Morgunblaðið - 03.03.2016, Síða 7
Ljósmynd / Trine Forsland
Séð yfir fundarsal á ráðstefnunni í Björgvin í gær en um 1000 þátttakendur frá yfir 300 fyrirtækjum taka nú þátt.
„Þetta er gríðarlega gott tækifæri til
markaðssetningar fyrir þá sem eru í
sjávarútvegi því þarna eru þeir sem
taka ákvarðanir,“ segir Kristján
Davíðsson, ráðgjafi, um North
Atlantic Seafood Forum í Bergen
sem hófst á þriðjudaginn og lýkur í
dag, en um er að ræða eina stærstu
viðskiptaráðstefnu heims í sjávar-
útvegi.
Kristján segir að á ráðstefnunni
séu hátt í 1.000
þátttakendur frá
yfir 300 fyrir-
tækjum víðs veg-
ar að úr heim-
inum. „Þarna eru
þeir saman-
komnir sem
tengjast sjávar-
útvegi með einum
eða öðrum hætti frá 35 löndum. Þetta
eru allt leiðandi aðilar í sjávarútvegi
ásamt bankafólki og fjárfestum frá
Síle til Kína og allt þar á milli.“
Tólf íslensk fyrirtæki taka þátt
Ráðstefnan er nú haldin í ellefta
sinn og í ár er áherslan sett á mark-
aðsmál og markaðsaðgengi. „Það er
farið vítt og breitt yfir uppsjávariðn-
aðinn og botnfiskiðnaðinn, auk þess
sem umfjöllun um fiskeldi er mjög
áberandi. Á ráðstefnunni eru um 100
fyrirlesarar sem flytja erindi á 10
ráðstefnum þá þrjá daga sem ráð-
stefnan stendur yfir,“ segir Kristján.
Hann segir íslensk fyrirtæki hafa
verið þátttakendur á ráðstefnunni til
margra ára en að þessu sinni eru tólf
fyrirtæki frá Íslandi þátttakendur.
Auk þess opnaði sjávarútvegs-
ráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson,
þann hluta ráðstefnunnar sem fjallar
um fiskveiðar. „Þó þetta sé ekki
mjög heppileg tímasetning fyrir ís-
lenskan sjávarútveg, mitt ofan í
loðnuvertíðina, þá mætir fjöldi
Íslendinga hingað til Bergen. En það
eru margir sem fara síðan héðan á
sjávarútvegssýninguna í Boston í
beinu framhaldi en hún hefst um
helgina.“
Kristján segir að nokkrir tugir Ís-
lendinga séu á ráðstefnunni og að
þeir hafi aldrei verið fleiri. „Það er
mikilvægt fyrir Íslendinga að mæta
á ráðstefnuna því þetta er einstakt
tækifæri til að heyra hvað er í gangi í
sjávarútvegsiðnaðinum og hvað er
framundan í greininni.“
Góð þátttaka í ráð-
stefnunni í Björgvin
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Fjöldi Íslendinga leggur leið
sína á eina stærstu sjávar-
útvegsráðstefnu heims
sem nú stendur yfir í
Björgvin í Noregi. Sigurður
Ingi Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra opnaði
hluta ráðstefnunnar.
Kristján
Davíðsson
Verksvit og vinnusemi hefur alla tíð verið
undirstaða lífsbaráttu hér á landi en þó hefur
áherslan á nám í greinum tengdum iðnaði
ekki verið nægileg. Iðn-, verk- og tækni-
menntun hefur ekki þótt eftirsóknarverð og
menntakerfið hefur brugðist, sérstaklega á
fyrri stigum, þegar kemur að því að skila
fólki með slíka menntun út á vinnumark-
aðinn, því 36% fyrirtækja segja skort á
starfsfólki í sinni grein. Fólk sem hefur bæði
sótt sér iðn- og tæknimenntun er afar eftir-
sótt starfsfólk á vinnumarkaði en samt sem
áður velja einungis 12% nemenda á fram-
haldsskólastigi starfsnám. Framboð náms á
háskólastigi hefur þó aukist verulega og sí-
fellt fleiri fyrirtæki bjóða upp á starfsþjálfun.
Menntun forsenda framfara
Hlutirnir gerast hratt í íslensku samfélagi
þessa dagana og ein forsenda þess að byggja
hér upp öflugt atvinnulíf er að tryggja fjöl-
breytni á vinnumarkaði. Fyrirtæki eins og
Marel, CCP og Össur eru öll byggð á hugviti
sem verkvitið ljáir vængi og þýðing þeirra
fyrir samfélagið verður seint metin til fulls.
En fyrirtækin eru fleiri: Valka er
t.a.m. annað öflugt fyrirtæki sem
framleiðir vélar fyrir sjávar-
útvegsfyrirtæki, bátasmiðjan
Rafnar spratt upp úr velgengni
Össurar og dæmin eru fleiri. Slík
fyrirtæki þurfa fleira starfsfólk ef
þau eiga að ná að dafna. Iðn-,
verk- og tæknimenntað starfsfólk.
Fagfólkið á mbl.is
Ef fólk fær mynd í kollinn af kuldalegu
verksmiðjuumhverfi eða störfum í nýbygg-
ingum þegar það heyrir talað um slík störf er
það ímynd sem þarf að breyta, því hún er að
miklu leyti röng. Fjölmargir frábærir starfs-
kraftar vinna góð, vel launuð og
skapandi störf hér á landi, þar sem
verkvitið skiptir höfuðmáli á meðan
fræðin skipta meira máli í öðrum.
Á næstu mánuðum mun Morgun-
blaðið og mbl.is í samstarfi við
Samtök iðnaðarins kynnast fólki
um allt land sem vinnur störf af
þessu tagi. Í stuttum innslögum á mbl.is
verður skyggnst inn í líf og störf þess þar
sem áhorfendur kynnast áhugamáli og at-
vinnu. Fólkið verður jafn ólíkt og það er
margt og störfin líka. Við kynnumst t.d. fólk-
inu sem stýrir spennustöðvum, klippir sjón-
varpsefnið og hannar leiktækin sem börnin
okkar leika sér í.
Skyggnst inn í líf og störf fólks í iðnaði
Í næstu viku hefur mbl.is sýningar
á stuttum innslögum þar sem
skyggnst verður inn í líf og störf
fólks í iðnaði. Þættirnir nefnast
Fagfólkið og verða 40 talsins.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MARS 2016 7ATVINNULÍF
kr.9.900 pr.mán.án vsk
- snjallar lausnir
Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri
*án endurgjalds til 1. júlí 2018
ef keypt fyrir 30. júní 2016.
Fullbúin viðskiptalausn í áskrift
Microsoft Dynamics NAV
Wise býður eitt mest selda
bókhaldskerfi landsins
í mánaðarlegri áskrift - NAV í áskrift.
Lágmarkaðu kostnaðinn
og kynntu þér málið á navaskrift.is.
Aðgangur að Office 365 fylgir með.*
+
sími: 545 3200 » wise@wise.is » wise.is