Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 2. M A Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  101. tölublað  104. árgangur  DRÖGUM ÚT 51.000 VINNINGA Á ÁRINU! AÐ VERÐMÆTI 30 MILLJÓNIR HVER! VEIT FYRST Á SVIÐINU HVAÐ VIRKAR FH HÓF TITILVÖRNINA VEL ÚLFUR FRÁ HELVÍTI VARÐ ÁSTFANGINN PEPSI-DEILDIN ÍÞRÓTTIR HARMRÆN ÁSTARSAGA 12UPPISTAND 26 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Forseti Alþýðusambands Íslands segir að það myndi hafa mjög alvar- legar afleiðingar á vinnumarkaði ef svo færi að ekki næðist að samþykkja húsnæðisfrumvörp ríkisstjórnarinnar fyrir alþingiskosningar. Það yrði hreinn og klár forsendubrestur í kjarasamningum ASÍ og SA, en þeir koma næst til endurskoðunar í febr- úar næstkomandi. Gylfi Arnbjörnsson sagði í ræðu á útifundi á Ingólfstorgi á verkalýðs- daginn að nú knýði ófremdarástand í húsnæðismálum margra félaga hreyf- inguna til að láta á ný til sín taka í hús- næðismálum. Við gerð síðustu kjara- samninga hefði verið lögð mikil áhersla á hækkun húsnæðisbóta og stofnun nýs félagslegs húsnæðis- kerfis. Rifjaði Gylfi upp að ASÍ hefði í til- efni af 100 afmæli sínu ákveðið að stofna almennt íbúðafélag og leggja því til nauðsynlegt rekstrarfé. Sam- vinna væri við BSRB og borgina. Alvarlegar afleiðingar  Forseti ASÍ segir forsendur kjarasamninga bresta ef húsnæðisfrumvörp nái ekki fram að ganga  Ófremdarástand í húsnæðismálum hjá mörgum félagsmönnum MPólitísk kreppa »4 Morgunblaðið/Árni Sæberg 1. maí Fjölmenni var í kröfugöngu um Laugaveg á verkalýðsdaginn.  Landsmenn geta kosið forseta þótt ekki liggi fyrir hverjir verða í framboði. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna forsetakosning- anna 25. júní hófst á laugardaginn. Er þetta samkvæmt lögum þótt enn sé mánaðarfrestur til að til- kynna framboð. Í gær greindi Guðni Th. Jóhannesson frá því að hann ætlaði að tilkynna á fimmtu- daginn hvort hann yrði í kjöri. Guðrún Nordal kvaðst ekki ætla að bjóða sig fram. »6 Forsetakosning haf- in utan kjörfundar Kosning Hægt er að kjósa utan kjörfundar.  Kári Stefáns- son, forstjóri Ís- lenskrar erfða- greiningar, afhenti Sigurði Inga Jóhanns- syni forsætisráð- herra veglegan bunka með 86.729 undir- skriftum á fjöl- mennri samkomu undirskriftasöfnunarinnar „Endur- reisum heilbrigðiskerfið“ sem fram fór í húsnæði Íslenskrar erfða- greiningar á laugardaginn. »11 Tók við nær 87 þús- und undirskriftum Undirskriftir Fjöldi var á staðnum. Ungir Þróttarar fylgdu leikmönnum úrvals- deildarliðs Þróttar í fótbolta inn á gervigrasvöll- inn í Laugardal þar sem liðið keppti í gær við FH í fyrstu umferð Íslandsmótsins. FH-ingar unnu leikinn 3-0. Þróttarar verða því að gera betur næst. Raunar eiga íþróttirnar fyrst og fremst að veita ánægju og gleði og því má segja að knatt- spyrnustrákarnir ungu hafi gefið tóninn fyrir mótið, sem stendur fram á haust. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kátir knattspyrnustrákar hlupu inn á völlinn Íslandsmótið í knattspyrnu 2016 hófst í gær  Gagnasöfnun um matarsóun á Íslandi er hafin. Taka eitt þúsund heimili og 700 fyrirtæki, valin með slembiúr- taki, þátt í könn- uninni. Ekki hef- ur áður verið gerð jafn um- fangsmikil rann- sókn á efninu hér á landi. Ný gögn sýna að hver íbúi í Evrópu hendir að meðaltali um 173 kg af mat á ári. Samanlagt er um 88 milljónum tonna af mat hent árlega. »16 Safna gögnum um matarsóun á Íslandi Matur Sóun er mikið vandamál.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.