Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 2

Morgunblaðið - 02.05.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Dagur íslenska hestsins var haldinn hátíðlegur í gær. Skrúðreið var farin af því tilefni frá Hall- grímskirkju að Austurvelli, þar sem kór tók á móti hestum og knöpum. Margt var um mann og hest, en markmiðið var að kynna íslenska hest- inn á heimsvísu. Landssamband hestamanna- félaga stóð í samvinnu við Íslandsstofu að skrúð- reiðinni, sem var leidd af fjallkonunni sjálfri í fullum skrúða. Fjallkonan leiddi skrúðreið um miðborgina Morgunblaðið/Eggert Dagur íslenska hestsins haldinn hátíðlegur í Reykjavík Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Ég gagnrýni það að þessi góða staða skuli ekki vera notuð til að auka jöfnuð í samfélaginu, heldur þvert á móti að ýta undir ójöfnuð,“ segir Oddný G. Harðardóttir, fulltrúi Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd og fyrrverandi fjármálaráðherra, þegar leitað er álits á tillögu ríkis- stjórnarinnar að fjármálaáætlun ríkisins til næstu fimm ára. „Áætlunin ber þess merki að þarna eru hægriflokkar að setja fram stefnu sína til fimm ára. Við jafnaðarmenn hefðum haft hana öðruvísi,“ segir Oddný. Hún bætir því við að ef áætlunin verði sam- þykkt í þessari mynd muni Samfylk- ingin beita sér fyrir því að hún verði tekin upp eftir næstu kosningar. Sem rök fyrir ályktun sinni um aukinn ójöfnuð nefnir Oddný fækkun þrepa í tekjuskattskerf- inu. Sú breyting komi sér best fyr- ir þá sem standi ágætlega fyrir. Skattkerfið verði vissulega einfald- ara en það verði einnig óréttlátara. Hún nefnir einnig að gert sé ráð fyr- ir því að sjúklingar beri áfram allt of stóran hlut af kostnaði við heil- brigðiskerfið. Stefnt sé að því að gera barnabætur að eins konar fá- tækrastyrk. Með því sé verið að færa barnabótakerfið lengra frá fyrir- komulaginu í hinum Norðurlanda- ríkjunum, þar sem barnabætur séu notaðar til að jafna aðstöðu barna- fólks við stöðu fólks sem ekki er með börn á framfæri. Oddný telur að veikleikar séu á fjármálastefnunni með tilliti til efna- hagslegs stöðugleika. „Á sama tíma og skattalækkanir eru boðaðar eru fjárfestingar ríkisins auknar. Á sama tíma eru miklar fjárfestingar annars staðar í þjóðfélaginu. Þessi blanda býður upp á þenslu og verð- bólgu. Ég hef áhyggjur af því, nái þessar tillögur fram að ganga, að forsendur hennar bresti.“ Lögðu til að tilboði yrði tekið Fram kemur í tillögu ríkis- stjórnarinnar að fjármálaáætlun að á tímabilinu verði lokið við byggingu Húss íslenskra fræða. Verkið var hafið snemma árs 2013 með því að grafið var fyrir grunni hússins. Jafn- framt var bygging hússins boðin út, en áður hafði farið fram samkeppni meðal arkitekta um skipulag og útlit hússins. Já verk átti lægsta tilboð, rúmlega 3,1 milljarð kr., og lagði Framkvæmdasýsla ríkisins til við menntamálaráðuneytið að því yrði tekið. Því erindi var aldrei svarað enda var kosið til Alþingis og bygg- ing hússins rúmaðist ekki innan þess ramma sem ný ríkisstjórn setti um fjármál ríkisins. Óljóst er hvert framhald málsins verður þegar fjárveitingar um fram- kvæmdir rata inn á fjárlög. Margt hefur breyst á þeim tíma sem liðinn er frá útboði og því má búast við að bjóða þurfi bygginguna út að nýju. Stuðlar ekki að jöfnuði  Þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýnir tillögur að fimm ára fjármálaáætlun  Líklegt að bjóða þurfi framkvæmdir við Hús íslenskra fræða út að nýju Oddný G. Harðardóttir Landhelgisgæslan setti af stað um- fangsmikla leit að fiskiskipi á föstu- dagskvöld. Ástæðan var sú að skipið hvarf úr sjálfvirku vöktunarkerfi. Skipið fannst aðfaranótt laugardags og þar sem það var ekki rétt útbúið og ekki með fullnægjandi mönnun var því vísað til hafnar. Áhöfnin var að sigla skipinu, Ísleifi II, til Noregs. Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum hefur selt skipið til út- gerðarmanna í Trömsö, þar sem það verður notað til selveiða. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hafði fylgst með skipinu en um klukk- an 19.30 á föstudagskvöldið hvarf það úr ferilvöktunarkerfi djúpt austur af landi, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá Landhelgisgæslunni. Stjórn- stöð Gæslunnar reyndi ítrekað að ná í skipið í gegnum fjarskipti og gervi- hnattasíma en án árangurs. Flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, var send austur til að leita. Þá var varð- skipið Týr sem statt var við Austfirði sett í viðbragðsstöðu. Um klukkan eitt um nóttina fann áhöfn flugvélarinnar Ísleif II um 140 sjómílur austnorðaustur af Dala- tanga. Ekkert amaði að fjögurra manna áhöfn, samkvæmt upplýs- ingum skipstjórans. Landhelgisgæslan segir að svo virðist sem skipið hafi ekki verið útbúið í samræmi við kröfur sem gerðar eru til skipa sem siglt er yfir hafið og þess vegna ekki hafi áhöfnin ekki getað tilkynnt ferðir þess í sam- ræmi við lög. Þá virtist skipið ekki mannað í samræmi við lög og reglu- gerðir. „Í ljósi alvarleika málsins vís- aði Landhelgisgæslan skipinu til Seyðisfjarðar þar sem mál þess verð- ur rannsakað frekar. Landhelgis- gæslan lítur þau mál mjög alvar- legum augum þegar um möguleg brot á reglum um vöktun og öryggis- mál er að ræða,“ segir í tilkynning- unni. Ísleifur II beið enn í Seyðis- fjarðarhöfn í gærkvöldi. Leitað að selveiðiskipi Ljósmynd/Ísleifur Vignisson Sigling Ísleifur II var síðast notaður á loðnuvertíðinni 2015.  Ísleifi II vísað til hafnar eftir um- fangsmikla leit „Við höfum nógan tíma, við viljum bara vera öruggir,“ segir Sigurður Ásgrímsson, skipherra hjá Land- helgisgæslunni, en hann stýrir bátn- um Emblu á siglingu frá Reykjavík til Gautaborgar í Svíþjóð. Báturinn er nú í Færeyjum og var Sigurður spurður að því hvenær lagt yrði af stað í næsta áfanga, sem er Leirvík á Hjaltlandseyjum. Vonast hann til að komast af stað í dag eða í fyrra- málið. Embla er nýjasta smíði skipa- smíðastöðvarinnar Rafnars ehf.; 11 metra langur strandgæslubátur sem byggir á nýrri hönnun skrokklags. Tilgangur ferðarinnar er að sýna bátinn á bátamessu í Gautaborg. Ferðin frá Höfn í Hornafirði til Þórshafnar í Færeyjum gekk vel, að sögn Sigurðar. Tók ferðin tæpar níu klukkustundir. Þótt það hafi ekki endilega verið markmiðið að setja hraðamet telur hann að sú hafi orðið raunin. Meðalhraðinn var 27,1 sjó- míla. Sigurður segir að vel hafi verið tekið á móti áhöfninni í Þórshöfn og báturinn vakið athygli. Haldin var kynning á vegum ræðismanns Ís- lands og farið með samtals um 50 manns í siglingu. helgi@mbl.is Hraðamet sett á nýj- um báti Óðinn Landhelgisgæslan fékk fyrsta Leiftur-bátinn frá Rafnar.  Meðalhraði Emblu var 27,1 sjómíla Á morgun gæti ráðist hvort Reykja- nesbær nær samkomulagi við kröfuhafa um 40 milljarða skuld bæjarfélagsins. Takist það ekki er líklegt að tillaga um að skipa bæn- um fjárhaldsstjórn verði tekin á dagskrá bæjarstjórnar síðdegis. Viðræður bæjarstjórnar og kröfuhafa hafa fram að þessu verið án árangurs. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri væri nokkuð ánægður með gang við- ræðnanna undanfarna daga. Hann útilokaði ekki að málinu yrði frest- að aftur þótt ekki tækist samkomu- lag fyrir fundinn á morgun. Ögurstund í Reykjanesbæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.