Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 32

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 ✝ Sigríður Reg-ína Ólafsdóttir fæddist í Árgerði á Kleifum í Ólafsfirði 23. apríl 1929. Hún lést á heimili sínu 22. apríl 2016. Foreldrar henn- ar voru hjónin Baldvin Ólafur Baldvinsson út- vegsbóndi í Ár- gerði, f. 10. júlí 1899, d. 29. mars 1983, og eig- inkona hans Snjólaug Ásta Sig- urjónsdóttir, f. 30. september 1899, d. 16. janúar 1971. Systk- ini Regínu voru: Sigurfinnur, f. 23.12. 1922, d. 13.3. 2007, Rósa, f. 19.8. 1925, d. 19.3. 2006, og Sigurbjörg Ól- ína, f. 29.10. 1938, d. 26.2. 1979. Eftirlifandi eiginmaður Reg- ínu er Eggert Gíslason skip- stjóri, f. 12. maí 1927 í Kot- húsum í Garði. Þau gengu í hjónaband 24. mars 1951. Börn þeirra eru: 1) Soffía Margrét Eggertsdóttir, f. 28.9. 1951, sérkennari í Ólafsfirði, maki Óskar Þór Sigurbjörns- son, f. 17.6. 1945, skólastjóri í Ólafsfirði. Börn þeirra eru: a) Ólafur Ármann Óskarsson, f. hans er Fanney Long Ein- arsdóttir, f. 27.7. 1974. Börn þeirra eru: Katrín Björg Hjálm- arsdóttir, f. 1998, og Gísli, f. 2003. b) Þórunn Inga Gísladótt- ir, f. 30.12. 1975. Maki hennar var Hilmar Ramos, f. 13.6. 1975, þau skildu. Börn þeirra eru: María, f. 1998, og Ingi- björg, f. 2003. 3) Hrefna Unnur Eggertsdóttir, f. 12.9. 1955, pí- anóleikari og kennari í Reykja- vík. Maki hennar er Kjartan Óskarsson, f. 13.2. 1954, klarín- ettuleikari og skólastjóri í Reykjavík. Börn þeirra eru: a) Ásta María, f. 3.2. 1987. b) Egg- ert Reginn Kjartansson, f. 15.5. 1991, sambýliskona Unnur Sif Geirdal, f. 3.6. 1991. 4) Ólafur Eggertsson, f. 29.6. 1959, fram- kvæmdastjóri í Reykjavík. Kona hans er Sigrún Birg- isdóttir, f. 13.10. 1959, leik- skólastjóri í Reykjavík. Börn þeirra eru: a) Birgir Ævar Ólafsson, f. 19.4. 1978. Kona hans er Fjóla Georgsdóttir, f. 8.8. 1977. Börn þeirra eru: Daníel Máni Brandsson, f. 2000, og Úlfhildur Birta, f. 2005. b) Regína Unnur Ólafsdóttir, f. 13.3. 1982. Maki hennar er Mark Millen, f. 30.9. 1979. Dótt- ir þeirra er Una Sadie, f. 2014. c) Ásdís Eva Ólafsdóttir, f. 26.9. 1989. Útför Regínu verður gerð frá Áskirkju í Reykjavík í dag, 29. apríl 2016, og hefst athöfnin kl. 15. 10.7. 1972. Kona hans var Sigrún Sigurðardóttir, f. 30.1. 1968, þau skildu. Börn þeirra eru: Signý Rós, f. 1999, Sigurður Bogi, f. 2002, og Gréta Þórey, f. 2005. b) Eggert Þór Óskarsson, f. 5.10. 1973. Kona hans er Magna Lilja Magnadóttir, f. 28.12. 1975. Börn þeirra eru: Maren Ósk, f. 2000, Aron Snær, f. 2003, og Regína Lind, f. 2006. c) Sigurbjörn Reginn Óskars- son, f. 10.9. 1979. Kona hans er Elísabet Pétursdóttir, f. 15.7. 1980. Börn þeirra eru: Kjartan Bessi, f. 2008, og Baldur Þór, f. 2013. d) Kristján Uni Ósk- arsson, f. 4.2. 1984. Kona hans er Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir, f. 23.7. 1986. Börn þeirra eru: Elísa Dröfn, f. 2005, og Óskar Pálmi, f. 2010. 2) Gísli Árni Eggertsson, f. 2.5. 1954, skrif- stofustjóri í Reykjavík. Kona hans er María Ingimarsdóttir, f. 22.2. 1954, kennari í Reykjavík. Börn þeirra eru: a) Eggert Gíslason, f. 24.9. 1971. Kona Tengdamóðir mín elskuleg, hún Regína Ólafsdóttir, er látin 87 ára gömul. Hún ólst upp í litla þorpinu á Kleifum í Ólafsfirði vestanverðum þar sem bjuggu á annað hundrað manns þegar mest var. Bernskuheimili hennar var Árgerði, stórt tvíbýlishús í miðri byggðinni. Sigurður útgerðar- maður Baldvinsson, kona hans Kristlaug Kristjánsdóttir og dæt- urnar Gerður og Brynja bjuggu vestan megin, en bróðir hans Ólaf- ur Baldvinsson útvegsbóndi, Ásta Sigurjónsdóttir kona hans og börnin Sigurfinnur, Rósa, Regína og Sigurbjörg bjuggu austan megin ásamt móður Ástu, Soffíu Margréti Reginbaldsdóttur sem ættuð var frá Hamri í Stíflu, Fljót- um. Lífsbjörgin kom frá landbún- aði og fiskveiðum jöfnum höndum í byggð sem þessari og lærði Reg- ína snemma réttu handtökin á báðum sviðum. Byggðin á Kleif- um var afskekkt og ekki alltaf auðsóttur skóli í Horninu, eins og sveitafólkið nefndi þéttbýlið í Ólafsfirði. Farskóli var starfrækt- ur til skiptis á bæjunum og síðan í skólahúsinu Holti fyrir yngri nemendur. Regína var námsfús, tónelsk og listfeng. Hún hlaut auk þess í vöggugjöf næmt brageyra og átti létt með að yrkja eins og faðir hennar og föðurbróðir, sem voru annálaðir hagyrðingar. Reyndar mátti segja að annar hver Kleifabúi væri hagyrðingur því slíkur var fjöldi vísna og kvið- linga sem flaug milli bæja og lífg- aði upp á hversdagsleikann. Hug- ur Regínu stóð til frekara náms og fór hún til Siglufjarðar í Gagn- fræðaskólann sem var þá á kirkju- loftinu. Þar var hún vistuð hjá góðu fólki sem hún mat alltaf mik- ils. Um miðja síðustu öld urðu miklar breytingar á högum Reg- ínu. Ungur aflaskipstjóri að sunn- an, Eggert Gíslason, kom til Ólafsfjarðar og tók miklu ástfóstri við Kleifarnar, því þar náði hann í Regínu og gengu þau í hjónaband sem var mesta gæfuspor þeirra beggja. Settust þau að í Garðinum og síðar í Reykjavík. Einnig reistu þau sér hús á Kleifum þar sem Regína dvaldi með börnin yfir sumarið og sinnti margþættum ábyrgðarstörfum sjómannskon- unnar. Á hverju sumri héldu þau til á Kleifum meðan heilsa leyfði og vildu vart annars staðar vera. Í hvert skipti þegar við Regína hittumst voru málin rædd, stjórn- málaástandið jafnt sem annað og víða komið við. Ef segja þurfti deili á mönnum var hún vísust til að vita allt um ættir þeirra og hagi. Hún hafði mikinn áhuga á ættfræði og fylgdist vel með öllum fréttum almennt. Oftar en ekki vorum við sama sinnis hvað lands- málin snerti og gat hún verið gagnrýnin og ráðagóð í senn og ófeimin að segja sína meiningu. Eggert hefur nú misst mikið því hún var kjölfestan í lífi hans. Daglega kom hún á Hrafnistu þar sem hann dvelur og annaðist hann af umhyggju, hlýju og þeirri hug- arró sem henni var gefin. Það var fagurt að fylgjast með ástúð henn- ar og fórnfýsi síðustu daga og vik- ur sem hún lifði. Einnig var fallegt samband hennar við litlu barna- barnabörnin sem öll þekktu lang- ömmu svo afar vel og syrgja hana nú. Við biðjum algóðan Guð að styrkja og styðja Edda afa og blessa minningu fallegrar og góðrar konu sem Ína amma var. Óskar og Gréta. Engin kynslóð Íslandssögunn- ar upplifði jafn stórkostlegar sam- félagsbreytingar og kynslóð Reg- ínu tengdamóður minnar. Hún var alin upp á sveitaheimili þar sem nægjusemin var hlutskipti fjölskyldunnar. Samanborið við aðstæður nú á tímum þætti sjálf- sagt mörgum óhugsandi hvernig fólk fór að í þá daga. Regína tók með sér það góða og fallega úr gömlu bændamenningunni en til- einkaði sér það besta úr menningu hins nýja tíma. Hún var húsmóðir, sjómannskona og stýrði sínu heimili að miklu leyti ein á meðan börnin voru að vaxa úr grasi. Eftir að börnin voru flutt að heiman urðu barnabörnin aufúsugestir og nutu elskusemi ömmu sinnar. Hún hafði óbilandi áhuga á því sem þau tóku sér fyrir hendur, ekki síst því sem laut að fram- kvæmdum innanhúss og utan. Regína var mikil hagleikskona sem skilur eftir sig margt fallegt handverkið á heimilum barna sinna og barnabarna. Hún hafði einnig brennandi áhuga á ætt- fræði, sem hún sökkti sér í á seinni árum. Rúmlega fjörutíu og sex ár eru síðan ég kom fyrst inn á heimili tengdaforeldra minna. Þar var mér strax tekið sem einni af fjölskyldunni og á ég þeim mikið að þakka. Aldrei á þessum langa tíma fór styggðaryrði á milli mín og tengdamóður minnar. Þegar ég minnist Regínu koma fyrst upp í hugann orð eins og þrautseigja, hlýja, tryggð, orðheldni, prúð- mennska og hógværð og ekki má gleyma frábærum húmor. Margt af þessu hefur birst ljóslega í veik- indum hennar á síðustu árum og ekki síst síðustu misseri þar sem tengdafaðir minn hefur átt við mikla vanheilsu að stríða. Þar hef- ur hún staðið þétt við bakið á hon- um, sýnt ótrúlegan dugnað og þrautseigju og áreiðanlega staðið lengur en stætt var. Að leiðarlok- um vil ég þakka Regínu tengda- mömmu minni fyrir allar góðu stundirnar sem ég átti með henni og ómetanlega hjálpsemi við mig og mína alla tíð. María Ingimarsdóttir. Elskuleg tengdamóðir mín, Regína Ólafsdóttir, kvaddi þessa jarðvist að morgni föstudagsins 22. apríl síðastliðins, degi fyrir 87 ára afmælið sitt. Hún hafði átt við vanheilsu að stríða í fjöldamörg ár og oft verið nálægt því að fara yfir móðuna miklu. Samt var það svo að sláttumaðurinn slyngi kom okkur aðstandendum á óvart þó að vafalaust hafi Regína verið undir það búin að leggja upp í þessa sína hinstu ferð. Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að tilheyra fjölskyldu hennar í lið- lega fjörutíu ár og fæ það aldrei fullþakkað. Regína var mörgum góðum kostum búin. Hún var sérstaklega iðjusöm og ég held henni hafi aldr- ei fallið verk úr hendi. Verkkvíða, hangs og leti þekkti hún bara af afspurn. Hún var gestrisin og veitul með afbrigðum og vildi að allir sem í heimsókn komu þægju beina. Þegar ég leit inn til hennar kvöld- ið áður en hún kvaddi vildi hún endilega hella upp á kaffi handa mér. Ég afþakkaði en sé eftir því núna að hafa ekki þegið þennan síðasta sopa hjá henni. Hún var einkar vel lesin, fylgd- ist vel með og hafði alla tíð sterkar skoðanir á þjóð- og stjórnmálum sem hún hvikaði hvergi frá þótt hún væri ekkert að troða þeim upp á aðra. Hún var kærleiksrík og bar mikla umhyggju fyrir sínu fólki, ávallt boðin og búin að rétta hjálp- arhönd ef á þurfti að halda. Satt að segja veit ég ekki hvernig við Hrefna hefðum farið að þegar börnin okkar voru að komast á legg hefði Edda afa og Ínu ömmu ekki notið við. Hún umvafði af- komendahópinn sinn og fylgdist af áhuga og stolti með hverjum og einum. Ég sá samband hennar og dóttur minnar breytast úr ömmu- sambandi yfir í fallegt samband vinkvenna og viss er ég um að hin seinni ár spjölluðu þær um ým- islegt sem ekki fór víðar. Regínu voru listrænir hæfileik- ar í blóð bornir. Hún var vel hag- mælt en flíkaði því ekki. Hún hafði unun af tónlist og afar næmt eyra fyrir ljóðum og öðrum kveðskap og kunni ógrynnin öll af slíku. Hún unni sannarlega öllu því góða og fagra sem lífið hafði upp á að bjóða. Hún var ástríðufull handa- vinnukona og í öllu sem eftir hana liggur á því sviði koma listrænir hæfileikar hennar glöggt í ljós. Langmest af því sem hún vann í höndunum var öðrum ætlað, til að gleðja augað eða til að ylja. Hún var alla tíð stálminnug og oft man ég eftir að hafa spurt hana um sitthvað sem varðaði ættfræði. Hún sagðist þá gjarnan þurfa að rifja þetta aðeins upp. Svo hringdi hún til baka, sama dag eða nokkru seinna, og rakti alla þræði skýrt og skilmerkilega án þess að setja svo mikið sem einn stafkrók á blað. Regína hafði einstaklega þægi- lega nærveru, jafna og góða lund og skipti ekki oft skapi, þótt allir vissu vel að hún væri hreint ekki skaplaus. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna, skarð sem aldrei verður fyllt, en mestur er þó missir eiginmannsins sem nú tregar ástvinu sína eftir hartnær sjötíu ára samfylgd. Guð blessi minningu Regínu Ólafsdóttur. Kjartan Óskarsson. Hún Ína amma er dáin. Hún hlaut þennan dauðdaga sem maður heyrir fólk helst óska sér þegar árin færast yfir, að fá að sofna í rúminu sínu og vakna ekki aftur. Ég sé hana fyrir mér ganga í rólegheitum, raulandi fyrir munni sér, yfir mörkin milli lífs og dauða. Eins og ekkert væri sjálf- sagðara. Bara rétt eins og hún gengi fram í eldhús eða niður í saumaherbergið sitt. Það var hennar stíll að vera róleg og yfir- veguð, jafnvel þótt eitthvað gengi á. Hún hafði komið þarna áður, að mörkum lífs og dauða, og hafði lýst því fyrir sumum okkar. Það var þegar hann Sölvi Helgason kom til hennar þar sem hún lá á sjúkrahúsi milli heims og heljar, með heilahimnubólgu og varla hugað líf. Ekki vildi hún fylgja honum í það skiptið en maður veltir fyrir sér hvort hann hafi mætt aftur og náð að fá hana með sér í þetta skiptið. Hver veit. Hún amma var góðmennskan holdi klædd og viðhorf hennar til lífsins og tilverunnar nokkuð sem ég hef lagt mig fram um að fylgja eftir og mun gera um ókomin ár. Þau eru ófá samtölin okkar í gegn- um árin við eldhúsborðið eða þar sem hún sat með handavinnuna sína og við ræddum saman um heima og geima, því þó að hún væri fyrir mörgum árum farin að tapa heyrn átti hún gott með að halda uppi samræðum í góðu næði og var skýr og skörp fram á síð- asta dag. Þó að hún hefði áhuga á ætt og uppruna vildi hún ekkert vera mikið að velta sér upp úr því sem búið var og gert og ekki yrði aftur tekið. Heldur vildi hún horfa fram á veg, spurði frétta af börn- unum og vildi vita sem mest um hópinn sinn, sem hún reyndi alltaf að halda vel utan um. Það eru tímamót. Heimsókn- irnar til afa og ömmu á Kleppsveg verða ekki fleiri. Sá dagur hlaut að koma, það er gangur lífsins eins og afi hefur svo oft sagt. Alla mína ævi hef ég komið á Kleppsveg, þar sem amma og afi hafa búið í um 50 ár. Þarna var ævintýraland barn- æskunnar; í húsinu, garðinum og umhverfinu. Þarna bjó ég á há- skólaárunum og var húsvörður þegar afi og amma voru að heim- an. Þangað kom ég svo seinna með mín eigin börn í heimsókn til langafa og langömmu. Þarna eru minningar sem munu lifa um ókomna tíð. Elsku amma mín, takk fyrir allt, og ég kveð þig nú með orðum sem þú sagðir svo oft – Guð geymi þig. Óli Ármann. Hún Ína amma mín er dáin. Hún var manneskja sem erfitt er að kveðja en einnig svo auðvelt að minnast enda hafa góðar stundir með henni og Edda afa litað líf okkar allra barnabarnanna. Sem strákur á Ólafsfirði beið ég allan veturinn eftir að amma og afi kæmu norður. Þegar þau svo komu á vorin var beðið eftir því að bíllinn birtist og hlaupið á móti honum. Þá breyttist sumarið í æv- intýri. Ævintýralandið var Kleif- arnar, sumarbústaður ömmu og afa og umhverfið allt frá fjöru og upp í fjall. Oftar en ekki var Birgir frændi minn með í för og frelsið sem við höfðum til að kanna heim- inn var ómetanlegt. Amma sá til þess að allir fengju ást og um- hyggju og færu nú einhvern tím- ann í háttinn. Allar stundirnar hjá ömmu og afa á Kleppsveginum í Reykjavík eru líka eftirminnileg- ar. Þar dvaldi ég oft langdvölum á sumrin sem barn og bjó svo um tíma meðan á háskólanámi stóð. Það var aldrei tiltökumál fyrir ömmu að aðstoða barnabörnin, hvort sem málið snerist um húsa- skjól, saumsprettur eða ráðlegg- ingar um lífið og tilveruna. Ína amma var alltaf til staðar. Amma var sterk og dugleg og tókst á við allt mótlæti með ótrú- legu jafnaðargeði. Í seinni tíð hafa synir okkar Elísabetar fengið að koma á Kleppsveginn og kynnast Ínu ömmu og fyrir það er ég svo þakklátur því þar hafa þeir eign- ast minningar um góða, brosmilda og hlýja langömmu sem gott var að koma til. Elsku Eddi afi, vertu sterkur og mundu að amma er með þér hvert einasta skref. Elsku amma mín, takk fyrir allt. Sigurbjörn Reginn. Sigríður Regína Ólafsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sigríður Regína Ólafs- dóttir bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamömmu, ömmu og langömmu, MARGRÉTAR SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Stykkishólmi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Eiri, 3. hæð norður, fyrir alúð og umhyggju. Guð blessi ykkur öll. . Helga Eygló Guðlaugsdóttir Reynir Garðarsson Jón S. Guðlaugsson Þórkatla Þórisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSA O. ÞORSTEINSDÓTTIR, Hæðargarði 29, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 27. apríl. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 3. maí. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á sumarstarf KFUK í Vindáshlíð, s. 588 8899. . Sverrir I. Axelsson Kristín Sverrisdóttir Ragnheiður Sverrisdóttir Hjalti Hugason Þorsteinn Sverrisson Magnea Einarsdóttir Ólafur Sverrisson Ellen Símonardóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför ástkærrar móður, tengdamóður, fóstru, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR GUÐNÝJAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Boðahlein 3, Garðabæ, sem lést 30. mars og jarðsungin var 22. apríl síðastliðinn. Fyrir hönd aðstandenda, . Rögnvaldur K. Hjörleifsson Erla Ingvarsdóttir Guðmundur Hjörleifsson Guðbjörg K. Hjörleifsdóttir Páll Bragason Álfhildur Erna Hjörleifsdóttir Sverrir Hjörleifsson Svanhildur Guðlaugsdóttir Kristján Haukdal Þorgeirsson Jón Haukdal Kristjánsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, FINNBOGI JÓNSSON frá Skálmarnesmúla, Katrínarlind 5, Reykjavík, lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 27. apríl. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju miðvikudaginn 4. maí klukkan 13. Jarðsett verður síðar á Skálmarnesmúla. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. . Þuríður Kristjánsdóttir, Anna Freyja Finnbogadóttir, Óskar Halldórsson, Jón Finnbogason, Auður Elín Finnbogadóttir, Guðjón Þorsteinsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.