Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Umræðan undan- farið um svokölluð aflandsfélög hefur dregið fram í dags- ljósið gáfnafar þeirra sem þátt hafa tekið og þá hefur komið fram að mörg gáfna- ljósin skína skært á löggjafarsamkundu þjóðarinnar. Menn sem hafa átt aðild að svokölluðum aflandsfélögum eru nánast teknir af lífi í umræðunni og umsvifalaust stimplaðir glæpamenn og skattsvikarar þó ekki hafi neitt komið fram um meint lögbrot. Þá er reynt að sverta umrædda ein- staklinga með tilvísun í að félög sem þeir hafa átt aðild að hafi verið stofnuð í gegnum sömu lög- fræðistofu og sem þjónustaði einnig einhverjar glæpaklíkur. Það er alls ekkert ólöglegt við að eiga félög er- lendis og heldur virðist það vera óljóst hvað er skattaskjól eða afla- ndssvæði. Helst hafa þeir sem fjallað hafa um þessi mál það til viðmiðunar að aflandssvæði sé þar sem skattar eru lægri en á Íslandi sem gerir þá flesta staði heimsins að aflandssvæðum. Menn verða að hafa í huga að meginmunur er á skattasniðgöngu og skattsvikum. Þegar aðilar nýta sér allar glufur en halda sig jafnframt innan ramma laganna til að lágmarka skattgreiðslur má segja að um sé að ræða skattasniðgöngu en teygi menn sig út fyrir ramma laganna er klárlega um að ræða skattsvik. Það síðarnefnda hafa æðstu emb- ættismenn þjóðarinnar, þingmenn og þeir sem fara með skattaeftirlit í landinu m.a. stundað í áraraðir á þann hátt að telja ekki rétt fram frá- dráttarbæra liði á móti fengnum ýmiss konar sporslum vegna starfa sinna. Þannig lækka þeir þá skatta sem þeir eiga í raun að standa skil á. Hér er um að ræða hrein og klár skattsvik sem liðin hafa verið um áratugaskeið, sennilega vegna þess að þeir sem eiga að uppræta þetta gera það ekki og njóta góðs af sjálfir. Skipafélögin Samskip og Eimskip nýta sér gluf- ur í lögunum til að koma í veg fyrir að skattgreiðslur starfsmanna þeirra á skipunum rati ekki í sjóði samfélagsins en renni þess í stað til reksturs útgerðarinnar. Eimskip á mér vitanlega ekki eitt einasta skip í millilandasiglingum. Þau skip sem fyrirtækið er með í rekstri eru flest skráð í skattaskjóli á Bahamaeyj- um og er væntanlega aðeins eitt skip skráð undir hverju félagi þar. Starfsmenn skipanna eru síðan ráðnir í gegnum félög í Færeyjum þar sem þeir eru skattskyldir. Yf- irvöld í Færeyjum endurgreiða síð- an útgerðinni stærstan hluta þeirra skatta sem dregnir eru af þessum starfsmönnum. Þannig skila sér engir skattar af þessum starfs- mönnum til íslensks samfélags. Hér er samt ekki um skattsvik að ræða heldur það sem kallast skattasn- iðganga. Þetta er löglegt en dæmi nú hver fyrir sig hvort einhver sanngirni er í að þessir aðilar njóti fullrar þjónustu samfélags okkar þegar skattgreiðslur þeirra fara í eitthvað allt annað en til reksturs þeirrar þjónustu. Í áraraðir var reynt að koma vitinu fyrir þing- menn allra flokka landsins til að stuðla að því að millilandaskipin flýðu ekki innlenda skráningu en um tíma voru meira en sextíu flutningaskip í millilandasiglingum skráð á Íslandi. Þessi skip flýðu öll land og komu sér fyrir í skatta- skjólum víðs vegar um heiminn. Greinarhöfundur var um árabil bú- settur á suðrænni eyju og starfaði þar við rekstur útgerðar ásamt fleiru. Væntanlega gerir það grein- arhöfund að glæpamanni fyrir það eitt að fávísum gáfnaljósum embættismannakerfisins á Íslandi, núverandi og fyrrverandi hugnast að flokka þá eyju sem greinarhöf- undur var búsettur á sem afla- ndseyju og skattaskjól. Umræddum aðilum sem hæst hafa haft í þess- um efnum er svo starsýnt á flísina í augum aflandseyjapeyjanna að þeir sjá ekki bjálkann í eigin augum. Margir þessara aðila eru á bólakafi í skattsvikum en eru sínkt og heil- agt að reyna að gera tortryggilega þá sem stundað hafa skattasn- iðgöngu innan ramma laganna, væntanlega til að draga athyglina frá umræddum raunverulegum skattsvikum innanlands. Grein- arhöfundi er virkilega efins um þann rétt sem skattyfirvöld hér á landi telja sig hafa til að skatt- leggja hagnað erlendra félaga hvar sem þau eru skráð í heiminum um- fram skatt á arð íslenskra hluthafa sem þeir taka út hverju sinni. Dett- ur einhverjum í hug að tekið yrði mark á því ef löggjafinn á Íslandi setti í lög bann við hægribeygju á rauðu ljósi í Bandaríkjunum ef lög þar í landi kveða á um annað? Það er í sjálfu sér ekki undarlegt að á þeim árum sem Langanesmóri sem fjármálaráðherra stóð að lögleið- ingu eignaupptöku fólks sem farið hafði vel með og kallaði slíkt rán auðlegðarskatt, að einhverjir hafi séð sig tilneydda að forða verð- mætum sínum undan áður en allt yrði hirt af þeim. Þetta hefur vænt- anlega verið örþrifaráð þessa fólks til að koma í veg fyrir að láta slík ólög yfir sig ganga og klárt brot á slíkum ólögum. En áður en menn gagnrýna gjörninginn skyldu þeir horfa til þess hvort sanngjarnt sé að fólk, sem er búið að greiða skatta af þeim tekjum sem um- ræddar eignir byggja á, skuli svo líða fyrir það með eignaupptöku að hafa farið vel með. Þá væri þeim þingmönnum og embættismönnum sem sífellt gjamma um skattsvik annarra hollt að hirða eigin garð þó ekki væri nema til að hafa efni á að hafa svo mikið sem skoðun á þess- um málum almennt. Eru Færeyjar aflandseyjar? Eftir Örn Gunnlaugsson » Skipafélögin hér á landi greiða starfs- mönnum sínum laun í gegnum félög í Fær- eyjum og fá skatta þeirra endurgreidda. Eru Færeyjar þá af- landseyjar? Örn Gunnlaugsson Höfundur er atvinnurekandi og fyrr- verandi aflandseyjapeyi. Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birt- ir aðsendar greinar alla útgáfu- daga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir ör- yggi í samskiptum milli starfs- fólks Morgunblaðsins og höf- unda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf not- andinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráning- arferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kenni- tölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhring- inn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. STORMUR EHF | KLETTHÁLSI 15 | S: 577 1717 | WWW.STORMUR.IS Forsalan á 2017 vélsleðum er í gangi til 6. maí 150.000 kr.- afsláttur af sleðum í forsölu Verð frá 2.490.000 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.