Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.01.1997, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 16.01.1997, Blaðsíða 10
FISKURINN ER MITT LÍF! Loga? Hvernig kemur þetta til að þú ferfí inn á þessa braut? „Eg held því fram að ég sé búinn að vinna fyrir mér síðan ég var tíu ára. Allar vertíðar var maður að vinna í fiski |)egar mikið barst að. Mér hefur aldrei leiðst að vinna. Maður fór í síld á haustin og á vetuma var maður í því að leggja niður hrogn. Mér þykir eiginlega ekkert skemmtilegra en að vinna í fiski. Það em líka svo ofboðslegar sveiflur. Stundum ofboðslega mikið að gera og stundum nákvæmlega ekki neitt. Ég held að maður sé eins og nokkurs konar barómet. Maður er latur þegar það er rok og er duglegur þegar það er logn“, segir Logi og hlær. Uppruninn Logi er vel þekktur Suðumesjamaður og þegar hann er spurður út í upprunann tók hann sér stutt málhlé sem þó gerist sjaldan, dreypir á kaffinu sem hann hafði ekki hreyft lengi og spyr svo á móti. „Fær maður ársins ekkert út í kaffið, svona seint á föstu- dagskvöldi"? og lítur spumar- augurn á blaðamanninn sem lofar því komi hann með góða sögu um sig frá bamæsku. Því haft nefnilega verið laumað að blaðamanni að nafngift Loga sé engin tilviljun. Logi í bruna „Ég er fæddur í Skagafirði og kom undan í Málmey og tel mig einn mesta Skagfirðing allra tíma". Logibrosirog blaðamaðurinn getur ekki annað. „Ég fæddist 14. mars 1951 uppi íLitlu-Brekku 1951 og var sendur strax út í eyju í kommóðuskúffu í opnum bát. A Þorláksmessunótt brann bærinn okkar. Ég var lagður í jötu 24. desember og svaf í fjárhúsunum yfir jólin". Logi segir að þessi saga svari spumingunni með nafnið en það sé þó eitthvað sem hann Itafi aldrei fengið staðfest. Fjómm ámm síðar eða árið 1955 lágu leiðir þessa unga Skagfirðings með fjölskyldu sinni til Keflavíkur. Faðir hans fékk vinnu hjá fyrirtæki sem hét Hamilton á Keflavfkurflugvelli ])egar uppbygging var þar í full- um gangi. Hans vissi ekki þá að yngsti sonur hans ætti eftir að verða mikill herstöðvarand- stæðingur. „Ég hef búið hér síðan, reyndar á sennilega tuttugu og eitthvað stöðum í Keflavík en aldrei í Njarðvík. Ég hef alltaf litið á mig sem Suðumesjamann því mér finnst þetta eitt atvinnu- svæði og hef oft sagt frá því þegar ég bjó f Keflavík, átti fiskverkun í Sandgerði, beitti úti í Garði, gerði báta út í Grindavík og keypti fisk á fiskmarkaðinum í Njarðvík. Sem btim þá var ég sendur í sveit í níu sumur, þar af þrjú á Isaólfsskála í Grindavík sem er sennilega sú sveit sent mér þykir vænst um. Þannig að maður hefur alltaf þurft að vera einhvers staðar og gera eitt- hvað. íhaldssemin erekki til þannig að maður er opinn fyrir því að breytingar þurfa ekki endilega að vera vondar". Logn hefur ekki fyigt Loga hvorki sem peyja eða fulloðm- um manni. Skólaganga var t.d. ekki efst á lista hans sem bams. „Nei, mér gekk nú alltaf mjög erfiðlega að fara í gegnum skóla. A flestum stigum eftir 5. bekk í bamaskóla var ég rekinn annaðhvort í langan eða skamman tíma þannig að ég útskrifaðist ekki sem gagnfræð- ingur fyrr en þremur árum seinna þá tvítugur. Þaðan fór ég í fiskvinnsluskólann. Ég ætti ekki minn maka í dag hefði ég ekki verið rekinn úr skóla vegna þess að ég kynntist konunni minni þegar ég fór aftur í skóla. Úr ftskvinnsluskólanum útskrif- aðist ég árið 1975 og vann fyrstu mánuðina lyrir Ríkismatið og hafði náttúmlega engan veginn afkomu af því. Sama vetur byrjaði ég hjá Andra sem jteir Þórarinsbræður áttu. Ég tek svo við verkstjóm þar 1. maí 1976 og er verkstjóri þar til haustsins 1977 þegar þeir hætta starfsemi. Égræðmigþá á Sjöstjömuna, í tækin þar og síld og þar byrjar sem sagt þessi ferskfiskvinnsla. Ég hafði unnið eitthvað fyrir Eirík um vorið 1977 í Andra og þar byrj- ar sem sagt Tros." Golt, brids og lax Þrátt fyrir dugnað á atvinnu- sviðinu þá hefurðu gefið þér tínia fyrir áhugamál. „Ég hef alltaf verið rosalegt félagsmálafrík og hef haft gaman af öllum íþróttum. Golf hefur átt hug minn allan ingur að ég var oft upp á kant við þá sem stjómuðu, skólayftr- völd og svoleiðis." Þannig að þú \ erður helst að stjórna? „Nei nei, alls ekki. Það verður helst að vera þannig að menn hlusti á það sem ég er að segja." Sem sagt ofit frekur? Logi svarar ekki alveg að bragði, dreypir snöggt á kaffinu og segir svo: „Þegar ég var í öðmm bekk í gagnfræðaskóla kom ég heim úr miðsvetrarprófi með þessa umsögn: Hegðun - mjög slæm og aðrar umsagnir; frekur, ókurteis, óhlýðinn. Ég velti því lengi fyrir mér hvort ég ætti að sýna pabba eða mömmu einkunnabókina en ég ákvað að vera hugrakkur og sýna pabba hana. Hann kvittaði undir hana og sagði: „Logi minn. Þetta er bestu meðmæii sem nokkur nemandi getur fengið frá kennara." Þetta er síðastliðin ár og á undan því var ég á kafi í briddsi og spilaði þar með mörgum góðum mönnum sem hafa síðan orðið landsliðs- menn. Sjálfur spilaði ég í úrslit- um í Islandsmóti bæði í sveitakeppni og í tvímenningi. Síðan er það laxveiðin sem tengdapabbi minn smitaði mig af. Þar á ég marga yndislega vini sem ég fer með 3-4 sinnum á ári í veiðitúr. Mér finnst voðalega leiðinlegt að hvíla mig og sef tiltölulega mjög Iítið og mér finnst ofsalega gamttn að vera til og vera að gera eitthvað en hins vegar er ég oft mjög hvass og hreinskilinn og hef aldrei lært að tala ljúflega og þess vegna oft lent í andstöðu um ýmis mál. Það má segja að minn heisti kostur og helsti galli sé sá að segja það fyrsta sent kemur upp í hugann enda var það þannig þegar ég var ungl- eina einkunnabókin sem ég á í dag." Jafnaðarmaður Logi hefur ekki komist h já því að skipta sér af póiitík. Hann liefur þótt verulega vin- stra inegin og hafa margir lial't á orði að það væri skrítið Itvað Koinminn græddi niikla peninga á fiskútflutningnum. Kapitalískur kommi. Hvernig er það liægt? „Ég er náttúruiega alinn upp í fátækt og ég gleymi því ekkert að áfram verður fullt af fátækt í landinu. Það þarf að athuga vel í uppbyggingu okkar samfélags að það þarf að hugsa mjög vel um fólkið í landinu ekki bara þá sem eru að stússast í atvinnu- rekstri og græða peninga. Það þarf að byggja upp félagsaðstöðu því annars erum við ekki samfélag. Ég hef aldrei verið í pólitískum flokki fýrr en nýlega og það er einföld ástæða fyrir því. Ég held að pólitísk afskipti mín sem hafa ekki verið flokksbundin heldur svona mannleg. Ég féll sem ungur maður fyrir Geir Gunnarssyni sem var þing- maður Alþýðubandalagsins og ég hef fáum mönnum kynnst um ævina sem hafa verið eins félagshugsandi um að sam- félagið þyrfti að vera heilt. Þú hugsar ekki heila hugsun ef þú hugsar ekki að allir eigi að hafa þaðaf. Ef bara einhver ákveðinn hópur á að liafa það af þá er þetta ekki samfélag. Geir Gunnarsson kenndi mér þetta. Svo hef ég alla tíð verið her- stöðvarandstæðingur. Ég er á móti því að menn megi drepa hvem annan í hvaða tilgangi sem er. Síðan þegar Geir lét af störfum tók Olafur Ragnar við af honum sem frambjóðandi fýrirAlþýðubandalagið. Það var maður sem ég treysti mjög vel fyrir samfélaginu og í sumar þegar hann bauð sig fram til forseta þá studdi ég hann og stjórnaði kosningabaráttu hans hér og kannski frelsisbaráttu minni líka fyrir því að vera ekki bundinn þessum alþýðubanda- lagsafturhaldssöflum. Ég geng síðan eftir kosningabaráttu Ólafs Ragnars í Alþýðu- flokkinn, ekki pólitískt heldur eingöngu til þess að leggja áherslu á það að það eigi að vera tveir stjómamálaflokkar á íslandi. Þá geta stjómmálamenn ekki svikið kosningaloforð eins og þeir hafa gert. Það er nefni- lega alltof mikið af þessu samssteypustjómum. Þá þarf enginn að standa við kosninga- loforðin og stefnur ríkisstjóm- anna verða alltaf allt aðrar en flokkanna. Menn segja alltaf að ekki sé hægt að gera meira út af samstarfsflokknum. Þessvegna legg ég áherslu á að það verði tveir flokkar. I þessu samfélagi verður að taka tillit til allra þjóðfélagshópa. Það þurfa allir að lifa og þess vegna er ég jaf- naðarmaður en það kemur ekki í veg fyrir það að ég sé líka bissnessmaðurí'. nm „Logi er mjög félagslega sinnaður og er tilbúinn að fóma sér í þágu málstaðarins. Pcrsónulega hef ég átt mjög gott samstarf við Loga. Því til staðfestingar vorum við saman í stjóm Golfklúbbs Suðumesja í sex ár sem aldrei bar skugga á“. segir Hörður (luðmundsson, rakari og förmuður Golfklúbbs Suðurnesja í timmtán ár. „Logi hefur ekki fengið neitt með silfurskeið og þurft að vinna fyrir sínu með hörku. Tryggari og hjálpsamari mann er erfitt fmna - Itann segir sjaldan nei og má ekkert aumt sjá þegar leitað er til hans. Hann cr fljótur að setja sig inn íliluti og taka ákvarðttnir þó ef til vill ekki allir séu honum sammála. Svo sýndi hann einstakt stiiðumat jiegar liann valdi sér maka". segir Helgi Jóhannsson, æskufélagi Loga og forstjóri Samvinnuferða Landsýnar. .Jfann er kraftmikiil og fylginn sér og lætur verkin tala. Ef hann fær hugmynd þá ann hann sé ekki hvfldar fyrr en hún helur verið framkvæmd. Þessi eiginleiki lians hefur komið sér vel í störfum hans hjá FMS. Logi er þrátt fyrir að vera harður í viðskiplum hjartahlýr, raungóður og er vinur vina sinna [regar þeir þurfa á honum að halda", segir Olafur Þór Jóhannsson, framkvæmda- stjóri FMS og sainstarfsmaöur Loga frá upphafi vega hjá fiskmarkaðmim. „Logi mjög ákveðinn og fvlginn sér og af inörgum talinn frekur. Mætti stundum sitja á strák sínum og spara stórvrð- in“, segir Hörður Guðmundsson. „Imgi segir hlutina stundum umyrðalaust þó mönnuin svíði undan. Hann getur verið mjög einstrengislegur og allt að því sauöþrár. Eg man t.d. að á lians yngri árum leyfðu pólitískar skoðanir hans honum ekki að kaupa einbýlishús. Þetta hrcyttist þó með aldrinum. Logi er eitilharður og beitir oft |ieirri taktík - að þú mátt hafa hvaða skoðun sem er - svo lengi sem luin er hans", segir Helgi Jóhannsson. „Hann er iníkill ákafamaður og hættir til að fara fram úr sér. Það leiðir til þess að liann á það til að vera ekki nógu „dipló" á viðkvæmu stigi í samningaferli. Þá kemur það fyrir liann eins og okkur öll að það liggur illa í bólið hans. Þá verður hanns snakillur, sem fer í taugarnar á ntér, en þetta líður alltaf fljótt h já og þá er hann fl.jótur að koma og gera bragar- bót“, segir Ólafur Þór. VIÐTAL'. PÁLL KETILSSOH WYNDIR: HILNIAR BRAGIBÁRÐARSON 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.