Morgunblaðið - 29.02.2016, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 29.02.2016, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016 Hraunbergi 4, 111 Reykjavík, sími 530 9500 • Frí heimsending lyfja • Góð kjör fyrir eldri borgara og öryrkja • Gerðu verðsamanburð • Mówimy po polsku góð þjónusta ogPersónuleg Opið alla virka daga kl. 8:30-18:00 Heilbrigð skynsemi Heilsugæsla efra Breiðholts Gerðuberg Lyf á lægra verði ● Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að leggja 18 milljóna króna stjórnvaldssekt á Almenna lífeyrissjóðinn vegna brots á lögum um verðbréfaviðskipti. Fjármála- eftirlitið segir lífeyrissjóðinn hafa búið yf- ir innherjaupplýsingum þegar hann í marsmánuði 2015 keypti skuldabréf út- gefin af HS Veitum. Við ákvörðun sektarinnar var m.a. tek- ið tillit til þess að hagnaður af viðskipt- unum var óverulegur. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent frá sér athugasemd þar sem ákvörðun FME er mótmælt. Í tilkynningu sjóðsins segir að farið verði nánar yfir niðurstöðu FME og viðbrögð sjóðsins við henni. Almenni lífeyrissjóð- urinn sektaður ● Neteftirlit kínverskra stjórnvalda hef- ur lokað fyrir aðgang auðjöfursins Ren Zhiqiang að samskiptavefnum Weibo, sem oft er kallaður kínverski Twitter. Ren hefur fengið viðurnefnið „Fall- byssan“ en hann þykir gjarn á að skjóta föstum skotum á stjórnvöld og tala tæpitungulaust. Ren auðgaðist af fast- eignaviðskiptum og hefur það, auk skoðanagleðinnar, orðið til þess að hon- um er gjarnan líkt við hinn bandaríska Donald Trump. Ren hafði um 38 milljón fylgjendur á Weibo. Í yfirlýsingu kínverskra stjórn- valda segir að lokunin stafi af því að Ren hafi dreift „ólöglegum upplýs- ingum sem hafi haft neikvæð áhrif“. Þagga niður í „Kínverska Trump“ STUTTAR FRÉTTIR ... Bill Gates, annar stofnenda Micro- soft, varar við því að verðmat eftir- sóttustu sprotafyrirtækjanna kunni að vera uppblásið. Fjöldi efnilegra sprotafyrirtækja hefur sprottið upp í Kísildal á síðustu árum og reiknast Financial Times til að um 150 fyr- irtæki tilheyri hópi svokallaðra „ein- hyrninga“; ungra undrafyrirtækja sem sem eru verðmetin á yfir einn milljarð dala. Gates segir allar líkur á að verðmat þessara fyrirtækja muni lækka frekar en hækka á næstu tveimur árum. „Það er ákveðin upp- stokkun að eiga sér stað,“ segir hann í viðtali við FT, „[Fjárfestingar í sprotum] ættu ekki að snúast um að loka augunum, og segja sem svo: „Þetta er tæknifyrirtæki – hendum í það peningum“. Sú nálgun hefur virkað í um tvö ár en nú þarf að opna augun og gaumgæfa fyrirtækin.“ Verðmat sprotafyrirtækja hefur verið til umræðu upp á síðkastið, m.a. vegna vonbrigða með hlutafjár- útboð sprota eins og greiðslumiðl- unarinnar Square og gagnageymsl- unnar Box. Bjartsýnn til lengri tíma litið „Ef ég fengi í hendurnar körfu af einhyrningum myndi ég ekki vita, þessa stundina, hvort ég ætti að taka skortstöðu eða gnóttstöðu í þeim,“ segir Gates. Hann kveðst mögulega myndu taka skortstöðu til tveggja ára en ekki til lengri tíma enda myndi það vera ávísun á mikið tap ef aðeins eitt sprotafyrirtækjanna í körfunni nær að vaxa af svo miklum krafti að það myndi lenda í hópi verðmætustu fyrirtækja. Bendir Gates þó á að þrátt fyrir skiptar skoðanir um verðmat og óvissu um frammistöðu sprotafyr- irtækja séu sprotar áhugaverður fjárfestingarkostur á tímum lágra stýrivaxta. Tilefnið fyrir ummælum Gates var að hann hyggst, í félagi við aðra milljarðamæringa, fjárfesta í fjölda sprotafyrirtækja í orkugeira. Fjár- festingarnar tengjast loftslags- ráðstefnunni í París og miða meðal annars að því að stemma stigu við loftslagsbreytingum. ai@mbl.is Væntir uppstokkunar hjá „einhyrningum“ Reuters Bóla? Bill Gates segir ekki hafa verið vandað nægilega til við fjárfestingar í sprotum. Fjárfestar hafi „hent peningum“ í sprotana. Mynd úr safni.  Segir fjárfesta hafa verið of ákafa FRÉTTASKÝRING Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Warren Buffett sendi á föstudag frá sér árlegt bréf sitt til hluthafa Berkshire Hathaway. Að vanda voru margir spenntir að sjá hvað „véfrétt- in frá Omaha“ hefði að segja um rekstur Berkshire og horfurnar á mörkuðum almennt. Jákvæður tónn er í Buffett að þessu sinni, og það þrátt fyrir að hlutabréfaverð Berkshire hafi lækk- að um 12% á síðasta ári, en eiginfjár- staða fyrirtækisins batnaði á sama tíma um 15,4 milljarða dala. Hagn- aður jókst á milli ára úr tæplega 19,9 dölum á hlut upp í rétt rúmlega 24 dali á hlut. Eignast meira í „fjórum stóru“ MarketWatch greinir frá því að frammistaða sumra stærstu fjárfest- inga Berkshire hafi ekki staðist væntingar en engu að síður jók fé- lagið hlut sinn í „fjórum stóru“, fyr- irtækjunum sem mynda kjarnann í eignasafninu: American Express, Coca Cola, IBM og Wells Fargo. Í bréfinu lýsir Buffett meðal ann- ars ánægju sinni með að stærsta rekstrareining Berkshire, lesta- fyrirtækið BNSF, hafi stórbætt þjónustu sína og haldið flutnings- magni uppi á sama tíma og sam- dráttur hefur verið í vöru- og hráefn- isflutningum í lestageiranum í heild sinni. Fjárfestirinn bindur líka mikl- ar vonir við Precision Castparts, sem Berkshire eignaðist í janúar og greiddi 32 milljarða dala fyrir. Tvær síður í 30 síðna bréfinu fjalla um Clayton Homes, fyrirtæki í eigu Berkshire sem bæði selur forsmíðuð og færanleg hús og býður upp á fjár- mögnun fyrir kaupunum. Hefur fyr- irtækið verið sakað um óheiðarlega viðskipahætti. Buffett segir við- skiptavinum Clayton gert það ljóst, á mjög skýru máli, að þeim standi aðr- ar fjármögnunarleiðir til boða. Hafa stjórnvöld skoðað starfsemina ítrek- að á undanförnum tveimur árum og aðeins leitt til minniháttar sekta. Bjartsýnn á framtíðina Buffett er þekktur fyrir að hugsa langt í fjárfestingum sínum og gerir hann neikvæðnina í bandarísku stjórnmálaumræðunni að umtalsefni sínu. Segir hann kolrangt að sú kyn- slóð sem nú er að vaxa úr grasi geti orðið sú fyrsta til að hafa það verra en kynslóðin sem kom á undan. „Börn sem koma í heiminn í Banda- ríkjunum í dag eru lánsamasti ár- gangur sögunnar,“ segir hann og kveðst þess fullviss að landsfram- leiðsla muni halda áfram að aukast jafnt og þétt. Hafa margir áhyggjur af að hagvöxtur verði ekki nema í kringum 2% um fyrirsjáanlega fram- tíð. Segir Buffett að þótt gaman væri ef hagvöxtur væri meiri skili 2% vöxtur „undraverðum“ framförum þegar til lengri tíma sé litið. Reiknar Buffett út að með tilliti til fólksfjölgunar muni hagvöxtur upp á aðeins 2% skila dæmigerðri fjögurra manna fjölskyldu jafnvirði 76.000 dala aukningar í árstekjum að ald- arfjórðungi liðnum. „Ekkert jafnast á við markaðs- hagkerfið þegar kemur að því að framleiða það sem fólk langar í, og það sem meira er; að framleiða það sem fólk veit ekki enn að það langar að eignast,“ segir milljarðamæring- urinn og minnir á að þegar hann var á fimmtugsaldri hafi t.d. ekki hvarfl- að að honum hvað einkatölvan gæti orðið honum verðmætt tæki. Segist Buffett núna spila bridds á netinu tíu klukkustundir í viku og reiða sig á leitarvélar við skrif hluthafabréfsins. „En ég er samt ekki enn tilbúinn fyrir Tinder,“ gantast hann. Reuters Framfarir Buffett gefur lítið fyrir bölsýni um framtíðina. Buffett brattur í bréfi til hluthafa  Gagnrýnir neikvæða umræðu um framtíð Bandaríkjanna  Ánægður með BNSF og ver Clayton Homes ● Á heimsvísu drógu fjárfestar jafnvirði 60 milljarða dala út úr verðbréfasjóðum í janúarmánuði. Mest var útstreymið í Evrópu þar sem verðbréfasjóðir endur- greiddu fjárfestum jafnvirði 47 milljarða evra, samkvæmt mælingum Thompson Reuters Lipper. FT segir þetta mesta útstreymi fjár- magns úr verðbréfasjóðum á einum mánuði síðan fjármálakreppan náði hámarki. 60 milljarðar dala úr verðbréfasjóðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.