Morgunblaðið - 29.04.2016, Side 31

Morgunblaðið - 29.04.2016, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 ✝ Rebekka Siffæddist á sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað 1. júlí 1992. Hún lést 18. apríl 2016. Foreldrar henn- ar eru Árdís Guð- borg Aðalsteins- dóttir, fædd 12. febrúar 1967, og Karl Bóasson, fæddur 15. apríl 1965. Systkini Rebekku Sifjar eru Logi Steinn Karlsson, fædd- ur 21. desember 1984, og Bóel Rut Karlsdóttir, fædd 25. júní 1993. Sambýliskona Loga Steins fór ásamt foreldrum sínum þeg- ar hún var um þriggja mánaða í hjartaaðgerð á Harley Street Clinic í London og tókst aðgerð- in sem best. Hún gekk í leik- og grunnskóla á Reyðarfirði og þegar þeirri skólagöngu lauk sótti hún starfsbraut í Verk- menntaskólanum í Neskaupstað í fjóra vetur. Á þeim tíma fór hún einnig í starfsnám einu sinni í viku í verslunina Nes- bakka á Neskaupstað. Því næst lá leið hennar hvern virkan dag á Egilsstaði í hæfingu og iðju í Stólpa en einnig sótti hún skammtímavist í Neskaupstað á Bakkabakka. Eftir að hún flutti til Akureyrar sótti hún hæfingu og iðju í Skógarlund og einnig skammtímavist í Þórunnar- stræti. Útför Rebekku Sifjar fer fram frá Glerárkirkju í dag, 29. apríl 2016, klukkan 13.30. er Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, fædd 22. ágúst 1990, og eiga þau eitt barn, Jökul Ísar sem er fæddur 7. ágúst 2013. Sam- býlismaður Bóelar Rutar er Egill Stef- án Jóhannsson, fæddur 8. júní 1990. Rebekka Sif ólst upp á Reyðarfirði og bjó þar allt þar til hún flutti ásamt for- eldrum sínum til Akureyrar sumarið 2015. Þegar hún fædd- ist var hún með hjartagalla og Elsku systir, þú verður alltaf í huga okkar og að eilífu í hjörtum okkar. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Þín systkini, Bóel Rut og Logi Steinn. Það eru margar myndir sem þjóta í gegnum hugann þegar ég minnist þín, elsku Rebekka mín, ég man þegar þú komst í heiminn svo agnarsmá og þurftir að fara til London í hjartaaðgerð en það stóðstu allt af þér með dyggum stuðningi foreldra þinna. Það var ekki ósjaldan þegar maður kom niður á Austurveg að tónlist hljómaði úr herberginu þínu og þá jafnvel jólalögin hvort sem það var sumar og sól eða annar tími ársins. Þú hafðir mikið yndi af því að hlusta á tónlist eða horfa á myndir í sjónvarpinu eða Ipad-inum þínum þegar þú varðst eldri. Þá þýddi nú lítið að ætla að heilsa upp á þig nema rétt kíkja inn og segja nokkur orð og svo varstu farin að gefa manni til kynna að þú vildir fá frið. Þú varst nú ekki mikið fyrir það að vera innan um mikið af fólki í miklum hávaða og áttir það jafn- vel til að tína saman föggur fólks og vísa því á dyr ef þér fannst nóg komið. Þú gast ekki mikið tjáð þig með orðum en það var öllum ljóst hvað þú vildir enda ákveðin ung kona og vissir upp á hár hvað þú vildir. Það var oft gaman af því þegar þú komst við á Heiðarveginum þegar þú varst að koma heim úr vinnunni þinni á Stólpa á Egils- stöðum. Þá komuð þið mamma þín stundum en þú varst nú ekki allt- af sátt við það og áttir það til að bíða bara úti í bíl og þér varð ekki haggað. En oftar komstu inn og settist þá oft inn í stofu að skoða albúm sem þú hafðir mjög gaman af. Þá fórstu stundum inn í sjón- varpsherbergi og valdir þér myndir til að fá að láni. Þá til- heyrði að fá lítinn poka undir myndirnar og þá varðstu kampa- kát enda varð allt helst að fylgja sömu rútínu og þú passaðir vel upp á það að engu væri gleymt þegar þú fórst. Þú varst alltaf mjög góð við stelpurnar mínar og það stóð ekki á því að þær máttu fá lánaðar hjá þér myndir en ann- ars varstu mjög passasöm upp á dótið þitt og að allt væri á sínum stað í herberginu þínu. Það er okkur mæðgum ógleymanlegt þegar þú varst hjá okkur eina dagsstund í fyrra og komst með Ipad-inn með þér til að horfa á uppáhaldsþáttinn þinn. Þér fannst nú ekki gaman að vera skilin eftir enda mikil mömmu- stelpa, en settist inn og fórst að horfa á þátt með Supernanny og hafðir hann ansi hátt stilltan og harðneitaðir að lækka sama hvað við mæðgur reyndum. Allt endaði þó á því að við sátum í kringum þig og horfðum með þér enda mörg góð ráð hægt að fá hjá Su- pernanny við að aga óþekka krakka. Við höfum mikið skemmt okkur yfir þessari minningu síð- an og hlegið að því hvernig þú gast vafið okkur um fingur þér, því allt vildum við fyrir þig gera svo þér liði vel hjá okkur. Það verður skrýtið að koma heim til þín og engin stúlka sem kemur rólega fram með hendur fyrir aftan bak og segir „baa“ við mömmu sína þegar hún vill biðja hana um eitthvað. Við eigum eftir að sakna þín, elsku Rebekka mín, fjölskyldan á Heiðarveginum, þó ekki hafi farið mikið fyrir þér þá var návist þín sterk. Við trúum því að vel hafi verið tekið á móti þér hinum megin þar sem afar þínir eru báðir fyrir og biðjum góðan Guð að geyma þig í faðmi sínum. Þín frænka, Sigríður Helga Aðalsteinsdóttir. Hún gekk hér inn, lágvaxin og hnellin, síðsumars á síðasta ári. Það var eins og hér hefði hún allt- af verið. Hún vann hug og hjörtu þeirra sem hún umgekkst og vann með, rétt eins og hendi væri veifað. Iðin var hún Rebekka og hún lagði svo sannarlega sitt af mörkun í listsköpuninni hér í húsi. Verkin hennar eru einstök og falleg. Hún vann hægt og yf- irvegað og var ákaflega vandvirk. Ferill Rebekku hér í Skógar- lundi varð allt of stuttur. Náði ekki heilu ári. Hér naut hún sín virkilega. Kom glöð hvern dag og fór heim glöð í lok hvers dags. Gekk yfirleitt óhikað til verka en fannst samt gott að fá þjónustu í sinni daglegu rútínu. Hún var ákveðin, hún Re- bekka, og voru skipulag og rútína henni mikils virði hér í Skógar- lundi. Væri leiðarvísir dagsins ekki til staðar þegar hún mætti kallaði hún eftir honum. Hún fór í gegnum skipulagið og lagði blessun sína yfir það eða benti á breytingar sem mætti gera. Fyrir nokkrum dögum var Rebekka hér frísk og full af lífs- gleði og nú er hún farin þangað sem leið okkar allra liggur. Elsku Rebekka. Skemmtileg varstu á þinn hægláta hátt. Horfðir oft á okkur kankvís. Þó að þú segðir ekki margt með orð- um tjáðir þú þig á þinn hátt. Það er ótrúlegt að þú sért farin. Kom- ir ekki aftur til okkar. En svona er litla lífið. Við vitum aldrei hve- nær tilvist okkar hér á jörðu er lokið og ný hefst á öðru tilveru- stigi. Á nýjum brautum heldur tilvera þín áfram. Kæra Rebekka, nú skiljast leiðir. Við erum þakklát fyrir að hafa kynnst þér og átt með þér ánægjulegar samverustundir. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós blikna að hausti (Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir) Kæru Árdís, Karl og fjölskyld- an ykkar öll. Ykkur sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur og biðj- um almættið að umvefja ykkur og styrkja á erfiðum tímum. Elsku Rebekka. Hlutverki þínu hér á jarðríki var að ljúka og nú skiljast leiðir. Við brotthvarf þitt myndast skarð og þín er sárt saknað. Hafðu hjartans þökk fyrir samfylgdina, sem var gefandi og skemmtileg. Í hjörtum okkar eig- um við minningu um þig káta og lífsglaða. Megi góður Guð geyma þig. Fyrir hönd allra í Skógarlundi, Margrét Ríkarðsdóttir. Margar fallegar og skemmti- legar minningar leita á hugann þegar sest er niður til að rita fá- ein minningarorð um okkar ljúfa og káta nemanda, Rebekku Sif Karlsdóttur, sem nú svo allt of snemma er frá okkur tekin. Skólaganga þín hér á Reyðar- firði gerði svo mikið fyrir okkur, gaf okkur svo mikið og það verð- ur seint fullþakkað. Við þurftum að hugsa marga hluti upp á nýtt og fyrir bragðið var skólastarfið frjórra og fjölbreyttara. Hlutir eins og tákn með tali og skóli án aðgreiningar breyttu skólastarfinu og juku þekkingu og víðsýni jafnt nemenda, starfs- manna sem foreldra og það var óendanlega gefandi fyrir okkur öll. Traust og gefandi samstarf við foreldra var einstakt og átti drjúgan þátt í farsælli skóla- göngu. Kátína þín og einlægni höfðu jákvæð áhrif á skólabraginn, sem og stríðni þín og glettni. Það tísti í þér hláturinn þegar þú varst að reyna að stinga okkur af í útifrímínútunum eða hljópst á undan okkur á göngum skól- ans. Þú tókst alltaf virkan þátt í öllu því sem við tókum okkur fyr- ir hendur og ljóslifandi er skemmtileg framganga þín á árshátíðum og öðrum skemmtun- um skólans. Í dag er sérstök Re- bekkustofa í skólanum okkar þér til heiðurs og við munum halda áfram að segja nemendum skól- ans skemmtilegar og gefandi sögur af þér. Þannig heldur þú áfram að auðga skólastarfið hér á Reyðarfirði. Um leið og við þökkum giftu- ríka samfylgd vottum við foreldr- um, systkinum og aðstandendum okkar dýpstu samúð. Þóroddur Helgason, fyrrverandi skólastjóri, og starfsfólk Grunnskóla Reyðarfjarðar. Rebekka Sif Karlsdóttir ✝ Ólafía Gunn-laug Guð- mundsdóttir, Stella, fæddist á Núpi í Haukadal í Dalasýslu 23. mars 1943. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 24. apr- íl 2016. Foreldrar henn- ar voru Anna Jós- efsdóttir, f. 19. nóv- ember 1918, d. 10. febrúar 1995, og Guðmundur Guðmundsson, f. 20. maí 1919, d. 3. mars 2014. Systur Stellu eru Kristín, f. 8. mars 1941, og Guðveig, f. 26. ágúst 1950. Stella giftist 26. maí október 1971. 3) Rakel Linda, f. 11. desember 1972, gift Viðari Jónassyni, f. 24. maí 1973. Barnabörnin eru sjö og barnabarnabörnin þrjú. Stella ólst upp á Kolsstöðum í Miðdölum í Dalasýslu. Grunn- skólagangan var stutt eins og tíðkaðist í sveitum landsins á uppvaxtarárum Stellu. Hún stundaði nám við Húsmæðra- skólann að Staðarfelli Dölum veturinn 1959-1960. Stella og Gunnar hófu búskap í Ólafsfirði og fluttust til Keflavíkur snemma árs 1970 og bjuggu þar alla tíð síðan. Stella var heima- vinnandi þar til börnin uxu úr grasi og vann eftir það við ýmis þjónustustörf, lengst af og þar til hún lauk starfsferli sínum starfaði hún hjá Flugþjónustu IGS á Keflavíkurflugvelli. Útför hennar fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 29. apríl 2016, klukkan 13. 1968 Gunnari Ell- ert Svavarssyni, f. 27. nóvember 1938, d. 2. mars 2016. Foreldrar hans voru Guðný Ingi- marsdóttir, f. 18. febrúar 1916, d. 1. febrúar 2002, og Svavar Jón Ant- onsson, f. 12. janúar 1913, d. 22. desem- ber 1983. Börn Stellu og Gunnars eru: 1) Anna Bára, f. 17. desember 1964, gift Guðbirni Hafsteinssyni, f. 11. desember 1955. 2) Svavar Guðni, f. 15. október 1969, giftur Lisu Bryndísi Matthews, f. 10. Elsku hjartans ljúfa og góða amma mín, það er svo sárt að þurfa að kveðja. Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að alast upp og þrosk- ast í hlýjum faðmi ykkar afa, betri fyrirmyndir er ekki hægt að hugsa sér. Umhyggja og ást ykk- ar til okkar barnabarnanna var einstök. Ég á margar góðar minningar af Bragavöllunum, má segja að það hafi verið mitt annað heimili í æsku. Þar var alltaf hægt að dunda og gramsa, skottast á eftir þér og horfa á Tomma og Jenna á vídeóspólu. Samloka með skinku og osti og rísmjölsgrautur með rúsínum er máltíð sem þú reiddir fram fyrir mig í hvert skipti sem ég óskaði eftir því og í ófá skiptin var kvöld- maturinn tvírétta því litla prins- essan borðaði ekki það sem var í boði. Já, það var gott að vera hjá ömmu og afa. Þið afi minntuð mig oft í gegnum tíðina brosandi út í annað á söguna af því þegar ég, í einu geðvonskukastinu, fékk nóg af fjölskyldunni minni og pakkaði saman dóti í tösku og labbaði mér heim til ykkar því þar fengi ég að ráða. Elsku amma, ég á þér svo margt gott að þakka, þú kenndir mér svo margt. Það eru forrétt- indi að hafa fengið að vera sam- ferða þér í bráðum 33 ár en um leið svo ljúfsárt að rifja upp liðnar stundir og hugsa til þess að þær verði ekki fleiri að sinni. Nú siglir þú inn í sólarlagið með afa, elskunni þinni, og saman munuð þið halda áfram að vernda og vaka yfir okkur fjölskyldunni en nú á nýjum stað þar sem við sameinumst svo öll aftur þegar okkar tími kemur. Ég þakka þér af öllu hjarta fyrir allt og allt. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta, þá helstu tryggð og vináttunnar ljós. Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir) Þín, Heiða Björk. Við trúum því varla hve lífið getur verið ósanngjarnt. Einungis nokkrum vikum eftir að hafa kvatt afa okkar er hún amma okk- ar nú farin frá okkur, alltof fljótt. Ömmu fannst alltaf svo gaman að fá okkur í heimsókn, þegar við vorum börn var varla hægt að kíkja heim til þeirra án þess að við vildum fá að gista, enda vorum við alltaf dekraðar í botn. Alltaf voru til kökur og góðgæti heima hjá þeim og passað upp á að við fengj- um okkur alla vegna einn bita. Ömmu var alltaf umhugað um hversu vel okkur gekk í skólanum og spurði okkur alltaf út í ein- kunnir þegar við fengum þær að hausti og vori. Hún studdi okkur í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við munum ávallt minnast þeirra stunda sem við áttum með þér með hlýhug og söknuði. Takk fyrir að leyfa okkur að kveðja þig, elsku amma, skilaðu kveðju til afa. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Þínar elsku bestu, Stella Bryndís og Sunna Rós. Ólafía Gunnlaug Guðmundsdóttir Helga, föður- systir mín, rækt- aði vel þau gildi sem mótuðu líf hennar, traust og heiðarleika. Hún helgaði sig heimilinu og umhyggjan fyrir afkomendunum var öllu yfir- sterkari. En vegna gáfna og hæfileika var hún hin menntaða heims- kona sem sótti sér næringu í það sem auðgar andann; skóla- gangan var þó stutt. Hún var skarpgreind, fljót að greina og skilja samhengi hlutanna, sjálf- stæð og einörð í skoðunum en um leið reiðubúin til endurmats og takast á við það nýja og óvænta. Helga var lítt rauðbirkin yf- irlitum, hárið mikla var jarpt. Hún var meðalhá vexti, glæsi- leg kona sem bar með sér reisn, klæddi sig alla tíð ein- staklega fallega. Hún var sannur fagurkeri, unni fegurðinni og því sem bar í sér tign. Heimilið bar því vitni. Hún var höfðingi heim að sækja, naut þess að bera dýr- indis veitingar á borð. Hún hefði lært eitthvað sem varðaði mat; það sagði hún mér eitt sinn þegar við töluðum um fyrri ár, óskir hennar og lang- anir. Fólk dróst að henni enda geislaði hún í allri framkomu sem einkenndist af hlýju og gamansemi en um leið stakri háttvísi. Hún naut samvista við fólk, var vinamörg og ræktaði vináttuna. Í banalegunni laun- uðu margir henni velvildina. Helga Einarsdóttir ✝ Helga Ein-arsdóttir fæddist 6. desem- ber 1922. Hún lést 16. apríl 2016. Út- för Helgu fór fram 27. apríl 2016. Þau systkinin Helga og pabbi voru tveggja og fjögurra ára að aldri þegar foreldr- ar þeirra skildu árið 1924. Þau nutu því ekki ástar þeirra og umhyggju nema stuttan tíma; sam- veru systkinanna lauk ári síðar. Þessi örlög mörkuðu þau bæði og skildu eftir djúp sár sem aldrei greru. En þeim auðnaðist að rækta hæfileika sína svo að eftir var tekið. Bæði vildu halda í lífið enda nutu þau þess; þau náðu háum aldri, urðu þó aldrei gömul enda hug- ur beggja sífrjór. Nú eru þau fallin frá, það var stutt á milli þeirra. Fráfall þeirra markar djúp skil og þeirra er sárt saknað. Nú þegar ég kveð Helgu frænku mína er mér efst í huga þakklæti, innilegt þakklæti. Hjá þeim Oddi átti ég ekki að- eins athvarf í næstum hálfa öld, á skólaárunum átti ég þar miklu frekar heimili. Þau voru veitendur, örlát á allt, ég þiggj- andinn. Helga Einarsdóttir lifir í minningum okkar sem sakna vinar í stað. Er þú hvarfst fyrir horn stóð ég eftir andartak í sömu sporum og vissi vart hvert halda skyldi. (Þóra Jónsdóttir) Margrét Jónsdóttir. Vegna mistaka birtist þessi grein ekki á útfarardegi. Hlut- aðeigandi eru beðnir velvirð- ingar á því. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR RUNÓLFSSON húsasmíðameistari, Langholti 17, Akureyri, lést að heimili sínu þann 22. apríl. Útför hans verður gerð frá Glerárkirkju mánudaginn 2. maí klukkan 10.30. . Anna Gréta Baldursdóttir, Elín K. Sigurðardóttir, Þröstur Friðfinnsson, Baldur Sigurðsson, Jón Reynir Sigurðsson, Halldóra Magnúsdóttir, Árni Viðar Sigurðsson, Jenný Ruth Hrafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.