Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 17
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Ný ofurtölva dönsku veðurstofunnar
var formlega tekin í notkun í gær, en
hún er staðsett í rammgerðum tölvu-
sal í húsnæði Veðurstofu Íslands við
Bústaðaveg. Hún er af gerðinni Cray
XC30 og er stærsta tölva á Íslandi.
Tölvan hefur verið í fullum rekstri í
nokkrar vikur, en afurðirnar eru
samnýttar af dönsku og íslensku
verðustofunum. Samningar voru
undirritaðir haustið 2014.
Dæmi eru um að veðurstofur sam-
nýti ofurtölvur og má gera ráð fyrir
að aðrar veðurstofur og stofnanir,
einkum norrænar, taki til athugunar
að hýsa ofurtölvur í gagnaverum á
Íslandi í framtíðinni. Hafdís Karls-
dóttir, settur veðurstofustjóri, segir
að ýmsir möguleikar hafi verið
ræddir í því sambandi.
Samstarf Norðurlanda
um ofurtölvu árið 2022
Hún segir að samstarf norrænna
veðurstofa sé vaxandi og í lok árs
liggi væntanlega fyrir hvernig því
verði háttað í framtíðinni. Fyrir-
hugað sé að árið 2022 sameinist öll
Norðurlandaríkin um ofurtölvu og
rekstur tölvunnar hér á landi fyrir
dönsku veðurstofuna sýni að fjar-
lægðir skipti litlu máli hvað stað-
setningu varðar. Sömuleiðis sé fram
undan að endurnýja ofurtölvu
finnsku veðurstofunnar og Finnar
fylgist vel með samstarfi Dana og Ís-
lendinga.
„Með auknu samstarfi á ýmsum
sviðum sparast fjármunir og kraft-
arnir nýtast betur, til dæmis við
veðurspár og líkanagerð. Samstarfið
við Danina gæti verið ísbrjótur til
framtíðar,“ segir Hafdís.
Fram kom í Morgunblaðinu fyrr í
þessum mánuði að ofurtölvan kostar
yfir milljarð króna og er sá kostn-
aður greiddur af Dönum. Danirnir
greiddu 90% af kostnaði við að
byggja upp stoðkerfi sem þarf til að
sinna svona tölvu og greiða 90% af
rekstrarkostnaði stoðkerfisins.
Auknir möguleikar
í veðurþjónustu
Samningurinn um sameiginlega
nýtingu á dönsku ofurtölvunni veitir
Veðurstofunni aukin tækifæri á sviði
loftslagsrannsókna og við þróun spá-
líkana, segir í frétt frá Veðurstof-
unni. Möguleikar í veðurþjónustu
munu aukast, s.s. í þjónustu við al-
þjóðaflug. Aukið aðgengi að gögnum
mun efla rannsóknir, jafnt á fortíð-
arloftslagi sem framtíðarsviðs-
myndum loftslags, og er þess vænst
að stofnanirnar muni eiga samstarf
um loftslagsmál á norðurslóðum.
Tölvan þrefaldar reiknigetu
dönsku veðurstofunnar frá því sem
áður var og notar að allt að 400 kW
af rafmagni, sem hefði gert rekstur
hennar mun dýrari væri hún staðsett
í Danmörku. Fulluppsett mun hún
geta framkvæmt 700.000 milljarða
reikniaðgerða á hverri sekúndu.
Dagskrá var í húsnæði Veðurstof-
unnar í gær þar sem samstarfinu var
fagnað og horft til framtíðar. Sigrún
Magnúsdóttir umhverfisráðherra
flutti ávarp og Marianne Thyrring,
forstjóri dönsku veðurstofunnar, og
10-15 aðrir erlendir gestir voru við-
staddir.
Veðurstofur samnýta ofurtölvur
Aukið aðgengi að gögnum mun efla
rannsóknir, jafnt á fortíðarloftslagi
sem framtíðarsviðsmyndum loftslags
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Mikil reiknigeta Ofurtölvan var formlega tekin í notkun í gær, samstarfinu fagnað og horft til framtíðar.
Cray-XC 30
» Cray-ofurtölva í notkun í
fyrsta skipti á Íslandi.
» Hún þrefaldar reiknigetu
dönsku veðurstofunnar og not-
ar allt að 400 kW af rafmagni.
» Notar yfir 20 sinnum meiri
orku en allt tölvukerfi Veður-
stofunnar.
» Fulluppsett mun hún geta
framkvæmt 700.000 milljarða
reikniaðgerða á sekúndu.
» Örgjörvarnir eru af gerðinni
Intel Xeon með samtals um 24
þúsund tölvukjörnum.
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
– fyrir dýrin þín
Er ríkt af virkum innihaldsefnum, ásamt
piparmyntu (dregur úr andremmu), pro- og
prebiotics (velviljaðir gerlar sem bæta meltingu)
og sítrusþykkni (dregur úr myndun tannsýklu)
Fresh Breath hundamatur er
sérstaklega samsettur til að
gagnast hundum með
andremmu, slæma munn-
heilsu og slappa meltingu
Ársfundur EFÍA 2016
Ársfundur Eftirlaunasjóðs FÍA verður
haldinn miðvikudaginn 11. maí 2016
kl. 14 í Hlíðasmára 8, Kópavogi.
Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu á árs-
fundinum með umræðu- og tillögurétti.
Hægt er að nálgast ársfundargögn á
heimasíðu sjóðsins www.efia.is
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur kynntur
3. Tryggingafræðileg úttekt
4. Fjárfestingarstefna
5. Skipun stjórnar og laun stjórnarmanna
6. Val endurskoðanda
7. Önnur mál
– með morgunkaffinu