Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 23

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Á þjóðlegum nótum Peysufatadagur Verzlunarskóla Íslands var í gær og eins og venja er mættu þá annars árs nemar skólans klæddir peysufötum, kjólfötum og íslenskum búningum. Eftir at- höfn í skólanum um morguninn héldu nemarnir á Hlemm og gengu niður Laugaveg að Ingólfstorgi þar sem þeir stigu þjóðlegan dans við harmónikkuleik með bros á vör og gleði í hjarta. Golli Vegna nýlegra atburða í ís- lenskum stjórnmálum og afsagn- ar Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar forsætisráðherra urðu umræður um orðspor Ís- lands. Mátti jafnvel ætla að veruleg hætta væri á ferðum. Ís- land og Íslendingar fengju svo illt orð á sig að um varanlegan skaða yrði að ræða. Tvennt bar hæst sem áhyggju- efni í þessu sambandi: Sú stað- reynd að eiginkona forsætisráð- herra ætti reikning á Bresku Jómfrúareyjum og að forsætisráðherrann hefði komist illa frá sjónvarpssamtali í Ráðherrabústaðnum 11. mars. Fór myndskeið af ráðherranum sem eldur í sinu um fjölmiðla heimsins. Með afsögn sinni fjarlægði Sigmundur Dav- íð sig frá öðrum stjórnmálamönnum sem nefndir eru til sögunnar í Panama-skjölunum og vakti þar með einnig heimsathygli. Fæstir í öðrum löndum vita nokkuð um Ís- land og fagna því að geta vakið máls á ein- hverju frá Íslandi þegar þeir hitta Íslendinga. Þetta verður síðan til þess að Íslendingum bregður í brún þegar rætt er við þá um annað en eldgos, Vigdísi eða Björk. Sé umræðuefnið neikvætt er orðsporið talið í hættu. Neikvæð- ar fréttir fara illa í allar þjóðir, stórar sem smáar. Víða pottur brotinn Vladimír Pútín Rússlandsforseti valdi þá leið að banna umræður um Panama-skjölin og segja þau lið í tilraunum Bandaríkjamanna til að grafa undan sér og Rússlandi. Þá hafa Rússar nefnt bandaríska auðmanninn George Soros sem skaðvald í þessu sambandi enda hafi rússnesk yfirvöld bannað starfsemi stofn- ana á hans vegum sem áttu að stuðla að opn- um umræðum og umbótum í lýðræðisátt. Að því er orðspor Íslands varðar mátti helst ætla að menn óttuðust að umræður um vand- ræðagang við stjórn landsins færu varanlega fyrir brjóstið á annarra þjóða mönnum og hefðu jafnvel áhrif á ferðaþjónustuna. Hér skal dregið í efa að slíkur ótti sé á rökum reistur. Stutt yf- irlit nægir til að sýna að víða kemur til tímabundins ímynd- arvanda út á við vegna stjórn- mála. Litið til nálægra landa Írar eiga í vök að verjast vegna þess að þar hefur ríkt stjórnarkreppa í 60 daga. Á Spáni misheppnaðist stjórnarmyndun eftir 120 daga þref og verður að kjósa að nýju til þings. Minnt er á að ástandið hafi þó verið verra í Írak árið 2010 þegar tók 249 daga að mynda ríkisstjórn. Heimsmetið er þó sagt í höndum Belga, þar tók um árið 451 dag að mynda rík- isstjórn. Þegar Framfaraflokkurinn gerðist aðili að ríkisstjórn Noregs með Hægriflokknum eftir kosningarnar árið 2013 þótti ýmsum að Nor- egur setti ofan. Þykir nokkrum nú að stefnan sem Framfaraflokkurinn boðaði í útlendinga- málum sé of hörð? Í Svíþjóð situr minnihlutastjórn í skjóli þess að hefðbundnir valdaflokkar í landinu þora ekki að rjúfa þing og boða til kosninga af ótta við að stefna þeirra í útlendingamálum (sem þeir hafa að mestu kastað fyrir róða) leiði til enn meira fylgis við Svíþjóðar- demókratana sem lagst hefur gegn straumi flótta- og farandfólks til Svíþjóðar. Í Finnlandi fékk Finnaflokkurinn utanrík- isráðherraembættið eftir kosningarnar í apríl 2015 enda annar stærsti flokkur landsins. Hann hefur lýst efasemdum um ágæti ESB- aðildar og upptöku evrunnar í Finnlandi en hallast til vinstri í félagsmálum. Út á við er hann stimplaður sem hægri lýðskrums- flokkur. Í Danmörku nýtur ríkisstjórnin stuðnings Danska þjóðarflokksins sem oft er úthróp- aður erlendis sem öfgaflokkur vegna stefnu sinnar í útlendingamálum, stefnu sem nú fell- ur vel að sjónarmiðum sem njóta víðtæks stuðnings almennings í Evrópu. Danski þjóð- arflokkurinn beitti sér gegn því í þjóð- aratkvæðagreiðslu í desember 2015 að Danir felldu úr gildi fyrirvara á ESB-aðild sinni. Danir sögðu nei við tillögunni þrátt fyrir stuðning gömlu stóru flokkanna við hana og hræðsluáróður um blett á ímynd Danmerkur. Íhaldsflokkurinn, stjórnarflokkur Bret- lands, logar stafna á milli vegna ágreinings um hvort Bretar eigi að vera áfram í ESB. Átökin harðna til 23. júní þegar greidd verða atkvæði um ESB-aðildina. Íhlutun Baracks Obama Bandaríkjaforseta í málið kallaði fram harða gagnrýni á hann sem talsmann afsals fullveldis annarra þótt Bandaríkjaþing neiti meira að segja að fullgilda hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna vegna andstöðu við full- veldisframsal. Í Hollandi veit ríkisstjórnin ekki sitt rjúk- andi ráð eftir að skýr meirihluti ákvað í þjóð- aratkvæðagreiðslu að hafna aðild Hollands að samstarfs- og viðskiptasamningi ESB við Úkraínu. Niðurstaðan mótast af andstöðu Hollendinga við of mikið framsal á valdi til ESB þar sem lýðræði sé fótum troðið. Í Austurríki sigraði frambjóðandi Frels- isflokksins í fyrri umferð forsetakosninga. Flokknum var lýst sem „öfgahægriflokki“ á mbl.is, stofnandi hans hefði verið „SS- dýrkandi“ og sigurvegarinn nú gengi með „Glock-skammbyssu sína á almannafæri“. François Hollande Frakklandsforseti nýtur trausts innan við 20% þjóðarinnar og stjórn hans á undir högg að sækja á öllum sviðum. Neyðarlög gilda í Frakklandi en til sögunnar hefur komið ný hreyfing sem kennir sig við næturstöðu og mótmælir sérstaklega tillögum um nýja vinnulöggjöf. Angela Merkel Þýskalandskanslari mis- reiknaði sig vegna farand- og flóttafólksins og situr uppi með að verða að blíðka Erdogan Tyrklandsforseta í von um að sú vitleysa verði til að draga úr skaðsemi hinnar. Sérstaða Íslands Hér hefur aðeins verið drepið á stjórn- málástandið í nokkrum löndum sem við notum gjarnan sem mælistiku á eigin stjórn- málastöðu. Hver hefur sinn pólitíska drösul að draga. Hvergi í þessum löndum eru efna- hagshorfur hins vegar eins góðar og hér á landi. „Hagkerfið stendur í blóma, kaupmáttur vex hröðum skrefum og verðbólga hefur í meira en tvö ár verið undir verðbólgumark- miði Seðlabankans. Mikill afgangur er á rík- issjóði, skuldir ríkisins lækka hratt og erlend staða þjóðarbúsins hefur aldrei verið betri. Aldrei,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson for- sætisráðherra á alþingi 8. apríl þegar hann kynnti stefnu ríkisstjórnarinnar. Kaupmáttur hefur aukist um 11,6% und- anfarna 12 mánuði. Erlendar skuldir nema aðeins um 14% af landsframleiðslu miðað við 130% þegar verst lét. Skráð atvinnuleysi var 2,7% í mars. Taka má undir með forsætisráð- herra sem sagði: „Þetta er fáheyrður árangur í alþjóðlegu samhengi.“ Slíkur árangur við landstjórnina skiptir meira máli fyrir ímynd og afkomu þjóðar en brot úr sjónvarpsþætti þótt víða fari. Eftir Björn Bjarnason » Að því er orðspor Íslands varðar mátti helst ætla að menn óttuðust að umræður um vandræði við stjórn landsins færu varanlega fyrir brjóstið á öðrum. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Sérstaða Íslands í efnahagslegum árangri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.