Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 38

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Leikritið Könnunarleiðangur til Koi verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld. Þetta er annað verk í þríleik eftir sviðslistamennina Hilmi Jens- son og Tryggva Gunnarsson úr leik- hópnum Sóma þjóðar. Verkið er samið og sett upp á einum mánuði og fjallar um flóttamannavandann. Verkið er sjálfstætt framhald af verkinu MP5, sem vakti athygli í Tjarnarbíói á síðasta leikári og fjallaði um fyrirhugaða vopnavæð- ingu íslensku lögreglunnar. „Núna tökum við flóttamanna- vandann. Við köllum þetta lo-fi sci- fi eða lágtæknivísindaskáldskap,“ segir Tryggvi Gunnarsson, annar höfunda verksins. Söguþráðurinn í Koi fjallar um jörðina, sem er að deyja. Þess vegna eru geimfararnir Vilhjálmur og Ísak sendir í könnunarleiðangur til plánetunnar Koi til að kanna hvort hún sé byggileg fyrir jarðarbúa. Verunni hleypt inn eða ekki „Þeir félagar eru spenntir að fara og vera hetjur mannkynsins. Allt í einu er bankað á geimskipið og þar er vera í neyð sem vill komast inn. Við tökum umræðuna hvort það eigi að hleypa þessari framandi veru inn eða ekki. Hvaða kostir og gallar fylgja því. Þetta er bein alle- goría um það hvernig við sem sam- félag bregðumst við því að milljónir manna eru að flýja sinn deyjandi heim og þurfa virkilega á okkur að halda. Hvernig við bregðumst við þeirri neyð. Eða kannski hvernig við bregðumst ekki við neyðinni,“ segir Tryggvi. Sögusvið verksins er geimurinn, önnur pláneta. Með þessum hætti er auðveldara að taka fyrir jafn flókið og erfitt málefni og flóttamanna- vandinn er í raun og veru, að mati Tryggva. Vísindaskáldskapurinn er einnig notaður í þeim tilgangi að losa fólk t.d. við flokkadrætti, bú- setu og aðrar fyrir fram mótaðar hugmyndir sem það kemur alla jafna með sér á leiksýningu. „Við viljum koma fólki út úr því að vera annað hvort sjálfstæðismaður, vinstri grænn, úr Breiðholtinu eða Garðabæ,“ segir Tryggvi um notk- un sögusviðsins. „Þegar við tveir stöndum á svið- inu í spandexgalla og komnir út í geim er auðveldlega hægt að strípa þetta alveg niður í hið mannlega. Við getum auðveldlega speglað við- brögð okkar samfélags í þessum bókgáfuðu en jafnframt vitgrönnu geimförum, þeim Ísak og Vil- hjálmi.“ Tryggvi segir að við sem þjóð tökum á flóttamannavandanum með svipuðum hætti og aðrar Evr- ópuþjóðir. Hins vegar séu land- fræðileg skilyrði önnur hér því landið sé umlukið köldum sjó og þar af leiðandi erfitt að komast hingað á meðan þjóðir á meginlandinu hafi varla val. „Í gegnum hláturinn sér maður hvað þetta er hræðilegt“ „En það sem er öðruvísi við þetta verk en MP5 er að þetta mál er svo miklu stærra og er hreinlega dauð- ans alvara. Okkur fannst við ekki geta fjallað um þetta hræðilega mál öðruvísi en að fjarlægja okkur að- eins frá því með þessu gríni. Í gegn- um hláturinn sér maður hvað þetta er hræðilegt,“ segir Tryggvi. Eins og fyrr segir tóku þeir fé- lagar einn mánuð í að setja verkið upp. Þeir tveir sjá um allt í verkinu í sameiningu, semja leiktexta, leik- stýra og útfæra leikmyndina, bún- inga og hljóðmynd. „Þetta er bara heiðarlegt„lo-fi“ og ,“ segir Tryggvi. Í þessu samhengi bendir hann á að þegar þeir settu upp fyrsta verk- ið MP5, einnig á einum mánuði, var dregin upp mynd af málefni líðandi stundar og viðbragð við samtím- anum. „Þá áttuðum við okkur á því hversu seint leikhúsið er að bregð- ast við. Þar tekur allt svo langan tíma og þarf að skipuleggja langt fram í tímann. Það er vandamál leikhússins,“ segir Tryggvi. Hann telur kostina ótvíræða að þeir skuli vera tveir að setja upp leikverk. Hilmir og Tryggvi hafa þekkst í um áratug en samstarfið hófst í Stúdentaleikhúsinu. „Við gerðum manifestó sem segir að það eigi alltaf að vera gaman þegar við vinnum saman. Ef það er ekki gaman horfum við á eitthvað fyndið saman og reynum svo aftur. Það er svo gaman hjá okkur, sem smitar til áhorfendanna. Þessi vinnuaðferð býr ekki bara til gott samstarfsfólk, heldur líka vini.“ „Heiðarlegt og „lo-fi“  Leikritið Könnunarleiðangur til Koi frumsýnt  Sett upp á mánuði Ljósmynd/Hörður Ellert Geimfarar Hilmir Jensson og Tryggvi Gunnarsson í hlutverkum sínum í Könnunarleiðangri til Koi, sem fjallar um flóttamannavandann. Heljarinnar húllumhæ verður á Gauknum við Tryggvagötu í kvöld kl. 22, en þá kemur hljómsveitin AVóKA fram og í kjölfarið tónlist- armaðurinn Arnljótur. AVóKA spil- ar draumkennt popp þar sem ein- lægur söngur, harmóníum og trompet leika lykilhlutverk á hippalegum nótum. Arnljótur býr og starfar í Reykjavík og leikur tónlist með ýmsum góðkunningjum sínum auk þess að vera liðsmaður hljómsveitarinnar Ojba Rasta. Að- gangseyrir er kr. 1.000 og verður hægt að kaupa miða við inngang Gauksins frá kl. 21. Ljósmynd/Daníel Friðrik Böðvarsson Arnljótur Í borginni Olomouc í Tékklandi. AVóKA og Arn- ljótur á Gauknum Auður Lóa Guðnadóttir og Una Sigtryggs- dóttir opna myndlistarsýn- inguna 109 Cats in Sweaters í Ekkisens, Berg- staðastræti 25b, í kvöld kl. 20. Þær sækja efnivið sinn í netheima og fjalla m.a. um gif-hreyfimyndir, fyndna ketti og Pinterest-föndur. „Hugmyndir frá internetinu eru handunnar og birtast okkur sem áþreifanlegir skúlptúrar, teikn- ingar, hreyfilist og jafnvel matur,“ segir m.a. um sýninguna í tilkynn- ingu. Að sýningunni koma einnig Andrea Arnarsdóttir, sem opnar sýningu í Listamannakofanum samhliða, Starkaður Sigurðarson, sem sá um textagerð og sýning- arskrá, og Berglind Erna Tryggvadóttir, sem annast tilfall- andi glamúrstörf. 109 kettir í peys- um í Ekkisens Auður Lóa Guðnadóttir Útspil nefnist röð örsýninga sem stýrt er af meistaranemum í list- fræði við Háskóla Íslands og verða þrjár þeirra opnaðar í dag. Með ör- sýningaröðinni stíga nemendur fyrstu skref sín í sýningarstjórnun og er verkefnið unnið í samstarfi Háskóla Íslands við Listasafn Ís- lands, Nýlistasafnið, Hönnunarsafn Íslands og Listasafn Háskóla Ís- lands. Sýningarnar þrjár sem opnaðar verða í dag eru Skrælnun í Ný- listasafninu, Gefjunarteppi í Hönn- unarsafni Íslands og Myndaðu skoð- un í Listasafni Háskóla Íslands. Skrælnun verður opnuð kl. 12 og á henni er spurningunni um hvernig hugmynd er varðveitt varpað fram og hvernig söfn eigi að takast á við varðveislu listaverka sem átti hugsanlega aldrei að varðveita. „Hvert er framhaldslíf verka sem snúast um ferðalagið frekar en áfangastaðinn?“ er spurt. Verkin eru eftir Kristján Guðmundsson, Ástu Ólafsdóttur, Michael Gibbs og Rosen/Wojnar og sýningarstjórn er í höndum Ingu Bjarkar Bjarnadótt- ur og Birkis Karlssonar. Á sýning- unni Gefjunarteppi, sem opnuð verð- ur kl. 14, verða sýnd nokkur Gefjunarteppi úr safneign Hönn- unarsafns Íslands, m.a. ullarteppi frá 1950 með í ofnu skjaldarmerki Íslands. Sýningarstjóri er Jófríður Benediktsdóttir. Á sýningunni Myndaðu skoðun, sem opnuð verður kl. 16, eru farnar óhefðbundnar leið- ir í framsetningu á safneign Lista- safns Háskóla Íslands. Markmið sýningarinnar er að vekja athygli á verkum safnsins og skapa vettvang fyrir umræðu um þau. Við opnun sýningarinnar verður boðið upp á listaverkagöngu um þrjár af bygg- ingum Háskóla Íslands og verður lagt af stað frá 2. hæð Odda. Í göng- unni munu listfræðinemarnir og sýningarstjórar sýningarinnar, Margrét Á. Jóhannsdóttir og Viktor P. Hannesson, leiða umræður. Í Nýló Á Skrælnun má m.a. sjá verk eftir Kristján Guðmundsson. Meistaranemar opna örsýningar Morgunblaðið/Eggert Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is Lyktareyðandi niðurbrotsefni fyrir safntanka ferðaklósetta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.