Víkurfréttir - 16.01.1997, Blaðsíða 15
Snóker
Jón Oli
trompaði
Ingimund í
ósamótinu
Jón Olafur Jónsson sigraði
á ásamóti Knattborðsstofu
Suðrnesja á miðviku-
dagskvöldið í sl. viku.
Atján keppendur mættu til
leiks og gekk mótið vel í
alla staði. Reglur í ásamó-
tum eru frábrugnar að því
leyti að aðeins ein rauð
kúla er höfð á borðinu og
leikurinn því fyrr að klárast
pg allir geta unnið alla.
I umspili um þriðja sætið
spiluðu Atli Geir Einars-
spn frá Isaftrði og Reynir
Astþórsson sem verið
hefur í „útlegð" í Dan-
mörku. Reynir kom öllum
á óvart og sigraði þó svo
að hann væri aðeins farinn
að ryðga þegar kom að
lituðu kúlunum sem þarf
að skjóta í réttri röð.
Bronsið fór því á sömu
leið eins og handritin
forðum nú f fylgd Reynis
sem fór á kostum með
kjuðann.
Jón Óli og Ingimundur
Magnússon kepptu um
fyrsta sætið en þeir eru
tveir af bestu og reyndustu
mönnum félagsins. Þeir
voru báðir orðnir býsna
framlágir þegar kom að
úrslitaleiknum enda búnir
að spila í tæpa fimrn tfma.
Svo fór þó að lokum að
Jón Óli sigraði og hefur
hann aldrei spilað betur en
um þessar mundir.
Ingimundur hirti silfrið í
annað skipti á skömmum
tíma og sýndi fram á hve
sterkur spilari hann er
þegar komið er út mótin.
Píparkökur hússins boru í
boði Hafsteins Gíslasonar
og Tælenska flamengo
tríósins bahajol.
Annað ásamót ársins fer
fram nk. laugardag kl.
17.00 og eru allir spilarar
hvattir til að niæta.
Skráning er á staðnum og í
síma 421 3822.
80 ára afmæli átti Elísabet
Þórhallsdóttir þann 15. janúar.
Hún tekur á móti gestum í
samkomuhúsinu Garði, laug-
ardaginn 18. janúar kl. 18.
Kareii reynir víi
dmmmhi
Karen Sævarsdóttir íslandsmeistari kvenna í
golfi síðustu átta árin hefur ákveðið að reyna
sig í atvinnumennsku í Bandaríkjunum en hún
lauk markaðsfræðinámi sínu frá Lamar há-
skólanum í Beaumont í Texas um jólin.
„Það er annað hvort að hrökkva
eða stökkva. Eg tel að það sé
kominn tími til að reyna við ný
markmið og þá er atvinnu-
mennska næsta skrefið", sagði
Karen í samtali við blaðið en
hún var stödd á heimaslóðum
yfir jól og áramót en fór til
Bandaríkjanna í morgun.
Karen sagði að hún teldi sig til-
búna til að takast á við þetta erf-
iða verkefni sem atvinnu-
menska er.,.Þegar komið er út í
atvinnumennsku er það ekki síst
höfuðið, þ.e. hugarfarið sem
spilar stóran þátt í því hvemig
árangri maður nær. Eg hef verið
í góðri samvinnu með þekktum
golfkennara sem heitir Mr.
Mark Steinbauer og hef notið
leiðsagnar hans undafarin tæp
tvö ár. Þá hef ég fengið leiðsögn
frá kunnum íþróttasálfræðingi
sem heitir Dr. Fran Pirozollo",
sagði Karen en báðir þessir
kappar em kunnir fyrir sín störf
í Bandaríkjunum. Sá síðar-
nefndi hefur m.a. unnið mikið
með Greg Norman og Berhard
Langer en þeir eru tveir af
fremstu kylfingum heims.
Karen mun leika á mótaröð sem
heitir Golden Bear Tour en það
er Gullbjörninn sjálfur, Jack
Nicklaus sem er aðalstyrktarað-
ili hennar. Fyrsta mótið verður
20. mars. Þetta er nokkurs kon-
ar neðri deild frá mótaröðinni
þar sem bestu kylfingar heims
leika á LPGA mótaröðinni. Nái
Karen að spreyta sig á Gull-
bjamarmótaröðinni kemst hún j
hugsanlega í hóp eitt hundrað j
bestu kvenkylfinga í Bandaríkj-
unum. Hún segist hafa sett upp
dagskrá næstu þrjú árin og
fyrsta árið mun hún Ieika í
a.m.k. 23 mótum sem flest
verða á Floridaskaganum. Þá
mun hún einnig taka þátt í einu
eða tveimur úrtökumótum fyrir
LPGA mótaröðina ef hún hefur |
ekki unnið sér þátttökurétt þar á
Gullbjamarmótaröðinni. „Þetta
er stíf dagskrá en nú er ég að
reyna við atvinnumennsku og
það verður skemmtilegt verk-
efni að geta einbeitt sér ein-
göngu að því. Ég hræðist það
ekki og tel mig hafa líkamlega
getu og kunnáttu til að komast
áfram en eins og ég sagði er
hugarfarið mjög stórt atriði. Þar
greinast meistararnir frá öðr-
um", sagði Karen.
Aðspurð um fjárhagslega getu
sagði Karen að peningar væm
vissulega svolítið áhyggjuefni
þegar farið væri út í svona verk-
efhi. Ekki væri um miklar vinn-
ingsupphæðir að ræða á þessum |
minni mótaröðum en kostnaður
við uppihald, ferðalög, móta-
gjöld og annað væri talsverður.
A stóru mótaröðinni, LPGA eru
hins vegar stórar peningaupp-
hæðir í veði. „Peningamálin eru
í svolítilli óvissu. Því neita ég
ekki en það er verið að skoða
þau mál“, sagði Karen en einn |
þeirra möguleika sem ræddir
hafa verið er stofnun hlutafélags
um hana líkt og verið er að gera
með Birgi Leif Hafþórsson, Is-
landsmeistara karla en hann
stefnir einnig á atvinnu-
mennsku.
Subur-
nesjaliðin
sigrubu öll
„Þetta eiu tvö bestu liðin
í deildinni og Ijóst að
bikarúrslitaleikurinn el'tir
hálfan trtánuð verður
s|X‘nnandi og skemmtile-
gur“, sagði Anna María
Sveinsdóttir, fyrirliði
Keflavíkurliðsins sem
bar sigurorð af KR á
þriðjudagskvöld í
Keflavík 61-56.
Sigur þeirra var þó alls
ekki sannfærandi og það
var aðeins á loka-
mínútunum sem þær
náðu að sigla fram úr,
með góðri pressuvörn,
því þegar skammt var til
leiksloka voru KR-
stúlkur með sjö stiga
forystu.
I Njarðvík tóku
Njarðvíkurstúlkur á móti
ÍR og sigruðu 49:40.
Grindavíkurstúlkur
burstuðu hins vegar
Breiðablik á útivelli
31:72.
Hnnnar fær gömlu félagana
í heimsókn í Veslurbæinn
-og spáir Grindvíkingiun sigri gegn Keflvíkingum
„Vonandi get ég nýtt
mér eitthvað þekkingu
mína á Njarðvík-
urliðinu. Liðin em
nokkuð jöfn að getu
þannig að þá má
ömgglega búast við
hörkuleik", sagði
Hrannar Hólmar þjálf-
ari KR sem fær
Njarðvík íheimsókn
íVesturbæinn í
kvöld.
Eina áhyggjuefni
Hrannar er að Jon-
athan Bow er meiddur
í baki og óvíst livort
hann geti leikið með
KR-ingum gegn
síðustu lærisveinum
Hrannars.
1 Keflavík eigast við
heimamenn og Isl-
andsmeistarar
Grindavíkur..
„Ef við gefum okkur
að skyttur liðanna
jafnist nokkum veg-
inn út því bæði lið
eiga mjög góðar skytt-
ur þá gætu Banda-
ríkjamennimir ráðið
miklu um úrslitin.
Keflvíkingar hafa
mjög fjölhæfan kana
sem fáir leikmenn
geta stöðvað án hjálp-
ar samherjanna og
Grindvíkingar hafa
gríðarlega sterkan
mann undir körfunni
sem Keflvíkingar
gætu átt í erfiðleikum
með.
Annars er þetta líka
mikið spursmál um
dagsfonn skyttanna
og reyndar alls liðsins.
Það kæmi mér þó
frekar á óvart að
Grindavík næði að
leggja Keflavík á þeir-
ra eigin heimavelli,"
sagði Hrannar.
Víkuifréttir
15