Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.10.1997, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 09.10.1997, Blaðsíða 14
60 ára afmæli Ingólfur Bárðarson rafverk- taki, Starmóa 10 Njarðvík, verður sextugur 9. október nk. Munu hann og eiginkona hans Halldóra Jóna Guð- mundsdóttir, sem verður sex- tug 31. desember n.k., halda upp á þessi tímamót 11. októ- ber í Frímúrarahúsinu að Bakkastíg 16 Njarðvík milli kl. 20 og 23.00. Vonast þau eftir að vinir og ættingjar komi og gleðjist með þeim á þessum tímamótum. Vinabæjarheimsókn til Kerava í Finnlandi: Mótið vannst með glæsibrag -keppt ígolfi í Danmörku aö ári Árleg íþróttakeppni vinabæjanna Hjörring, Trollhattan, Kristjansand, Kerava og Reykja- nesbæjar var haldin í lok júní sl. I þetta sinn var keppt í körfubolta og voru 7 drengur og 7 stúlkur ásamt 2 þjálfurum valin ffá körfuknattleiksdeildum UMFN og Kefla- víkur. Ákveðið var að bjóða þeim ungmennum sem hafa sýnt stundvísi og háttvísi utan vallar sem innan. Hópurinn sýndi að hann var vel að þessu vali kominn og stóð sig með prýði alla ferðina. I keppninni tapaðist aðeins einn leikur af átta og samanlagður árangur drengja og stúlkna dugði til þess að mótið vannst með glæsibrag. Fjögur ungmenni frá Reykjanesbæ voru valin f úrvalslið mótsins og fengu þau viðurkenningarskjöl fyrir baráttu og dugnað innan vallar. Vel var staðið að mótinu af íþróttaskrifstofu og bæjarstjóm Kerava og var dagskráin sérstak- lega sniðin með það í huga að ungmenni frá öllum bæjunum gætu kynnst. Næsta vinabæjarmót verður haldið árið 1998 í Hjörring í Danmörku. Tillaga Dana um að keppt yrði í golfi var samþykkt af íþróttafull- Uúum og íþróttaráðsfólki frá löndunum fimm. Einnig var samþykkt að hafa sama fyrirkomu- lag þ.e. 7 stúlkur og 7 drengi á aldrinum 13 til 17 ára. Fararstjóm vill koma á framfæri þakklæti til Keravafaranna fyrir skemmtilega ferð og til foreldra unglinganna sem tóku virkan þátt í undirbúningi ferðarinnar. Einn góður! Eiríkur, til hamingju með 25 ára afmælið 11. október. Fjölskyldan og Sigrún Til knattspymustjómar Keílavíkur Við stelpumar í kvennaknattspymunni í Keflavík sættum okkur engan vegin við framkontu ykkar í okkar garð. Haldið þið virkilega að við ntunum sætta okkur við tvær æfingar í Myllubakkaskóla og eina í b-sal íþróttahússins við Sunnubraut, og þar að auki á sunnudögum kl. 11.00 og á föstudögum kl. 15.00 þeg- ar meiri en helmingur okkar er ennþá í skólanum. Hvemig ætlið þið svo að koma fyrir 25-30 stelpum í íþróttahúsið í Myllubakkaskóla þannig að þær fái eitthvað út úr æftngunum. Svo er ætlast til að við borgum jafn mikið og strákamir sem eru með helmingi betri tíma en við. Þetta er svo mikið óréttlæti gagnvart okkur. f>ó að við séum ekki alltaf í efstu sætunum á öllum mótum. Þetta er alls ekki rétta leiðin til þess að byggja upp kvennaknattspymuna en t.d. var 3. flokkur í 3. sæti á íslandsmótinu innanhúss í fyrra og þurfa svo að sætta sig við þessa æfmgartíma sem þær munu ekki gera. Það er eins og þeir sem raði æfmgartímunum niður, raði þeim fyrst og fremst eftir því hvað strákunum henti best og svo fáum við afgangs- tíma sem em mjög lélegir. Við biðjum ekki um mikið. Aðeins að þið komið ffam við okkur eins og strákana. Við eigum rétt á því. 2. og 3. flokkur kvenna. Kirkja Keflavíkurkirkja Sunnudagur 12. okt: Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14. Prestur: Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju syngur. Organisti: EinarÖm Einarsson. Starfsfólk Keflavíkurkirkju. Njarðvíkurprestakall Innri-Njarövíkurkirkja Sunnudagur 12. okt: Sunnudagaskóli kl. 11:00, sem fer fram í Keflavíkurkirkju. Böm sótt að safnaðarheimilinu kl. 10:45. Miðvikudagur 15. okt: Foreldramorgunn kl. 10:30. Y tri-Njarðvíkurkirkja Sunnudagur 12. okt: Sunnudagaskóli kl. 11:00 sem fer fram í Keflavíkurkirkju. Rúta fer frá kirkjunni kl. 10:55. Baldur Rafn Sigurösson. Kaþólska kirkjan Kapella Heilagrar Barböru, Skólavegi 38. Messa alla sunnudaga kl. 14. Allir velkomnir. Jesús Kristur er svarið Samkoma öll fimmtudagskvöld kl: 20:30. Allir velkomnir. Barna- og fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 11:00. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84 Keflavík Smáauglýsingar TIL LEIGU Einstaklingsíbúö (stúdíóíbúð) við Tjamargötu, getur nýsts sem skrifstofuhús- næði, laus strax. Uppl. í símum 898-4614 eða 565- 3694. Á sama stað til sölu ljósabekkur með andlitsljó- 3ja -4ra herb. íbúð í Keflavík, laus strax. Uppl. í síma 462-1832 eftir kl. 17. 3ja herb. íbúð í Sandgerði, laus strax. Uppl. í símum 421-4504 og 897-9780. ÓSKAST TIL LEIGU 3ja herb. íbúð óskast. Greiðslugeta kr. 30 þús. pr. mán. Uppl. í símum 421-5263 og 898- 6867. 2ja-3ja herb. íbúð í Keflavík óskast sem fyrst. Uppl. í síma 896-2073. 3ja herb. íbúð erum tvö fullorðin í heimili, reglusemi, öruggar greiðslur í gegnum greiðs- luþjónustu bankanna. Uppl. í síma 421-1888 eftirkl. 17.00. TILSOLU Ibanez rafmagnsgítar í tösku verð kr. 35 þús. Góður æfingamagnari kr. 5 þús. Einnig byijenda raf- magnsgítar fyrir örvhenta með tösku kr. 15 þús. Uppl. í símum 421-3468 og 551- 5991. Vegna flutninga er til sölu Brio kerruvagn. Uppl. í síma 421 -2116. Silver Cross bamavagn með bátalagi, sem nýr, verð kr. 30 þús. Einnig GSM sími Motorola 7500 batteri fylgir verð kr. 15 þús. Pioneer geislaspilari í bíl verð kr. 15 þús. Uppl. í síma 422- 7252 eftir kl. 18. Sambyggð Robland trésmíðavél. Uppl. í síma 892-7512. 13” felgur undan Lancer. Uppl. í síma 421-5484. 580 lítra fiskabúr með öllu. Sjón er sögu ríkari. Uppl. í síma 421- 2096 eftirkl. 21. Toyota Corolla XL árg. '88. Sjálfskiptur góður bíll, lítið keyrður. Til sölu vegna brottflutnings. Uppl. í síma 421-4476. Britax bílstóll 9-18 kg. Hvítt sprautlakkað rúm 75x200 cm með púðum og skúffu undir, eins og nýtt. 30 1. fiskabúr með öllum græjum. Uppl. í síma 426-8596. Erikson GSM sími og Crate gítar magnari 200 wött. Uppl. í síma 421-3542 og 899-3822. Wolsvagen Transporter árg. '93. Ekinn 70 þús. km. Nánari uppl. á Bíslasölu Brynleifs í síma 421-5488. OSKAST KEYPT Hókus Pókus bamastól. Uppl. í síma 421- 6350 Sigríður. TAPAÐ FUNDIÐ Þessi Síams læða hvarf frá Greniteig 36. 5.október, er merkt með bláa hálsól. Uppl. í si'ma 421-2754. Blá Adidas flís peysa no 128 var tekin af leiksvæði við Heiðarhvamm. Finnandi vinsamlegast hafi samband í síma 421-7016 eftirkl. 18.00. YMISLEGT Breski miðillinn Benenice Watt verður með fræðslunámskeið í transmiðlun í Orkublikinu Túngötu 22 Keflaví, laug- ardaginn 11. októberkl.lO.f.h. til 12.30 og frá 13 til 16 v erður hún með fræðslu- námskeið í að nota dámeðferð til að fara aftur í fyrri líf tak- markaður fjöldi. Uppl. í Orkublikinu í síma 421-3812. Ungbarnanudd Nýtt námskeið er að hefjast. Uppl. í síma 421-1324. Kaþólska Kirkjan Hver er Kletturinn ? Trúfræðsluerindi í Kapellu Heilagrar Barböm, Skólavegi 38, Keflavík, n.k.mánudag kl. 19.30. Allir velkomnir. Köku og handverksbasar Kvennakór Suðumesja verður með köku og handverksbasar f Kjarna föstudaginn 10 október n.k. frá kl.13.00. Láttu sjá þig. Atvinna Hárgreiðslumeistari óskar eftir hlutastarfi. Margra ára reynsla. Uppl. í sfma 423- 7616. Viðtalstímar forseta bæjarstjórnar eruáskrifstofiiReykjanesbæjar ÍKjama,Hafnargötu57,2.hæð áþriðjudögumkl.9-11. 14 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.