Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 41

Morgunblaðið - 29.04.2016, Page 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 2016 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Noise gaf út fjórðu breiðskífu sína, Echoes, 15.apríl sl. og var hún tekin upp, hljóðblönduð og masteruð í stúdíói sveitarinnar, Hljóðverki. Hljóðheimur plötunnar er að mestu órafmagnaður og fékk Noise til liðs við sig strengjasveit tónlistarmannsins Mark Lanegan í nokkrum lögum. Noise mun halda upp á útgáfu plötunnar með tón- leikum í Tjarnarbíói laugardaginn 7. maí kl. 21. Á þeim mun hljóm- sveitin leika plötuna í heild sinni. Noise skipa bræðurnir Einar og Stefán Vilberg Einarssynir, Þor- valdur Ingveldarson og Valdimar Kristjónsson. Byrjuðu 15 ára „Við erum rokkband og byrj- uðum árið 2001, vorum þá 15 ára,“ segir Einar um hljómsveitina. „Við tókum þátt í Músíktilraunum 2001 og 2002 og lentum í úrslitum þar. Við gáfum út fyrstu plötuna okkar 2003 og vorum mikið að spila inn- anlands á þeim tíma. Við gáfum næstu plötu út árið 2007 og fórum þá að spila erlendis og höfum spil- að mikið í Bretlandi upp frá því og aðeins í Evrópu líka. Þriðju plöt- una okkar gáfum við út árið 2010 og hún komst á vinsældalista hér innanlands. Við unnum einhver verðlaun líka, bandarísk indítón- listarverðlaun,“ segir Einar og á þar við Sunset Island Music Aw- ards sem Noise hlaut fyrir lag árs- ins, „A Stab In The Dark“. Hljóðver Noise var tekið í notk- un árið 2013 og segir Einar að grunnar fyrir Echoes hafi verið teknir upp í öðrum hljóðverum áð- ur en upptökur hófust í Hljóðverki. Hann segir að hljómsveitin hafi ekki verið nógu ánægð með grunn- ana en með eigin hljóðveri hafi hún fengið tíma til að leita að rétta hljóminum. „Þetta eru lög af öllum plötunum okkar, sett í nýjan búning. Þetta er ekki órafmögnuð plata í þeim skilningi að við séum að sleppa raf- magnsgíturunum, það er aðeins meira lagt í hana. Við erum með strengjasveit, píanó og það er allt annar hljómur. Ég gerði í því að breyta lögunum sem mest þannig að upplifunin er fersk, þetta eru eiginlega bara ný lög,“ segir Ein- ar. Í eftirpartíi með Lanegan Sem fyrr segir leikur sama strengjasveitin á plötunni og leikið hefur fyrir bandaríska tónlistar- manninn Mark Lanegan en hann hélt tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í nóvember árið 2013. Strengjasveitin er skipuð Hollend- ingum og spurður að því hvers vegna hún hafi leikið á plötu Noise, hvort Lanegan sé félagi hljóm- sveitarmeðlima, segir Einar að það sé nú ekki svo gott. „Við vorum að hjálpa til með hljóðið þegar hann spilaði í Fríkirkjunni og svo lentum við í einhverju eftirpartíi með þeim öllum, Mark Lanegan og hljóm- sveitinni og gáfum þeim gömlu plöturnar okkar. Það barst í tal að við værum að gera „acoustic“ plötu og að það væri gaman að fá strengi og þau vildu endilega spila fyrir okkur. Við héldum að þetta væri bara eitthvað bjórtal en þegar þeir voru komnir aftur til Hollands fengum við tölvupóst frá þeim um að þau vildu fá send lög. Þannig að ég fór að senda þeim lög og þeir voru mjög hrifnir og tóku þetta upp í einhverju svaka fínu stúdíói í Hollandi,“ segir Einar. Miðasala á útgáfutónleikana fer fram á midi.is. „Upplifunin er fersk“  Noise fagnar fjórðu breiðskífu sinni, Echoes, með útgáfutónleikum í Tjarnar- bíói 7. maí  Lög af fyrri plötum hljómsveitarinnar í nýjum útgáfum Ljósmynd/Sigrún Kristín Echoes Umslag breiðskífu Noise. Heimasíða Noise: noiseIceland.com Noise Hljómsveitina skipa Þorvaldur Ingveldarson, Valdimar Kristjónsson og bræðurnir Einar og Stefán Vilberg. Tónlistarhátíðin Secret Solstice hefur hlotið al- þjóðlega Carbon- Neutral- gæðastimpilinn sem þýðir að all- ur koltvísýringur sem verður til af völdum hátíðar- innar, auk alls úrgangs, verður jafnaður út með kolefnisjafnara, eins og segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Secret Solstice verður haldin í Laugardal 16.-19. júní og er Radiohead meðal þeirra hljómsveita sem koma fram. Umhverfisvæn tónlistarhátíð Thom Yorke, for- sprakki Radiohead „Prince, takk fyrir alla fallegu tón- listina þína,“ sagði Beyoncé á fyrstu tónleikum sínum á Form- ation-tónleikaferðalaginu sem hófu göngu sína á miðvikudaginn þegar hún flutti lagið Purple Rain, sem Prince gerði frægt. Fleiri tónlistar- menn hafa eftir lát poppgoðsins flutt þetta lag á tónleikum sínum. Þetta voru fyrstu tónleikar Beyoncé eftir að platan Lemonade kom út um síðustu helgi. Platan hefur vægast sagt verið mikið á milli tannanna á fólki en textar hennar, sem eru afar opinskáir, fjalla um femínisma, framhjáhald og fyrirgefningu. Margir telja nokkuð víst að þar sé poppdrottn- ingin að syngja um hjúskaparbrot eiginmanns síns, Jay-Z. Plötunni lýkur hins vegar á ljúfum nótum og textinn fjallar um fyrirgefningu. Í lok tónleikanna tileinkaði hún eiginmanni sínum Jay-Z lagið Halo frá árunum 2008. „Ég vil tileinka þetta lag fallega eiginmanninum mínum. Ég elska þig svo mikið,“ sagði söngkonan áður en hún hóf upp raust sína og lokaði tónleik- unum, en eiginmaður hennar var á tónleikunum. Tónleikaferðalaginu Formation lýkur í ágúst. Tónleikar Poppdrottningin á fyrstu tónleikunum eftir að hún gaf út plötuna Lemonade. Hún þakkaði Prince fyrir tónlist sína og flutti Purple Rain. Tileinkaði Jay-Z loka- lagið á tónleikunum AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - CAPTAIN AMERICA 3D 7, 10 CAPTAIN AMERICA 4, 10:25 RATCHET & CLANK 3:45, 5:50 ÍSL.TAL HUNTSMAN: WINTERS WAR 10:10 THE BOSS 5:50, 8 MAÐUR SEM HEITIR OVE 8 KUNG FU PANDA 3 3:45 ÍSL.TAL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 4 TILBOÐ KL 3:45

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.