Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 29.04.2016, Qupperneq 44
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 120. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Ástin kviknaði í Biggest Loser 2. Eldingu laust niður í vél Icelandair 3. Stunduðu kynlíf á brautarpallinum 4. Flugvél WOW snúið aftur … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Menningarfélag Akureyrar hefur samið við Atla Örvarsson kvikmynda- tónskáld um flutning og upptökur á tónlist við teiknimyndina Lói – þú flýgur aldrei einn. Þetta er stærsta verkefni Arctic Cinematic Orchestra, eða ACO, sem er kvikmyndatónlist- ararmur Menningarfélags Akureyrar sem býður upp á upptökur á kvik- myndatónlist í menningarhúsinu Hofi með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Friðrik Erlingsson skrifar handrit teiknimyndarinnar, sem leikstýrt er af Árna Ólafi Ásgeirssyni og teikn- aranum Gunnari Karlssyni, en Gunnar sér um útlit myndarinnar og persóna hennar. Hilmar Sigurðsson og Haukur Sigurjónsson hjá fyrirtækinu Gunn- Hill eru framleiðendur myndarinnar, auk Ives Agemans hjá Cyborn í Belgíu. Myndin er sú næstdýrasta sem gerð hefur verið á Íslandi, en framleiðslukostnaður er um millj- arður króna. Á ljósmyndinni sjást Hilmar Sigurðsson, Atli Örvarsson og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tón- listarstjóri Menningarfélags Akureyr- ar, við undirritun samnings í vikunni. ACO semur við Atla vegna teiknimyndar  Portrett-tónleikar með nýjum og eldri verkum eftir tónskáldið Gunnar Andreas Kristinsson verða haldnir í kvöld kl. 21 í menningarhúsinu Mengi. Flytjendur eru Duo Harpverk, Íslenski flautukórinn, Ingólfur Vil- hjálmsson klarínettuleikari og Svan- ur Vilbergsson gítarleikari auk þess sem sjónlist Valerijs Lisac kemur við sögu. Gunnar hefur samið verk af ýmsum toga og hlaut Kraums- verðlaunin 2013 fyrir geisladisk- inn Patterns. Ný og eldri verk Gunnars í Mengi Á laugardag Norðaustan 8-13 m/s og slydda um landið norðan- vert en skýjað með köflum og úrkomulítið sunnan jökla. Hiti 0 til 7 stig, mildast sunnantil á landinu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða norðlæg átt, 3-9 m/s. Snjókoma norð- vestantil og skýjað með köflum eða bjartviðri sunnan- og vestan- lands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. VEÐUR Valsmenn náðu forystunni gegn Aftureldingu í undan- úrslitarimmu liðanna í Olís- deildinni í handknattleik. Valur vann öruggan sigur gegn Mosfellingum í Vals- höllinni að Hlíðarenda í gærkvöld og eru komnir í 2:1 í einvígi liðanna. Fjórði leikur liðanna fer fram að Varmá á morgun en í kvöld mætast Haukar og ÍBV að Ásvöllum þar sem Haukar geta komist í úrslitin. »2 Valsmenn náðu forystunni „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef ég yrði ekki í hópnum. Það er bara mjög eðlilegt. Það eina sem ég get gert er að reyna að standa mig og vonast til að ég verði valinn. Ég verð hundfúll ef ég verð ekki valinn og geðveikt glað- ur ef ég verð valinn,“ segir Gunnleifur Gunnleifsson, hinn fertugi mark- vörður knatt- spyrnuliðs Breiða- bliks sem gæti verið í hópi Ís- lands á EM í sumar. »4 Ég verð hundfúll eða geðveikt glaður 9. maí „Þegar Fylkismenn töluðu við mig þá taldi ég að rétt væri að stíga skrefið og taka við þjálfun meist- araflokksliðs,“ sagði Haraldur Þorvarðarson við Morgunblaðið en hann var í gær ráðinn þjálfari kvennaliðs Fylkis í handknattleik. Auk þess að þjálfa meistaraflokk Fylkis verður Haraldur þjálfari 3. flokks kvenna hjá félaginu. »3 Haraldur kominn til starfa í Árbænum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lið Þróttar í Reykjavík tryggði sér í fyrrahaust þátttöku í efstu deild karla í fótbolta, Pepsi-deildinni, í sumar og hefur keppni á því að taka á móti Íslandsmeisturum FH á sunnudag. „Sumarið leggst mjög vel í mig,“ segir Jón Ólafsson, tónlistarmaður og Þróttari, sem hefur verið virkur með Kötturum, stuðningsmönnum Þróttara, frá því fyrir aldamót. „Flestir spá okkur lóðrétt niður og það er þægileg staða, getur varla verið betri.“ Hann bendir á að það sé reyndar regla frekar en undantekn- ing að nýliðum sé spáð falli, en Þróttur hafi sennilega ekki teflt fram eins sterku liði á pappírunum til fjölda ára og nú, reynslan sé mikil og þjálfarinn góður. „Ég er mjög spenntur.“ Römm er sú taug Jón æfði og lék með Þrótti í yngri flokkunum en eftir að tónlistin tók yfir var hann óvirkur félagsmaður í mörg ár. „Ég var alltaf að spila á böllum um helgar og missti því af flestum leikjum, en 1997, þegar Köttararnir voru nýbyrjaðir, byrjaði ég að mæta á leiki á ný og hef ekki litið til baka síðan.“ Hann segir upp- lifunina í stúkunni sérstaka. „Þrótt- ur gaf mér svo mikið á sínum tíma og fyrir bragðið hef ég tengst klúbbnum órofa böndum, félagið er í blóðinu á mér. Það er líka sérlega gaman að fara á völlinn og hitta fé- lagana. Húmorinn er mikill í stúk- unni, dómararnir fá að heyra það á jákvæðum nótum og meiðist mót- herji syngjum við „jafna sig, jafna sig“, hvetjum hann þannig til dáða. Við reynum að vera jákvæðir og skemmtilegir. Ég hef ekki hugsað mér að fá mér tattú en ef ég gerði það yrði Þróttaramerkið fyrir val- inu.“ Köttarar hafa verið áberandi á leikjum Þróttar og leikið við hvern sinn fingur. Jón segir að guðfeður þeirra séu enn sprækir sem lækir en yngri menn þurfi að fara að taka við keflinu. „Það er ekki endalaust hægt að treysta á okkur miðaldra menn- ina fram í rauðan dauðann en við er- um samt enn í fullu fjöri.“ Þróttarar eru óvenjumiklir söng- menn og Köttarar eru með mörg lög á takteinum. „Við höfum haldið tón- leika þar sem eingöngu hafa verið spiluð Þróttaralög, eigum ekkert eitt sérstakt lag en syngjum það sem við á hverju sinni,“ segir Jón og minnir á að nýtt lag sé á leiðinni. Jón segir að sumarið geti verið erfitt en hann sé bjartsýnn. „Leic- ester hefur sýnt að allt er hægt.“ Alltaf gaman í stúkunni  Leicester gefur nýliðum Þróttar í Reykjavík tóninn Ljósmynd/Hilmar Þór Guðmundsson Þróttarar Jón Ólafsson styður Þróttara af lífi og sál og missir helst ekki af leik. Ásmundur Helgason til vinstri. Morgunblaðið/Eva Björk Stuðningur Köttarar eru á öllum aldri og láta sitt ekki eftir liggja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.