Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016
Útskriftartónleikar Hrafnkels Flóka
Kaktusar Einarssonar verða haldnir
í kvöld í Salnum í Kópavogi.
Hrafnkell útkrifast í vor af tón-
smíðadeild Listaháskóla Íslands, þar
sem hann hefur notið leiðsagnar
Atla Ingólfssonar. Samhliða hefð-
bundnu tónlistarnámi hefur hann
starfað í raf- og rokktónlist, m.a.
sem einn liðsmanna hljómsveit-
arinnar Fufanu. Um útskriftarverk
Hrafnkels, „Völu“, segir á vef Sal-
arins: „Tónverkið Vala er innblásið
af þremur ólíkum hljóðum. Hægt er
að lýsa verkinu sem stækkunargleri
inn í þessi þrjú hljóð sem öll hafa
sína sérstæðu. Þegar hljóðin eru
skoðuð má greina dans undarlegra
hljóðrófa, ef stækkunarglerið er
hins vegar fjarlægt hverfur línuleg
skipting hljóðana þriggja og þau
verða afleiðing af hvert öðru og
renna saman í eitt.“
Vala Hrafnkell Flóki heldur útskrift-
artónleika í Salnum í kvöld.
Dans undarlegra
hljóðrófa í „Völu“
Af fréttaflutningi og ýms-um umfjöllunum mættistundum skilja sem svoað lífsgleði og sókn eftir
lífsins lystisemdum hyrfi með
hækkandi aldri. En svo er nú ald-
eilis ekki, sé eitthvað að marka
hann Hendrik Groen, 83 ¼ ára,
aðalpersónu og sögumann í Lítil
tilraun til betra lífs sem nýverið
kom út hjá Veröld. Hann er
reyndar líka skráður sem höf-
undur bókarinnar, en það mun
vera dulnefni.
Hendrik býr á elliheimili í
Amsterdam, honum þykir vistin
þar á köflum helst til daufleg og
vill ólmur halda áfram að njóta
þess sem lífið hefur upp á að
bjóða á meðan honum endist
heilsa til. Í leynilega dagbók skrá-
ir hann hugleiðingar sínar og dag-
legt líf af kostgæfni og af nægu er
að taka því þrátt fyrir að honum
þyki stundum að lífið mætti vera
viðburðaríkara úir þar og grúir af
grátbroslegum vangaveltum um
stöðu aldraðra í nútímasamfélagi,
alls konar sniðugheitum og stór-
skemmtilegum mannlýsingum þar
sem hæst ber Evert, afar ósvífinn
vin Hendriks sem lætur allar
skráðar og óskráðar kurteisis-
reglur lönd og leið.
Þegar Hendrik, ásamt fleiri íbú-
um elliheimilisins, stofnar fé-
lagsskapinn Gömul en ekki dauð,
sem hefur það helst að markmiði
að skemmta sér með ýmsum uppá-
tækjum, færist fjör í leikinn.
Félagsskapurinn er illa séður af
starfsfólki og öðrum íbúum en
uppátækjasamir öldungarnir láta
það sem vind um eyru þjóta og
halda áfram að leita leiða til að
viðhalda lífsgleðinni.
Lýsingar á samfélagi gamla
fólksins og samskiptunum á elli-
heimilinu eru kostulegar – þarna
er tekið á mörgu af því sem fylgir
ellinni en á svo stórskemmtilegan
hátt að ekki er annað hægt en að
skella upp úr. Hvernig Hendrik og
vinir hans upplifa hrörnun og
þann vanmátt sem fylgir því að
geta ekki spornað við henni snert-
ir lesandann án þess að þarna sé
einhver væmni á ferðinni og það,
hvernig aldraðir virðast stundum
hreinlega verða ósýnilegir í sam-
félaginu er þörf áminning.
Þar sem aðalpersónan er karl á
níræðisaldri gæti kannski einhver
haldið að þetta væri bara bók fyr-
ir gamla karla. Með sömu rökum
mætti þá væntanlega halda því
fram að enginn hefði gaman af
bókunum um Harry Potter nema
strákar á aldrinum 11-17 ára.
Undirrituð er síður en svo gamall
karl og skemmti sér hið besta yfir
lestrinum. Þetta er fín „feel-good“
bók og innihaldsríkari en margar
slíkar.
Á huldu Hendrik Groen er skráður
höfundur bókarinnar en það mun vera
dulnefni og teikningin á bókarkápu
því eina myndin sem til er af honum.
Uppátækjasamir og
ósvífnir öldungar
Skáldsaga
Lítil tilraun til betra lífs. Leynileg
dagbók Hendriks Groen 83 ¼ ára
bbbmn
Eftir Hendrik Groen.
Veröld, 2016. Kilja, 345 bls.
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
BÆKUR
Erlendir veðbankar hafa heldur
litla trú á framlagi Íslands í Euro-
vision, laginu „Hear Them Calling“
í flutningi Gretu Salóme, ef marka
má vefinn Oddschecker sem metur
líkurnar á gengi laganna. Skv.
þeirri vefsíðu lendir lag Íslands í
20. sæti, sem er þó ekki svo slæmt
því alls taka 42 lönd þátt í keppn-
inni. Reynist Oddschecker sann-
spár kemst lag Íslands í úr-
slitakeppnina.
Á heimasíðu OGAE, samtaka
Eurovision-aðdáenda, er Íslandi
hins vegar spáð betra gengi, 16.
sæti, skv. kosningu aðdáenda.
Íslandi spáð
20. sæti
20. sæti? Greta Salóme mun syngja
„Hear Them Calling“ í Eurovision.
Gamall draumur auðjöfursins og
myndlistarsafnarans François Pi-
nault rætist eftir tvö ár þegar opnað
verður í miðri Parísarborg samtíma-
listasafn þar sem úrval úr safneign
hans verður til sýnis auk þess sem
þar verða settar upp viðamiklar sýn-
ingar samtímalistamanna. Hann hef-
ur náð samkomulagi við stjórnendur
borgarinnar um að safnið verði sett
upp í fyrrverandi kauphöll, Bourse
du Commerce, sögufrægri hringlaga
byggingu ekki langt frá Louvre-
safninu.
Pinault, sem verður áttræður í
sumar, hefur efnast gríðarlega á
lúxusvörum og fyrirtækjum á borð
við Gucci Group, Saint Laurent og
Balenciaga. Hann á líka Christie’s-
uppboðshúsið. Á síðustu árum hefur
hann opnað tvö samtímasöfn í Fen-
eyjum – Palazzo Grassi og Punta
Della Dogana – og mun reka hið nýja
í París samhliða. Hann hefur leigt
Bourse du Commerce-bygginguna
til fimmtíu ára af Parísarborg. Jap-
anski arkitektinn Tadao Ando mun
hanna sýningarýmið ásamt tveimur
ungum frönskum arkitektum, Lucie
Niney og Thibault Marca.
AFP
Byggingin Safnið verður opnað í Bourse du Commerce-húsinu árið 2017.
Nýtt listasafn með
verkum Pinault í París
Karlakór Grafarvogs fagnar fimm
ára starfsafmæli með tónleikum í
Grafarvogskirkju á morgun, laugar-
dag, klukkan 17. Yfirskrift tón-
leikanna er „Sveinar kátir syngja“
og í tilkynningu er sú yfirskrift
sögð lýsandi fyrir kórinn, sem skip-
aður er glaðværum piltum á öllum
aldri.
Á efnisskránni eru létt lög sem
kórfélögum eru kær en einnig þjóð-
þekkt karlakórslög. Nokkur lag-
anna sem kórinn flytur nú í fyrsta
skipti eru í útsetningu stjórnand-
ans, Írisar Erlingsdóttur, en hún
stofnaði kórinn árið 2011 og fékk til
liðs við sig söngmenn úr hverfinu
og víðar að. Undir stjórn hennar
hefur kórinn dafnað og reynt sig við
margvísleg verkefni og tók m.a.
þátt í karlakóramóti Kötlu í
Reykjanesbæ í haust.
Karlakór Grafarvogs heldur jafn-
an tónleika bæði vor og haust en
kemur einnig fram við sérstök tæki-
færi við messuhald í Grafarvogs-
kirkju. Nokkrir einsöngvarar úr
röðum kórmanna munu koma fram
á tónleikunum. Píanóleik annast
Glódís Margrét Guðmundsdóttir.
Afmælistónleikar í Grafarvogi
Stjórnandinn Íris Erlingsdóttir
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fös 29/4 kl. 19:30 70.sýn Fim 12/5 kl. 19:30 73.sýn Lau 28/5 kl. 19:30 76.sýn
Lau 7/5 kl. 15:00 71.sýn Lau 21/5 kl. 15:00 74.sýn Sun 29/5 kl. 19:30 77.sýn
Lau 7/5 kl. 19:30 72.sýn Lau 21/5 kl. 19:30 75.sýn
Sýningum lýkur í vor!
Hleyptu þeim rétta inn (Stóra sviðið)
Lau 30/4 kl. 19:30 Lokasýn
Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.
Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari)
Fös 29/4 kl. 20:00 Fös 29/4 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 4/5 kl. 19:30 Mið 18/5 kl. 19:30 Mið 1/6 kl. 19:30
Mið 11/5 kl. 19:30 Mið 25/5 kl. 19:30
Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram!
Hvítt (Kúlan)
Lau 30/4 kl. 13:00 Lau 30/4 kl. 15:00
Leikandi létt og sjónræn sýning fyrir börn frá 1 til 5 ára!
Play (Stóra sviðið)
Þri 31/5 kl. 19:30
Listahátíð í Reykjavík
VEGBÚAR –★★★★ – S.J. Fbl.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 29/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/5 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00
Lau 30/4 kl. 20:00 15.s Fös 20/5 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00
Þri 3/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 14:00 Mið 8/6 kl. 20:00
Mið 4/5 kl. 20:00 Lau 21/5 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 Sun 22/5 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00
Fös 6/5 kl. 20:00 aukas. Þri 24/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 14:00 Mið 25/5 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00
Lau 7/5 kl. 20:00 aukas. Fim 26/5 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00
Sun 8/5 kl. 20:00 Fös 27/5 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00
Þri 10/5 kl. 20:00 Lau 28/5 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00
Mið 11/5 kl. 20:00 Sun 29/5 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00
Fim 12/5 kl. 20:00 Þri 31/5 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00
Fös 13/5 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00
Lau 14/5 kl. 14:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00
Þri 17/5 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00
Mið 18/5 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00
Leikhúsmatseðill frá kl 18 í forsalnum, tónlist og kokteilar
Auglýsing ársins (Nýja sviðið)
Lau 30/4 kl. 20:00 8.sýn Fös 6/5 kl. 20:00 Fös 13/5 kl. 20:00
Fim 5/5 kl. 20:00 9.sýn Lau 7/5 kl. 20:00
Ærslafullur og andstyggilegur gleðileikur eftir Tyrfing Tyrfingsson
Vegbúar (Litla sviðið)
Fös 6/5 kl. 20:00 39.sýn og
síðasta
Síðustu sýningar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 29/4 kl. 20:00 106.sýn Fös 20/5 kl. 20:00 108.sýn
Fim 12/5 kl. 20:00 107.sýn Lau 28/5 kl. 20:00 109.sýn
Kenneth Máni stelur senunni
Illska (Litla sviðið)
Lau 30/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni Óskabarna ógæfunnar og Borgarleikhússins
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 29/4 kl. 10:00 Mið 4/5 kl. 10:00 Þri 10/5 kl. 10:00
Mán 2/5 kl. 10:00 Fös 6/5 kl. 10:00
Þri 3/5 kl. 10:00 Mán 9/5 kl. 10:00