Víkurfréttir - 16.01.1997, Side 9
„Við seldum hugbúnað til til
fiskmarkaðs í New Bedford í
Bandaríkjunum á síðasta ári í
framhaldi af kynningu á Boston
sjávarútvegssýningunni og
verður liann tekinn í notkun nú í
febrúar. Við fáum af því
innkontutekjur um alla eilífð.
Það góða við jjetta kerfi er að
það er svo auðvelt að aðlaga
jrað að þörfum ]jess sem vill fá
það og þarf að nota það. Þeir
aðilar sem keyptu það af okkur
hafa verið að auglýsa það en
ekki sem fiskmarkaðskerfi.
Þeir kalla þetta „Base" þ.e.a.s.
kaupenda- og seljendauppboð
og hafa auglýst í stærstu sjáv-
arútvegstímaritum
Bandaríkjanna. Þeir eru búnir
að fá þvílíka svörun að [reir eru
núna að vinna í því um öll
Bandaríkin að selja kerfið ekki
bara fyrir ftsk heldur fyrir græn-
rneti, kjöt og alls konar hluti. Ef
þetta gengur upp í Ameríku þá
er þetta náttúrulega alveg of-
boðslega skemmtilegt að Is-
lendingar haft búið til mark-
aðskerfi fyrir Ameríkananrí'.
Markmiðið að
iækka þjónustu-
gjöldin
Nú eruð þið pcningalega séð
eitt stærsta fyrirtækið á
Suðurnesjum, hvernig kentur
þetta út rekstrarlega séð?
„Fiskmarkaður Suðumesja
veltir gífurlegum peningum.
Reiknistofa fiskmarkaðanna
sem FMS er 88% eigandi að
stofnuðum við upp úr tölvu-
kerfmu. Reiknistofan er enn eitt
afsprengið í rekstri FMS og er í
raun „batterí" í kringum hug-
búnaðinn, tölvukerfið og allt
reiknishald.
Hins vegar em tekjur FMS
aðeins prósenta af veltunni.
Sem þjónustufyrirtæki eruni við
rnjög lágt hlutfall af tekjum
miðað við rekstrarkostnað. Við
byrjuðum með mjög lítið
hlutafé eingöngu 2,3 milljónir
og fyrstu árin vorum við mjög
blankir. Umbúðakostnaður
þ.e.a.s. karakaup hafa verið
gífurleg og við emm búin að
kaupa kör fyrir hundruð mill-
jóna á þessum tíma. Við höfum
verið að reyna að byggja okkur
upp með aðstoð aðila á öllum
stöðum, eins og
Grindvíkinganna eða
svokallaðrar „grútarmaffu" sem
að var svo framsýn að byggja
fiskmarkaðshús sem við eruni
hluthafar að og leigjum síðan.
Landshöfn Ketlavík, Njarðvík
keypti á sínum tínta
Sjöstjömuhúsin og leigir okkur
aðstöðu þar og síðan keyptum
við okkur húsnæði með aðstoð
Sandgerðisbæjar á sínum tíma.
Þar erum við núna að byggja
stórhýsi nteð Sandgerðisbæ og
ætlunt að opna það í vor um
leið og við fögnum tíu ára
afmæli fyrirtækisins. Þá
munum við vera með sams
konar húsnæði á öllum stöðum
þar sem við getum boðið upp á
nákvæmlega sömu þjónustu.
Við erum komnir í þá stöðu í
dag að geta gert þessa hluti vel
en jafnframt er ntarkmið
félagsins að lækka þjónustu-
gjöldin." Logi segir að verð
hlutabréfa hafi hækkað mikið
við útboð sem var nýlega.
Fimmtungur hlutabréfa sem
seld voru á frjálsum markaði
seldust á genginu 3,6.
Hvernig voru viðtökur og
annað í kringuni þetta þegar
þú horfir til baka tíu árum
frá stofnun FMS?
„Þegar fiskmarkaðurinn kemur
hér 1987 þá er fiskvinnsla
nánast að drepast á þessu svæði.
I dag er fullt af litlum og mill-
stórum fyrirtækjum í gangi sem
urðu til eftir stofnun
fiskmarkaðsins. Þetta náttúru-
lega segir meira en mörg
afturhaldsorð um það að
fiskmarkaður hafi ekki verið
rétta leiðin. Við höfum verið að
seija hér upp undir 50% af þeim
landaða afla sem komið hefur
hér á Suðumesjum.
Vinnum saman
Þannig að fískmarkaður á
Suðurnesjum var í raun
ákt eðin iausn á m.a. kvóta
fyrir svæðið?
. Já, hugntyndir okkar á
Fiskmarkaði Suðumesja hafa
leyst fisksölumál á Islandi með
það að gera að lítil höfn með
einn fiskverkanda er ekki eini
kaupandinn. Það er lykilatriðið.
Við fundum lausn á því hvemig
mátti fjölga kaupendum á litlum
stöðum. Eg er á þeirri skoðun
að okkar bar gæfa til þess hér á
Suðumesjum að vinna saman.
Það er lykilatriðið að okkar vel-
gengni. Við erurn stórir vegna
þess að við vinnum saman þ.e.
Fiskmarkaður Suðumesja og
Suðumesjamenn og við emm
leiðandi í fiskmörkuðunum og
fiskmarkaðskenningunni vegna
þess að þetta mikla magn sem
fer um fiskmarkaðinn gefur
tækifæri til þess að geta unnið
betur."
Sem stjómarfomiaður FMS
hefur farið mikill tími hjá Loga
í mál tengd fiskmárkaðnum. En
hann hefur verið með puttana í
fiski frá því hann var tíu ára og
var einn af þeim fyrstu sem
hófu útflutning á ferskum fiski
fyrir tuttugu árum síðan. Það
hófst í félagi nteð þeim Eiríki
Hjartarsyni og Jóhannesi
Sigurðssyni í húsnæði á
Vesturgötunni í Keflavík.
Fljótlega ákvað Jóhannes að
draga sig út en þeir Logi og
Eiríkur unnu saman í sjö ár. Þá
skildu þeirra leiðir en Logi og
Bjargey Einarsdóttir, eiginkona
hans héldu áfram rekstri Tros.
Bílaverkstseði með
átta niðurföllum
Hverjar voru ykkar
hugmyndir um þetta á
sínum tíma?
„Þetta byrjaði þannig að ég,
Eiríkur og Jóhannes fórum
niður í saltfiskhús með kerru og
fengum skötu og karfa sem við
fluttum inn á Englandsmarkað.
Svo fómm við að flytja heilan
fisk í flugi inn á
Englandsmarkað og byrjuðum
svo að llaka hann. Eiríkur var
reyndar með útflutningsfyrir-
tæki og hafði verið að flytja út
fisk frá öðrum til Ameríku og
síðan byrjuðum við sjálfir að
flaka hann. Við fluttum fljótlega
til Sandgerðis. Keyptum þar
bílaverkstæði og vomnt svo
heppnir að það var með átta
niðurföllum. Við byrjuðum þar í
240 fermetra húsi sem við
höfum síðan stækkað mikið".
Gæðin númer eitt
Logi segir að hann hafi verið
heppinn með starfsfólk sem
hefur nánst verið það sama alla
tíð. Þegar Ixigi er spurður um
mikilvægi vörunnar er hann
ekki lengi að svara: „Gæðin em
númer eitt, tvö og þrjú. Efþú
ætlar að halda haus í fersk-
fiskmarkaðinum þá verðurðu að
tryggja það að fiskurinn sent þú
ert að senda hafi svona tíu til
fjórtán daga líftíma eftir að
hann kentur til kaupandans."
I dag kaupir þú nýveiddan
fisk. Hvenær er hann kominn
til kaupenda?
„Yfirleitt daginn eftir eða degi
síðar. Breytingin reyndar sem
orðið hefur á síðastliðnum ámm
hefur verið á þá lund að það
hafa verið stórir línubátar sem
em með beitingavélar og hafa
verið úti í fimm til sjö daga.
Við kaupum mikið af afla frá
síðustu tveimur til þremur
veiðidögunum. Þessi útgerð
skiptir okkur mjög miklu máli
vegna þess að þessi bátar em
nánast á línu allt árið og
þorskurinn og ýsan af þeim er
eitt besta hráefni sem hægt er að
fá að undanskyldum þessum
dagróðrarbátum á línu sem em
bestir. Einnig höfum við notað
netaýsu af Selvogsbanka. Eg
veit ekki alveg út af hverju en
bankaýsa er betri ýsa en önnur.
Einnig höfum við fundið út eftir
tilkomu fiskmarkaða hringinn í
kringum landið að netaýsa og
línuýsa af Austfjörðum er líka
mjög góð og sérstaklega af
norðurfjörðunum. En ýsa er
okkar mál".
Umhverfisvænt
Aður en fiskmarkaðir komu til
var Tros með föst viðskipti við
lfnubáta auk þess sem fyrirtæk-
ið gerði út tvo til þrjá báta til
ársins 1989. „Þá hættum við
öllum afskiptum af útgerð enda
teljum við okkur vera færara
fiskvinnslufólk heldur en
útgerðarmenn".
Tros lenti í úrtaki og var boðið
að vera eitt af tíu fyrirtækjum á
landinu sem Evrópusambandið
styrkir til að láta votta sig sem
með umhverfisstefnu. Logi
segir að um 99% af því sem
telst úrgangur hjá fyrirtækinu
færi í endurvinnslu og nú væri
unnið í þessu verkefhi en að því
loknu fær Tros vottun sem um-
hverfisvænt fyrirtæki.
En hvert er uppluifið að
fiskinum í —
Logi hefur eingöngu flutt út
ferskan fisk með flugi frá
Kellavík. „Þegar við byrjuðum
fluttu Flugleiðir einhver 700
tonn af frakt, 200 tonn af því
var fiskur, hitt einhver annar
vamingur. Nú eru flutt út urn 20
þúsund tonn og fiskur uppi-
staðan. Þróunin hefur orðið
geysileg bæði vestur og austur,
til Evrópu og Ameríku en okkar
útflutningur er mestur til
Bandaríkjanna".
Hvaða tegundir eru þetta seni
þið hafið aðallega verið að
selja?
„Við seljum nánast allar
tegundir. Uppistaðan af því sem
við fJamleiðum sjálfirerýsa,
karfi, grálúða og allur flatfiskur.
Við flytjum einnig mikið út af
þorski en framleiðum tiltölulega
lítið. Við emm í mjög góðu
samstarfi við Fiskanes í
Grindavík sem við flytjum út
fyrir og markaðsetjum fyrir þá
ferskfisk".
MYÍVDIR
ÍR STARFI
Myndirnarhérad ofan og
til hliðar voru teknar á upp-
boði hjá Fiskmarkaði
Suðurnesja í Njarðvík sl.
mánudag. Eyþór Jónsson
og Ólafur Þór Jóhannsson
að störfum við uppboð.
Ólafur hefur starfað með
Loga frá upphafi.
Ingólfur Órn Guðjónsson
er sérfræðingur FMS í öllu
sem viðkemurtölvum og
nú ersvo komið að
fyrirtækið selur ekki lengur
einungis fisk heldur hug-
búnað líka.
LOGI um fiskverd
..... Sjómenn hafa lært mjög fljótt að samþykkja bæði
lág og há verð og einnig að nýta kvótann vel með því
að róa þegar verð er hátt... “
LOGI um kaupendur og seljendur
..... Ifið höfum ekki áhyggjur á meðan bæði kaupendur
og seljendur kvarta. Seljendur kvarta yfirþví að við
séum kaupendahollir og öfugt. Það er ekki hægt að
hugsa sér það betra "...
LOGI um svarta kassann
.....menn höfðu áhyggjur afþví að sjómenn myndu
Ijúga. Þá komu upp hugmyndirað setja „svarta
kassa" í bátana...
Víkurfréttir
9