Morgunblaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016
Kattavinafélag Íslands átti af-mæli í gær. Félagið var stofn-
að 28. febrúar 1976.
Enginn félagsskapur á það frek-ar skilið að malað sé undir
hann en Kattavinafélagið, sem
fagnar nú 40 ára afmæli.
Þegar einn úr samfélaginu semþetta góða félag stendur vörð
um átti afmæli forðum hugsaði vin-
ur hans, skáldið Jón Helgason, til
hans og verður ekki betur gert.
Þetta er niðurlagið:
Mjúkur, með kirfileg kampahár,
kemurðu að dyrum í morgunsár,
upp þig úr munnvatni allan þværð,
augunum lygnir í sæld og værð,
Ólundin margsinnis úr mér rauk
er ég um kverk þér og vanga strauk,
ekki er mér kunnugt um annað tal
álíka sefandi og kattarmal.
Trýnið þitt starfar og titrar kvikt,
tekst því að skynja svo marga lykt,
þar sem mér ekki með allt mitt nef
unnt er að greina hinn minnsta þef.
Bugðast af listfengi loðið skott,
lyftist með tign er þú gengur brott;
aldrei fær mannkindin aftanverð
á við þig jafnast að sundurgerð.“
Auma mannkindin
aftanverð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 rigning
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri -7 skýjað
Nuuk 5 skúrir
Þórshöfn 4 alskýjað
Ósló 3 heiðskírt
Kaupmannahöfn -1 alskýjað
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 1 léttskýjað
Lúxemborg 4 skýjað
Brussel 5 heiðskírt
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 heiðskírt
London 7 léttskýjað
París 6 heiðskírt
Amsterdam 6 léttskýjað
Hamborg 5 skýjað
Berlín 6 heiðskírt
Vín 9 alskýjað
Moskva 0 heiðskírt
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 15 þrumuveður
Aþena 15 léttskýjað
Winnipeg -13 skýjað
Montreal -7 snjókoma
New York 9 heiðskírt
Chicago 13 skýjað
Orlando 17 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:37 18:44
ÍSAFJÖRÐUR 8:47 18:44
SIGLUFJÖRÐUR 8:31 18:26
DJÚPIVOGUR 8:08 18:12
CURCUMIN
Gullkryddið
Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður,
Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla.
Steinunn Kristjánsdóttir er sjúkraliði að mennt og
starfar í Blue Lagoon versluninni á Laugavegi. Hún
hefur átt við mikla verki að stríða um allann líkama í
yfir 25 ár eftir að hún lenti í slæmu bílslysi og er komin
með liðagigt.
„Ég er búin að taka inn minn skammt af verkjalyfjum
og var alveg að gefast upp á þeim. Nuddkonan mín
sagði mér þá frá Curcumin sem hefur í sannleika
sagt gefið mér nýtt líf. Ég var búin að taka inn Curcumin í einn og hálfan
mánuð þegar égmissti út fjóra daga og það var þá sem ég uppgötvaði að
Curcumin er það sem hjálpar mér að losna við alla verki.”
LIÐIR – BÓLGUR – GIGT
balsam.is
Bætt heilsa og betri líðan með
Natural Health Labs
100% náttúruleg bætiefni
Sigurður Lofts-
son gefur ekki
kost á sér til
áframhaldandi
formennsku í
Landssambandi
kúabænda, sem
heldur aðalfund
sinn í lok mars.
Embættinu hefur
hann gegnt frá
árinu 2009. Alls eru fjórtán ár síðan
Sigurður, sem er bóndi í Steinsholti
í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, var
fyrst kjörinn í stjórn sambandsins. Í
leiðara á vefnum naut.is segir Sig-
urður mikilvægt að nýr búvöru-
samningur styrki stöðu landbún-
aðar. Það sé helsti áhrifavaldur
þess að greinin fái sóknarfæri til
vaxtar og bændur möguleika til
kjarabóta. sbs@mbl.is
Sigurður hættir sem
formaður kúabænda
Sigurður Loftsson
Ríkissáttasemjari hefur boðað til nýs
fundar í kjaradeilu starfsmanna ál-
vers Rio Tinto Alcan í Straumsvík og
vinnuveitenda þeirra síðdegis í dag.
„Við funduðum fyrir helgina, þar sem
fulltrúar álversins spurðu hvernig við
hygðumst nálgast deiluefnin á næst-
unni. Umboð viðsemjenda okkar hef-
ur síðustu vikur verið hjá aðal-
forstjóra samsteypunnar sem situr í
París. Það er spurning hvort eitthvað
nýtt sé í spilunum nú,“ sagði Gylfi
Ingvarsson, talsmaður álversmanna,
í samtali við Morgunblaðið. Í dag
kemur skip til Straumsvíkur með
hráefni til álversins og til að flytja út
afurðir. Gylfi segir að að óbreyttu
verði afgreiðsla skipsins stöðvuð, líkt
og gerðist í síðustu viku þegar stjórn-
endur álverksmiðjunnar ætluðu
ganga í störf hafnarverkamanna en
það var stöðvað.
Bryndís Hlöðversdóttir rík-
issáttasemjari segir að eins og staðan
er sé ekkert „algjörlega nýtt“ á borð-
um sem leitt geti til lausnar í álvers-
deilunni. Hins vegar hafi sér þótt rétt
að boða til fundar. „Auðvitað eru allt-
af sameiginlegir snertifletir deilu-
aðila í svona málum. Svo er annað
mál hvort slíkt geti leitt til samninga.
Fundurinn í dag er fyrst og fremst
áframhaldandi samtal og leit að
lausnum, öðruvísi verður þessi deila
ekki leyst, “ sagði Bryndís.
sbs@mbl.is
Ekkert nýtt en alltaf eru snertifletir
Fundað í álversdeilu í dag Skipaafgreiðsla aftur stöðvuð Leita að lausnum
Morgunblaðið/Ómar
Straumsvík Deila í hörðum hnút.
Lögreglu var í gær tilkynnt um
þjófnað í verslun í Reykjavík og að
gerendurnir, tvær stúlkur, hefðu
farið á brott í bifreið. Samkvæmt
upplýsingum úr dagbók lögreglu
náðust þær skömmu síðar og voru
færðar í fangageymslu þar til
skýrsla verður tekin af þeim.
Einnig var tilkynnt um þjófnað á
hóteli í borginni. Ferðamaður sá
þar mann fara inn í herbergi sitt og
taka þaðan fjármuni. Elti hann
þjófinn, en rétt missti af honum.
Tvær stúlkur hand-
teknar fyrir þjófnað