Morgunblaðið - 29.02.2016, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016
Ragnheiður Hildigerður Hannesdóttir, frá Litla-Vatnshorni íHaukadal í Dalasýslu, er elsta hlaupársbarn landsins, 92 ára,en hún heldur upp á 23. afmælisdag sinn í dag. Hún heitir eft-
ir afmælisdeginum sem í Almanaki Þjóðvinafélagsins nefnist Hildi-
gerður. „Móðir mín hélt sig alltaf við þetta nafn,“ segir Ragnheiður,
„en ég nota það ekki mikið þótt það sé fallegt.“
Ragnheiður segist yfirleitt hafa gert sér dagamun 28. febrúar ef
ekki var hlaupár. „Þegar ég var lítil fannst mér svolítið leiðinlegt að
eiga afmæli svona sjaldan. Bræður mínir kvöldu mig á því og sögðu að
ég ætti ekki afmæli nema fjórða hvert ár.“
Maður Ragnheiðar er Víglundur Sigurjónsson og áttu þau 65 ára
brúðkaupsafmæli 4. nóvember sl. Þau búa á Sléttuvegi 21 í Reykjavík.
Þau eiga þrjú börn, Trausta, sem er kvæntur Kristínu Bertu Harðar-
dóttur, Stefaníu, sem er gift Heiðari Gíslasyni, og Ásgeir Sævar.
Ragnheiður og Víglundur eiga fjögur barnabörn og átta barna-
barnabörn. „Ég er orðin langalangamma,“ segir hún, en fyrir rúmri
viku bættist við barnabarnabarnabarn. „Það verður ekki annað sagt
en að ég sé rík kona.“
Fjölskyldan kom saman til að fagna ættmóðurinni í íbúð hennar í
gær. „Ég er enn með réttu ráði, held ég, en heilsan er farin að gefa sig
og ég treysti mér ekki til að taka sal, ég er lögblind orðin og hef tapað
göngufærninni.“
92 ára Ragnheiður ásamt fyrsta langalangömmubarni sínu.
Er elsta hlaupárs-
barn landsins
Ragnheiður H. Hannesdóttir er 92 ára í dag
K
arl Jónsson er fæddur í
Reykjavík 29. febrúar
1956. Hann ólst upp að
stórum hluta á Rauða-
læknum, byrjaði í
Vogaskóla en fór síðan í Lauga-
lækjarskóla. „Þess má til gamans
geta að við vorum þrír í sama bekk
sem áttum allir afmæli 29. febrúar.
Við héldum spilaklúbb saman við
fjórða mann.
Ég var mörg sumur hjá ömmu og
afa í Vestmannaeyjum á svokölluðum
Kirkjubæjum, austast í eyjunni, og
þar var eins og maður væri í sveit en
þetta fór allt undir hraun í gosinu.“
Nám og störf
Karl fór í verslunarskóla til Finn-
lands einn vetur eftir grunnskólanám
en lærði síðan kjötiðn og starfaði í
kjötverslunum í nokkur ár þar til
Karl Jónsson, framkvæmdastjóri Málningarvara – 60 ára
Fjölskyldan Karl og Guðrún ásamt börnum og barnabörnum á heimili þeirra í Hafnarfirði.
Þrír í sama bekknum
áttu afmæli 29. febrúar
Í Stykkishólmi Hjónin ásamt tvíburunum Guðrúnu Maríu og Heiðrúnu Rós.
Stykkishólmur Dúna
María Kúld Viktorsdóttir
fæddist 28. mars 2015 í
Reykjavík og vó 3.234 g.
Foreldrar hennar eru
Viktor Árni Bjarnason og
Sigríður Sóley Þor-
steinsdóttir.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
INTERFLON
Matvælavottaðar efnavörur
Nýjar umbúðir, sömu gæða efnin