Morgunblaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Um 70 manns tóku þátt í fyrsta bik-
armóti sumarsins í fjallahjólreið-
um, Morgunblaðshringnum, sem
Hjólreiðafélag Reykjavíkur stóð
fyrir í gærkvöldi í samvinnu við
Morgunblaðið. Keppendur lögðu
upp frá húsi blaðsins við Hádeg-
ismóa í Reykjavík þar sem hjólað
var umhverfis Rauðavatn, alls um
sjö kílómetra leið. Keppendur
þurftu að fara í fjórgang umhverfis
vatnið áður en þeir komu í mark; en
leiðin lá um brekkur, skóglendi,
lautir, og sléttar brautir svo nokk-
uð sé tiltekið. „Þetta er frábært
svæði fyrir hjólreiðar og þetta mót
er mjög að festa sig í sessi með góð-
um stuðningi Morgunblaðsins,“
sagði Bjarni Már Gylfason móts-
stjóri.
Sigurvegari í karlaflokki Morg-
unblaðshringsins var Ingvar Óm-
arsson, fyrsti atvinnumaðurinn í
hjólreiðum á Íslandi. sem fór hring-
ina fjóra á 1:17:32 klst. Í flokki
kvenna sigraði Ágústa Edda
Björnsdóttir á 1:22:12 klst. Yngstu
keppendurnir í mótinu voru 13-14
ára, en þeir þurftu þó ekki að fara
nema einn hring umhverfis vatnið
til að ná í mark.
Svæði mikilla tækifæra
„Svæðið við Rauðavatn er mjög
áhugavert og býður upp á mikil
tækifæri fyrir alla útivist. Þá er
Grafarholtshverfi bara hér rétt hjá
og þar verðum við í september í
haust með fjórða og síðasta mótið í
þeirri mótaröð sem hófst í Hádeg-
ismóum nú í kvöld,“ sagði Bjarni
Már. sbs@mbl.is
Tugir hjólreiðamanna tóku Morgunblaðshringinn við Rauðavatn í gærkvöldi
Lyft Keppendur komu með hjólin sín sem eru sérútbúin fyrir torfærur. Spyrna Hér er tekið til kostanna. Hjólafólk Undir vegg Morgunblaðshússins áður en lagt var af stað.
Morgunblaðið/Eggert
Karlaflokkur Keppendur gáfu í þegar rásmerki var gefið. Farnir voru fjórir hringir umhverfis Rauðavatn.
Bikarmót í Há-
degismóunum
Ingvar og Ágústa Edda sigruðu
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Rekstrarniðurstaða A-hluta árs-
reiknings Reykjavíkurborgar fyrir
síðasta ár var neikvæð um rúmlega
13,6 milljarða króna. Fjárhagsáætlun
ársins gerði ráð fyrir að hún yrði nei-
kvæð um rúmar 600 milljónir þannig
að niðurstaðan er 13 milljörðum
króna lakari en gert var ráð fyrir.
Mest munar um auknar gjaldfærslur
lífeyrisskuldbindinga vegna starfs-
manna borgarinnar.
„Það er algerlega óásættanlegt að
reka borgarsjóð með tapi,“ segir
Halldór Halldórsson, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn. Hann
rökstyður þessa skoðun sína með því
að benda á að þetta eigi ekki við
óvenjulegar aðstæður á einu ári því
borgarsjóður hafi verið rekinn með
halla frá árinu 2010.
5 milljarða halli á samstæðu
Reykjavíkurborg birtir rekstrar-
niðurstöður í tvennu lagi. Annars
vegar er A-hlutinn sem samanstend-
ur af Aðalsjóði, Eignasjóði og Bíla-
stæðasjóði. Sá hluti er að hluta eða
öllu leyti fjármagnaður með skatt-
tekjum borgarbúa. Til B-hluta teljast
fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem
eru að öllu leyti eða hluta í eigu
Reykjavíkurborgar. Þar vegur Orku-
veita Reykjavíkur þyngst. Saman
mynda A-hluti og B-hluti samstæðu
Reykjavíkurborgar.
Samstæðan var rekin með tæplega
5 milljarða króna halla en fjárhags-
áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri nið-
urstöðu upp á 7,4 milljarða. Afkoman
er því 12,4 milljörðum lakari en gert
var ráð fyrir.
Samkvæmt gögnum sem fjárhags-
skrifsstofa Reykjavíkurborgar lagði
fyrir fund borgarráðs í gær er meg-
inástæðan fyrir lakari afkomu, bæði
A-hlutans og samstæðunnar, hærri
gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga á
síðasta ári en undanfarin ár. Lífeyr-
isskuldbindingarnar hækkuðu um
14,6 milljarða króna á árinu sem er
12,3 milljörðum meira en gert var ráð
fyrir. Í útkomuspá sem birt var í nóv-
ember sl. með frumvarpi að fjárhags-
áætlun ársins 2016 var varað við því
að gjaldfærslan gæti orðið um 14
milljarðar. Þessi mikla gjaldfærsla
stafar af því að lífeyrisréttindi sjóð-
félaga í Lífeyrissjóði Reykjavíkur-
borgar eru í flestum tilvikum háð
launaþróun opinberra starfsmanna.
Kjarasamningar sem gerðir voru á
árinu höfðu því mikil áhrif á lífeyr-
isréttindin og þar með skuldbindingu
borgarinnar. Þá voru skuldbinding-
arnar endurmetnar út frá nýjum
tryggingafræðilegum forsendum sem
gera ráð fyrir lægri dánartíðni næstu
áratugina en hingað til hefur verið
miðað við.
Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
er lögð áhersla á að þessar auknu
skuldbindingar hafi ekki verið
greiddar út á síðasta ári heldur komi
til greiðslu á næstu árum og áratug-
um.
Of miklu hlaðið á kerfið
Borgarráð samþykkti að vísa árs-
reikningnum til fyrri umræðu í borg-
arstjórn.
Halldór Halldórsson vekur athygli
á því að þótt lífeyrisskuldbindingar
vegi þyngst í niðurstöðu ársins sé
hinn almenni rekstur ekki í lagi því
tapið sé upp á 1,3 milljarða þótt litið
sé framhjá lífeyrisskuldbindingun-
um.
„Þessi niðurstaða kemur ekki á
óvart, því miður. Við höfum vitað um
þessi lausatök í rekstri borgarinnar.
Staðan er sú sama og var á síðasta
kjörtímabili, hjá Degi og Jóni Gnarr,“
segir Halldór.
Hann segir að forgangsröðunin sé
sérstök hjá meirihlutanum. Nefnir í
því sambandi stjórnkerfis- og lýðræð-
isráð sem sett var á fót til að fá Pírata
inn í meirihlutann. Pírataráðið kosti
30 milljónir á ári og samtals 120 millj-
ónir á kjörtímabilinu. „Það er hægt að
tína til marga svona hluti enda búið að
hlaða of miklu utan á kerfið. Hægt
væri að bæta reksturinn mikið með
því að laga þetta og þá þyrfti ekki að
skera jafn wmikið niður í þjónustu og
verið er að gera núna,“ segir Halldór.
14 milljarða halli á borgarsjóði
Auknar lífeyrisskuldbindingar vegna kjarasamninga setja strik í reikninginn hjá Reykjavíkurborg
Halli á A-hluta borgarsjóðs vegna lausataka á rekstri að mati Halldórs Halldórssonar
Morgunblaðið/Ómar
Fundað Fyrri umræða borgarfulltrúa um ársreikninga Reykjavíkurborgar
fer fram á næsta fundi borgarstjórnar. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
og Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, eru þar í forsvari.