Víkurfréttir - 29.06.1995, Blaðsíða 7
6
29. JÚNÍ1995
VlKWtFRÉTTIR
*
♦ Sæmtindur Sæmundsson tekur við
viðurkenningu frá Asgciri Hjálmars-
■ syni og Egill Egilsson brosir brcytt
yfir siimi viðurkeniiingti.
Sumarvaki á Suðurnesjum:
Þegar ég lét draum
inn rætast
Um Hvítasunnuhelgina var
haldinn Sumarvaki á Suður-
nesjum. Var boðið upp á marg-
víslega menningarviðburði og
væri liægt að skrifa langt mál
um alla dagskrárliðina. í þetta
skiptið ætla ég aðeins að taka
tvo liði til umsagnar.
í Flughótelinu í Kjarnanum
var sjávarútvegssýning þar sem
listamaðurinn Grímur Karlsson
sýndi yfir 40 bátslíkön víða að
af landinu, sem spanna yfir
langt tímabil, m.a. af árabát í
líkingu við þau fley sem land-
námsmennirnir fðru á yfir úfið
Atlantshafið. Er mér nær að
halda að gömlum sjómönnum
hafi hlýnað um hjartaræturnar
við að að sjá nákvæmar eftir-
líkingar af gömlum samferðar-
félögum, sem margir hverjir
hvíla nú á hafsbotni eða hafa
runnið sitt skeið í áramóta-
brennu.
Handbragð Gríms ber vott
um einstaka nákvæmni og hef-
ur með þessu framtaki lyft
Grettistaki til menningarauka
úr sögu litgerðar sent komandi
kynslóðir eiga eftir að meta.
Þá var boðið upp á göngu-
ferð á Keilir á Hvítasunnudag.
Þátttakendur voru um 30. Veð-
ur var ekki gott til fjallgöngu,
suðaustan og þokusúld, svo
skyggni var mjög takmarkað.
Sérleyfisbifreiðar Keflavfkur
óku upp að Höskuldarvöllum.
Þaðan er um klukkustundar
ganga að fjallinu. Leiðsögu-
menn voru frá Björgunarsveit-
inni Suðurnes og fórst þeint
það vel úr hendi og eiga þakkir
skildar. Um helmingur af leið-
inni liggur um úfið apalhraun
sem er fremur ógreiðfært. Væri
tilvalið að nota eitthvað af fjár-
veitingu sem ætlað er til at-
vinnuátaks hér á Suðurnesjum
til að laga göngustíg að fjallinu
við jaðar hraunsins. Einnig
mætti laga leiðina upp fjalls-
hlíðina t.d. með því að reka
niður stikur sem kaðall væri
strengdur á.
Mér komu í hug ljóðlínur úr
kvæði tómasar Guðmundssonar
á leiðinni upp fjallið:
Urð og grjót, up í mót.
Ekkert nema urð og grjót.
Klífa skriður. skríða kletta,
velta niður, vera að detta.
Loksins hafði langþráður
draumur ræst. Vissulega hefði
verð ánægjulegra að hafa betra
skyggni.
Forráðamenn Sumarvaka á
Suðurnesjum eiga þakkir skild-
ar fyrir þetta framtak, sem var
þeint til sóma og vonandi að
það verði framhald á slíkum
menningarviðburðum hér á
Suðumejunr á komandi árum.
Páll Þór Jónsson
Þjóðhátíðin f Sandgerði:
Rennblaut dagskró
við sundlaugina
- þjóðhátíðin x Garði með hefðbundnu sniði
Vegleg
vorgleði í
Gríndavík
Vegleg vorgleði var haldin í Grunnskólanum í
Grindavík á skólaslitadaginn 31. maí. Markmið
hennar var að nemendur, foreldrar og kennarar
lykju skólaárinu saman á skemmtilegan hátt.
Lúðrasveit Tónlistaskólans opnaði hátíðina en
síðan var fjölbreytt dagskrá í gangi fram eftir degi
þar sem allir gátu fundið eitthvað við sitt hæfi.
Utileikir voru á skólalóð, verkstæði í fullum
gangi allan tíman þar sem búnir voru til flugdrek-
ar, hattar og grímur. Alþjóðlegt kaffihús vakti
mikla athygli. Skólahljómsveit skólans hélt tón-
leika og nrargir tóku þátt í söngvakeppninni. Sýn-
ing var á verkum nemenda í verk- og listgreinum
og vígð voru tvö stór útilistaverk: 20 ferm. vegg-
rnynd sem sýnir vinnu við höfnina fyrr og nú og
skúlptúr unnið af nemendum í smiðju, það er 10
stálsúlur með sjávargrjóti á endum þar sem hver
súla táknar einn árgang grunnskólans.
Athygli vakti sýning bræðranna Hafþórs og
Hlyns Helgasona á bátslíkönum.
Skólinn naut aðstoðar foreldra- og kennarafé-
lagsins sem m.a. sá um útigrill og vöfflubakstur.
Meðan á vorgleðinni stóð var rekið útvarp þar
sem kynnt voru dagskráratriði og spiluð tónlist
við hæfi.
Það var fjörug og skemmti-
leg þjóðhátíðardagskrá í Sand-
gerði á 17. júní. Bæjarbúar tjöl-
menntu að íþróttahúsi bæjarins
þar sent farið var í ýmsa
skemmtilega leiki og spilaði
sundlaugin m.a. stóra rullu í
dagskránni. Þar var efnt til
reiptogs og einnig var komið á
hjólböruakstri á planka yfir
sundlaugina. Þar kepptu lið frá
bæjarstjórninni annars vegar og
frá Reyni hinsvegar. Ekki
verða úrslitin sögð hér en eitt
var víst að margir blotnuðu og
jafnvel saklausir áhorfendur
duttu í sundlaugina þegar hvað
mest gekk á.
I Garði var þjóðhátíðin með
hefðbundnu sniði en skemmti-
dagskrá var við samkomuhús-
ið. Þegar blaðamaður átti leið
þar hjá rétt fyrir kl. 15 á þjóð-
hátíðardaginn var ekki mjög
margt unr manninn en börnin
skemmtu sér vel í leiktækjum
og bílalest.
♦ Það var mikið fjölmenni sem fylgdist nteð við sundlaugina í
Sandgerði á þjóðhátíðardaginn.
Skotfimi:
Bræður meÖ sex gull
Þrír félagar úr Skotdeild kefla-
víkur þeir Reynir Þór Reynisson,
Róbert S. Reynisson og Guðni
Pálsson tóku þátt í þrernur mót-
unt unt helgina. Fyrsta mótið var
miðnæturmót á Olafsfyrði.
Reynir Þór sigraði í meistara-
flokki, Guðni lenti í 5. sæti í
fyrsta flokki og Róbert sigraði í
3. flokki. Næsta mót var Lands-
mót á Akureyri daginn eftir og
þar sigraði Reynir Þór bæði ein-
staklingskeppnina og meistara-
flokkinn. Guðni lenti í 11. sæti í
fyrsta flokki og Róbert lenti í
öðru sæti í 3. flokki. Sveit SK |
lenti í fjórða sæti. Þetta er eitt
sterkasta og fjölmennasta mót
sem haldið hefur verið í sumar.
Þriðja mótið var Landsmót á
Olafsfirði á sunnudeginum.
Reynir Þór sigraði í einstak-
lingskeppninni og meistaraflokki
eftir bráðabana. Róbert lenti í 4,-
5. sæti í þriðja flokki.
Aðalgata:
Viðbótarinn-
keyrsla kemur
ekki til greina
Skipulags- og tækninefnd K-
N-H segir að ekki komi til
greina að fjölga inn- og út-
keyrslum á Aðalgötu en þeir
Friðrik Smári Friðriksson og
Oddgeir F. Garðarsson spyrjast
fyrir hvort leyft verði að setja
sölulúgu á Norðurgafl hússins
Iðavellir 14b. Nefndin segir
gögn þó mjög óljós og því sé
erfitt að segja álit sitt á málinu,
en viðbótar inn- og útkeyrsla á
Aðalgötu komi ekki til greina.
Heiðraðir fyrir stuttan
sjómannsferil
Þrír heiðursmenn voru
Speedwell Blue
á Staðnum
Hljóm-
s v e i t i n
Speedwell
Blue spilar
á veitinga-
h ú s i n u
Staðnum í
Keflavík
um næstu
helgi.
Hljómsveitin er skipuð þeim Eric
Lewis og Grant Pomeroy frá
Newcastle og Helga Víkingssyni úr
Keflavík. Sveitin var stofnuð fyrir
tveimur mánuðum og hefur spilað
víða um land.
heiðraðir fyrir sjómannsstörf á
Sjómannadaginn í Garði. Sig-
urður Björnsson var heiðraður
fyrir sjómannsstörf í kaffisam-
sæti í sem haldið var í sam-
komuhúsinu. Sigurður var til
ntargra ára á sjó. Það verður
hins vegar ekki sagt um tvo
aðra sjómenn sem voru heiðrað-
ir í tilefni af Sjómannadeg-
inumm. Þeir Egill Egilsson og
Sæmundur Sæmundsson voru
nefnilega heiðraðir fyrir stuttan
sjómannsferil. Þeir gerðu báðir
tilraunir með það að gerast há-
setar á Stafnesi KE. Það var As-
geir Hjálmarsson sem heiðraði
þessa þrjá Garðmenn og lét þau
orð fylgja til þeirra Egils og Sæ-
mundar að þess væri ekki óskað
að þeir legðu sjómennsku fyrir
sig aftur.
♦ Sigurður Bjömsson var
heiðraður á Sjómannadaginn.
Myndir: Hilmar Bragi
Björg og Sigurbjörg Haldórsdætur afhentu Rcyni
Sveinssyni fomianni Sóknamefndar Hvalsneskirkju
hagnaðinn af basar sem þærhéldu nýlega kr. 1040 til
styrktar byggingar safnaðar heimilis í Sandgerði.
♦ Inguttn Heiða, Rakel ogMáni héldu hlutaveltu á
í'dögunutn oggáfu Þroskahjálp Suðurnesja afrakstur-
|itm, 2.109- kr.
tj-Vfcg -Wia
♦ Hjördís Emilsdóttir ogAnna Þóra Gunnarsdóttir
hafa aflient Sjúkrahúsi Suðurnesja kr. 1.500- sem
* söfnuðu tneð hlutaveltu. Mynd: hbb
Jk
íttir
m þær J
VllfUPFRÉTTIR
29. JÚNÍ1995
7
30% AFSLATTUR
AF FIRF TRAP
GALLARUXUM OG
FLAUELSRUXUM
Stxrsta frilta■ og auglýsingablatii á Suturnesjum
Ri
iMiulAJ
l>ar ber
auglýsíngín
árangur...
S. 421-4717
Veiði á vegum Stangveiðifé-
lags Keflavíkur er hafin f Geir-
landsá, einni af þeim ám sem
félagið býður veiði í.
Mjög gott veiðihús er við
Geirlandsá með öllum þægind-
um, m.a. rafmagnshita, heitu
vatni. sjónvarpi og fleiri þæg-
indum eins og í fimm stjörnu
hóteli! Veitt er á þrjár og fjórar
stangir og eru veiðileyfin ódýr,
frá 2700 upp í 5600 kr. stöngin,
í tveggja og 3ja daga veiðiholl-
um.
Svæðið við Geirlandsá er
sérlega fallegt og eins og fyrr
segir er veiðihúsið veglegt. Oft
má fá fallega fiska í Geirlandsá
þó flestir komi þeir síðla sum-
ars eða á haustin en í ljósi verð-
lagningarinnar og aðstöðunnar
sem í boði er, er veiðileyfi í
ánni vel þess virði að athuga.
Okkur láðist að geta tveggja
veiðistaða SVFK í síðasta
veiðipistli, þ.e. Laugabakka í
Ölfusi undir Ingólfsfjalli og
Vatnamótanna.
♦ Það eru mörg falleg veiðisvæðin
í Geirlandinu. Hér má sjá efsta
veiðistaðinn í ánni, Hagafoss.
Við hvetjum veiðimenn til
að hafa samband við blaðið því
eins og við sögðum frá í síðasta
pistli er ætlunin að vera með
veiðiumfjöllun í Víkurfréttum í
sumar.
Odýrt-
Abyrgo
SUMARBUSTAÐAEIGENDUR!
Tökum einnig að okkar úðun á
sumarbústaðalöndum á SV-horninu
Áratuga reynsla - Fullkominn tækjabúnahr.
Ódýr ogfljót pjónusta - Gerið verðsamanburð.
Tökum að okkur úðun á trjám.
Notum skordýralyfið
PERMASEKT,
sem er skaðlaust mönnum,
fuglum og gæludýrum.
Uðum einnig við roðamaur.
Emil Kristjánsson og
Hafsteinn Etnilsson
♦ Annað tveggja útilistaverka sem vtgð vom.
♦ Krakkamir tóku lagið á Vorgleðinni.
Veiði
hafin í
Geirlandsá
♦ Þciiiian væna 11
punda sjóbirting
fékk Jón Ragnar
Ólafssou í ármótum
Geirlandsár ifyrra.