Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is 40-50 börn á aldrinum 4-18 ára koma í Barnahús á hverju ári vegna þess að þau hafa sætt óviðeigandi kynhegðun af hendi annarra barna. Þetta er um fimmtungur þeirra barna sem til hússins leita á ári hverju, en Barna- hús sinnir mál- efnum barna sem grunur leikur á um að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða of- beldi. Flest brotin felast í káfi eða þukli. Þá er al- gengt að gerand- inn láti þolandann fróa sér, veita sér munnmök eða fikti í kynfærum hans. Fullt samræði er sjaldgæfara og á sér aðallega stað hjá börnum eldri en 13 ára, að sögn Þor- bjargar Sveinsdóttur, sálfræðings og rannsakanda hjá Barnahúsi. Hún segir að flestir þolendurnir séu stúlk- ur og flestir gerendanna séu drengir. 15 börn voru 3 ½ til 5 ára Ekki hafa verið teknar saman tölur fyrir árið í fyrra en árin 2013-14 komu 109 börn í Barnahús vegna óviðeig- andi kynhegðunar annarra barna. Al- gengasta aldursbilið var 13-14 ára, en á því bili voru 38 börn. Á aldrinum 10- 12 ára voru 18 börn, 15 börn voru á aldrinum þriggja og hálfs til fimm ára og 25 börn voru 6-9 ára gömul. 13 börn á aldrinum 15-17 ára komu til Barnahúss vegna þessa. Þorbjörg segir að talsverður munur sé á eðli brotanna eftir því hversu gamlir þol- endurnir séu og þá séu tengsl ger- anda og þolanda mismunandi. Þegar um er að ræða börn á aldrinum þriggja og hálfs til 12 ára er aldurs- munurinn á þolanda og geranda meiri og þeir eru þá oftast tengdir fjöl- skylduböndum á einhvern hátt- .„Stundum er um að ræða börn sem búa á sama heimili og stundum hitt- ast þau af og til um helgar hjá for- eldrum. Við sjáum talsvert af brotum sem gerast í slíkum kringum- stæðum,“ segir Þorbjörg. Þegar þolandinn er eldri er oftar um svokallaðar kunningjanauðganir að ræða. „En þar eru líka dæmi um fjölskyldutengsl og þá er þetta stund- um athæfi sem hefur þróast í langan tíma; byrjaði í kynferðislegum leikj- um og endaði með alvarlegu broti,“ segir Þorbjörg. Hún segir að kynferðisbrot barna gagnvart börnum geti í sumum til- vikum verið talvert grófari en slík brot fullorðinna gagnvart börnum. Meira sé um hótanir og að líkamlegu ofbeldi sé beitt. „Ungir gerendur búa ekki yfir sömu færni og fullorðnir til að ginna börnin og þess vegna beita þeir frekar grófu ofbeldi til að fá sínu fram,“ segir Þorbjörg. Algengt að kæra brotin Í gær greindi Morgunblaðið frá því að 15-20 börn og ungmenni á ári fari í meðferð á vegum Barnaverndarstofu vegna óviðeigandi kynhegðunar í garð annarra barna. Þar kom m.a. fram að vísbendingar séu um að þetta sé aðeins fjöldi þeirra barna sem þurfi á slíkri meðferð að halda. Þor- björg segir að þennan mun á fjölda þolenda, sem koma í Barnahús, og gerenda megi skýra með tvennu. Annars vegar sé nokkuð um það að ungmenni brjóti gegn fleiri en einu barni, hins vegar komi ekki allir ger- endur til meðferðar. Spurð hvort algengt sé að mál sem þessi séu kærð segir hún svo vera, þ.e. þegar gerandinn hefur náð sakhæf- isaldri sem er 15 ára. „Við mælum með því þegar um saknæmt athæfi er að ræða. Mörgum finnst ósanngjarnt að það sé ekki hægt að kæra yngri ger- anda. En við verðum að muna eftir því að við erum að tala um börn. En það eru dæmi um að fólk hafi farið í einka- mál og farið fram á miskabætur. Ég veit um dæmi þess að börnum hafi ver- ið dæmdar bætur þó ekki hafi verið hægt að sækja þann sem braut á þeim til saka.“ Að öllu jöfnu koma börn í Barnahús vegna tilvísana barnaverndarnefnda. Fyrst fer fram rannsóknarviðtal þar sem barnið segir sögu sína og að því loknu er barninu vísað í einstaklings- miðaða meðferð í Barnahúsi sem m.a. fer eftir aldri barnsins og eðli brot- anna. „Þessi börn glíma við sömu af- leiðingar og börn sem fullorðnir brjóta á. Áfallið, skömmin og sektarkenndin er ekkert minni,“ segir Þorbjörg. Brot barna grófari en brot fullorðinna  40-50 börn í Barnahús árlega vegna brota annarra barna Morgunblaðið/Eggert Í Barnahúsi Þangað koma börn sem grunur leikur á um að hafi sætt kyn- ferðislegri áreitni eða ofbeldi. Um 20% koma vegna brota annarra barna. Þorbjörg Sveinsdóttur Árni Páll Árnason formaður Sam- fylkingar gefur kost á sér til endur- kjörs í embættið á landsfundi flokksins sem verður í næsta mán- uði. Þau Oddný Harðardóttir, Guð- mundur Ari Sigurjónsson, Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar hafa einnig lýst yfir framboði. Nokkuð hefur verið sótt að Árna Páli að undanförnu vegna slaks gengis Samfylkingarinnar í könnunum, en hann er ótrauður og vill leiða flokk- inn í kosningum í haust. Spurður hvernig hann ætlaði að fara að því að rífa fylgi flokksins upp sagði Árni Páll: „Ég held að það verði ekki verkefni eins manns að gera það. Alveg sama hver sá maður yrði sem leiðir Samfylk- inguna þá getur ekki einn maður gert það. Ég held að við þurfum samstillt átak,“ sagði Árni Páll þeg- ar hann kynnti ákvörðun sína. „Ég vil að Samfylkingin rækti arfleifð sína sem róttækur umbóta- flokkur. Við eigum stórkostlega sögu,“ sagði Árni Páll. Flokkurinn hefði náð miklum árangri í síðustu ríkisstjórn þegar glímt hafi verið við eftirleik bankahrunsins. Sjálfur segist Árni Páll tala fyrir breyt- ingum á fjármálakerfi og stjórn- arskrá og vill nýjar áherslur í vel- ferðarmálum. Halda sínu striki Í samtölum við mbl.is í gær sögð- ust frambjóðendurnir Oddný G. Harðardóttir og Guðmundur Ari Sigurjónsson, sem er bæjarfulltrúi á Seltjarnarnesi, þetta engu breyta um sínar ákvarðanir. Sagðist Guð- mundur raunar hafa búist við þessu framboði Árna Páls. „Ég bara held mínu striki. Það eru engin sérstök viðbrögð vegna þessa framboðs af minni hálfu,“ sagði Helgi Hjörvar í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Stjórnmál Árni Páll gefur áfram kost á sér sem formaður Samfylkingar. Samstillt átak til að auka fylgi flokksins  Fjögur vilja í embætti formannsins Ólafur Stephensen, jazzpíanisti og auglýs- ingamaður, lést í fyrri- nótt, áttræður að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 1. febrúar 1936. Foreldrar hans voru Stephan Steph- ensen, kaupmaður í Verðanda og Ingibjörg Stephensen húsfreyja. Ólafur útskrifaðist frá Verzlunarskóla Ís- lands 16. júní 1956 og stundaði síðar nám í al- menningstengslum við Columbia University í New York auk náms í áróðurstækni og markaðsfræðum. Hann úrskrif- aðist árið 1962. Með Ólafi urðu tímamót í auglýs- ingastarfi hérlendis, tímabil mark- aðsmannsins tók við af tímabili teiknarans. Ólafur kom víða við á sínum ferli. Á námsárunum starfaði hann fyrir NBC News og META kennslusjónvarpið. Hann flutti fréttapistla í útvarpi Sameinuðu þjóðanna og hjá Voice of America auk þess sem hann starfaði fyrir AFRTS undir höfundarnafninu Sonny Greco. Ólafur var fram- kvæmdastjóri Rauða Kross Íslands, jazzpíanisti í Harlem, í forsvari fréttamiðstöðvar ráðherrafundar NATO í Reykjavik 1968 og stjórn- andi sjónvarpsþáttar í Ríkissjón- varpinu. Hann var fyrsti Norðurlanda- kjörinn félagi í Advert- ising Club of N.Y, fyrsti forseti JC Reykjavik og fyrsti al- þjóðavaraforseti JC hreyfingarinnar, um- sjónarmaður jazzþátta í ríkishljóðvarpinu, dómari í verðlauna- samkeppni banda- rískra auglýsinga- manna og virkur frímúrari á Íslandi og í Portúgal. Hann var sæmdur heiðursmerki finnska Rauða krossins 1967. Ólafur stofnaði auglýsingastofuna ÓSA og síðar Gott fólk og var fyrsti kjörni formaður SÍA. Ólafur skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit um auglýsinga- og markaðsmál og gaf út verkið Nýtt og betra árið 1987. Ólafur Stephensen gaf út þrjár jazz- plötur undir nafni Tríó Óla Steph, spilaði músík með fjölmörgum ís- lenskum og erlendum jazzböndum og var mikill áhugamaður um skylm- ingar. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Klara Magnúsdóttir Stephensen og eignuðust þau fjögur börn: Díu Stephensen f. 1968, Stephan Steph- ensen f. 1971, Magnús Stephensen f. 1972 og Óla Björn Stephensen f. 1974. Andlát Ólafur Stephensen Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is 32.900 Verð Milwaukee Hleðsluborvél Borvél frá Milwaukee M12. Átak 30Nm, kemur með 2x2,0 Ah rafhlöðum og hleðslutæki. MW 4933441915 74.900 Verð Milwaukee borvélasett Borvél M18 og M12 saman í pakka. Með fylgja 2x4,0 Ah, 1x2,0Ah rafhlöður og hleðslutæki. MW 4933451017 Milwaukee hitajakki Camo Vandaður hitajakki sem gengur fyrir M12 rafhlöðum, 3 hitastillingar. Kemur án rafhlaðna og hleðslutækis. Til í stærðum M, L, XL 19.990 Verð Herslulykill 2130XP Léttur herslulykill frá Ingersoll Rand Hersla: 34-474 Nm Losun: 816 Nm IR 80136112 36.900 Verð

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.