Morgunblaðið - 29.04.2016, Síða 4

Morgunblaðið - 29.04.2016, Síða 4
SÉRHÆFING Í VIÐHALDI GÓLFA Við sérhæfum okkur í slípun og olíuburði á sólpöllum, gerum gamla pallinn flottari en nýjan. Fjalirnar verða rennisléttar og timbrið nær aftur sínum náttúrulega lit. GERUM SÓLPALLINN EINS OG NÝJAN info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Vegir víða á Norður- og Austur- landi lokuðust þegar snjó kyngdi niður í vorhreti sem gekk yfir í fyrrinótt og gærdag. Björg- unarmenn fóru til aðstoðar fólki sem festi bíla sína til dæmis við Dettifoss, en ýmsum vanda var af- stýrt með lokun þjóðvega til dæmis milli Mývatns og Jökuldals. Þá voru aðrar leiðir bókstaflega ófærar svo sem Fjarðarheiðin milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar. Varð það til þess að um 900 farþegar skemmti- ferðaskips sem þar lagðist að kom- ust ekki í skoðunarferðir upp á Hérað. Í gærkvöldi var veður eystra farið að ganga niður. Eins og gervitunglamynd sem tekin var í hnetti frá NASA í gær sýnir var autt á láglendi á Suður- og Vesturlandi og alveg norður í Skagafjörð. Snjór er hins vegar yfir öllu austanverðu landinu og á fjöll- um og öræfum. Skilin eru skörp, því í höfuðborginni var ágætt vor- veður í gær og yfir miðjan daginn var hitinn 3-4 gráður. sbs@mbl.is Vorhret spillir færð fyrir austan og á Norðurlandi en staðan er allt önnur sunnanlands Morgunblaðið/Skapti Leikur Börnin á Akureyri kunnu vel að meta fönnina og brugðu á leik við gerð snjókarla, sem verða bráðnir og á bak og burt fyrr en varir því nú er spáð hlýindum og rigningu fyrir norðan. Skörp skil á landinu Ljósmynd/Nasa Ísland Í gærdag var snjóþekjan yfir landinu svona. Norðan Vatnajökuls sést lítill dökkur blettur, sem er Holuhraun en hitinn í því heldur snjó frá og bræðir. Morgunblaðið/Styrmir Kári Sól Í borginni er blíða og falleg blóm setja svip sinn á umhverfið við Laugarveginn, þar sem fólk spókar sig.  Ófærð á Austur- landi en vor syðra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.