Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 49

Morgunblaðið - 27.02.2016, Síða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2016 Ljóðahópurinn Hási Kisi og gestur, eru með ljóðaupplestur í Alþýðuhúsinu á Siglufirði í kvöld kl. 20. Hási Kisi er ljóðaklúbbur sem starfað hef- ur á Fljótsdals- héraði frá árinu 2008. Meðlimir Hása Kisa eru Ásgrímur Ingi Arn- grímsson, Hrafnkell Lárusson, Ingunn Snædal og Stefán Bogi Sveinsson. Þau telja sig allt í senn aðdáendur, aðstoðarmenn og harða og miskunnarlausa gagn- rýnendur ljóðsins. Sérstakur gest- ur á upplestrinum verður Urður Snædal. Hási kisi og gestur AF KVIKMYNDUM Benedikt Bóas Hinriksson benedikt@mbl.is Fast and the Furious (F&F)gengið er á leiðinni tillandsins og sumir meiraað segja mættir til að und- irbúa tökur. Þegar þetta var til- kynnt stökk ég mína litlu hæð í loft upp enda Fast and the Furious- myndirnar ákaflega góð afþreying. Ekki hoppaði ég minna þegar til- kynnt var að myndin yrði tekin upp í minni heimasveit, Mývatnssveit. Næstum allt laust gistipláss í sveit- inni er bókað vegna komu tökuliðs- ins þangað. Það verður nefnilega að vega upp á móti ljótleikanum á Akranesi þar sem tökur eru einnig áætlaðar. Á vef Skessuhorns kemur fram að fjölmennt lið tækni- og tökufólks muni fylgja verkefninu hingað til lands og gert sé ráð fyrir að um 80 bílar auk tækja og annars búnaðar verði flutt til landsins. Samkvæmt mjög ótraustum heimildum 641.is, eins og þeir orðuðu það sjálfir, er líklegt að tekinn verði upp kapp- akstur á ís og ísinn svo sprengdur í loft upp. Hver vill ekki sjá Mývatn sprengt í loft upp? Ég sá allavega að Mývetningar voru byrjaðir að ryðja snjó af vatninu. Ég ætla að fullyrða að þetta verður svalasta ísl-enska atriði allra tíma. Þetta mun ekki verða toppað. Vin Diesel í Mývatns- sveit, jafnvel þótt það verði tekið upp með grænskjás tækninni. Það jafnast ekkert á við það. Ekki má vanmeta snilldina Margir fussa og sveia þegar minnst er á Fast and the Furious en það má ekki vanmeta snilldina sem liggur að baki þessara mynda. F&F er frábær kvikmyndasería sem allir aðdáendur góðra hasarmynda ættu að vera löngu búnir að sjá. Myndin sem verður tekin upp hér á landi verður sú áttunda í röðinni en sú sjö- unda halaði inn 1,5 milljörðum doll- ara í miðasölu um allan heim sem kemur henni á topp tíu listann yfir mest sóttu kvikmyndir allra tíma. Merkilega litlar upplýsingar er að finna um Fast 8 en harðhausinn Vin Diesel hefur staðfest að mynd- irnar verði hið minnsta tíu. Það finnst mér frábærar fréttir. Þessi á að vera frumsýnd í apríl á næsta ári, Fast 9 verður frumsýnd í apríl 2019 og Fast 10 kemur 2021. Vitað er að Vin Diesel, Jason Statham, Michelle Rodriguez, Tyrese Gibson og sjálfur Dwayne Johnson, betur þekktur sem The Rock munu snúa aftur í átt- unda meistaraverkið. Þá er jafnvel talað um að Charlize Theron verði vonda konan. Helen Mirren hefur einnig verið orðuð við hlutverk en annað er á huldu. Æsispenna á hraðbrautum The Fast and the Furious birtist fyrst á hvíta tjaldinu árið 2001. Strax var ljóst að bílaáhugamenn og aðrir áhugamenn um frekar stórbrotna at- burðarás væru að fá helling fyrir peninginn. Þar var Dominic Toretto kynntur til leiks sem Vin Diesel leik- ur svo afbragðsvel. Merkilegt að kvikmyndaakademían hafi ekki verðlaunað hann fyrir sína frammi- stöðu. Kannski af því að hann er ekki alveg nógu hvítur á hörund. Mynd númer eitt sló í gegn og þykir nokkuð góð. Hún eldist fjandi vel. Æsilegir eltingaleikir, hraði og spenna. Það er uppskrift sem getur ekki klikkað. En framleiðendurnir gerðu mistök og drifu í mynd númer 2. Sú er slök, jafnvel þótt Eva Men- des sé í henni. Tokyo Drift var sú þriðja. Var svona allt í lagi mynd, ekkert sérstök. Sú fjórða gaf allt í botn á ný og bensínfóturinn hefur verið djöfulli þungur síðan. Það er ekki mikið um hægar senur í F&F. Sú fimmta, sjötta og svo loks sjöunda eru allar stórkostlegar þar sem bílarnir og atburðarásin er í fimmta og jafnvel sjötta gír. Stundum meira að segja með nítrói. Það er allt á fullu. Loks þegar hægt er að draga andann renna glæsilegar setningar inn í handritin. F&F hefur þannig hermt eftir kónginum Sly Stallone og auk- ið vægi góðra atriða með frábærum hnyttnum tilsvörum. „I live my life a quarter mile at a time. Nothing else matters: not the mortgage, not the store, not my team and all their bullshit. For those ten seconds or less, I’m free,“ sagði Vin Diesel eitt sinn þegar hann var að útskýra hvað það væri við að spyrna við annan bíl. „Ask any racer. Any real ra- cer. It don’t matter if you win by an inch or a mile. Winning’s winning,“ sagði hann sömuleiðis með sinni brakandi röddu. Þetta þarf ekkert að útskýra. Þeir sem hafa verið í sigurliði þekkja þetta. Harmdauði Walker Ekki er hægt að skrifa um F&F- gengið án þess að minnast Paul Wal- ker sem lék hinn myndarlega Brian O’Conner. Walker lést árið 2013 og var tökum á sjöundu myndinni að ljúka. Auðvitað fór Hollywood á hliðina og handritshöfundarnir breyttu endinum í eitthvað sem er þegar orðið klassískt. Þegar börnin mín verða stærri og vaxinn upp úr barnamyndum munu þau minnast á þetta atriði eins og mín kynslóð minnist þegar Keikó stökk yfir girð- inguna í Free Willy. Endaatriðið í sjöundu myndinni er ekkert minna en epík og fær alla harðhausa til að fá eitthvað í augun. Þvílík snilld. F&F heiðra minningu Walker með bravör. Þeir félagar, aka inn í sólarlagið og rifja upp sitt hraða ferðalag. Svo beygir Walker á með- an Diesel-inn ekur áfram. Þvílík sena. Einföld en áhrifamikil. Wiz Khalifa gerði lagið See You Again sem tilnefnt var til fjölda verðlauna og innrammaði dramað sem fylgdi harmdauða Walker. Sumir fussa og sveia yfir F&F en það geri ég ekki. Ef þú ert ekki kominn um borð í F&F-lestina þá er smá pláss. Hoppaðu um borð. Þar er lífið svo sannarlega skemmti- legt. Blýþungur bensínfótur í rauða botni Stórgott Nokkrar ógleymanlegar senur hafa sést í F&F. Hér er skriðdreki að keyra yfir bíl á meðan ökumað- urinn hoppar yfir í þann næsta. Vonandi verður eitthvað álíka í boði þegar Fast 8 kemur á næsta ári. Friðsæld Þögnin við frostkalt Mývatn verður sennilega rofin þegar meintur kappakstur ökuþóranna í kvikmyndatökunum hefst á frosnu vatninu. Harðhaus Vin Diesel sem ökuþór- inn Dom Toretto í myndunum. TRIPLE 9 8, 10:25 FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 6, 8 ZOOTROPOLIS 2D 2, 3:40, 5 ÍSL.TAL ZOOTROPOLIS 2D 5:55 ENS.TAL DEADPOOL 8, 10:20 ZOOLANDER 2 10 ALVIN & ÍKORNARNIR 2D 1:40, 3:50 ÍSL.TAL NONNI NORÐURSINS 2D 1:50 ÍSL.TAL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 2 TILBOÐ KL 3:40 -T.V., Bíóvefurinn –– Meira fyrir lesendur ÍMARK DAGUR Föstudaginn 4. mars gefur Morgunblaðið út sérblað, tileinkað ÍMARK deginum PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA Fyrir kl. 12, þriðjudaginn 1. mars NÁNARI UPPLÝSINGAR Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Íslenski markaðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur með veglegri ráðstefnu í Háskólabíói 4. mars.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.