Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016
Ljóðahópurinn
Hási Kisi og
gestur, eru með
ljóðaupplestur í
Alþýðuhúsinu á
Siglufirði í kvöld
kl. 20. Hási Kisi
er ljóðaklúbbur
sem starfað hef-
ur á Fljótsdals-
héraði frá árinu 2008. Meðlimir
Hása Kisa eru Ásgrímur Ingi Arn-
grímsson, Hrafnkell Lárusson,
Ingunn Snædal og Stefán Bogi
Sveinsson. Þau telja sig allt í senn
aðdáendur, aðstoðarmenn og
harða og miskunnarlausa gagn-
rýnendur ljóðsins. Sérstakur gest-
ur á upplestrinum verður Urður
Snædal.
Hási kisi og gestur
AF KVIKMYNDUM
Benedikt Bóas Hinriksson
benedikt@mbl.is
Fast and the Furious (F&F)gengið er á leiðinni tillandsins og sumir meiraað segja mættir til að und-
irbúa tökur. Þegar þetta var til-
kynnt stökk ég mína litlu hæð í loft
upp enda Fast and the Furious-
myndirnar ákaflega góð afþreying.
Ekki hoppaði ég minna þegar til-
kynnt var að myndin yrði tekin upp
í minni heimasveit, Mývatnssveit.
Næstum allt laust gistipláss í sveit-
inni er bókað vegna komu tökuliðs-
ins þangað. Það verður nefnilega að
vega upp á móti ljótleikanum á
Akranesi þar sem tökur eru einnig
áætlaðar.
Á vef Skessuhorns kemur fram
að fjölmennt lið tækni- og tökufólks
muni fylgja verkefninu hingað til
lands og gert sé ráð fyrir að um 80
bílar auk tækja og annars búnaðar
verði flutt til landsins. Samkvæmt
mjög ótraustum heimildum 641.is,
eins og þeir orðuðu það sjálfir, er
líklegt að tekinn verði upp kapp-
akstur á ís og ísinn svo sprengdur í
loft upp.
Hver vill ekki sjá Mývatn
sprengt í loft upp? Ég sá allavega að
Mývetningar voru byrjaðir að ryðja
snjó af vatninu. Ég ætla að fullyrða
að þetta verður svalasta ísl-enska
atriði allra tíma. Þetta mun ekki
verða toppað. Vin Diesel í Mývatns-
sveit, jafnvel þótt það verði tekið
upp með grænskjás tækninni. Það
jafnast ekkert á við það.
Ekki má vanmeta snilldina
Margir fussa og sveia þegar
minnst er á Fast and the Furious en
það má ekki vanmeta snilldina sem
liggur að baki þessara mynda. F&F
er frábær kvikmyndasería sem allir
aðdáendur góðra hasarmynda ættu
að vera löngu búnir að sjá. Myndin
sem verður tekin upp hér á landi
verður sú áttunda í röðinni en sú sjö-
unda halaði inn 1,5 milljörðum doll-
ara í miðasölu um allan heim sem
kemur henni á topp tíu listann yfir
mest sóttu kvikmyndir allra tíma.
Merkilega litlar upplýsingar er
að finna um Fast 8 en harðhausinn
Vin Diesel hefur staðfest að mynd-
irnar verði hið minnsta tíu. Það
finnst mér frábærar fréttir. Þessi á
að vera frumsýnd í apríl á næsta ári,
Fast 9 verður frumsýnd í apríl 2019
og Fast 10 kemur 2021. Vitað er að
Vin Diesel, Jason Statham, Michelle
Rodriguez, Tyrese Gibson og sjálfur
Dwayne Johnson, betur þekktur
sem The Rock munu snúa aftur í átt-
unda meistaraverkið. Þá er jafnvel
talað um að Charlize Theron verði
vonda konan. Helen Mirren hefur
einnig verið orðuð við hlutverk en
annað er á huldu.
Æsispenna á hraðbrautum
The Fast and the Furious birtist
fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Strax
var ljóst að bílaáhugamenn og aðrir
áhugamenn um frekar stórbrotna at-
burðarás væru að fá helling fyrir
peninginn. Þar var Dominic Toretto
kynntur til leiks sem Vin Diesel leik-
ur svo afbragðsvel. Merkilegt að
kvikmyndaakademían hafi ekki
verðlaunað hann fyrir sína frammi-
stöðu. Kannski af því að hann er ekki
alveg nógu hvítur á hörund.
Mynd númer eitt sló í gegn og
þykir nokkuð góð. Hún eldist fjandi
vel. Æsilegir eltingaleikir, hraði og
spenna. Það er uppskrift sem getur
ekki klikkað. En framleiðendurnir
gerðu mistök og drifu í mynd númer
2. Sú er slök, jafnvel þótt Eva Men-
des sé í henni. Tokyo Drift var sú
þriðja. Var svona allt í lagi mynd,
ekkert sérstök.
Sú fjórða gaf allt í botn á ný og
bensínfóturinn hefur verið djöfulli
þungur síðan. Það er ekki mikið um
hægar senur í F&F. Sú fimmta,
sjötta og svo loks sjöunda eru allar
stórkostlegar þar sem bílarnir og
atburðarásin er í fimmta og jafnvel
sjötta gír. Stundum meira að segja
með nítrói. Það er allt á fullu. Loks
þegar hægt er að draga andann
renna glæsilegar setningar inn í
handritin. F&F hefur þannig hermt
eftir kónginum Sly Stallone og auk-
ið vægi góðra atriða með frábærum
hnyttnum tilsvörum.
„I live my life a quarter mile at
a time. Nothing else matters: not
the mortgage, not the store, not my
team and all their bullshit. For
those ten seconds or less, I’m free,“
sagði Vin Diesel eitt sinn þegar
hann var að útskýra hvað það væri
við að spyrna við annan bíl.
„Ask any racer. Any real ra-
cer. It don’t matter if you win by an
inch or a mile. Winning’s winning,“
sagði hann sömuleiðis með sinni
brakandi röddu. Þetta þarf ekkert
að útskýra. Þeir sem hafa verið í
sigurliði þekkja þetta.
Harmdauði Walker
Ekki er hægt að skrifa um F&F-
gengið án þess að minnast Paul Wal-
ker sem lék hinn myndarlega Brian
O’Conner. Walker lést árið 2013 og
var tökum á sjöundu myndinni að
ljúka. Auðvitað fór Hollywood á
hliðina og handritshöfundarnir
breyttu endinum í eitthvað sem er
þegar orðið klassískt. Þegar börnin
mín verða stærri og vaxinn upp úr
barnamyndum munu þau minnast á
þetta atriði eins og mín kynslóð
minnist þegar Keikó stökk yfir girð-
inguna í Free Willy. Endaatriðið í
sjöundu myndinni er ekkert minna
en epík og fær alla harðhausa til að
fá eitthvað í augun. Þvílík snilld.
F&F heiðra minningu Walker
með bravör. Þeir félagar, aka inn í
sólarlagið og rifja upp sitt hraða
ferðalag. Svo beygir Walker á með-
an Diesel-inn ekur áfram. Þvílík
sena. Einföld en áhrifamikil. Wiz
Khalifa gerði lagið See You Again
sem tilnefnt var til fjölda verðlauna
og innrammaði dramað sem fylgdi
harmdauða Walker.
Sumir fussa og sveia yfir F&F
en það geri ég ekki. Ef þú ert ekki
kominn um borð í F&F-lestina þá er
smá pláss. Hoppaðu um borð. Þar
er lífið svo sannarlega skemmti-
legt.
Blýþungur bensínfótur
í rauða botni
Stórgott Nokkrar ógleymanlegar senur hafa sést í F&F. Hér er skriðdreki að keyra yfir bíl á meðan ökumað-
urinn hoppar yfir í þann næsta. Vonandi verður eitthvað álíka í boði þegar Fast 8 kemur á næsta ári.
Friðsæld Þögnin við frostkalt Mývatn verður sennilega rofin þegar meintur
kappakstur ökuþóranna í kvikmyndatökunum hefst á frosnu vatninu.
Harðhaus Vin Diesel sem ökuþór-
inn Dom Toretto í myndunum. TRIPLE 9 8, 10:25
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 6, 8
ZOOTROPOLIS 2D 2, 3:40, 5 ÍSL.TAL
ZOOTROPOLIS 2D 5:55 ENS.TAL
DEADPOOL 8, 10:20
ZOOLANDER 2 10
ALVIN & ÍKORNARNIR 2D 1:40, 3:50 ÍSL.TAL
NONNI NORÐURSINS 2D 1:50 ÍSL.TAL
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
TILBOÐ KL 2
TILBOÐ KL 3:40
-T.V., Bíóvefurinn
–– Meira fyrir lesendur
ÍMARK DAGUR
Föstudaginn 4. mars gefur Morgunblaðið út
sérblað, tileinkað ÍMARK deginum
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA
Fyrir kl. 12, þriðjudaginn
1. mars
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Íslenski markaðsdagurinn verður
haldinn hátíðlegur með
veglegri ráðstefnu í
Háskólabíói 4. mars.