Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 52

Morgunblaðið - 27.02.2016, Side 52
til voru á tímabilinu. Verkið tók alls um 6-700 vinnustundir og er búning- urinn metinn á um sjö milljónir. „Hún var verslunarkona og hafði því sérstaklega góðan aðgang að inn- fluttu efni, eða innfluttu fíneríi eins og ég kalla það,“ segir Hildur létt í bragði, en því hafi skreytingarnar á búningi hennar ekki verið á allra færi á þessum tíma. Síðasta verkið við gerð búningsins var að búa til höfuðbúnaðinn. „Ég hugsaði mikið um hann og fékk ýms- ar hugmyndir,“ segir Hildur, en höfuðbúnaður faldbúningsins hafi þróast í samræmi við tískustrauma yfir 400 ára tímabil. Ekki fannst skýr lýsing á höfuðbúnaði Rannveigar en Hildur er afar ánægð með afrakstur- inn. LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 58. DAGUR ÁRSINS 2016 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Sex í mikilli hættu í Reynisfjöru 2. Draga sig úr Söngkeppni … 3. Hlín Einarsdóttir ráðin … 4. Ekki hikað við að sofa hjá …  Erna Ómarsdóttir og Valdimar Jó- hannsson verða í hlutverki gestaleið- beinenda á tilraunanámskeiði í tón- listarsköpun fyrir krakka í Mengi í fyrramálið milli kl. 10.30 og 11.30. Benedikt Hermann Hermannsson leiðir námskeiðið, sem er opið öllum krökkum á aldrinum 4-6 ára og þeim fullorðnu sem fylgja þeim. Morgunblaðið/Eggert Erna og Valdimar kenna í Krakkamengi  Ráfandi skrúð- ganga nefnist sýn- ing svissnesku listakonunnar Noemi Nieder- hauser sem opnuð verður í Listasafn- inu á Akureyri, Vestursal, í dag kl. 15. Samkvæmt upplýsingum frá safn- inu er sýningin sviðsetning á lát- bragði, hreyfingum og gjörðum þar sem merking og áhersla er sífellt fjarlægð. Sýningin stendur til 13. mars og er opin þriðjudaga til sunnu- daga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis. Noemi Niederhauser sýnir í Vestursal  W.A. Mozart – 260 ára er yfirskrift tónleika sem fram fara í Bústaða- kirkju á morgun kl. 17. Þar verða fluttar valdar perlur eftir tónskáldið. Flytjendur eru Kór Bústaðakirkju, Antonia Hevesí á píanó og Matthías Stefánsson á fiðlu. Félagar úr Frímúrarakórnum munu syngja verk Mozarts sem hann tileinkaði Reglunni. Einsöngvarar koma úr Kór Bústaðakirkju. Stjórnandi kóranna tveggja er Jónas Þórir, kantor kirkjunnar. Flytja verk eftir Moz- art í Bústaðakirkju Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Það er frábær tilfinning að fá að klæða hana í búning sem hæfir stétt hennar og stöðu,“ segir Guðrún Hild- ur Rosenkjær, klæðskeri og kjóla- meistari, en hún hafði frumkvæði að því ásamt eiginmanni sínum, Ás- mundi Kristjánssyni gullsmið, að hanna og sauma íslenskan faldbún- ing á gínu Rannveigar Sívertsen sem finna má á Byggðasafni Hafnarfjarð- arbæjar í Sívertsenshúsinu. Áður var hún íklædd grænum kjól sem var danskur að uppruna. „Það truflaði mig alltaf svolítið, þar sem hún hefði átt að klæðast há- tísku íslenskum búningi eins og stall- systur hennar á þessum tíma,“ bætir Hildur við, en hún hefur starfað við þjóðbúningagerð, kennslu og rann- sóknir í rúm tuttugu ár. Rekur hún ásamt eiginmanni sínum Annríki – þjóðbúningar og skart en þau hafa unnið að gerð búningsins síðustu tvö ár ásamt góðum liðsauka. Búningurinn var afhentur Hafnar- fjarðarbæ í Sívertsenshúsinu í gær- kvöldi og því öllum frjálst að kíkja þar við og kynna sér sögu Rann- veigar, „móður Hafnarfjarðar- bæjar“. Ekki eitt saumavélarspor Hjónin Hildur og Ásmundur hóf- ust handa við verkið fyrir rúmum tveimur árum. Leitaði Hildur víða eftir samstarfi og stofnaði svo hópinn Faldafreyjur, sem taldi átta konur víðs vegar að sem voru tilbúnar að gefa tíma sinn til að skapa faldbún- ing, sæmandi Rannveigu Sívertsen. Búningurinn er unninn eftir lýs- ingum á faldbúningi í eigu Rann- veigar sem finna mátti í dánarbúi hennar. „Við ákváðum strax í upphafi að vinna búninginn eins og gert var á þessum tíma, í kringum aldamótin 1800. Hann er því alveg handunninn – ekki eitt saumavélarspor,“ segir Hildur, en aðeins voru notuð efni sem Móðir Hafnarfjarðar rétt klædd  Faldbúningur Rannveigar Sí- vertsen afhentur Ljósmynd/Björn Pétursson Sívertsen Unnið hefur verið í tvö ár að gerð faldbúnings sem samræmist lýsingum í dánarbúi Rannveigar Sívert- sen. Búningurinn var afhentur Byggðasafni Hafnarfjarðar í gær og verður framvegis til sýnis í Sívertsenshúsinu. FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Þykknar upp með vaxandi suðaustanátt suðvestanlands í kvöld. Víða frostlaust um landið sunnanvert þegar líður á daginn. Á sunnudag Gengur í suðaustanhvassviðri eða storm, fyrst suðvestantil upp úr hádegi með snjókomu og síðar slyddu eða rigningu. Lengst af hægari vindur og úrkomulítið norðaustantil. Hlýnandi veður. Á mánudag Stíf suðvestanátt með éljum en léttir til um landið norðaustanvert. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, hefur tröllatrú á hinum nýja forseta FIFA, Gianni Infantino, sem kosinn var í Sviss í gær. Rætt er við Geir í Morgunblaðinu í dag og segir for- maður KSÍ að Infantino sé afar vel liðinn í knattspyrnuhreyfinunni eftir störf sín fyrir UEFA. Hann sé klókur og útsjónarsamur og að auki mikill framkvæmdamaður. »1 Geir Þorsteins hefur tröllatrú á Infantino Valur og Grótta munu leika til úrslita um bikarmeist- aratitil karla í handknattleik í Laugardalshöll klukkan 16 í dag. Valur vann Íslands- meistara Hauka 24:22 þrátt fyrir að Haukar hafi haft gott tak á Valsmönnum á síðustu árum. Grótta, sem er nýliði í efstu deild, vann 1. deildarlið Stjörnunnar 28:25 í seinni leik gærdags- ins. »2,3 Valur og Grótta mætast í úrslitum Verður bikarúrslitaleikur kvenna í handbolta í dag einvígi milli mark- varðanna snjöllu, Írisar Bjarkar Sím- onardóttur úr Gróttu og Florentinu Stanciu úr Stjörnunni? Rakel Dögg Bragadóttir, sam- herji Florentinu, segir ekkert undarlegt að fólk velti þessu fyrir sér, en rætt er við Rakel og Ír- isi í íþrótta- blaðinu í dag. Kvennaleikur Gróttu og Stjörnunnar hefst kl. 13.30 í Laug- ardalshöll. »4 Einvígi markvarðanna í bikarúrslitunum í dag? Saga Rannveigar Sívertsen er um margt merkileg. Hún var upphaflega gift Jóni Halldórssyni, lögréttumanni í Nesi, en Bjarni Sívertsen, sem síðar varð seinni maður hennar, hóf störf hjá þeim sem vinnumaður. Eftir andlát Jóns rak Bjarni bú þeirra en þau giftust skömmu síðar. Um nítján ára aldursmunur var þá á þeim hjónum. Bjarni söðlaði um og gerðist kaupmaður eftir að einok- unarverslun Dana létti hér á landi. Umsvif þeirra hjóna juk- ust jafnt og þétt í Hafnarfirði og var hann snemma á nítjándu öld kominn með yfirráð yfir stærstum hluta lands í firðinum. Fljót- lega hóf hann einnig þilskipaútgerð frá Hafnarfirði. Hjónin eru oftar en ekki kölluð „móðir“ og „faðir“ Hafnafjarðar. 272 ár eru frá fæðingu Rannveigar. Mikil umsvif í Hafnarfirði HJÓNIN RANNVEIG OG BJARNI SÍVERTSEN Rannveig Sívertsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.