Víkurfréttir - 16.01.1997, Side 8
„Mér þykir eiginlega ekkert skemmtilegra en
að vinna í fiski enda hef ég ekki gert neitt
annað frá því ég var tíu ára. Þetta er skemmti-
leg viðurkenning og það er ánœgjulegt að
komast í þennan myndarlega hóp manna sem
lilotið hafa þessa útnefningu“, sagði Logi
Þormóðsson, fiskverkandi og stjórnarformaður
Fiskmarkaðs Suðurnesja en Víkuifréttir kusu
liann mann ársins 1996 á Suðurnesjum og
Fiskmarkað Suðurnesja fyrirtœki ársins. Það
má því segja að valnefnd blaðsins, en í henni
eru nokkrir valinkunnir einstaklingar á
Suðurnesjum sem sinna þessu árlega verkefni,
- hafi slegið tvœr flugur í einu höggi við
útnefninguna í ár.
Það eru merk tímamót hjá Loga
og Fiskmarkaðnum um þessar
mundir. Tuttugu ár eru frá því
Logi hóf að verka fisk í eigin
fyrirtæki og Fiskmarkaðurinn
fagnar tíu ára afmæli á nýhöfnu
ári. Eins og einn nefndarmanna
blaðsins sagði þegar legið var
yfir valinu á manni ársins að
þessu sinni, „þá hefur Logi
verið í framlínunni undanfarin
ár og þetta var einungis spum-
ing hvenær hann ynni til þess-
arar nafnbótar". Undir það geta
eflaust margir tekið.
Logi hóf ungur að árum fersk-
fiskvinnslu með tveimur
félögum sínum en hann er
einnig stjórnarformaður í
Fiskntarkaði Suðumesja sem er
eitt þriggja stærstu fyrirtækja á
Suðumesjum. Þegar við
höfðum tyllt okkur niður í
rólegheitum í lok vinnuvikunn-
ar var ákveðið að hefja spjallið í
kringunt Fiskmarkað
Suðumesja.
Hvert var upphatið að stofn-
un l'iskntarkaðs Suðurnesja?
„Þetla byrjaði þannig að í
febrúar 1987 jregar ljóst var
tveir fiskmarkaðir vom að hefja
starfsemi í Reykjavík og í
Hafnarfirði - kallaði Grétar Mar
Jónsson í t'orsvari fyrir
Atvinnumálanefnd Suðumesja,
saman fúnd unt málið. Menn
höfðu áhyggjur af því að fiski
yrði ekið Itéðan á markaðina
sem hetði slæmar afleiðingar í
för með sér. A þessum fundi var
kosin undirbúningsnefnd og ég
formaður hennar. Okkar
verkefni var að athuga hvort
ekki væri hægt að stofna
fiskmarkað á Suðumesjum. Þá
lá ljóst fyrir að á Suðumesjum á
jiessum tíma þ.e. 1986 að jtá
hölðu fiskverkendur eða þeir
sem keyptu ftsk á Suðumesjum
selt frá sér fisk sem nant 25
þúsund tonnum á því ári. Það
var því alveg fyrirsjáanlegt að
ftskmarkaður á Suðumesjum ef
Suðumesjamenn stæðu saman
um hann myndi ganga hvort
sem að fiskntarkaður mundi á
ganga á Islandi eða ekki. Þessi
tveir markaðir sem stofnaðir
vom í Reykjavík vom
hefðbundnir markaðir sem
jtekktust áður fyrr í Evrópu þ.e.
allur ftskurinn var tekinn inn á
gólf. Við fómnt að kanna jtetta
og skoða vítt og breitt um
heiminn hvers konar hlutir væm
að gerast og hvemig við gætum
hugsanlega unnið saman þannig
að það væri Fiskmarkaður
Suðumesja. Við litum á það
sem megin tilganginn með
jtessu að eiga sameiginlegan
fiskntarkað en jafnframt að við
fæmm ekki að keyra fiskinn frá
Grindavík til Keflavíkur eða frá
Keflavík til Grindavíkur og
Sandgerðis og öfugt þannig að
það varð að finna einhverja
hugmynd að útfærslu um það
hvemig jtetta gæti gengið. Þar
sem jtetta svæði er ntikið
dagróðrasvæði og bátamir eru
úti á sjó og konta með óslæðan
afla að landi þá þyrfti að selja
fiskinn úti á sjó með
upplýsingunt frá sjómönn-
unum."
Svarti kassinn
-Ekki hefur mönnum litist
vel á það í byrjun?
Nei, ntenn sögðu að sjóntenn
myndu alltaf koma til með að
ljúga. Eitt af jtessu sem við
vomm að velta fyrir okkur var
það að til jtess að tryggja það að
hægt væri að treysta jteim þá
komu upp hugmyndir um svarta
kassa eins og em í flugvélum.
Að taka upp öll samtöl sjó-
ntanna sem áttu sér stað úti á
sjó. Okkur bar gæfa til jtess
held ég, með jteim hugmyndum
sem sköpuðust á jressum tíma
að vinna saman í jæssu þannig
að þetta væri einn fiskmarkaður
sem myndi vinna að því að selja
fiskinn og aðlaga söluna á
ftskinum þeim hefðbundnu
vinnuaðferðum sem vom til
staðar á jreim tíma á Islandi.
Svaiti kassinn kom því aldrei
til.
Gólfmarkaður var gamalt fyrir-
brigði og við töldum að Jesú
hetði keypt þessa fimm fiska á
góifmarkaði á sínum tíma. Nú
vom nýir tímar. Þannig að jressi
hugmynd, að nýta jrekkingu
ftskkaupenda og sjómanna á því
sem jteir voru að gera kom fljótt
upp á borðið. Láta þá Iýsa
fiskinunt og tilkynna hvenær
jreir væm hugsanlega í landi og
í hvaða höfn. Bjóða upp fisk þar
sem kaupendur gætu verið
víðsvegar og þyrftu ekki endi-
lega að koma á staðinn, sem
sagt; tjarskipamarkaður.
splunkuný hugmynd sem
hvergi í heiminum hafði verið
reynd. I dag em fiskntarkaðir
ekki öðmvísi uppbyggðir en
það að jreir séu með fjarskipta-
sölu líka.
Ekki bara fiskur
Fiskmarkaðurinn óx hratt og
viðtökur ntanna vom yfirleitt
góðar. Opnaðar vom
svokallaðar útstöðvai' í
Njarðvík. Grindavík og í
Sandgerði og í byrjun síðasta
árs var opnuð útstöð á Isafirði
eftir að Fiskmarkaður ísafjarðar
lagði upp laupana. Einnig er
FMS 25% eigandi að
Fiskmarkaði Homafjarðar.
Eitt af því sent gera þurfti í
byrjun var að útbúa
umfangsmikið hugbúnaðarkeifi
sem notað er við fjarskipta-
söluna. Ingólfur Öm
Guðjónsson er sérfræðingur
FMS í öllu sem viðkemur
tölvum og nú er svo komið að
fyrirtækið selur ekki lengur ein-
ungis fisk heldur hugbúnað líka.
Nýbygging Fiskmarkadar Suðurnesja og Sandgerðisbæjar við
Sandgerðishöfn. Húsið verður kallað Hafnarliús og kemur til
með að hýsa starfsemi FMS og hafnarinnar. VF-myndir: hbb
8
Víkurfréttir