Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 14

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Malcolm Walker, stofnandi Iceland- keðjunnar í Bretlandi, lýsir í sjálfs- ævisögu sinni undrun sinni á því hvernig skilanefnd gamla Lands- bankans stóð að sölunni á fyrirtæk- inu eftir að fyrri eigendur fóru í þrot. Síðla árs 2004 eignaðist Baugur meirihluta í Big Food Group og þar með í Iceland. Eftir þrot Baugs keypti Walker fyrirtækið árið 2012. Ævisaga Walkers heitir Best Served Cold: The Rise, Fall and Rise Again of Malcolm Walker og kom út í nóvember 2013. Jón Ásgeir viðskiptafélagi hans kemur þar við sögu en hvergi virðist minnst á föður hans, Jóhannes heitinn Jónsson stór- kaupmann, og verslun Iceland á Ís- landi. Iceland-búðirnar eru þekktar fyrir úrval af frystum matvörum. Fram kom í minningarorðum um Jóhannes í Fréttablaðinu að hann hefði stofnað verslunina Iceland á Ís- landi í samstarfi við Malcolm Walk- er. Fram kom á mbl.is í janúar 2013 að félag í eigu Árna Péturs Jónsson- ar hefði keypt 51% hlut í Ísland- Verslun hf. sem rak Iceland á Ís- landi. Hluturinn var keyptur af Jó- hannesi, sem var sagður eiga 12% hlut eftir söluna. Hann hafði þá bar- ist við illvígan sjúkdóm. Félag í eigu Iceland Foods í Bretlandi var sagt eiga 37% hlut í rekstrinum. Keypti 67% hlut í keðjunni Athygli vekur að í kafla 27, Long- term greedy, fjallar Walker opin- skátt um aðdraganda þess að hann keypti 67% hlut skilanefndar Lands- bankans í Iceland-keðjunni í Bret- landi (skilanefnd Glitnis átti 10% og stjórnendur félagsins 23%). „Landsbankinn skipaði þrjá stjórnendur fyrir Iceland en af ein- hverri ástæðu var Jón Ásgeir skip- aður formaður hópsins. Pólitíkin og tengslin milli manna í málinu voru óskiljanleg,“ skrifar Walker um mannaráðningar hjá skilanefnd Landsbankans. Hann lýsir ringul- reið þar innandyra. „Við flugum til Íslands til að hitta skilanefndina og það var eins og að ganga inn á fund hjá einkar óskipu- lagðri stjórn [parish council]. Það voru bókstaflega pappírar úti um allt og það var erfitt að trúa því að nokk- ur hefði hugmynd um hvað hann var að gera, eða getu til að taka ákvarð- anir um nokkurn skapaðan hlut. Það var sláandi að hugsa til þess að þeir hefðu efnahagsleg örlög heillar þjóð- ar í sínum höndum,“ skrifar Walker í lauslegri þýðingu úr ensku. Walker lýsir því svo hvernig Jón Ásgeir taldi gjaldeyrisvanda ís- lenska þjóðarbúsins skapa kaup- tækifæri á hlutum skilanefndanna í Iceland-keðjunni bresku. Íslendingar örvæntingafullir „Jón Ásgeir sagði okkur að ís- lenska þjóðin byggi við slíkan gjald- eyrisskort að hún væri í örvæntingu að reyna að afla fjármagns. Taldi hann að bankarnir [innskot: það er skilanefndirnar] myndu fallast á tafarlaust og lágt tilboð frá okkur um kaup á félag- inu. Við gerðum tilboð þar sem fé- lagið var metið á 600 milljónir punda. Það reyndust vera mistök, enda voru þeir [í skilanefnd- inni] ekki sáttir við okkur og álitu okkur tækifæris- sinna, sem við auðvitað vorum. Sam- skiptin voru upp frá því stirð og gætti tortryggni á báða bóga,“ skrif- ar Walker í lauslegri þýðingu. Hann segir skilanefndina hafa virst dauðskelkaða um að gera mis- tök af ótta við málsóknir kröfuhafa. Walker skrifar svo að skilanefndin hafi verðmetið Iceland-keðjuna á tvo milljarða punda. „Við komust sjálfir aldrei upp fyrir milljarð punda.“ Walker skrifar svo í kafla 29, The Auction, að í maí 2011 hafi fulltrúi skilanefndar Landsbankans upplýst að söluferlið á hlutnum í Iceland- keðjunni væri hafið. Sami fulltrúi hafi síðar upplýst að boðnir hefðu verið 1,4 milljarðar punda í félagið. Walker leitaði til meðfjárfesta, byrj- aði á að ræða við Kirkham lávarð. Hann hitti svo hjónin Renuka og Micky Jagtiani, eigendur og stjórn- endur félagsins Landmark í Dubai, og auðmanninn Christo Wiese frá Suður-Afríku, sem hugðist fjárfesta í gegnum fjárfestingafélagið Brait. Af frásögninni mætti álykta að þessir fjárfestar hafi slegist með í för. Lárus Welding ráðgjafi við sölu Walker segir Lárus Welding hafa veitt ráðgjöf vegna söluferlisins og lagt til að fulltrúar Iceland færu til fundar við skilanefndina, án þess að hafa ráðgjafa sér við hlið. Lárus var einn lykilmanna hjá Landsbankan- um þegar bankinn lánaði Baugi fyrir kaupum á Iceland-keðjunni. Walker skrifar að hann og við- skiptafélagar hans hafi boðið 1,4 milljarða punda gegn því að fá að láni 250 milljónir punda með 5% vöxtum. „Þeir voru svo fúsir að taka við tilboðinu að Tarsem [Dhaliwal] sagði eftir á að hann hefði óskað sér þess að hafa beðið um 350 milljónir punda að láni á 4% vöxtum! Þetta var eins og að skoða bíl sem er til sölu, leggja fram tilboð og biðja síðan sölumanninn um að lána þér pening fyrir kaupunum. Þetta var frábær niðurstaða fyrir okkur. Ég held að þeir hefðu ekki verið jafn viljugir til að lána okkur peningana ef við hefð- um sagt þeim frá nýju fjárfestunum okkar þremur,“ skrifar Walker. Sambærilegar tímasetningar Fram kemur í bókinni að hinn 15. febrúar 2012 var bjóðendum gefinn 42 daga frestur til að efna samning- inn, ellegar missa tilboðsréttinn. Það stóðst, því að gengið var frá kaup- unum 9. mars 2012. Undirbúningur að opnun Iceland-verslana á Íslandi virðist þá hafa hafist strax, enda liðu tveir mánuðir þar til Jóhannes Jóns- son sagði Morgunblaðinu frá þeim áformunum. Loks vekur athygli að í þakkar- orðum þakkar Walker Jóni Ásgeiri og Gunnari Sigurðssyni, fv. forstjóra Baugs, fyrir að hafa tiltrú á sér. Þá þakkar hann Lárusi Welding fyrir að hafa lánað peninga á árinu 2005 og fyrir leiðsögn um íslensk stjórnmál. Undraðist aðild Jóns Ásgeirs  Malcolm Walker undraðist að Jón Ásgeir væri formaður hóps á vegum skilanefndar Landsbankans  Walker lýsir þessu í ævisögu sinni  Walker keypti hlut skilanefndar Landsbankans í Iceland 2012 Morgunblaðið/Eggert Matvara Verslun Iceland í Engihjalla. Jóhannes Jónsson stofnaði Iceland á Íslandi í samstarfi við Walker. Eftir bankahrunið á Íslandi gerði Jón Ásgeir Jóhannesson ýmsar til- raunir til að halda áfram rekstri félaga sinna á Íslandi. Fjallað var um eina slíka tilraun í Lundúnablaðinu The Daily Tele- graph hinn 24. nóvember 2009. Var þar sagt frá því að Jón Ásgeir hefði sett sig í samband við Walker varðandi fjárfestingu í Högum. „Aðeins átta mánuðum eftir að Baugur sótti um greiðslustöðvun með skuldir upp á milljarð punda segist Walker íhuga að liðsinna vini sínum með því að veita honum fjárhagslega líflínu. Herra Jó- hannesson er að reyna að safna allt að 35 milljónum punda til að tryggja framtíð Haga, sem reka Bónus, Hagkaup, Debenhams og 10- 11 verslanir á Íslandi,“ sagði meðal annars í umfjöllun blaðsins. Þessar hugmyndir urðu ekki að veruleika. Samkvæmt vefsíðunni Ice- landbudir.is eru nú þrjár Iceland-verslanir í rekstri á Íslandi; í Engi- hjalla 8 í Kópavogi og í Vesturbergi 76 og Arnarbakka 2-4 í Breið- holti í Reykjavík. Vildi fá Walker með í Haga UMFJÖLLUN LUNDÚNABLAÐSINS THE DAILY TELEGRAPH Lárus Welding Malcolm Walker Jón Ásgeir Jóhannesson Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðherra, átti í gær fundi með Phil Hogan, framkvæmda- stjóra landbún- aðarmála, og Karmenu Vella, framkvæmda- stjóra sjávarútvegsmála hjá Evr- ópusambandinu. Á fundinum með Hogan voru m.a. ræddar reglur ESB er varða lífrænan landbúnað, en þær leyfa ekki notkun fiskimjöls sem fóðurgjafa. Gunnar Bragi og Karmenu Vella ræddu m.a. tvíhliða samkomulag Ís- lands og ESB um fiskveiðimálefni frá árinu 1992. Samkomulagið var gert í tengslum við gerð EES- samkomulagsins en hefur verið óvirkt um nokkurra ára skeið. Þeir urðu ásáttir um að skoða leiðir til að endurvekja og endurnýja sam- komulagið. Rætt um að endur- vekja samkomulag Gunnar Bragi Sveinsson MÁ BJÓÐA ÞÉR Í SJÓNMÆLINGU? NÝ SENDING AF UMGJÖRÐUM Traust og góð þjónusta í 19 ár Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200 Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.