Morgunblaðið - 29.04.2016, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Reykjahlíð Íbúar í Mývatnssveitinni fara að flokka rusl í júní.
Mývetningar ætla að koma sér
upp flokkunarsvæði í landi
Grímsstaða til að geta flokkað
rusl. Ekki fékkst leyfi frá land-
eigendum í Reykjahlíð og því var
samþykkt að ganga til samninga
við bændur á Grímsstöðum.
Breyta þarf aðalskipulagi og
skilgreina lóðina því landið var
ekki skipulagt sem slíkt. „Það er
komið að því að flokka hér í Mý-
vatnssveit eftir áralanga bið,“
segir Jón Óskar Pétursson, sveit-
arstjóri Skútustaðahrepps. „Við
erum búin að vera í umbreyt-
ingum á þessu undanfarin tvö ár.
Þetta kemst vonandi í gagnið í
júní fyrir heimilin hér í sveitinni.
Þá fá allir íbúar sína tunnu og
fara að flokka,“ segir Jón.
Nýir tímar
Aldrei áður hefur sorp verið
flokkað í Mývatnssveit, en eitt
viðkvæmasta lífríki landsins er í
vatninu. Nú verður breyting á
sorphirðu. „Svona sorpmóttöku-
stöð er alþekkt í öllum bæjar-
félögum. Það hefur aldrei verið
neitt slíkt svona hér í sveit, bara
ruslagámar um sveitina.
Nú fá allir íbúar sína tunnu og
taka pappann og plastið frá og
svo almennan úrgang. Við förum
ekki í að taka lífrænan úrgang
frá strax en það mun væntanlega
gerast. Þetta eru nýir tímar í
sorpmálum hér í sveit,“ segir
Jón.
Mývetningar flokka rusl
Fengu ekki land frá landeigendum í Reykjahlíð
Hæstiréttur staðfesti í gær tveggja
ára fangelsisdóm yfir Andra Karli
Elínar- og Ásgeirssyni sem var sak-
felldur í héraðsdómi fyrir að hafa
haft samræði við konu á heimili
sínu og notfært sér að hún gat ekki
spornað við verknaðinum sökum
ölvunar og svefndrunga. Atvik
þetta sér stað 4. október 2013.
Brotaþoli og kærasti hennar
voru gestkomandi á heimili Andra
Karls að næturlagi. Gerandinn neit-
aði sök í héraðsdómi en dómari mat
framburðinn ótrúverðugan. Hann
kaus að byggja á framburði brota-
þola sem talinn var trúverðugur -
og aukinheldur studdur framburði
vitna, lögreglumanns og læknis.
Ákæruvaldið fór fram á að refs-
ing yrði þyngd, en Hæstiréttur varð
ekki við því vegna tafa ákæruvalds-
ins. Ákærði var dæmdur til að
greiða áfrýjunarkostnað, samtals
980 þúsund krónur.
Tveggja ára dómur
fyrir nauðgun stað-
festur í Hæstarétti
Öll börn fædd í
janúar og fe-
brúar í fyrra fá
boð um að kom-
ast í leikskóla
borgarinnar í
ágúst. Þetta var
ákveðið á fundi
borgarráðs í gær
„Með þessu
verða þau tímamót að öllum börn-
um 18 mánaða og eldri býðst leik-
skólavist frá og með haustinu en
reglur borgarinnar hafa miðast við
að börn innritist á leikskóla árið
sem þau ná tveggja ára aldri,“ segir
í tilkynningu frá borginni. Svigrúm
verði til að taka inn fleiri börn í
leikskólana á haustmánuðum vegna
fækkunar barna á milli ára og verði
því um 200 börn yngri en tveggja
ára innrituð. Framundan er svo
sögð vera vinna við að greina tæki-
færi til að bjóða enn yngri börnum
leikskólaþjónustu á komandi árum.
Öll 18 mánaða börn
fá vist á leikskóla
Norska vík-
ingaskipið Drek-
inn Haraldur
hárfagri leitaði
til hafnar í Leir-
vík á Hjaltlands-
eyjum vegna
smávægilegrar
bilunar í reiða.
Þetta gerðist á
fyrsta degi sigl-
ingarinnar og
skipið var ekki
farið frá Hjaltlandseyjum í gær-
kvöldi. Ljóst er að koma þess til
Reykjavíkur tefst um einhverja
daga.
Skipið er stærsta víkingaskip
sem smíðað hefur verið á seinni
tímum. Það hélt frá Haugasundi í
Noregi á þriðjudagsmorgunn með
30 manna áhöfn. Ferðinni er heitið
til Ameríku með viðkomu á Íslandi
og Grænlandi. helgi@mbl.is
Drekinn í viðgerð á
Hjaltlandseyjum
Drekinn Haraldur
hárfagri siglir
þöndum seglum.
Fullkomnaðu augnablikið með ljúffengri sælkeraköku.
– Láttu það eftir þér!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
1
6
-0
4
2
9