. Nú er sá draumur orð- inn að veruleika,“ segir Kolbrún, en á löngum leikstjórnarferli sínum hefur hún leikstýrt fjölda leiksýninga sem oftar en ekki hafa byggst á tónlist að stórum hluta. Má sem dæmi nefna Skilaboðaskjóðuna, Fiðlarann á þak- inu, Cabaret, Rocky Horror og Happy End. Þá stjórnaði Kolbrún sviðssetningu opnunarhátíðar Hörpu 2011 og konsertuppfærslu Íslensku óperunnar, Listahátíðar og Sinfón- íuhljómsveitar Íslands á Peter Gri- mes á ensku sl. vor, en sú uppfærsla er tilnefnd til íslensku tónlistarverð- launanna 2016 sem tónlistar- viðburður ársins í flokki sígildrar tónlistar. Fórnarlömb flagara? Don Giovanni er fyrsta óperan sem Kolbrún leikstýrir á ítölsku. „Það er auðvitað ákveðin glíma að vinna á tungumáli sem er manni ekki tamt, en við höfum notið góðs af m.a. frábærum söngþjálfurum og Ben- jamin Levy, sem er dásamlegur hljómsveitarstjóri sem þekkir verkið út og inn. Á endanum er það í hans höndum, söngvaranna og hljóðfæra- leikaranna að líma þetta allt saman þannig að úr verði ein fullburða heild. Don Giovanni er músíkalskt spennandi verk. Það er bæði létt og leikandi, en líka mjög dramatískt,“ segir Kolbrún og tekur fram að hún leggi meira upp úr dramanu í nálgun sinni á verkinu. Spurð hvar hún staðsetji verkið í tíma og rúmi segir Kolbrún að farin hafi verið sú leið að láta það gerast í óræðri fortíð á bilinu 1830 til 1900. „Óperan var frumsýnd 1787 eða sama ár og Mozart skrifaði hana. Þó þetta sé tæplega 230 ára gamalt verk þá er þetta samt saga allra tíma. Þegar maður fer að skoða Don Giov- anni með gleraugum dagsins í dag sér maður fljótt að maður hefur hitt þónokkra svona karaktera á lífsleið- inni. Mér fannst sérstaklega gaman að skoða kvenhlutverk óperunnar með gleraugum nútímans og skoða hverjar eru hliðstæður dagsins í dag. Eru konurnar bara fórnarlömb þessa sjarmerandi flagara sem hefur gert það að metnaðarmáli að sofa hjá sem flestum konum og svikið þær 2.055 talsins eða eru þetta konur sem heillast af töfrum hans með svip- uðum hætti og gæti gerst í dag? Kon- ur heillast af töfrandi karlmönnum nú ekki síður en á dögum Mozart og trúa því jafnvel að þær geti elskað svæsnustu drullusokka svo mikið að þeir breytist. Við þekkjum því líka þessar konur býsna vel,“ segir Kol- brún og tekur fram að sérstaklega sé spennandi fyrir þrjár stórbrotnar sópransöngkonur að takast á við hlutverk af þessu tagi. Snúin glíma að lokunum Eins og frægt er orðið býður Don Giovanni látnum lénsherra og föður Donnu Önnu, sem hann sjálfur ban- aði, í mat til sín í lokaþætti verksins sem endar með því að vofa lénsherr- ans dregur hann með sér til heljar. Spurð hvernig hún nálgist yfirnátt- úrulegan þátt óperunnar segir Kol- brún að húsið setji þar ákveðnar skorður. „Eldborg er konsertsalur en ekki leikhús. Við þurfum því eðli- lega að sníða okkur stakk eftir vexti. En við höfum verið með ótrúlega út- sjónarsama liðsheild í því að gera umgjörð sem þjónar þessari upp- setningu,“ segir Kolbrún, en Snorri Freyr Hilmarsson hannar leikmynd- ina, María Ólafsdóttir búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson lýs- ingu. „Það var snúin glíma fyrir okk- ur að finna leiðina að lokunum, en ég hlakka til að kynna hana fyrir áhorf- endum, sem eru forvitnir um þann sem kemur í kvöldverðinn og það hvernig við svörum lykilspurningum verksins,“ segir Kolbrún og bætir við: „Jóhann Smári Sævarsson sem leikur lénsherrann hefur leikið hann áður og þá þurft að leika hann í gervi marmarastyttu. Hann er ekkert ósáttari við að leika hann með þeirri aðferð sem við notum.“ Í öðrum hlutverkum eru Oddur Arnþór Jónsson sem Don Giovanni, Tomislav Lavoie sem Leporello, Hallveig Rúnarsdóttir sem Donna Anna, Elmar Gilbertsson sem Don Ottavio, Hanna Dóra Sturludóttir sem Donna Elvira, Þóra Ein- arsdóttir sem Zerlina og Ágúst Ólafsson sem Masetto. Spurð að lokum hvort hún eigi sér draumaleikstjórnarverkefni á óp- erusviðinu svarar Kolbrún: „Það væri þá ekki nema Carmen. Ég vona að einhvern tíma í framtíðinni eigi ég eftir að fá að glíma við hana.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári „Langþráð tækifæri“  Íslenska óperan frumsýnir Don Giovanni eftir Mozart  Kvenhlutverk óperunnar skoðuð með nútímagleraugum Kolbrún Halldórsdóttir „Don Ottavio er andstæðan við Don Giovanni,“ segir Elmar Gil- bertsson tenór sem syngur Don Ottavio, sem er vonbiðill Donnu Önnu í Don Giovanni. „Meðan flagarinn Don Giovanni er skíthæll er Don Ottavio góði og mjúki gaurinn. En hann er frekar veik- geðja og talar fremur en að fram- kvæma. Hann treystir sér t.d. ekki til að hefna föður Donnu Önnu þegar Don Giovanni drepur hann,“ segir Elmar og tekur fram að hann þurfi samt eðlilega ávallt að standa með sínum karakter, jafn- vel þó þeir séu pínu leiðinlegir. Að sögn Elmars hefur hann einu sinni áður sungið hlutverkið á sviði. „Þegar ég var í mast- ersnámi mínu í Amsterdam fyrir sjö árum tók ég þátt í óperuupp- færslu á vegum skólans,“ segir Elmar og tekur fram að það sé frábært að koma aftur að hlut- verkinu. „Það er svo skrýtið með þessi hlut- verk sem mað- ur er búinn að vinna vel einu sinni að þau fara ekkert svo glatt úr kerfinu. Þetta er því eins og að hitta aftur gamlan vin.“ Spurður hvaða verkefni séu framundan hjá honum segist Elm- ar munu syngja í óperu eftir Kristian Blak í Færeyjum í júní. „Á næsta ári mun ég syngja Pedrillo í Brottnáminu úr kvennabúrinu eft- ir Mozart í Toulon og Mími í Rín- argullinu eftir Wagner í Hamborg. Árið 2018 mun ég síðan syngja Pelléas í óperunni Pelléas et Mél- isande eftir Debussy í Bochum sem ég hlakka mikið til.“ DON OTTAVIO ER ANDSTÆÐAN VIÐ DON GIOVANNI Elmar Gilbertsson Morð Elmar Gilbertsson, Hallveig Rúnarsdóttir og Jóhann Smári Sævarsson í hlutverkum sínum sem Don Ottavio, Donna Anna og lénsherrann. 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 5/3 kl. 15:00 54. sýn Lau 19/3 kl. 19:30 58.sýn Lau 9/4 kl. 19:30 65.sýn Lau 5/3 kl. 19:30 55.sýn Mið 30/3 kl. 19:30 61.sýn Fim 14/4 kl. 19:30 66.sýn Fös 11/3 kl. 19:30 56.sýn Fim 31/3 kl. 19:30 62.sýn Fös 15/4 kl. 19:30 67.sýn Fim 17/3 kl. 19:30 Aukasýn Fös 1/4 kl. 19:30 63.sýn Lau 19/3 kl. 15:00 57.sýn Lau 9/4 kl. 15:00 64.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Lau 27/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 6/3 kl. 19:30 14.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 Lokasýn "Sýningin er sigur leikhópsins alls og leikstjórans..." Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið) Fim 10/3 kl. 19:30 Frums. Sun 13/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 2/4 kl. 19:30 8.sýn Lau 12/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Fös 8/4 kl. 19:30 10.sýn Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu. Um það bil (Kassinn) Lau 27/2 kl. 19:30 16.sýn Fös 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 22.sýn Sun 6/3 kl. 19:30 17.sýn Sun 20/3 kl. 19:30 20.sýn Mið 9/3 kl. 19:30 18.sýn Sun 3/4 kl. 19:30 21.sýn "...ein af bestu sýningum þessa leikárs." Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Lau 27/2 kl. 13:00 5.sýn Sun 6/3 kl. 13:00 7.sýn Sun 20/3 kl. 13:00 9.sýn Sun 28/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 13/3 kl. 13:00 8.sýn Æsispennandi fjölskyldusýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Mið 2/3 kl. 19:30 20.sýn Fös 18/3 kl. 20:00 23.sýn Fim 7/4 kl. 19:30 26.sýn Fös 4/3 kl. 19:30 21.sýn Sun 3/4 kl. 19:30 24.sýn Fös 4/3 kl. 22:30 22.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 25.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari) Lau 27/2 kl. 20:00 37.sýn Fös 4/3 kl. 20:00 40.sýn Lau 5/3 kl. 22:30 43.sýn Lau 27/2 kl. 22:30 38.sýn Fös 4/3 kl. 22:30 41.sýn Fim 10/3 kl. 20:00 44.sýn Fim 3/3 kl. 20:00 39.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 42.sýn Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 2/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 30/3 kl. 19:30 8.sýn Mið 20/4 kl. 19:30 11.sýn Mið 9/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 6/4 kl. 19:30 9.sýn Mið 27/4 kl. 19:30 12.sýn Mið 16/3 kl. 19:30 7.sýn Mið 13/4 kl. 19:30 10.sýn Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 28/2 kl. 11:00 aukasýn Sun 28/2 kl. 16:00 aukasýn Síðustu sýningar! Kvika (Kassinn) Fim 3/3 kl. 21:00 Frums. Fös 11/3 kl. 21:00 3.sýn Þri 15/3 kl. 21:00 5.sýn Lau 5/3 kl. 21:00 2.sýn Lau 12/3 kl. 12:00 4.sýn Dansverk eftir Katrínu Gunnarsdóttur Hver er hræddur við VirginiuWoolf? –★★★★– SBH. MBL MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Fim 10/3 kl. 20:00 Fors. Lau 9/4 kl. 20:00 aukas. Þri 10/5 kl. 20:00 Fös 11/3 kl. 20:00 Frums. Sun 10/4 kl. 14:00 aukas. Mið 11/5 kl. 20:00 Lau 12/3 kl. 20:00 2.k Mið 13/4 kl. 20:00 10.k Fim 12/5 kl. 20:00 Sun 13/3 kl. 15:00 aukas. Fim 14/4 kl. 20:00 11.k Fös 13/5 kl. 20:00 Þri 15/3 kl. 20:00 aukas. Fös 15/4 kl. 20:00 aukas. Lau 14/5 kl. 14:00 Mið 16/3 kl. 20:00 aukas. Lau 16/4 kl. 20:00 12.k Mán 16/5 kl. 20:00 Fim 17/3 kl. 20:00 3.k. Mið 20/4 kl. 20:00 13.k Þri 17/5 kl. 20:00 Fös 18/3 kl. 20:00 4.k. Fim 21/4 kl. 20:00 14.k Mið 18/5 kl. 20:00 Lau 19/3 kl. 20:00 aukas. Fös 22/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00 Sun 20/3 kl. 14:00 aukas. Lau 23/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/5 kl. 20:00 Þri 22/3 kl. 20:00 5.k Fim 28/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/5 kl. 20:00 Mið 30/3 kl. 20:00 6.k Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Sun 22/5 kl. 20:00 Fim 31/3 kl. 20:00 aukas. Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Þri 24/5 kl. 20:00 Fös 1/4 kl. 20:00 aukas. Þri 3/5 kl. 20:00 Mið 25/5 kl. 20:00 Lau 2/4 kl. 20:00 7.k Mið 4/5 kl. 20:00 Fim 26/5 kl. 20:00 Sun 3/4 kl. 14:00 aukas. Fim 5/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Mið 6/4 kl. 20:00 8.k Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Lau 28/5 kl. 20:00 Fim 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Sun 29/5 kl. 20:00 Fös 8/4 kl. 20:00 9.k Sun 8/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Abba söngleikurinn sem slegið hefur í gegn um allan heim Njála (Stóra sviðið) Lau 27/2 kl. 20:00 25.sýn Lau 5/3 kl. 20:00 27.sýn Sun 10/4 kl. 20:00 Fös 4/3 kl. 20:00 26.sýn Sun 20/3 kl. 20:00 Sun 17/4 kl. 20:00 Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu Hver er hræddur við Virginiu Woolf? (Nýja sviðið) Lau 27/2 kl. 20:00 Sun 28/2 kl. 20:00 síð sýn. Allra síðustu sýningar Flóð (Litla sviðið) Sun 28/2 kl. 20:00 10.sýn Sun 13/3 kl. 20:00 11.sýn Nýtt íslenskt verk um snjóflóðið á Flateyri Vegbúar (Litla sviðið) Fim 3/3 kl. 20:00 33.sýn Fös 18/3 kl. 20:00 34.sýn Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Lau 5/3 kl. 20:00 103.sýn Lau 12/3 kl. 20:00 104.sýn Lau 19/3 kl. 20:00 105.sýn Kenneth Máni stelur senunni Illska (Litla sviðið) Lau 27/2 kl. 20:00 5.k Fim 10/3 kl. 20:00 Lau 9/4 kl. 20:00 Fös 4/3 kl. 20:00 6.k Fim 17/3 kl. 20:00 Sun 6/3 kl. 20:00 Sun 20/3 kl. 20:00 Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið) Lau 27/2 kl. 13:00 Sun 28/2 kl. 13:00 Lokasýn. Sun 6/3 kl. 13:00 Nýtt 5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum „Góði og mjúki gaurinn“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.