Morgunblaðið - 29.02.2016, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2016
Myndlistarkonan Arna Gná Gunn-
arsdóttir opnar á morgun, 1. mars,
myndlistarsýningu í Listasal Evr-
ópuráðsins í Strassborg í Frakk-
landi. Sýninguna kallar hún Winter
in Strasbourg og vinnur þar út frá
menningarumhverfi sínu í Frakk-
landi og á Íslandi.
Arna Gná (fædd 1974) býr og
starfar í Strassborg. Hún hóf nám í
myndlistardeild Listaháskóla Ís-
lands árið 2003 og útskrifaðist þaðan
árið 2006 með BA-gráðu í myndlist.
Hún sótti einnig myndlistarnám við
Listaháskólann í Bergen og Kung-
liga konsthögskolan í Stokkhólmi.
Eftir að Arna lauk námi hefur hún
tekið þátt í samsýningum og haldið
einkasýningu í Aurum í Bankastræti
og í Gallerí Vegg.
Í tilkynningu um sýninguna segir
listakonan að hún vinni út frá um-
hverfinu, reglum og hefðum sam-
félagsins, tungumáli þess og menn-
ingu. „Hver staður hefur sínar
reglur, bæði skrifaðar og óskrifaðar.
Nýju tungumáli fylgir nýtt auðkenni
einstaklings í ókunnugu samfélagi.“
Menningarumhverfi Sýninguna kallar Arna Gná Winter in Strasbourg.
Arna Gná sýnir
í sal Evrópuráðsins
Fánalög á Fil-
ippseyjum eru
álíka ströng og á
Íslandi; ekki má
klæðast fánanum
eða láta hann
snerta jörðu.
Söngkonunni
Madonnu var
ekki kunnugt um
þetta þegar hún
kom fram í Manilla fyrir helgi og
sveipaði sig þjóðfána landsins auk
þess sem fáninn snerti sviðið. At-
hæfið var gagnrýnt harðlega og
sagt að söngkonan fengi mögulega
ekki að snúa aftur og tónleikahöld-
urum kynni að vera refsað.
Madonna þekkti
ekki fánalögin
Madonna
TRIPLE 9 8, 10:25
FYRIR FRAMAN ANNAÐ FÓLK 6, 8
ZOOTROPOLIS 2D 5:40 ÍSL.TAL
ZOOTROPOLIS 2D 5:40 ENS.TAL
DEADPOOL 8, 10:20
ZOOLANDER 2 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
-T.V., Bíóvefurinn
–– Meira fyrir lesendur
ÍMARK DAGUR
Föstudaginn 4. mars gefur Morgunblaðið út
sérblað, tileinkað ÍMARK deginum
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA
Fyrir kl. 12, þriðjudaginn
1. mars
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
Íslenski markaðsdagurinn verður
haldinn hátíðlegur með
veglegri ráðstefnu í
Háskólabíói 4. mars.
Kvikmyndin Hrútar í leikstjórn
Gríms Hákonarsonar var ótvíræður
sigurvegari Eddunnar 2016 þegar
verðlaunin voru afhent við hátíðlega
athöfn á Hótel Hilton Reykjavík
Nordica í gærkvöldi og sjónvarpað
beint, í opinni dagskrá á fjórum
sjónvarpsstöðvum.
Hrútar hlaut alls ellefu Eddur,
m.a. sem besta mynd, fyrir kvik-
myndatöku og klippingu auk þess
sem Grímur var verðlaunaður fyrir
bæði leikstjórn sína og handrit. Sig-
urður Sigurjónsson þótti besti
leikarinn í aðahlutverki og Theodór
Júlíusson besti leikarinn í auka-
hlutverki.
Hrútar hafði verið tilnefnd til
samtals 13 verðlauna. Fast á hæla
myndinni fylgdu Fúsi með 12 og
Þrestir með 11 tilnefningar en
síðastnefndu myndirnar tvær unnu
engin verðlaun þetta árið.
Ófærð hlaut þrjár Eddur
Næstflestar Eddur í ár, þrjár
talsins, hlaut Ófærð, en þátturinn
hafði verið tilnefndur til fjögurra
verðlauna. Þátturinn var verðlaun-
aður sem leikið sjónvarpsefni ársins
og fyrir bestu brellur auk þess sem
Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðna-
dóttir og Rutger Hoedemækers
voru verðlaunuð fyrir tónlist sína.
Leikkonur ársins sem þóttu bera
af komu báðar fram í Rétti, en
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir þótti
besta leikkonan í aðalhlutverki og
Birna Rún Eiríksdóttir besta leik-
konan í aukahlutverki.
Ævar Þór Benediktsson hlaut
tvenn verðlaun, því þáttur hans
Ævar vísindamaður þótti bæði vera
barna- og unglingaefni ársins og
lífsstílsþáttur ársins.
Helgi Seljan var valinn sjón-
varpsmaður ársins og Kastljós
frétta- og viðtalsþáttur ársins.
Skemmtiþáttur ársins var Árið er:
Söngvakeppnin í 30 ár, meðan
menningarþáttur ársins var valin
Öldin hennar. Heimildarmynd árs-
ins var Hvað er svona merkilegt við
það?
Eddan 2016
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Eddan 2016 Kvikmyndin Hrútar var valin besta myndin og hlaut alls ellefu Eddur í gærkvöldi.
Hrútar fóru með sigur af
hólmi með ellefu Eddur
Sigurður Sigurjónsson í Hrútum og Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir í Rétti valin bestu leikarar ársins
Kvikmynd ársins
Hrútar
Leikstjórn ársins
Grímur Hákonarson fyrir Hrúta
Handrit ársins
Grímur Hákonarson fyrir Hrúta
Leikari ársins í aðalhlutverki
Sigurður Sigurjónsson fyrir Hrúta
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Rétt
Leikari ársins í aukahlutverki
Theodór Júlíusson fyrir Hrúta
Leikkona ársins í aukahlutverki
Birna Rún Eiríksdóttir fyrir Rétt
Leikið sjónvarpsefni ársins
Ófærð
Heimildarmynd ársins
Hvað er svona merkilegt við það?
Stuttmynd ársins
Regnbogapartý
Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins
Kastljós
Menningarþáttur ársins
Öldin hennar
Skemmtiþáttur ársins
Árið er: Söngvakeppnin í 30 ár
Barna- og unglingaefni ársins
Ævar vísindamaður
Lífsstílsþáttur ársins
Ævar vísindamaður
Leikmynd ársins
Bjarni Massi Sigurbjörnsson fyrir Hrúta
Búningar ársins
Margrét Einarsdóttir og Ólöf Benedikts-
dóttir fyrir Hrúta
Gervi ársins
Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Hrúta
Kvikmyndataka ársins
Sturla Brandth Grövlen fyrir Hrúta
Klipping ársins
Kristján Loðmfjörð fyrir Hrúta
Tónlist ársins
Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir
og Rutger Hoedemækers fyrir Ófærð
Hljóð ársins
Huldar Freyr Arnarsson og Björn Vikt-
orsson fyrir Hrúta
Brellur ársins
Sigurjón F. Garðarsson, Daði Einarsson
og RVX fyrir Ófærð
Heiðursverðlaun
Ragna Fossberg
Verðlaun veitt
í 24 flokkum auk
heiðursverðlauna