Víkurfréttir - 23.01.1997, Blaðsíða 11
SóMæri á
-seffir Viöar Þorkelsson, sem nýlega
tók vib si'wdisstjóriistnifi Ltiiidsbanka
Islands á Sitöiiniesjian
„Mér líst mjög vel á svæðið.
Þetta er orðið mjög myndar-
legt byggðarlag og ég er
spenntur að takast á við þetta
verkefni“, sagði Viðar Þor-
kelsson, sem um áramótin tók
við starfí svæðisstjóra Lands-
banka Islands á Suðumesjum
við útibúið í Keflavík en
bankinn er með útibú í
Grindavík, Sandgerði og í
Leifsstöð.
Viðar hóf störf hjá bankanum
1988 eftir viðskiptafræðinám í
Háskóla Islands og starfaði
sem sérfræðingur á fjármála-
sviði. Hann fór til Bandaríkj-
anna þremur árum síðar og
lauk Mastersnámi og að því
loknu tók hann við útibús-
stjórastarfi LI á Norðftrði árið
1993 sem hann hefur sinnt
síðan. Viðar hafði sætaskipti
við Hjörvar Jensson sem var
við stjómvölinn í KeflavQc en
hann tók við af Viðari fyrir
austan.
„Eg sé sóknarfæri á markaðn-
um almennt séð en auk þess
virðast vera jákvæð teikn á
lofti í atvinnumálum á Suður-
nesjum. Það þarf t.d. ekki að
orðlengja hversu mikil lyfti-
stöng magnesíumverksmiðja
yrði fyrir svæðið. Númer eitt
hjá okkur verður að veita þá
þjónustu sem fólk er ánægt
nteð, það er vænlegast til ár-
angurs. Þar má m.a. nefna af-
greiðsluhraða. Það þykir fáum
skemmtilegt að bíða í biðröð-
um í bönkum".
Viðar sagði að stefnan væri að
veita alhliða fjármálaþjónustu
og sinna þannig öllum þörfum
viðskiptavina m.a. verðbréfa-
viðskiptum en dótturfyrirtæki
bankans, Landsbréf sérhæfir
sig í þeim.
Viðar er fæddur 29. jan. 1963.
Eiginkona hans er Sigríður S.
Þorsteinsdóttir, meinatæknir
og eiga þau tvö börn. Að-
spurður um áhugamálin sagði
hann þau vera á íþróttasviðinu
þó svo þátttaka hans væri ekki
mikil í dag en Viðar á að baki
landsleiki í körfubolta og
knattspyrnu. Fram var hans
félag og lék Viðar sinn fyrsta
landsleik í körfubolta 16 ára
með Jóni Kr. Gfslasyni og
fleiri kunnum köppum en
sneri sér alfarið að knatt-
spymu þegar hann var orðinn
18 ára. „Eg er því ekki alveg
ókunnugur á svæðinu því ég
hef oft komið hingað og att
kappi við ykkar ntenn í körf-
unni og í knattspyrnunni“,
sagði Viðar sem lauk ferlinum
fyrir austan með því að leika
með Þrótti Nes í 2. deild.
myndatökur
frá kr. 9000.-
Ljósmý^toQfa
SÍMI 42 1 65 5 6
Félagsstarf ársins 1996
Valnefnd Víkurfrétta sem
árlega velur mann, fyrirtæki
og félag- eða félagsstarf ársins
ákvað að bamastárf Keflavík-
urkirkju hljóti þessa útnefn-
ingu. Kraftmikill sunnudaga-
skóli kirkjunnar hefur vakið
niikla athygli. Við fjöllum
nánar um þetta málefni í
næsta blaði.
BILAKRINGLAN
ATVINNA
Viljum ráða bílasmið og mann
vanan réttingar- eða málningar-
vinnu. Upplýsingar gefur Birgir í
síma 421-4242.
Fjölbrautaskóli
Suðurnesja
Foreldrar og
forráðamenn-
nemenda á
fyrsta ári í FS!
Upplýsingafundur um nám og
störf í skólanum verður
miðvikudaginn 29. janúar
kl. 20-21 á sal skólans.
Umræður yfir rjúkandi kaffibolla.
Skólameistari.
Ibúðir aldraðra
í Sandgerði
Til leigu eða sölu
3ja herbergja 90 fermetra
íbúð á fyrstu hæð.
Umsóknir berist
Húsnæðisnefnd, Tjarnargötu
4, 245 Sandgerði fyrir
1. febrúar n.k.
Nánari upplýsingar í síma
423-7555.
fl ÚTBOD
Reykjanesbær leitar tilboða í kaup á fiskmeti fyrir
stofnanir bæjarins. Um er að ræða c.a. 7 tonn affiski.
Gerður verður rammasamningur um innkaupin til
a.m.k. eins árs með möguleika á framlengingu.
Útboðsgögn eru til sölu hjá Innkaupadeild
Reykjanesbæjar, Vesturbraut lOa,
Keflavík, verð kr. 1000.-
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl. 14,
miðvikudaginn 26. febrúar 1997.
Nánari upplýsingar gefur Innkaupastjóri í
síma 421-1552.
Innkaupadeild Reykjanesbæjar.
Víkuifréttir
11