Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Það sem af er apríl hafa 22 reið- hjólaþjófnaðir verið tilkynntir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, LRH, og eru það færri þjófnaðir en tilkynntir voru í apríl árin 2014 og 2015. Þó verður að hafa í huga að töl- urnar fyrir 2014 og 2015 eru fyrir allan mánuðinn en tölur fyrir 2016 ná til 25. apríl. Því má ætla að til- kynningum eigi eitthvað eftir að fjölga. Nýtt reiðhjól fyrir fullorðinn kost- ar yfirleitt í kringum 100 þúsund krónur en hægt er að fá reiðhjól sem kostar nokkrar milljónir. Síðustu þrjú ár hefur tilkynningum fækkað miðað við árin 2010 til 2012. Flestar tilkynningarnar bárust árið 2010, þegar tilkynnt var um 812 reið- hjólaþjófnaði. Árið 2015 bárust hins vegar 490 tilkynningar, sem erum 25 prósenta fækkun miðað við með- alfjölda áranna 2010 til 2014. Flest- um reiðhjólum er stolið frá vori fram á haust. Reiðhjólauppboð í maí Fjöldi reiðhjóla sem skráð voru í munakerfi lögreglu árið 2015 var 119 en hið árlega reiðhjólauppboð lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram 7. maí næstkomandi. Vegna verkfalls hjá sýslumanni var ekki haldið uppboð á síðasta ári og hefur lögregla því fleiri reiðhjól í sinni vörslu en áður. Hlutfall reiðhjóla sem skila sér aftur til eigenda hefur hækkað lít- illega, einkum í kjölfar þess að lög- reglan fór að birta myndir af öllum reiðhjólum á samfélagsmiðlinum Pinterest. Hafa ber í huga að ekki eru öll brot tilkynnt til lögreglu og gefa gögnin aðeins innsýn í þau tilvik þar sem lögregla hafði vitneskju um. Flestum reiðhjólum er stolið utan- dyra. Einnig eru dæmi um að reið- hjólum hafi verið stolið úr hjóla- geymslu fjölbýlis og eftir að brotist var inn í bíl. „Það besta sem við ger- um er að læsa alltaf hjólinu við fast- an hlut, hvar sem við skiljum þau eftir, heimavið út í bæ eða í hjól- geymslunni í fjölbýli,“ segir í svari Sjóvá við fyrirspurn Morgunblaðs- ins. „Langbest er að læsa hjólunum við fastan hlut en þá er t.d. átt við hjólreiðagrind eða staur. Margar verslanir og fyrirtæki hafa sett upp góða hjólastanda utandyra til þess að mæta þörfum hjólandi fólks. Þó svo að hjólastandurinn sé aðeins frá inngangnum sem við ætluðum inn um þá er það algjörlega þess virði að fara með hjólið þangað. Munum einnig að taka verðmæti úr hjóla- töskunni þegar við skiljum hjólið eft- ir,“ segir í svari Sjóvá, sem ítrekar að spara ekki þegar kemur að því að kaupa lás á hjólið. Tímabil reiðhjóla- þjófnaðar runnið upp  Þjófnuðum fer fækkandi  Ekki spara lásakaup Fjöldi tilkynninga um þjófnaði á reiðhjólum -árin 2010-2015 2010 2012 20142011 2013 2015 Heimild: Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. Fj öl di þj óf na ða 900 800 700 600 500 400 300 200 100 0 Fjöldi Meðaltal´10-´14 Morgunblaðið/hag Hjólreiðar Þjófnuðum á reiðhjólum fjölgar á vorin og fram á haust. Það sem af er ári hefur 68 hjólum, sem sum kosta mörg hundruð þúsund, verið stolið. Hæstiréttur stað- festi í gær fjög- urra ára fangels- isdóm yfir karlmanni á fimmtugsaldri fyrir kynferðis- brot með því að hafa með ólög- mætri nauðung haft samræði og önnur kyn- ferðismök við konu sem ekki gat spornað við verknaðinum sökum ölvunar. Manninum, Magnúsi Ósk- arssyni, var enn fremur gert að greiða konunni 2,2 milljónir króna í miskabætur með vöxtum og allan áfrýjunarkostnað upp á tæpa eina milljón króna. Af hálfu ákæruvaldsins var þess krafist að refsing ákærða yrði þyngd. Ákærði krafðist á móti þess aðallega að héraðsdómur yrði ómerktur, til vara að hann yrði sýknaður en að því frágengnu að refsing væri milduð. Mál þetta hef- ur verið nokkuð lengi í dómskerf- inu. Fyrst var Magnús dæmdur í héraðsdómi en þeirri niðurstöðu var áfátt að mati Hæstaréttar sem sendi málið til baka. Nú hefur það loks verið til lykta leitt. Magnús var sakfelldur í héraði fyrir að hafa notfært sér líkamlega yfirburði sína og ölvunarástand konunnar til þess að nauðga henni aðfaranótt 28. mars 2013. Magnús hélt því fram að allar athafnir hans hafi verið með samþykki konunnar og að hann hafi ekki beitt hana of- beldi. Dómurinn leit hins vegar til framburða vitna um rænulítið ástand konunnar umrædda nótt og um klæðnað og ástand hennar dag- inn eftir. Þá samrýmdust áverkar frásögn konunnar um valdbeitingu og því var dómsniðurstaðan sem fyrr greinir. Fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot  Framburður þolanda og vitna réði Hæstiréttur Dómhúsið Utankjörfund- aratkvæðagreiðsla erlendis vegna forsetakosning- anna 25. júní má hefjast á morgun 30. apríl. Fer hún fram í öllum sendi- ráðum Íslands er- lendis, aðalræð- isskrifstofum Íslands í New York, Winnipeg, Nuuk og Þórshöfn í Færeyjum, skv. frétt utanríkisráðuneytisins. Einnig er unnt að kjósa utan kjör- fundar eftir samkomulagi hjá kjör- ræðismönnum Íslands erlendis, sam- anber meðfylgjandi lista. Vekur ráðuneytið athygli kjósenda á því, að þeim ber sjálfum að póst- leggja atkvæði sín eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til viðkomandi kjörstjórnar á Íslandi. Bessastaðir For- setakosningarnar fara fram 25. júní. Kosning erlendis má hefjast á morgun Fæst íapótekum,Krónunni,Fjarðarkaup, Hagkaup,NettóogGrænheilsa. Duft í kalt vatn eða boost Styður: Efnaskipti og öflugri brennslu Minni sykurlöngun Slökun og svefn Vöðva og taugastarfsemi Gott á morgnana og kvöldin 1/3 tsk = 350mg - ekkert bragð Mikil virkni Náttúrulegt Þörungamagnesíum ENGIN MAGAÓNOT Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 525 8210 eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is EDDA HEILDVERSLUN Stofnsett 1932 Allt lín fyrir: Hótelið - Gistiheimilið - Bændagistinguna - Airbnb Rúmföt og lök Handklæði Sængur og koddar Sloppar og inniskór Vertu upplýstur! blattafram.is MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI ÞOLENDUR OG GERENDUR KYNFERÐISOFBELDIS PERSÓNULEGA. ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI? Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Buxnaleggings kr. 6.900 Litir: drappað, svart Str. S-XXL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.