Víkurfréttir - 25.06.1998, Page 15
Pavic skoraði
sigurmarkið
«*- *
Jóhannes
Kristbjörnsson
Keflvíkingum dugði eitt
mark til að sigra
Leiftursmenn en þeir
hafa ekki unnið nenia
eins marks sigra á leiktíð-
inni. Nýju Júgóslavnesku
Ieikmennirnir Marco Tana-
sic og Sasa Pavic settu held-
ur betur mark sitt á leikinn
því á 30 mínútu meiddist
Tanasic á sama tíma og
Pavic skoraði sigurmarkið.
Heimamenn réðu gangi
leiksins í upphafi, miðjan og
vömin gríðarsterka og strax á
5 mín. átti Guðmundur
Steinars skot naumlega
framhjá eftir sendingu
Tanasic. Paul Kinnard átti
hörkuskot á 13 mín og
ál7mín. skaut Snorri Már í
hliðarnetið eftir þunga sókn
og strax í kjölfarið komst Uni
Ange einn inn fyrir
Keflavíkurvörnina en lyfti
boltanum yfir Bjarka og
naumlega framhjá.A þrítugus-
tu mínútu var komið að
Guðniundi Oddsyni, mið-
verði, að sína sóknarhæfileika
sína. Hann fékk boltan við
eigin vítateig, tók á rás upp
miðjuna með þríhymingaspili
og stakk boltanum síðan inn
fyrir á Marco Tanasic sem á
var brotið um leið og hann
sendi knöttinn til hliðar þar
sem Sasa Pavic stóð óvald-
aður og sendi boltan í autt
markið. Dómari leiksins beitti
hagnaðarreglunni og lét
leikinn halda áfram þrátt fyrir
augljóst brot á Tanasic í
teignum en hefði átt að sýna
rautt spjald eftir að markið var
skorað. Tanasic var úr leik og
kom Róbert Sigurðs inn fyrir
hann. Eftir markið komu
Leiftursmenn meira inn í
leikinn og sköpuðu margoft
hættu við mark heimamanna.
3 gul spjöld litu dagsins ljós í
fyrri hálfleik, Gestur Gylfa
fyrir brot, Uni Ange fyrir
leikaraskap og Paul Kinnard
fyrir mótmæli. I upphafi
seinni hálfleiks var augljóst að
gestimir frá Olafsfirði hugðust
sækja stíft en vörn Kefl-
víkinga hélt þrátt fyrir pressu.
Á 54 mín. komu Páll Bjöms-
son og Peter Ogaba inn fyrir
Steinar Ingimundar og Sindra
Bjarnason og strax mínútu
síðar komst Uni Ange einn
inn fyrir vöm heimamanna en
Bjarki Guðmunds varði vel
með úthlaupi. Á næstu mínú-
tum vom færi á báða bóga og
skaut Páll Gíslason t.a.m í
stöng Keflavíkurmarksins úr
þröngu færi á 66 mín og
Knudsen varði vel skalla
Georgs Birgis mínútu síðar.
Þá skiptu heimamenn Vilberg
fyrir Pavic og gestirnir
Lazorik fyrir Ange og fékk
Vilberg tvö góð marktækifæri,
í kjölfarið, eftir sendingar
Guðmundar Steinars og Gests
Gylfa en sendi knöttin hátt
yfir markið í bæði skipti.
Ólafur Ingólfs fékk síðan
besta færi leiksins, á 74 mín.
er rangstöðugildra Leifturs-
manna brást og hann komst
M
Seinna Iþrótta- og
leikjanámskeið UMFN
hefst mánudaginn 29. júní kl. 13.
Innritun fer fram eftirfarandi daga:
Fimmtudaginn 25. júní kl. 16-17.30
Föstudaginn 26. júní kl. 13-14.30
Mánudaginn 29. júní kl. 10-12.
Innritunin fer fram í íþróttavallar-
húsinu vid Vallarbraut,
verd kr. 2500.- á einstakling, veittur
er 40% systkinaafsláttur.
einn gegn Knudsen markverði
sem hafði betur og varði með
glæsilegu úthlaupi. Á loka-
mínútunum kom Óli Þór inn á
fyrir meiddan Guðmund
Steinarsog átti hann ágætis
skalla að marki Leifturs
skömmu síðar. Þegar komið
var fram yfir venjulegan leik-
tíma kom markvörður gest-
anna fram í hornspyrnu og
Keflvíkingum gafst kostur á
að bæta við marki í kjölfarið
en Gesti Gylfa brást boga-
listin. Keflvíkingar tryggðu
stöðu sína í efri hluta deild-
arinnar með sigrinum og
geta verið ánægðir með stöðu
sína, næstum því hámarks-
árangur fyrir hvert mark skor-
að. Allt annar bragur var á leik
liðins en undanfarið og erfitt
að hæla einum frekar en
öðrum því allir léku vel en
atkvæði blm. fær Guðmundur
Odds fyrir sóknartilburðina er
sigumiarkið var skorað. Hjá
Leiftursmönnum voru Andri
Marteins og Knudsen lang-
bestir og Páll Guðmunds
sýndi góða takta er hann kom
inn á. Paul Kinnard var hættu-
legur fram að gula spjaldinu.
Leiftursliðið virkaði þreytt en
stutt hefur verið á milli leikja
hjá þeim.
„Nýju" Júgóstavnesku leikmennirnir Marco Tanasic
og Sasa Pavic settu heldur betur mark sitt á leikinn
því á 30 mínútu meiddist Tanasic á sama tíma og
Pavic skoradi sigurmarkið. Marco er ekki alveg nýr og
ætti að þekkja vel til íKeflavík...!
i---;------------------------------1
Islandsmótið, 3. deild:________i
Njarðvík sigraði GG
Njarðvík sigraði nágranna
sína í GG 7-2 á íslandsmóti
3. deildar í Grindavík á
þriðjudagskvöld.
Mörk Njarðvíkinga skoruðu
Högni Þórðarson 2, Bjarni
Sæmundsson, Gísli Þórarins-
son, Guðbjöm Guðmundsson,
Finnur Þórðarson og Sævar
Eyjólfsson 1 mark hver.
Njarðvíkingar hafa því sigrað
alla þrjá leiki sína í B-riðli Is-
landsmótsins.
Næsti leikur Njarðvíkinga er
heimaleikur gegn Ömum frá
Isafirði sunnudaginn 5. júlí
n.k. kl. 14.00
Suðurnesjastrákar í Eyjum
Yfir hundrað strákar í 6.
<None>flokki frá Grindavík,
Keflavík og Njarðvík keppa í
knattspyrnu um næstu helgi
26.-28. júní á Shell-mótinu í
Eyjum.
I
HELGARGOLFIÐ
GalleryFörðun verður bakhjarl kvennagolfmóts í Leiru
4. Júlí. AllarSuðurnesjakonursem hafa félagsskírteini
í golfklúbbi geta klippt út auglýsngu þessa og
framvísað henni ásamt skírteininu og fengið 15%
afslátthjá Gallery Förðun.
Kvennagolf
4. júlí 1998
GOLF ER FJOLSKYLDU-
ÍÞRÓTT OG FYRIR ALLA!
Frábær adstaða á Hólmsvelli í Leiru. Golfkennsla
fyrir byrjendur sem lengra komna. Góðir
æfingabásar (nú skiptir veður ekki lengur máli).
Kylfur á staðnum. Mættu bara í Leiruna,
hringdu í 421-4100 eða komdu á staðinn.
Við tökum vel á móti þér! Tilboð fyrir hópa!
Víkurfréttir
15