Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Drög að deiliskipulagstillögu að
Hvannavallareit á Oddeyri, sem
kynnt voru á aðalfundi hverf-
isnefndar á dögunum, mæta harðri
andstöðu nefndarmanna. Deiliskipu-
lag hefur ekki verið auglýst en óskað
var eftir ábendingum og þeim var
komið óformlega á framfæri á aðal-
fundinum. Arnar Birgir Ólafsson,
sem fer fyrir hópi áhugafólks um
skipulagsmál í bænum, hefur sent
bæjarfulltrúum hugmyndir að bygg-
ingu íbúðarhúsnæðis á svæðinu.
Hjalti Jóhannesson er í hverfis-
nefnd. „Skv. aðalskipulagi er þetta
einn af þéttingarreitunum, þar sem
gert er ráð fyrir verslun og þjónustu
á jarðhæð og íbúðum á efri hæðum
nýbygginga við Hvannavelli. Okkur
hugnast illa sá meginandi sem fram
kemur í drögunum. Stefnan stangast
illa á við það sem talað var um fyrir
síðustu kosningar,“ segir Hjalti.
Tryggvi Már Ingvarsson, formað-
ur skipulagsnefndar, fagnar því að
fólk hafi skoðun á skipulagmálum.
Reiturinn hafi lengi verið til umræðu
og um áratugur síðan fyrst var rætt
um að Krónan opnaði þar verslun.
„Allir flokkar settu það í stefnuskrá
sína fyrir síðustu kosningar að setja
Oddeyri í fókus hvað skipulagsmál
snertir og hefur skipulagsnefnd gert
heildarskipulag Oddeyrarinnar eitt
af sínum forgangsmálum,“ segir
Tryggvi. Í því skyni hafi verið farið í
vinnu við rammahluta aðalskipulags
Oddeyrar.
Tryggvi segir að á svipuðum tíma
og vinna hófst við heildarskipulag,
hafi forsvarsmenn Festis haft sam-
band við bæjaryfirvöld vegna skipu-
lags Glerárgötu 36, sem er að hluta í
eigu félagsins, og kannað hvort
mögulegt væri að þróa lóðina með
það fyrir augum að opna þar verslun
fyrir t.a.m. Krónuna og Elko.
„Skipulagsnefnd brást jákvætt
við erindinu, því með því sáum við
tækifæri til að lyfta upp svæðinu sem
hefur verið vannýtt og í hálfgerðri
niðurníðslu,“ segir Tryggvi og bætir
við að strax hafi verið kannað hvort
Festi væri reiðubúið að „skoða bygg-
ingu húsnæðis á lóð sinni þar sem
verslun væri á jarðhæð en íbúðir á
efri hæðum. Því var svarað neitandi.
Við sögðum á móti að við stæðum við
það að við vildum 60 íbúðir í samræmi
við ákvæði deiliskipulags inn á svæð-
ið og þeir yrðu að taka einhvern hluta
þeirra í sinni tillögu sem og þeir
gerðu með því að gera ráð fyrir
a.m.k. 20 íbúðum í byggingu á horni
Glerárgötu og Tryggvabrautar.“
Eins sé í tillögudrögum gert ráð fyrir
40-50 íbúðum við Hvannavelli 1.
Tryggvi bendir á að enn sé unnið
að tillögunni og margir endar lausir.
„Við stöndum hinsvegar í þeirri trú
að skipulagið sé í takti við að-
alskipulag bæjarins og við séum að
vinna honum til hagsbóta.“
„Satt að segja varð ég fyrir
nokkrum vonbrigðum þegar ég sá
þessi drög,“ segir Logi Már Ein-
arsson, bæjarfulltrúi Samfylking-
arinnar, í samtali við Morgunblaðið.
Þess má geta að Logi er arkitekt að
atvinnu og talaði fyrir síðustu kosn-
ingar mikið fyrir þéttingu byggðar,
ekki síst á Oddeyri. „Það er lífs-
nauðsynlegt fyrir okkur að þétta
íbúðabyggð, með fjölbreyttri land-
notkun og nota hvern blett eins vel og
hægt er. Við höfum ekki efni á að
dreyfa gagnrýnislaust úr okkur um
allar koppagrundir. Fleirum og fleir-
um er að verða þetta ljós og ég trúi
ekki öðru en að við berum gæfu til
þess að þróa þessa vinnu meira í átt
að þeirri sýn,“ segir Log Már.
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæj-
arfulltrúi VG, segir ekki tímabært að
ræða tillögurnar sem lokaútkomu.
„Þær hugmyndir sem uppi eru
um nýtingu á reitnum verða eins-
konar spegilmynd Glerártorgs, þó
minni að umfangi að mínu viti. Það
fer ekki gegn skilmálum að-
alskipulags eins og ég skil það,“ segir
hún. „Fyrir kosningar töluðum við í
VG um að byggja upp Oddeyrina og
veita hverfinu þá reisn sem það á skil-
ið. Að mínu mati er það helst blómleg
íbúabyggð sem stendur undir því og
allar frekari breytingar í þá átt eru
mér að skapi,“ segir Sóley Björk.
Arnar Birgir Ólafsson, landslags-
arkitekt, býr í hverfinu og er með
skrifstofu á reitnum sem um ræðir.
Hann hefur sent bæjarfulltrúum
hugmynd að íbúðabyggð á svæðinu,
sem sjá má á efri myndinni.
„Ég er fyrst og fremst áhuga-
maður um gott skipulag á Akureyri,“
segir Arnar Birgir. „Búið er að kynna
skipulagsdrög og yfirleitt verður
endanlega tillaga í samræmi við slík
drög nema bæjarbúar mótmæli. Til-
laga okkar gerir ráð fyrir 300 íbúa
byggð, þar sem yrðu nútímalegar,
bjartar og rúmgóðar íbúðir með að-
gangi að bílastæðahúsi og öllum nú-
tíma þægindum á besta stað í bæn-
um. Þaðan yrði innan við fimm
mínútna gangur í miðbæinn og kostn-
aður fyrir Akureyrarbæ að sjálf-
sögðu miklu minni en ef byggt yrði í
nýju hverfi.“
Arnar heldur því fram að skipu-
lagsdrögin séu í andstöðu við aðal-
skipulag Akureyrar, þar sem gert er
ráð fyrir íbúðabyggð, þjónustu og
verslun, en „skv. þessum drögum
verður þarna bara ein verslunar-
skemma á einni hæð og fjöldi bíla-
stæða.“
Verslunarhús eða íbúðabyggð?
Íbúðir? Mynd Arnars Birgis af hugmynd hans um íbúðarhúsnæði á reitnum.
Verslun? Mynd úr drögum að deiliskipulagi af Hvannavallareitnum.
Einn af hápunktum Sæluviku Skag-
firðinga verður í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki í kvöld þegar tónlistar-
dagskráin „Árið er – lögin sem lifa“
verður flutt, í samstarfi við Rás 2.
Þar verður íslensk dæg-
urlagasaga rakin í tali og lifandi
tónum, í anda útvarps- og sjón-
varpsþáttanna margverðlaunuðu
Árið er. Meðal flytjenda verða
Magni Ásgeirsson, Sigríður Thorla-
cíus, Sigga Beinteins, Ellert Jó-
hannsson og Sigvaldi Helgi Gunn-
arsson. Fleiri skagfirskir listamenn
koma fram, ásamt stórhljómsveit
hússins, þau Bergrún Sóla, Malen,
Sigurlaug Vordís og bakarameist-
arinn Róbert Óttarsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
að þeim loknum verður dansleikur í
íþróttahúsinu. Fyrr um daginn
verður sérstök sýning fyrir börn,
með svipaðri dagskrá.
Miðasala hefur farið fram á tix.is
en verður einnig við innganginn. Á
barnasýninguna verður frítt fyrir
sex ára og yngri, í fylgd með full-
orðnum.
Morgunblaðið/Eggert
Sæluvikan Magni Ásgeirsson er meðal flytjenda á Sæluvikunni í kvöld.
Dægurlagasagan
flutt í tali og tónum
Árið er á Sæluvikunni í kvöld
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
MOGGAKLÚBBURINN
Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
Sími 595-1000, netfang: sala@heimsferdir.is
Opnunartími skrifstofu: mán.-fös. 09.00-17.00
EINKAFERÐ MOGGAKLÚBBSINS
MEÐ HEIMSFERÐUMTIL AGADIR
UPPLIFÐU
STÆRSTI
SÓLARSTRANDARSTAÐUR
Í MAROKKÓAGADIR
Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir,
býður áskrifendum sínum frábært tilboð til
Agadir 7. maí í 12 nætur. Fjölbreytt gisting
í boði á afar hagstæðum kjörum.
Frá kr.
89.900
m/hálfu fæði
Allt að
43.000 kr.
áskrifendaafsláttur
á mann!
Allir sem
bóka Agad
ir
eiga mögu
leika
á að vinna
fría ferð!
Landssamband hestamanna (LH)
stendur fyrir Hestadögum um
helgina, í samstarfi við Íslandsstofu,
sem kynnir íslenska hestinn á
heimsvísu í markaðsverkefninu
Horses of Iceland.
Á morgun, laugardag, verður
skrúðreið sem leggur af stað kl. 13
frá Hallgrímskirkju, fer niður Skóla-
vörðustíg og endar á Austurvelli.
Þar tekur kór á móti hestum og
knöpum og fólki gefst kostur á að
klappa hestunum og spjalla við
knapana.
Sunnudaginn 1. maí verður Dagur
íslenska hestsins haldinn í heiðri um
heim allan. Þá eru hestamenn hvatt-
ir til að gera sér glaðan dag með
gestum og gangandi, bjóða í hest-
húsin eða í útreiðartúr. Þátttak-
endur geta deilt upplifun sinni á
samfélagsmiðlum með myllumerk-
inu #horsesoficeland. Vikupassi á
Landsmót hestamanna á Hólum í
sumar er í vinning fyrir skemmtileg-
ustu myndina. Horses of Iceland-
markaðsverkefnið mun opna sam-
félagsmiðla tengda íslenska hest-
inum samhliða Hestadögum.
Alls hafa um 40 aðilar gerst aðilar
að verkefninu til næstu fjögurra ára.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið hefur heitið allt að 25 millj-
ónum króna til verkefnisins, gegn
sama framlagi frá fyrirtækjum, fé-
lögum og hagsmunaaðilum. Íslands-
stofa heldur utan um verkefnið.
Hestadagar
haldnir um
helgina
Morgunblaðið/RAX
Hestadagar Íslenski hesturinn
verður í öndvegi um helgina.
Skrúðreið um
miðbæinn á morgun