Víkurfréttir - 11.12.1997, Blaðsíða 1
FRETTIR
49. TOLUBLAD 18. ARGANGUR
FIMMTUDAGURINN 11. DESEMBER 1997
MIÐSTÖÐ SÍMENNTUNAR
Á SUÐURNESJUM
VERÐUR STOFNUÐ í DAG
Menntamálaráðherra, Björn Bjarnason,
var viðstaddur undirritun samnings um
stofnun nýrrar fullorðinsfræðslumið-
stöðvar á Suðurnesjum í hádeginu í dag.
Stofnendur eru auk Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, aðilar vinnumarkaðar á Suðumesjuni,
Reykjanesbær, Samband sveitarfélaga á
Suðurnesjum, Endurmenntunarstofnun Há-
skóla Islands, Samtök iðnaðarins og Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu.
Q
Q
—i
QQ
CD
2
c/i
CD
b
CD
O
Keflavíkurkirkja skreytir jólahlaðborð Glóðarinnar.
Það voru Glóðarkokkarnirsem bökuðu kirkjuna úr
piparkökudeigi og stendur hún á hlaðborðinu. Það
^ er því ennþá möguleiki fvrir andstæðinga safnaðar-
heimilisins að njóta kirkjunnar og hún hefur aldrei
verið ,rsætari“ en einmitt nú! VF-mynd: Dagný
* | Jólablaðið
“■1 í nœstu viku!
K-
CO
CC
Hi
Jólablað Víkurfrétta kemur út næsta fimm-
tudag. Það er síðasta blað ársins. Þar sem blaðið
verður bæði þykkt og efnismikið verður ritstjórn
blaðsins opin alla helgina.
Þeir sem ekki hafa tryggt sér auglýsingapláss eru
beðnir um að hafa samband við auglýsingadeild
sem fyrst. Þá eru þeir sem þurfa að koma að efni
beðnir um að hafa samband fyrir helgina.
Víkurfréttir eru til húsa á efti hæð Sparisjóðsins í
Njarðvík. Símanúmer blaðsins eru 421 4717 og 421
5717. Fax 421 2777 og netfang hbb@ok.is
</l L
J
Skórinn út í glugga í kvöld!
Þeir Þorvarður og Siggi böðuðu sig í geilsum morgunsólarinnar í risglugga Þorvarðarhúss í
Keflavík þegar Ijósmyndari Víkurfrétta smellti af þeim þessari mynd. Fyrsti jólasveinninn kemur til
byggða í nótt og þá er vissara að vera búinn að setja skóinn út í glugga til að fá gjöf frá sveinka.
Oþekku krakkarnir fá hins vegar kartöflu í skóinn en við skulum vona að stekkjastaur hafi ekki
margar kartöflur í pokanum. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Skipulagður sparnaður Hsprrisjóðurjhh