Morgunblaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.04.2016, Blaðsíða 35
nokkuð mörgum störfum á Bifröst. Ég hélt utan um frumgreinadeildina á sínum tíma og svo BS-námið í fjar- námi ásamt því að halda utan um nemendaskráninguna og fleira.“ Meðfram vinnunni tók Guðrún svo- meistarapróf í alþjóðlegum við- skiptum við Háskólann á Bifröst og útskrifaðist með þá gráðu 2009. Árið 2011 bætti hún svo við sig einni próf- gráðu eftir að hafa tekið kennslurétt- indanám við Háskólann á Akureyri. „Ég fékk þá flugu í höfuðið árið 2012 að fara á heimaslóðir með strák- ana mína, sem þá voru sem sagt orðn- ir tveir og ég einstæð. Ég fór að finna í Orkuveitu Húsavíkur, sem var alveg hreint ágætt, samstarfsfólkið var frá- bært, en mér fannst það þó ekki nægilega hvetjandi starf þannig að þegar þáverandi rektor á Bifröst hringdi í mig og bauð mér að koma og vera forstöðumaður Háskólagáttar og inntökustjóri þáði ég það með þökkum og flutti aftur á Bifröst. Ég fór sem sagt aftur um sumarið 2013 á Bifröst með strákana mína og fór í nýtt starf. Um áramótin tók ég svo við af framkvæmdastjóra kennslu og þjónustu við Háskólann á Bifröst og sinnti því starfi meðfram forstöðu Háskólagáttar þar til ég var ráðin sem skólameistari við Menntaskóla Borgarfjarðar í október 2014. Þá fluttum við í Borgarnes og okkur hef- ur liðið mjög vel hér. Það er krefjandi og mikið starf að vera skólameistari en jafnframt mjög skemmtilegt.“ Félagsstörfin hafa aukist „Ég hef verið nokkuð virk í fé- lagsstörfum og sérstaklega í seinni tíð. Ég var í stjórn foreldrafélags grunnskólans á Húsavík og núna er ég formaður foreldrafélags grunn- skólans í Borgarnesi og hef fengið tækifæri á að taka þátt í mjög skemmtilegum verkefnum, núna síð- ast Gleðileikunum í Borgarnesi, sem eru samfélagsverkefni þar sem allir leggjast á eitt við að brjóta skóla- starfið upp. Nemendum efsta stigs er skipt í hópa og leysa saman þrautir og fá einkunn fyrir samvinnu, sjálf- stæði og gleði. Gleðin er höfð að leið- arljósi í öllu. Svo er ég að fara inn í stjórn knattspyrnudeildar Skalla- gríms og vona að ég geti orðið að góðu liði þar. Það er ekki nóg að eiga þessi börn, maður þarf að sinna því hlutverki með margvíslegum gjörðum. Strákarnir mínir og fjölskyldan eru aðaláhugamál mitt og að vera í sam- skiptum við fjölskyldumeðlimi. Ég er mikil fjölskyldumanneskja. Ég elska sunnudagssíðdegi þar sem fjöl- skyldan sest niður saman með spil og hefur það notalegt. Við höfum líka gaman af allri matargerð og að borða góðan mat saman. Svo hef ég líka mikið gaman af góðum félagsskap með góðum vinum, útivist og göngu- ferðum í góðum félagsskap.“ Guðrún ætlar að bjóða strákunum sínum út að borða í tilefni dagsins en svo verður afmælisveisla með nán- ustu vinum og vinnufélögum annað kvöld. Fjölskylda Synir Guðrúnar eru 1) Fannar Óli Þorvaldsson, f. 12.10. 2001, en faðir hans og fyrrv. maki Guðrúnar er Þor- valdur Hjaltason, f. 30.12. 1977, kokk- ur, bús. í Borgarnesi, og 2) Jökull Smári Birgisson, f. 8.2. 2008, en faðir hans og fyrrv. maki Guðrúnar er Birgir Smári Karlsson, f. 15.10. 1951, skipstjóri, bús. í Kópavogi. Systkini Guðrúnar: Ólafur Jón Að- alsteinsson, f. 30.10. 1973, vörubíl- stjóri á Húsavík; Ingunn Ólína Aðal- steinsdóttir, f. 25.9. 1981, verslunar- stjóri Kaskó á Húsavík, og Ásgerður Heba Aðalsteinsdóttir, f. 6.2. 1986, verkakona á Húsavík. Foreldrar Guðrúnar: Aðalsteinn Ólafsson, f. 31.3. 1953, sjómaður á Húsavík, og k.h. Hulda Ingadóttir, f. 29.1. 1950, starfsmaður Heilbrigðis- stofnunar Norðurlands á Húsavík. Úr frændgarði Guðrúnar Bjargar Aðalsteinsdóttur Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir Þórhildur Hjartardóttir húsfreyja á Þorgrímsstöðum Erlingur Jónsson bóndi á Þorgrímsstöðum í Breiðdal, S-Múl. Guðrún Björg Erlingsdóttir húsfreyja í Skriðdal og Breiðdal Ingi Bjarnason bóndi í Skriðdal Hulda Sigríður Ingadóttir starfsmaður Heilbrigðis- stofnunar Norðurlands á Húsavík Kristín Árnadóttir húsfreyja á Borg í Skriðdal Bjarni Björnsson bóndi á Borg í Skriðdal, S-Múl. Katrín Júlíusdóttir húsfr. á Húsavík Hákon Aðalsteinsson sjómaður á Húsavík Júlíus Stefánsson framkv.stjóri, bús. í Sandgerði Sigurður A. Hákonarson verkamaður á Húsavík Katrín Júlíusdóttir þingm. og fv. ráðherra, bús. í Garðabæ Hákon Hrafn Sigurðsson prófessor við lyfjafræðid. HÍ og þríþrautar- karl ársins 2015 Helga Eggertsdóttir húsfreyja á Húsavík Andrés Júlíus Sigfússon bátasmiður á Húsavík Ásgerður Júlíusdóttir saumakona á Húsavík Ólafur Jón Aðalsteinsson hafnarvörður á Húsavík Aðalsteinn Ólafsson sjómaður á Húsavík Ólína Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Sólheimum Aðalsteinn Halldórsson bóndi á Sólheimum á Svalbarðsströnd ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 95 ára Stefanía Magnúsdóttir 85 ára Hilma Magnúsdóttir Hjalti Sigurjónsson Karl Þorgrímsson Kristín Erla Valdimarsdóttir 80 ára Guðlaug Jóhannsdóttir Hólmfríður Geirdal Jónsdóttir Marín Marelsdóttir 75 ára Gígja Sigríður Tómasdóttir Kristín Inga Kristjánsdóttir 70 ára Einar Gíslason Hrönn Þórðardóttir Jón Gunnlaugsson Júlíana Bjarnadóttir 60 ára Guðbjörg Sigurðardóttir Guðbjörn Ingólfur Ólafsson Hilmar Jóhannsson Ólöf Ólafsdóttir Sigríður S. Magnfreðsdóttir Sigurlaug Óskarsdóttir Sólveig Kristinsdóttir Valdimar A. Kristinsson Þórir Ólafur Tryggvason 50 ára Aðalheiður Guðrún Þórðardóttir Aðalheiður Pálmadóttir Björk Leifsdóttir Guðný Vésteinsdóttir Hafþór Guðbjartsson Heiða Sigríður Davíðsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Jadwiga Zofia Wota Lóa María Magnúsdóttir Ragna Arinbjarnardóttir Reynir Sýrusson Vilhjálmur Þ. Ólafsson 40 ára Árný Vigfúsdóttir Daði Pétur Nez Einar Þór Sigurjónsson Friðrik Már Steinþórsson Guðlaug Berglind Guðgeirsdóttir Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir Hrafnhildur Ása Einarsdóttir Marta Zarska Már Wardum Óskar Kristinn Óskarsson Sigríður Árnadóttir Stefán Magnússon 30 ára Árdís Inga Höskuldsdóttir Elvar Már Stefánsson Embla Dóra Björnsdóttir Ewelina Maria Medic Iwona Zmuda Trzebiatowska Jaroslava Fialová Jóhannes Helgi Benonýsson Kristrún Kristmundsdóttir Ottó Stefán Michelsen Pawel Czyzewski Rolanda Simenaite Signý Heiða Guðnadóttir Sigurður Rúnar Pálsson Sveinbjörn Geirsson Til hamingju með daginn 40 ára Berglind er frá Austurhlíð í Skaftártungu en er bóndi og búfræði- kandidat í Skarði í Land- sveit, Rang. Maki: Erlendur Ingvars- son, f. 1981, bóndi og bú- fræðingur í Skarði. Börn: Sumarliði, f. 2006, Helga Fjóla, f. 2009, og Anna Sigríður, f. 2012. Foreldrar: Guðgeir Sumarliðason, f. 1937, og Anna Sigríður Þorbergs- dóttir, f. 1938, d. 2013. Guðl. Berglind Guðgeirsdóttir 30 ára Elvar er frá Kópa- skeri og býr þar. Hann er verkamaður og vinnur hjá Sel sf. Maki: Matthildur Dögg Jónsdóttir, f. 1989, gæða- stjóri í Fjallalambi. Dóttir: Erla María, f. 2013. Foreldrar: Stefán Haukur Grímsson, f. 1962, eigandi og framkvæmdastjóri Sel sf. og Sigríður Benedikts- dóttir, f. 1965, vinnur í Landsbankanum á Kópa- skeri. Elvar Már Stefánsson 30 ára Ottó er Reykvík- ingur og er fjármálaverk- fræðingur og starfar við gjaldeyris- og afleiðu- viðskipti hjá Arion banka. Maki: Anna Lilja Gísla- dóttir, f. 1987, deildar- læknir á Grensási. Börn: Helga Björk, f. 2012, og Stefán Kári, f. 2015. Foreldrar: Stefán Sig- urður Guðjónsson, f. 1957, og Helga Ragnheið- ur Ottósdóttir, f. 1957. Ottó Stefán Michelsen Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Hlynur Bárðarson hefur varið dokt- orsritgerð sína í líffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Ís- lands. Ritgerðin ber heitið: Aðgreining vistgerða þorsks við Ísland (Identify- ing cod ecotypes in Icelandic waters). Leiðbeinandi var dr. Guðrún Mar- teinsdóttir, prófessor við Líf- og um- hverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Auk hennar sátu í doktorsnefnd dr. Christophe Pampoulie, sérfræðingur á Hafrannsóknastofnun, og dr. Bruce J. McAdam, lektor við Institute of Aqua- culture, University of Stirling, Bret- landi. Íslenski þorskstofninn er byggður upp af mörgum hrygningarhópum og erfðafræðilega mismunandi vistgerð- um (e. ecotypes) sem sýna mismun- andi farhegðun, ástand og vöxt sem leiðir til munar í kynþroskaaldri og áhrif af veiðum geta hugsanlega leitt til ólíks veiðiálags milli hópa. Það get- ur haft alvarlegar afleiðingar að leiða hjá sér og taka ekki tillit til slíks stofn- breytileika. Það gæti leitt til fækkunar á hrygningarhópum, að smærri og við- gangsminni hópar hverfi, að erfða- breytileiki minnki og gæti einnig end- að með ofveiðum. Af þessum sökum er mikilvægt fyrir fiskveiðistjórnun að innleiða aðferð til að greina á milli hópa sem er í senn auðveld, nákvæm og ódýr í notkun. Markmiðið með doktorsverkefninu var að athuga hvort vistgerðir ís- lenska þorsk- stofnsins séu aðgreinanlegar út frá út- litseinkennum kvarna. Þetta var gert með því að hanna aðferð til aðgrein- ingar með kvörnum úr gagnamerktum þorskum sem, þar til nú, eru einu þorskarnir sem er hægt að greina til vistgerða. Aðferðin var einnig sann- reynd með því að kanna samband milli kvarnaútlits og Pantophysin- erfðamarksins sem finnst í mismun- andi tíðni milli vistgerða. Niðurstöð- urnar voru jákvæðar og aðferðin ár- angursrík í aðgreiningu vistgerða. Við mælum með að greining á kvarnaútliti sé þar með hagnýtt af vísindamönnum við greiningar á íslenska þorskstofn- inum. Í þessu verkefni var einnig sýnt fram á að hægt er að nýta brotnar kvarnir til rannsókna á aðgreiningu stofna með því að líma þær saman aftur. Hlynur Bárðarson Hlynur Bárðarson fæddist 1982 og ólst upp á Selfossi. Hlynur er kvæntur Helgu Ýr Erlingsdóttur hjúkrunarfræðingi á hjartadeild Landspítalans og eiga þau tvær dætur, Kristínu Eddu 5 ára og Margréti Unu 1 árs. Hann lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut og eðlisfræðibraut frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi 2002 og B.Sc. gráðu í líffræði frá HÍ 2006 og M.Sc. gráðu í umhverfis- og auð- lindafræði frá sama skóla 2009. Hlynur er sérfræðingur á Veiðimálastofnun. Doktor MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Brauð dagsins alla föstudaga Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.