Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 13
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Þungarokkarastíll María Rós er með lokk í nefi, skartar skærrauðu hári og uppáhaldsliturinn hennar er svartur.
Vertigo F.v. Sven, Vilberg, Ingólfur og María Rós á Gauknum.
hljómsveitinni Vertigo stundum verið
líkt við bönd á borð við Royal Blood,
Arctic Monkeys og The Cult. Auk
Maríu Rósar, sem spilar á gítar,
skipa sveitina Vilberg Smári Elíasson
á bassa, Alfreð Þrastarson á tromm-
ur, Ingólfur Páll Matthíasson söngv-
ari og Sven Oliver á gítar. Í grunninn
spilar sveitin þungarokk, þótt hún
kunni sitthvað fleira fyrir sér.
„Við leikum yfirleitt frumsamda
tónlist, en tökum líka „kóverlög“ ef
stemmningin er þannig. Flest lögin
eru eftir mig eða Sven, en hann er
líka textasmiðurinn. Vertigo kom
fyrst fram á Íslenska rokkbarnum í
Hafnarfirði í haust, en síðan höfum
við spilað reglulega á Bar 11, þar sem
ég er bókari,“ segir María Rós. „Ég
sé um að bóka hljómsveitir,“ bætir
hún við.
Hvernig er fyrir stelpu að lifa og
hrærast í því karlavígi sem þunga-
rokkið er?
„Bara mjög gaman. Stöðugt fleiri
stelpur eru farnar að spila og slá í
gegn með þungarokkssveitum.
Þungarokkið er ekkert karlavígi leng-
ur.“
Hver er munurinn að spila á gít-
ar eða bassa?
„Fjórir strengir og sex strengir.“
Hmm.... en hvort er skemmti-
legra?
„Ég er miklu vanari að spila á
gítar og finnst það meira frelsi. Þótt
ég hafi verið bassaleikari í Rafmagn-
að og spilað nokkrum sinnum með
þeirri sveit á Músíktilraunum finnst
mér miklu skemmtilegra að spila á
gítar.“
Krafturinn heillar
Upp úr dúrnum kemur að María
Rós hefur fjórum sinnum áður komið
fram og spilað á gítar, bassa eða hvort
tveggja á Músíktilraunum. Henni
finnst hrikalega gaman að taka þátt í
hátíðinni og er alsæl með árangur
Vertigo, sem komst í undanúrslit í ár.
Samt segist hún alltaf fá svakalegan
sviðsskrekk og vera dauðhrædd um
að klúðra öllu.
Hvernig sérðu framtíðina fyrir
þér í tónlistinni?
„Ég ætla klárlega ekki að hætta
í bráð, vonandi aldrei. Krafturinn í
þungarokkinu heillar mig. Aðal-
atriðið er samt að hafa gaman af og
semja góða tónlist. Ég hefði ekkert á
móti því að mennta mig í tónlist en
það hentar mér ekki núna, ég hef
engan tíma.“
Eru einhverjir peningar í þessu?
„Nei, bara kostnaður og mikið
stúss. Við fáum kannski nokkra bjóra
og svo kostar að keyra allt dótið fram
og til baka. Ég bý náttúrlega enn hjá
foreldrum mínum þannig að ég þarf
ekki mikla peninga.“
Af hverju fórstu að læra raf-
virkjun?
„Mér fannst það praktískt og
ekki kalla á að maður sæti við borð
frá klukkan níu til fimm alla daga.
Einnig kemur sér vel fyrir mig að
kunna að stilla og laga magnara, ped-
ala og aðrar hljómsveitargræjur, þótt
það hafi ekki verið aðalatriðið.“
Rokksenan á Íslandi heillar og
því gæti farið svo að María Rós taki
sér frí frá námi í eitt ár eða svo. Næst
á dagskrá er sumarstarf í Rafholti,
ásamt því að hafa bókanir á Bar 11
áfram með höndum. Og æfingar og
spilerí með Vertigo, aðallega ánægj-
unnar vegna.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Músíktilraunir eru tónlistarhátíð ungmenna 13-25 ára, sem í ár var haldin
2.-5. apríl í Hörpu. María Rós keppti fimmta árið í röð og spilaði að þessu
sinni á bassa með Rafmagnað og gítar með Vertigo, sem komst í undan-
úrslit. Ferill hennar í Músíktilraunum að öðru leyti:
2012 spilaði á gítar með Free Fall. Popp/rokk.
2013 á gítar með Yellow Void, sem var kosin hljómsveit fólksins. Popp/
rokk.
2014 á gítar með Lotningu og bassa með Rafmagnað. Þungarokk.
2015 á bassa með Rafmagnað. Þungarokk.
Gítar- og bassaleikari
MÚSÍKTILRAUNIR
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
Transporter hefur fylgt kynslóðum af fólki sem hefur þurft á traustum
og áreiðanlegum vinnuþjarki að halda sem leysir krefjandi og fjölbreytt
verkefni. Hann er framhjóladrifinn með fullkominni stöðugleikastýringu og
spólvörn en er einnig í boði með fjórhjóladrifi og sjö þrepa sjálfskiptingu.
Byggir á traustum grunni
www.volkswagen.is
AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu.
Nýr Volkswagen Transporter
Nýr Volkswagen Transporter
kostar frá
4.590.000 kr.
(3.701.613 kr. án vsk)