Víkurfréttir - 09.10.1997, Blaðsíða 13
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar:
„Hleypt af stokkum
- viðskiptahugmynd
að venuleika"
- Stuflningur við fólk sem vill stofna fyrirtæki
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa
Reykjanesbæjar, MOA, er að hefja
verkefni sem snýst um að vinna með
fólki sem vill fara út í sjálfstæðan
atvinnurekstur. Verkefnið hefur hlotið
nafnið Hleypt af stokkum - viðkipta-
hugmynd að vemleika. Við fengum
starfsfólk MOA, þau Jón Bjöm
Skúlason, Ragnheiði Gunnarsdóttur
og Sigríði Jónu Jóhannesdóttur, til að
segja okkur nánar frá því.
Suðurnesjamenn með viðskip-
tahugmyndir.
I stuttu máli gengur verkefnið út á að
vinna með fólki í allt að 12 mánuði að
því að gera viðskiptahugmynd þess að
veruleika. Byrjað verður á því að finna
og skilgreina viðskiptahugmyndir þátt-
takenda. I framhaldi af því vinna þátt-
takendur upp viðskiptaáætlun hver
fyrir sína hugmynd og í kjölfarið,
reynist niðurstaða áætlunarinnar já-
kvæð, standa vonir til að þátttakendur
stofni sitt eigið fyrirtæki. Við vitum að
margir Suðumesjamenn ganga með
góðar viðskiptahugmyndir í magan-
um, en það að vera með hugmynd er
ekki skilyrði fyrir þátttöku í verkefn-
inu. Fjöldinn sem kemst að í verkefn-
inu verður takmarkaður en þau hvetja
alla, ekki síst konur, ungt fólk og fólk
án atvinnu til þess að sækja um. Hér er
um einstakt tækifæri að ræða.
Hvernig fer þessi vinna fram?
Hópurinn kemur saman tvisvar í viku
til að bytja með, þar sem hver og einn
vinnur að viðskiptahugmynd sinni í
samvinnu við okkur. Farið verður yfir
alla þá þætti sem snúa að stofnun og
rekstri fyrirtækja samhliða því sem
þátttakendur vinna sína viðskip-
taáætlun. Þátttakendur munu hafa
aðgang að vinnuaðstöðu í húsakynn-
um MOA meðan á verkefninu stendur.
Aðferðaffæðin gengur út á að fólk læri
sem mest með því að gera hlutina
sjálft. Miðað er við að hver og einn
geti haldið sínum hraða, þ.e. aðstoðin
verður mismunandi eftir því hversu
langt einstaklingar hafa þróað sína
viðskiptahugmynd. Þátttakendur
! munu í samvinnu við okkur læra skref
fyrir skref hvað felst í því að stofna
fyrirtæki um leið og þeir gera
viðskiptahugmynd sfna að veruleika.
Stvrkur og aðstoð við fjármögnun
Akveðið hefur verið að halda kostnaði
við verkefnið í lágmarki og er þátt-
tökugjald kr. 5.000. Það er síðan von
| okkar að þeir sem koma saman væn-
legum viðskiptaáætlunum gætu átt
von á fjárstyrk. I verkefninu felst að
auki aðstoð við að ftnna fjármagn til
að stofna væntanlegt fyrirtæki. I þessu
sambandi hefur Sparisjóðurinn í
Keflavík ákveðið að styrkja verkefnið
og auðvelda fjármögnun á vænlegum
fyrirtækjum.
Faglegt og persónulegt í samvinnu
við Iöntæknistofnun
Lögð er áhersla að verkefhið snúist
ekki eingöngu um faglega þætti. Það
er í raun ekki auðvelt að greina faglega
þætti við stofnun fyrirtækis frá þeim
persónulegu. Fólk getur t.d. búið yfir
góðum hugmyndum en skort þjálfun
til að „selja“ þær öðrum.
Kynningartækni, samningatækni,
mannleg samskipti, sjálfsstyrking og
jress háttar em þættir sem ekki er hægt
að líta framhjá þegar farið er út í sjálf-
stæðan atvinnurekstur. Hér mun
Iðntæknistofnun koma við sögu, en í
raun er þetta evrópskt tilraunaverkefni
sem stofnunin stendur að ásamt MOA,
en írar, Svíar og Finnar em evrópsku
samstarfsaðilamir. Iðntæknistofnun
hefur um árabil haldið námskeið undir
heitinu „Stofnun og rekstur smáfyrir-
tækja“. Verkefnið Hleypt af stokkum -
viðskiptahugmynd að vemleika dreg-
ur dám af því námskeiði en hefur það
framyftr að vinnu þátttakenda er fylgt
eftir frá upphafi til enda.
Allar frekari upplvsingar um
verkefnið fást á skrifstofu MOA.
HLíYPT Af STOKKUM
VIÐSKIPTAHUGMYND AÐ VERULEIKA
Uiltu ráða meiru um tíma þinn og tekjur
- dreymir þig um eigið fyrirtæki?
Efsvarið er já, en þú ert ekki viss
hvernig láta á drauminn rætast, þá er þetta...
i$SPRRISJOf)URIHH
í KEFLAVÍK
Líttu inn til okkar og fáðu nánari upplýsingar.
Umsóknarfrestur er til 13. október.
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa Reykjanesbæjar
Hafnargötu 57, Reykjanesbæ
Sími 421 6700, fax 421 6199
Víkurfréttir
13