Morgunblaðið - 29.04.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Það var mikill léttir fyrir atkvæðiðeina þegar Árni Páll Árnason
ákvað loks í gær að fara fram á end-
urnýjað umboð flokksmanna.
Fram að þessuhafði atkvæðið
verið í nagandi
óvissu um að ef til
vill þyrfti það að búa
við formennsku
Helga Hjörvar,
Magnúsar Orra
Schram, Oddnýjar G. Harðardóttur
eða Guðmundar Ara Sigurjónssonar.
Í gær varpaði það öndinni léttar.
Og atkvæðið eina var líka ánægtþegar það las um áherslur for-
mannsins, sem segir Samfylkinguna
eiga „stórkostlega sögu“ og um leið
að hann ætlaði að „ganga á hólm við
gamla pólitík“.
Ekki var ánægja atkvæðisins einaminni þegar formaðurinn sagð-
ist vilja hverfa frá átakastjórn-
málum, minnugt ræðuhalda hans að
undanförnu á Alþingi, kröfugerð-
anna um afsagnir og framlagningu
vantrauststillögu.
Atkvæðinu eina þótti frábært sam-ræmi í þessu öllu og hafði ekki
heyrt jafn rökfastan ræðumann frá
því að Donald Trump flutti stefnu-
mótandi ræðu sína um utanríkismál
daginn áður.
Nú væri loks kominn formaðursem meinti það sem hann segði
og segði það sem hann meinti.
Bara að flokkurinn hefði notiðóþrjótandi krafta og stórbrot-
inna hugmynda formannsins fram til
þessa. Þá væri hann örugglega með
fylgi sem mældist í tveggja stafa
tölu.
Árni Páll Árnason
Formaðurinn sem
beðið var eftir
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 28.4., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 2 léttskýjað
Akureyri 1 skýjað
Nuuk 7 skýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 11 heiðskírt
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 7 heiðskírt
Lúxemborg 15 skúrir
Brussel 16 heiðskírt
Dublin 7 skúrir
Glasgow 8 skýjað
London 12 léttskýjað
París 12 léttskýjað
Amsterdam 17 heiðskírt
Hamborg 12 heiðskírt
Berlín 12 skýjað
Vín 12 skýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 10 skúrir
Barcelona 16 léttskýjað
Mallorca 17 heiðskírt
Róm 17 heiðskírt
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -5 léttskýjað
Montreal 3 skúrir
New York 16 alskýjað
Chicago 9 alskýjað
Orlando 27 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
29. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:05 21:47
ÍSAFJÖRÐUR 4:54 22:07
SIGLUFJÖRÐUR 4:37 21:50
DJÚPIVOGUR 4:30 21:20
Hinn árlegi fjölskyldudagur í
Gróttu á Seltjarnarnesi verður að
þessu sinni haldinn á morgun,
laugardaginn 30. apríl, frá kl.
15.30-17.30. Tímasetning Gróttu-
dagsins er breytileg frá ári til árs,
sem helgast af því að þessi ein-
staka fjölskylduhátíð er háð flóði
og fjöru.
Eitt helsta aðdráttaraflið á
Gróttudeginum er sjálfur Gróttu-
viti, en þetta er eini dagur ársins
þar sem gestum og gangandi er
boðið að ganga upp í hann og njóta
útsýnisins þaðan. Þá er hægt að
kaupa vöffluveitingar á sanngjörnu
verði og er þéttskipuð dagskrá í
boði fyrir börn og fullorðna.
Meðal þess sem boðið er upp á
fyrir börnin er krakkajóga, flug-
drekasmiðja og andlitsmálun auk
þess sem líffræðingar bjóða upp á
aðstöðu til að rannsaka og spá í líf-
ríkið sem finna má í fjörunni við
Gróttu.
Leikkonan Lolla, Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, mun flytja vel valin lög
á gítarinn sinn og syngja með.
Harmonikkuleikarinn Flemming
Viðar Valmundsson þenur hljóð-
færið undir berum himni og sýning
verður á vaðfuglum og annarri
nýrri hönnun Sigurjóns Pálssonar.
Ef veður og vindar leyfa mun
brimbrettamaðurinn Kite Surfing
leika listir sínar fyrir opnu hafi.
Verðlaun verða veitt fyrir frum-
legustu Gróttumyndina sem tekin
er úr Gróttuvita.
Félagar úr Björgunarsveitinni
Ársæli munu sjá um að ferja fót-
fúna yfir eiðið.
Gróttuvitinn opinn almenningi
Grótta Líf og fjör á Gróttudegi.
Ólafur Ragnar
Grímsson, for-
seti Íslands, nýt-
ur langmests
stuðnings í emb-
ætti forseta Ís-
lands í könnun
Zenter sem
RÚV birti í gær-
kvöldi. 57,6%
þeirra sem af-
stöðu tóku töldu
líklegast að þeir muni kjósa Ólaf
Ragnar, 25,8% Andra Snæ Magna-
son og 8,7% Höllu Tómasdóttur.
2,1% nefndu Hrannar Pétursson
og 1,5% Bæring Ólafsson en þeir
eru báðir hættir við að bjóða sig
fram. Aðrir fengu innan við hálft
annað prósent.
Könnunin var gerð dagana 20. til
28. apríl. 15,3% þeirra sem svöruðu
sögðust ekki hafa gert upp hug sinn
til forsetaefnanna og tæp 10% sögð-
ust ætla að skila auðu. Það þýðir að
fjórðungur þátttakenda hefur ekki
gert upp hug sinn eða hyggst skila
auðu. Að auki sögðust tæp 2% ekki
hafa áhuga á að kjósa og annað eins
vildi ekki svara. Samtals taka því
um 29% ekki afstöðu til frambjóð-
endanna.
Ólafur
Ragnar
með 58%
Ólafur Ragnar
Grímsson
Since 1921
Lífræn og nærandi morgunfrú (calendulajurtin) veitir húð barnsins þíns þá vörn
og umhyggju sem hún þarfnast. Fullkomin leið til að stuðla að heilbrigðri húð,
allt frá fyrsta degi - í samhljómi við mann og náttúru www.weleda.is
Útsölustaðir Weleda eru apótek, barnaverslanir og heilsuverslanir um allt land
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/WeledaBabyIceland
Mamma veit best!