Víkurfréttir - 25.09.1997, Page 8
Með Samvinnuferðiim Landsýn til „Eyjunnar grænu":
Studeo Huldu mun stækka
við sig á næstunni og bjóða
upp á nýjan sal með þrek-
tækjum, sólbekkjum og
spinning.
Nýi salurinn verður tekinn í
notkun um mánaðamiótin og
samanlagt verður því hús-
næði Studeo Huldu unt 460
fermetrar. Tveir sólbekkir
verða í nýja húsnæðinu og
eru þeir með nýjar perur. í
tilefni stækkunarinnar er
boðið upp á 10 tírna Ijósa-
kon á kr. 2000.
Studeo Huldu liefur jafn-
framt aukið við sig kennur-
um. Þeir sem kenna í vetur
eru Hulda, Odda, Bryndís,
Sigríður og Emelía. Allar
hafa þær mikla menntun og
reynslu.
Meðal nýjunga í vetur er
jógaleikfimi sem hefur notið
mikilla vinsælda. Kennari er
Emelía. Hulda mun áfrarn
bjóða ráðgjöf í sambandi við
mataræði og fitubrennslu-
námskeiðin vinsælu halda
áfram en þar er boðið upp á
mikið aðhald. Boðið verður
upp á fitumælun með full-
komnasta tækinu á landinu
þar sem vöðvamassi og fita
em mæld. _
Námskeið í spinning hefjast
um mánaðarmótin sem er
mikil þolþjálfun. Að sögn
Huldu Lárusdóttur annars
eiganda Studeo Huldu er
mikilvægt að leiðbeinendur í
spinning hafi þekkingu og
mikla reynslu á bak við sig
vegna mikils álags á hjarta-
vöðva. í spinning er meira
álag á hjartavöðva en í
venjulegum leikfimitíma og
sagði Hulda mikinn mun
vera á þrekhjóli og spinning
þar sem hjólað er með
þyngd.
Bamahomið vinsæla verður
áfram á sínum stað en Stu-
deo Huldu er eina líkams-
ræktarstöðin á Suðumesjum
sem býður upp á barna-
gæslu. Dagmæður sjá um
vörsluna á meðan á kennslu
stendur og jafnframt á
morgnana sem færri vita af
að sögn Huldu.
Hulda Lárusdóttir og Kristmundur Carter eigendur Studeo
Huldu munu brydda upp á ýmsum nýjungum í vetur.
Samvinnuferðir-Landsýn efndu til golfferðar til ír-
lands fyrir skömmu og var leikið golf á iðagrænum
völlum á eyjunni grænu. Suðurnesjamenn áttu
nokkra fulltrúa í ferðinni og undu þeir sér vel eins og
hinir en alls voru tæplega fjörtíu manns í hópnum.
Leikið var golf í fjóra daga, annars vegar í Wicklow
sýslunni ekki langt frá Dublin og hins vegar í ná-
grenni smábæjarins Enniscorthy sem er á suðaustur
strönd írlands. Hápunkturinn var þegar leikið var
golf á Druids Glen golfvellinum en þar er opna írska
meistaramótið haldið. Bestu atvinnukylfngar í heimi
berjast þar um há peningaverðlaun og völlurinn hef-
ur cinnig verið nefndur til sögunnar um að halda
Ryder bikarinn skömmu eftir aldamótin. Ryderinn
er hvergi haldinn nema á stórvöllum.
Víkurfréttir áttu sinn fulitrúa á írlandi og voru með-
fylgjandi myndir teknar í ferðinni.
brúbkaup
í LHFSSTÍMU
Það er ekki á hverjum degi sem brúðkaup fer fram í Leifs-
stöð en það gerðist nú samt þar á dögunum. Þá gaf séra
Baldur Rafn Sigurðsson, sóknarprestur í Njarðvík saman
þau Svanfríði Aradóttur og Ragnar Einarsson úr Njarðvík-
um. Uppákoman var leyndarmál brúðgumans sem kom
spúsu sinni á óvart með því að biöla til hennar eftir sextán
ára búskap. „Hún vissi ekki af þessu þó hana hafi grunaö
eitthvað, sérstaklega þegar hún ætlaði aö fara í gallabuxum
upp í Leifsstöð. Eg baða hana að fara í eitthvað fínna“,
sagði brúðguminn hress í bragði að lokinni athöfninni.
„Þetta var skemmtilegt og óvænt ekki síst þar sem við vor-
um að fara til útlanda í fyrsta skipti saman“, sagði Svan-
fríður.
Studeo Huldu
stækkar við sig:
p.
Víkurfréttir