Víkurfréttir - 08.02.1996, Side 16
SKRAUTLEGIR
BAKARAR
Jói Fel eða Jóhannes Felixson skreytinga-
meistari var í Nýja bakaríinu um síðustu
helgi og skreytti þar kökur og tertur í massa-
vís. Hann gaf sér þó tíma ásamt bökurunum
Ólafí Ingibergssyni og Eyjólfi Hafsteinssyni
til að stilla sér upp í eins og eina myndatöku.
VF/mynd: hbb
EXILE!
Það var mikið um dýrðir á Strikinu um síð-
ustu helgi þegar sýningarhópurinn EXILE
sýndi þar hárgreiðslu, förðun og dans. Fjöl-
menni fylgdist með sýningunni sem var sjóð-
heit. Það eru stúlkur af Suðurnesjum sem
standa að Exile og þær eru á myndinni að
ofan en að neðan er mynd úr sýningunni.
VF/mynd: hbb
Júlíus Baldvinsson slasaðist alvarlega í vinnuslysi
í Sorpeyðingarstöðmni:
„Hvað er ég að öskra, ég
finn ekkert fyrir þessu“
- getur orðið kreppt fingur og sérfram á góðan bata
Júlíus Baldvinsson úr Garðinum slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Sorpeyðingarstöð Suðumesja í síð-
ustu viku. Hann festi hægri höndina í sorppressu við brennsluofn stöðvarinnar. Júlíus sýndi mikla
hörku að halda meðvitund allan tímann því höndin fór af við úlnlið og björgunarliði tókst ekki að losa
Júlíus fyrr en 45 mínútur vom liðnar frá slysinu. Einungis nokkrar sinar og taugar tengdu höndina
við handlegginn. Búið var um sárið og blæðing stöðvuð í sjúkrabfl við Sorpeyðingarstöðina áður en Júlíus var
fluttur til aðgerðar á Borgarspítalanum. Þar dvelur Júlíus í dag og hefur náð talsverðum bata. Þegar blaða-
maður ræddi við Júlíus á mánudag var hann farinn að geta kreppt fingur og sá fram á góðan bata.
♦ Júlíus Baldvinsson liggur nú á Borgarspítalanum þar sem læknar
græddu á hann hægri höndina eftir alvarlegt vinnuslys í Sorpeyðing-
arstöð Suðurnesja á miðvikudag í síðustu viku. VF/mynd og texti:
Hilmar Bragi
„Það er alveg ótrúlegt hvað ég hef
náð mér fljótt. Það er kraftaverk
hvað læknunum tókst því höndin
var af. Nú er ég farinn að geta
kreppt alla fingur nema þumalfingur
og tel batahorfur nokkuð góðar,“
sagði Júlíus Baldvinsson í samtali
við Víkurfréttir.
FYRIRFRAM ÁKVEÐIÐ?
Júlíus segist mikið vera búinn að
hugsa um morguninn sem slysið átti
sér stað og velta fyrir sér hvers
vegna þetta hafi allt saman gerst.
„Það vom einhver ónot í mér þenn-
an morgun. Eftir því sem ég hugsa
meira út í slysið þá er engu líkara en
það hafi verið fyrirfram ákveðið.
Eitthvað sótti á mig og ég hef í raun
enga skýringu á því hvers vegna ég
fer með höndina í pressuna. Mig
minnir að þama hafi verið föst spýta
sem ég ætlaði að taka þegar óhappið
gerðist".
- Er ekki þetta ekki gríðarlegur sárs-
auki?
„Nei, það er svo skrýtið að ég fann
ekkert fyrir sársauka þó höndin væri
að fara af. Eg öskraði fyrst en hugs-
aði síðan með mér. Hvað er ég að
öskra, ég finn ekkert fyrir þessu.
Það getur verið af því að ég togaði á
móti og reyndi að halda í höndina“.
- Hvenær barst svo hjálpin?
„Eg geri mér ekki alveg grein fyrir
tímanum en held að ég hafi verið
búinn að vera fastur í þrjár mínútur
varahluti í alla
bíla samdægurs
frá Reykjavík!
GRÓFINNI8 - SÍMI4214670
..
BÍLAKRINGLAN
HÉBAmTllD
CROFINM 8 - KEFLAVÍk • Ekll) INN FRÁ BERIAEGI
rtl FILflU)
MYNDARFOLK
HAFNARGÖTU 52 - SÍMI4214290
ÞORRA
MATUR
/Æt /f
MATARtYST
D3EQÉÉEBÐ
AXELS
SÍMINN ER
4?1 47Q7
16
Víkurfréttir