Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 6

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 6
SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Í flestum stærri sveitarfélögum er gert ráð fyrir um 400 krónum á dag í fæði handa hverju leikskólabarni á meðan leikskólabörn í Reykjavík fá að borða fyrir 308 kr. á dag. Í Morgunblaðinu á þriðjudaginn gagnrýndi leikskólastjóri í Reykja- vík nýlega lækkun á þeirri upphæð sem má nota í hráefnisinnkaup og sagði það aðeins bitna á gæðum mat- arins, sem væri einhæfur og kolvetn- isríkur; of mikið væri af grautum, súpum og pasta. Á Seltjarnarnesi borða leik- skólabörn fyrir um 450 kr. á dag en þar er fæðisgjald foreldra, fyrir fulla vistun, 7.535 kr. á mánuði á meðan foreldrar í Reykjavík greiða 8.320 kr. Samkvæmt upplýsingum frá Sel- tjarnarnesbæ hefur gjaldskráin ekki hækkað frá árinu 2010 þrátt fyrir að kostnaður hafi aukist mikið á milli ára. Þar er sameiginlegt mötuneyti fyrir leik- og grunnskóla og allar starfsstöðvar Seltjarnarnesbæjar. Öll innkaup eru því á einni hendi, þó að maturinn sé eldaður á fleiri stöð- um. Sameiginleg innkaup skoðuð Í Garðabæ er meðaltalskostnaður við hádegisverð leikskólabarna um 360 krónur á dag, ekki er tekið sér- stakt gjald fyrir morgunmat eða síð- degishressingu. Fæðisgjald foreldra er 7.330 kr. á mánuði. Í Garðabæ eru ekki sameiginleg innkaup, ekki frekar en í Kópavogi, þar sem þó er í skoðun að fara í sam- eiginleg innkaup að hluta. Í Kópa- vogi borðar hvert barn fyrir um 400 kr. á dag en foreldrar greiða 8.112 kr. á mánuði í fæði. Á Akureyri borða börn fyrir tæpar 400 kr. á dag, en fullt fæði kostar for- eldra 8.426 kr. Upphæðin hækkaði um 4% um síðustu áramót en einnig var 4% hækkun áramótin þar á und- an. Á Akureyri fer bærinn í sameig- inlegt útboð vegna helstu birgja. Sveitarfélagið Árborg býður leik- skólabörnum upp á mat fyrir 320 til 340 kr. á dag og hefur sú upphæð verið ámóta á undanförnum árum. Þar er fæðisgjald foreldra 8.921 kr. á mánuði. Í Árborg sér hver skóli um hráefniskaup fyrir sig en verið er að fara yfir þau mál og vinna að meiri hagkvæmi í innkaupum bæði fyrir leik- og grunnskóla. Fór úr 337 kr. í 308 kr. í apríl Allt árið 2015 og í janúar til mars á þessu ári fengu leikskólabörn í Reykjavík að borða fyrir 337 kr. á dag en í byrjun apríl var sú upphæð lækkuð niður í 308 kr. með von um að ná fram hagkvæmari innkaupum í krafti stærðarinnar. Sú aðgerð á ekki að bitna á gæðum þess fæðis sem börnin fá eða skammtastærðum. Í hagræðingartillögum skóla- og frí- stundasviðs Reykjavíkur er gert ráð fyrir lækkun hráefniskostnaðar með samræmingu hráefnamatseðla, sam- starfi á hverfagrunni eða útvistun, allt eftir aðstæðum á hverjum stað. Þar sem hagræðingaaðgerðirnar hófust núna í apríl, um leið og upp- hæðin sem fer í mat barnanna var lækkuð, liggur ekki fyrir mæling á því hvort hagræðing hafi náðst. Sam- kvæmt upplýsingum frá borginni var öllum stjórnendum leikskóla í Reykjavík tilkynnt á fundi í mars að lækkun hráefnisframlags ætti ekki að mæta með innkaupum á ódýrara hráefni. Mishár fæðiskostnaður barna  Algengt er að áætlaðar séu um 400 kr. á dag á leikskólabarn í mat  Reykjavíkurborg setur minnst í mat barnanna  Eru að hagræða í innkaupum  Árborg er með hæsta fæðisgjaldið Morgunblaðið/Golli Í stuði Leikskólabörn eru alltaf á ferðinni og þurfa því hollan mat. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Hjá Embætti landlæknis eru gefn- ar út ráðleggingar fyrir mötuneyti allra skólastiga og er þeim meðal annars komið á framfæri í gegnum heilsueflandi verkefni embættis- ins. Þá hvetur embættið sveitar- félögin til að fylgjast með hvað stofnanir þeirra bjóða upp á. Embætti landlæknis gefur út Handbók fyrir leikskólaeldhús, en í henni eru leiðbeiningar fyrir starfsfólk leikskólaeldhúsa um hollustu og samsetningu fæð- unnar, matseðlagerð, matreiðslu, sérfæði, hreinlæti og innkaup. Handbókinni er ætlað að auðvelda starfsfólki leikskóla að bjóða börn- um hollan og góðan mat og er æskilegt að maturinn sé í sam- ræmi við handbókina. Árið 2013 gerði Embætti land- læknis könnun á matarframboði í leikskólum. Þá kom í ljós að nán- ast allir leikskólar höfðu fisk tvisv- ar sinnum í viku og yfir 90% leik- skóla buðu upp á grænmeti með hádegisverði 4-5 sinnum í viku. Einungis fjórðungur leikskóla hafði gróft brauð á borðum 4-5 sinnum í viku, en ráðlagt er að bjóða leikskólabörnum upp á heil- korna trefjaríkt brauð í síðdegis- hressingu. Þá kom í ljós að huga þyrfti betur að hollustu áleggs. Að sögn Hólmfríðar Þorgeirs- dóttur, verkefnisstjóra næringar hjá Embætti landlæknis, vilja þau sjá leikskólamatinn í samræmi við opinberar ráðleggingar um matar- æði; það er að fjölbreytni sé í fyr- irrúmi, grænmeti sé með hádegis- verði og ávextir í morgunhressingu og síðdegishressingu, að boðið sé upp á gróft heilkorna brauð, fisk tvisvar í viku, unnar kjötvörur séu takmarkaðar og boðið sé upp á lýsi með morgunverði, svo eitthvað sé nefnt. Spurð hvort lögð sé nægilega mikil áhersla á mikilvægi góðrar máltíðar fyrir leikskólabörn segir Hólmfríður það örugglega vera misjafnt eftir sveitarfélögum. „Það má hins vegar alltaf gera betur og er ávallt mikilvægt fyrir sveit- arfélög að huga að gæðum eða hollustu þess matar sem er boðið upp á í skólum sveitarfélagsins og fylgja ráðleggingum,“ segir Hólm- fríður. Alltaf má gera betur EMBÆTTI LANDLÆKNIS Morgunblaðið/Golli Pasta Ekki gott oft í viku. Hæstiréttur dæmdi í gær fimm af sex ákærðu í Milestone-málinu til fangelsisvistar. Með því snéri hann við dómi fjölskipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði alla ákærðu í desember sl. af ákæru sér- staks saksóknara. Einn sýknudómur var staðfestur, það var yfir þriðja endurskoðandanum sem ákærður var. Málið snýst um það hvort heim- ilt hafi verið að láta fyrirtækið Mile- stone fjármagna kaup tveggja aðal- eigenda þess á hlut í fyrirtækinu og tengdum félögum sem þeir keyptu af systur þeirra. Karl Wernersson var dæmdur í fangelsi í þrjú ár og sex mánuði, Steingrímur Wernersson í tveggja ára fangelsi og Guðmundur Ólason í þriggja ára fangelsi. Karl og Stein- grímur eru fyrrverandi stjórnar- menn í Milestone, Karl stjórnarfor- maður og Guðmundur var framkvæmdastjóri. Endurskoðend- urnir Margrét Guðjónsdóttir og Sig- urþór Charles Guðmundsson voru dæmd í níu mánaða fangelsi en fulln- usta refsinganna fellur niður haldi þau skilorð í tvö ár. Þá voru þau Margrét og Sigurþór svipt löggild- ingu til endurskoðunarstarfa í sex mánuði. Ekki vitað með endurgreiðslu Bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir voru í málinu ákærðir ásamt Guðmundi Ólasyni fyrir að hafa látið Milestone fjármagna kaup bræðranna á hlutafé systur þeirra, Ingunnar, í félaginu. Í ákæru kom fram að það hafi verið með öllu óvíst frá hverjum, hvenær eða með hvaða hætti Milestone fengi fjármunina til baka. Þá voru endurskoðendurnir Mar- grét og Sigurþór ákærð fyrir meiri- háttar brot á lögum um ársreikninga og lögum um endurskoðendur við endurskoðun sína á ársreikningum Milestone og samstæðureikningum samstæðunnar fyrir árin 2006 og 2007. Greiddu 5,1 milljarð Fram kemur í dómi Hæstaréttar að umræddir fjármögnunarsamn- ingar hefðu engar skuldbindingar lagt á Milestone heldur ein- göngu Karl og Stein- grím en þrátt fyrir það hafi félagið verið látið efna samn- ingana við Ingunni upp á tæplega 5,1 milljarð króna. Þann- ig hefðu þeir misnot- að aðstöðu sína hjá Milestone. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir umboðssvik í tengslum við þetta mál og fyrir meiriháttar brot gegn lögum um bókhald með því að hafa í ákveðnum tilvikum ekki hagað bók- haldi með nægjanlega skýrum, öruggum og aðgengilegum hætti á grundvelli áreiðanlegra og fullnægj- andi gagna. Þá voru þeir sakfelldir fyrir meiriháttar brot gegn lögum um ársreikninga með því að hafa rangfært efnahagsreikninga vegna Milestone fyrir árin 2006 og 2007. Dæmdir í fangelsi vegna Milestone-máls  Hæstiréttur snéri við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur Guðmundur Ólason Karl Wernersson Steingrímur Wernersson Morgunblaðið/Heiddi Höfuðstöðvar Milestone var umsvifamikið í atvinnulífinu, átti Lyf og heilsu og stóra eignarhluti í Glitni og Sjóvá-Almennum tryggingum. Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími 551-3033 Flott ir í fötum Við seljum frægu buxurnar Ný sending – frábært úrval Flug um Keflavíkurflugvöll rask- aðist í nótt vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra. Talið er að það hafi haft áhrif á 24 flug til og frá landinu með þeim afleiðingum að rúmlega 4000 farþegar komust hvorki lönd né strönd, eins og til orða var tekið í tilkynningu Sam- taka ferðaþjónustunnar. Þá raskast áætlanir flugfélaganna í dag. Tveir flugumferðarstjórar sem áttu að vera á vaktinni í nótt til- kynntu veikindi. Vegna yfir- vinnubannsins tókst Isavia ekki að fá menn til afleysinga. Ákvað fyr- irtækið að takmarka þjónustu á Keflavíkurflugvelli við sjúkra- og neyðarflug frá klukkan níu í gær- kvöldi og til 7 í morgun. Sem dæmi um áhrifin má nefna að Icelandair seinkaði öllu áætl- unarflugi frá Ameríku í nótt og öllu Evrópuflugi héðan í morgun. Yfirvinnubann truflaði ferðir 4000 farþega Morgunblaðið/Júlíus Á vellinum Flugi til Evrópu seinkar vegna aðgerða flugumferðarstjóra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.