Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 36

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það eru miklar líkur á því að vinur þinn fari á bak við þig í dag. En það er mikil- vægt að fá viðurkenningu, engu að síður. En mundu að öllu gamni fylgir nokkur alvara. 20. apríl - 20. maí  Naut Áætlanir um ferðalög og menntun líta frábærlega vel út. Góðsemi þinni eru engin takmörk sett svo þú mátt til með að taka þér tak. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Já, það er gaman að láta hæla sér fyrir hæfileikana án þess að biðja um það. En það er gott að vera á byrjunarreit, sérstak- lega þegar kemur að því að græða peninga. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þegar þú hefur enn ekki komist yfir það sem þú óskar þér skaltu herða upp hug- ann. Láttu ekki erfiðar minningar úr fortíðinni standa í vegi fyrir þér, þegar þú hefst nú handa á nýrri öld. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú gætir fundið til einangrunar og ein- manakenndar í dag. Mundu að þau læra það sem fyrir þeim er haft frekar en það sem þeim er sagt. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Búðu þig undir að þurfa að leggja heil- mikið á þig á komandi árum. Gönguferðir geta gert kraftaverk. Skiptir þá engu hvort um lítinn hlut er að ræða eða stóran. 23. sept. - 22. okt.  Vog Aðferðin til að fá einhvern til að þegja yfir leyndarmáli er ekki að kalla það leyndar- mál. Hvernig væri að hóa hópnum saman og efna til dúndrandi sumargleði? 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Mundu að þú ert ekki einn í heiminum og það á ekki síst við um vinnu- stað þinn. Vandamálin eiga ekki að vaxa í augum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ef eitthvað kemur þér í uppnám skaltu halda að þér höndum og telja upp að tíu. Ef engin verkefni eru fyrirliggjandi skaltu ekki hafa neinar áhyggjur. 22. des. - 19. janúar Steingeit Í dag kemur upp þetta rafmagn- aða og fljótandi augnablik þegar þú skyndi- lega veist allt sem þú þarft að vita. Taktu á þig rögg en ekki stinga höfðinu í sandinn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Stjörnurnar vilja að þú sýnir mis- kunn. Veldu þá leið frekar en reyna stöðugt að skella skuldinni á aðra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það hefnir sín síðar að stinga höfðinu í sandinn og halda að öll vandamál séu þar með úr sögunni. Haltu áfram á sömu braut. Þetta fallegaljóð, Vetr- arblóm, eftir Davíð Hjálmar Haraldsson birtist í Vísna- horni á mið- vikudag en fyr- ir mistök féll myndin niður sem kveikti ljóðið. – Af þeim sökum þykir mér rétt að birta ljóðið að nýju og nú með myndinni – af því að þau eiga saman og njóta sín betur saman en stök og sitt í hvoru lagi. Það lifnar þótt næði norðanátt. Treglega víkur vetur svalur, púar í skeggið, perlugrátt. Vorið er komið að viðra bæinn. Húsið er opið í hálfa gátt. Enn bæla fannir fell og rinda. Um suðurloft hvergi sér í blátt en blómið sem lýsir bleikt um melinn, hefur mér aukið hjartaslátt. Það blikar í snjónum, bleikt og smátt. Á miðvikudaginn fylgdu kvið- lingar í þýðingu Helga Hálfdan- arsonar ljóðinu og ég ætla að hafa sama hátt á nú. Hér er kvæðið Vor eftir pers- neska skáldið Hafiz: Sjá, vorsins dýrð í dagsins augum skín, úr duftsins fangi laðar rós og smára! Hví sveipar þig hið svala grafarlín? Sem frjómild vorský munu augu mín á moldir þínar stökkva regni tára uns rís af dvala einnig ásýnd þín. „Einmana vor“ eftir japanska skáldið Kintó: Það kemur og fer, vorið; skyldi það ennþá hrífa hjarta mitt, nú, þegar unnusta mín fylgir þér ekki í hlað? Sjíkisjí prinsessa orti um vor í lofti: Í vetrarþungum sveigum furugreinanna langt framtil fjalla hangir úr bráðnandi snjó hér og þar stöku perla. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Mynd af vetrarblómi Í klípu „ÞETTA ER Í LAGI, ÞETTA ER HÁSKÓLASJÚKRAHÚS. SUMIR ÞURFA BARA AÐ LÆRA ÞAÐ Á ERFIÐA MÁTANN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÞÚ MÁTT EKKI VERA LANGAFI LENGUR; ÞÚ ERT „LANGPERSÓNA“.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að færa fórnir. LÍSA SEGIR AÐ ÉG HAFI SETT OF MIKINN RAKSPÍRA Á MIG. HVAÐ FINNST ÞÉR? BÝST VIÐ ÞVÍ SKELL HEY! FLÆRNAR MÍNAR ERU FARNAR! EF ÞÚ VÆRIR FÖST Á EYÐIEYJU OG GÆTIR BARA TEKIÐ EINN HLUT MEÐ ÞÉR, HVAÐ VÆRI ÞAÐ? ÞÚ! AF ÞVÍ AÐ ÞÚ ELSKAR MIG SVO MIKIÐ? AF ÞVÍ AÐ ÉG ÞARF EINHVERN TIL ÞESS AÐ KENNA UM ALLT! Þekkt er að þegar ein kýrin byrjarað míga líður ekki á löngu þar til hinar láta líka vaða. Þessi athyglis- þörf einskorðast ekki við kýrnar heldur er áberandi hjá ótrúlega mörgum Íslendingum. x x x Eftir að forseti Íslands tilkynntisíðast að hann ætlaði ekki að gefa áfram kost á sér í embættið leið ekki á löngu þar til hinir og þessir sögðust hafa ákveðið að láta undan þrýstingi og fara í framboð. Allt gert fyrir augnabliksfrægðina. x x x Eftir að forseti Íslands tilkynnti aðhann hefði hætt við að hætta runnu tvær grímur á aðra frambjóð- endur til embættisins. Einn fram- bjóðandi var hreinskilinn í vikunni og sagði að framboðið gengi mjög illa, en nokkrir aðrir héldu áfram að rembast eins og rjúpan við staur. Slógu um sig með kunnum frösum. Ég fæ góðar undirtektir, fólk vill breytingar, sagði einn. Fólk kallar eftir nýrri framtíð, var haft eftir öðrum. Samanlagt fengu þessir tveir frambjóðendur um 38% atkvæða í skoðanakönnun MRR, sem greint var frá í fyrradag. Sögðust þá vera ánægðir og bjartsýnir. Fylgi ann- arra frambjóðenda mældist undir 2% en ríkjandi forseti var með 52,6% fylgi. Hreinskilni frambjóðandinn komst ekki á blað. x x x Fram eftir vetri var helsti sam-kvæmisleikur þjóðarinnar að giska á hver gæfi næst kost á sér í embætti forseta Íslands. „Klukkan er orðin hálf níu og enn hefur ekki frést af nýju framboði það sem af er degi,“ sagði einn umsjónarmaður morgunfréttaþáttar Bylgjunnar þegar leikurinn stóð sem hæst. x x x Nú snýst leikurinn um það hverhættir næst við framboð. Ef fram heldur sem horfir verður for- seti Íslands einn í framboði skömmu áður en framboðsfrestur rennur út og þar sem hann er ólíkindatól gæti hann ákveðið að hætta þátttöku í leiknum á síðustu stundu. Hvað gera bændur þá? víkverji@mbl.is Víkverji Trúr er Guð sem hefur kallað ykkur til samfélags við son sinn Jesú Krist, Drottin vorn. (Fyrra Korintubréf 1:9) Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is Allir vilja koma að sumarbústaðnum sínum eins og þeir skildu við hann og tryggja öryggi sitt og sinna sem best. Öryggisbúnaður eins og lásar, þjófavarnarkerfi, reykskynjarar og slökkvitæki fæst í miklu úrvali í Vélum og verkfærum. Öryggi í sumarbústaðnum Blaupunkt SA2700 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Fullkominn GSM hringibúnaður • Hægt að stjórna með Connect2Home-appi • Boð send með sms eða tali • Viðbótarskynjarar og fjöldi aukahluta fáanlegir Verð: 45.725 kr. OLYMPIA 9030 Þráðlaust þjófavarnarkerfi • Mjög einfalt í uppsetningu/notkun • Fyrir farsímakort (GSM) • Hringir í allt að 10 símanúmer • Allt að 32 stk. skynjarar • 2 stk. hurða/gluggaskynjarar og fjarstýring fylgir • Fáanlegir aukahlutir: viðbótarfjarstýringar, glugga/hurðaskynjarar, svæðisskynjarar PIR, reyk- og vatnsskynjarar. Verð: 26.040 kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.