Morgunblaðið - 29.02.2016, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Stelpurnar eru þónokkrirlestrarhestar og við foreldr-arnir lesum líka fyrir þær áhverju kvöldi,“ segir Mó-
heiður Geirlaugsdóttir þar sem hún
skoðar, spáir og spekúlerar í bók-
unum ásamt dætrum sínum, Ísold 11
ára og Karólínu 9 ára.
Móheiður segir þær hafa nýlega
tekið þátt í átakinu Allir lesa og Kar-
ólína er fljót að bæta við: „Við skráð-
um niður í hversu margar mínútur
við lásum á dag. Ég held ég hafi lesið í
meira en þrjúhundruð mínútur.“
Þær mæðgur byrja í barnadeild-
inni og eru fljótar að reka augun í
þýddar barnabækur eftir David
Walliams, sem er breskur höfundur,
en fjölskyldan er tiltölulega nýflutt
aftur heim til Íslands eftir að hafa bú-
ið í Skotlandi í þrjú ár.
Karólína velur sér eina bók eftir
þann skoska, sem heitir Amma glæp-
on. „Pabbi hefur verið að lesa fyrir
mig bækur eftir hann og þær eru
mjög skemmtilegar.“ Og Ísold velur
sér líka eina eftir hann, sú heitir
Grimmi Tannlæknirinn.
Þær taka allar þrjár andköf þeg-
ar þær sjá bækur um Tracy Beaker,
en þær þekkja þá stelpu úr sjón-
varpsþáttum í Skotlandi.
„Mamma elskar þessa þætti.
Þetta er um stelpu sem er á töku-
heimili og hún er alltaf að öskra,“ seg-
ir Ísold og rekur upp nokkuð reiðilegt
óp máli sínu til stuðnings. „Tracy
Beaker er alltaf að tala um mömmu
sína og segja að hún sé leikkona í
Hollywood en enginn trúir henni.
Samt er það satt.“
Vel læsar og talandi á ensku
Systurnar eiga greinilega mikið
af bókum því þær eru sífellt að benda
Mæðgur skreppa
saman á bókamarkað
Þær Ísold og Karólína Arnarsdætur fóru í vetrarfríinu sínu með mömmu sinni,
Móheiði Geirlaugsdóttur, á bókamarkaðinn í Laugardalnum og sóttu sér lesefni.
Mæðgurnar hafa allar mikið yndi af því að lesa en áhugasviðin eru ólík.
Grúsk Móheiður með bunkann sinn við ljóðabókaborðið og dætur að baki.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gaman Ísold og Karólínu finnst skemmtilegt að skoða allskonar bækur.
Ævar Þór Benediktsson, leikari og
rithöfundur, sem margir þekkja sem
Ævar vísindamann, fjallar um lestr-
aruppeldi barna kl. 17.15 til 18 í dag í
Borgarbókasafninu í Spönginni. Er-
indið, Að lesa eða ekki lesa – þarna
er efinn, er í fyrirlestraröðinni Í leið-
inni sem safnið stendur fyrir síðasta
mánudag hvers mánaðar.
Ævar Þór hefur verið athafnamikill
á sviði barnamenningar og unnið
með margvíslegum hætti að því að
hvetja börn til lesturs. Í erindi sínu
mun hann m.a. fjalla um lestur, bæk-
ur fyrir börn og reynslu sjálfs sín af
lestrarhvatningu. Um þessar mundir
stendur hann í annað skipti fyrir um-
fangsmiklu lestrarátaki fyrir grunn-
skólabörn. Fimm verðlaunahöfum úr
átakinu hlotnast sá heiður að verða
persónur í nýrri bók Ævars sem kem-
ur út með vorinu. Aðgangur ókeypis
og allir velkomnir!
Vefsíðan www.borgarbokasafn.is
Morgunblaðið/Eggert
Leikari og rithöfundur Ævar Þór er athafnamikill á sviði barnamenningar.
Að lesa eða ekki lesa í leiðinni
Nú þegar hitastigið úti er farið að
hækka og snjórinn bráðnar meira og
meira dag frá degi (í það minnsta fyr-
ir sunnan) er engu líkara en blessað
vorið sé handan við hornið. Og hvað
er þá betra fyrir andann og skrokkinn
en að bregða sér út úr húsi og draga
djúpt ofan í lungu súrefnið og loftið
hreina? Útivera er mannbætandi og
innipúkar ættu að skottast út í þetta
dásemdarveður, hvar sem þeir eru
staddir á landinu. Ekki er nú síður
gaman að viðra sig úti í frosti og
hressandi kulda; það eina sem þarf
að hafa í huga er að klæða sig sam-
kvæmt veðri. Koma svo!
Endilega …
…andið að
ykkur súrefni
Morgunblaðið/Ómar
Útivera Hún bætir, hressir og kætir.
Sigurður Ben Jóhannsson opnaði í
morgun sýningu á 24 splunkunýj-
um olíumálverkum á 2. hæð í Do-
mus Medica. Fyrir helgina hafði
hann tekið niður önnur sem voru til
sýnis í Geysi Bistro í þrjá mánuði.
Nóg að gera hjá eldri borgurum, að
minnsta kosti sumum.
Verk eftir Sigurð prýða heimili
allmargra landsmanna, hann hefur
haldið nokkrar einkasýningar und-
anfarin ár og er býsna afkastamik-
ill málari. Á sínum yngri árum bæði
teiknaði hann og málaði í tóm-
stundum sínum og hugur hans stóð
til myndlistarnáms. Þó fór svo að
hann lærði rafvirkjun og starfaði
lungann af starfsævinni sem fram-
kvæmdastjóri hótelreksturs hjá
varnarliðinu á Miðnesheiði.
„Heima á Ísafirði þótti ekki
praktískt að vera listamaður þegar
ég var að alast upp,“ útskýrir hann.
Löngu áður en Sigurður var í
rauninni tilbúinn til að láta af störf-
um og setjast í helgan stein, full-
frískur og aðeins 65 ára, fór herinn
og þar með fauk starfið. Samhliða
vinnu hafði hann haldið áfram fyrri
iðju og dundað sér við að teikna og
Málverkasýning Sigurðar Ben Jóhannssonar í Domus Medica
Skemmtilegast að mála gömul
hús, abstrakt og fígúratíft
Morgunblaðið/Kristinn
Í vinnustofunni Sigurður Ben Jóhannsson við eldhúsborðið heima hjá sér.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.