Morgunblaðið - 02.05.2016, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. MAÍ 2016
KRÍT
26.maí í 11 nætur
Netverð á mann frá kr. 67.195 m.v. 2 fullorðna og
2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 87.395 m.v. 2
fullorðna í stúdíó.
Omega
Apartments
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
irá
sk
ilja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Frá kr.
67.195
FY
RI
R2 1
ÁFLUGSÆTI
M/GISTINGU
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Nú er staðan sú, góðir félagar, að
mikil upplausn er á vettvangi
stjórnmálanna og í raun er pólitísk
kreppa í landinu og hefur verið við-
varandi síðan haustið 2008 [...] Við
verðum jafnframt að vera okkur
meðvituð um að pólitísk ólga hefur
tilhneigingu til þess að grafa undan
efnahagslegum og félagslegum
stöðugleika og færa sig yfir á
vinnumarkaðinn líkt og við sáum á
síðasta og þarsíðasta ári,“ sagði
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands, meðal annars í
ávarpi á útifundi á Ingólfstorgi í
gær, á verkalýðsdaginn.
Hátíðarhöld voru á meira en
þrjátíu stöðum á landinu í tilefni
dagsins, kröfugöngur og baráttu-
fundir. Í Reykjavík var gengið frá
Hlemmi undir hljóðfæraleik lúðra-
sveitar á útifund á Ingólfstorgi.
Bitnar á útlendingum
Yfirskrift hátíðarhaldanna var
„Samstaða í 100 ár – sókn til nýrra
sigra“ og var með því vísað til aldar-
afmælis Alþýðusambands Íslands
sem fagnað er í ár. Gylfi sagði að
hreyfingin væri enn að glíma við
svipuð mál og í árdaga hreyfingar-
innar. Enn væri verið að berjast
fyrir mannsæmandi launum og
ýmsum réttindum. „Núna eru það
einkum útlendingar og ungt fólk
sem verður fyrir barðinu á ósvífn-
um atvinnurekendum og kjarklaus-
um embættismönnum, en þessir
hópar búa að minnstum upplýsing-
um um réttindi sín og standa því
veikt fyrir. Afstaða verkalýðshreyf-
ingarinnar er skýr; undirboð á
vinnumarkaði eru ekki bara óá-
sættanleg heldur grafa þau undan
því vinnumarkaðskerfi sem við vilj-
um hafa á Íslandi. Við ætlumst til
þess að komið sé fram af sanngirni
og virðingu við fólk. Það eiga allir
að fá það sem þeim ber, launamað-
urinn, samfélagið og atvinnurek-
andinn,“ sagði Gylfi.
Hann gerði húsnæðismálin að
umtalsefni í sama ljósi. Þau hefðu
verið baráttumál Alþýðusambands-
ins alla tíð. „Nú bíðum við þess að
Alþingi afgreiði frumvörp um þessi
mál áður en það verður sundrung-
unni að bráð í aðdraganda kosn-
inga. Ef svo fer mun það hafa mjög
alvarlegar afleiðingar á vinnumark-
aði – því það væri hreinn og klár
forsendubrestur í kjarasamningum
ASÍ og SA sem koma næst til end-
urskoðunar í febrúar 2017.“
Heftir aðgang að þjónustu
Elín Björg Jónsdóttir, formaður
BSRB, sagði að stjórnvöld væru á
rangri braut með áformum um
aukna einkavæðingu í heilbrigðis-
þjónustunni og aukinni kostnaðar-
þátttöku stórs hóps sjúklinga. Hún
flutti ávarp á hátíðarhöldunum í
Hafnarfirði.
Elín gagnrýndi fjársvelti heil-
brigðiskerfisins. „Ný rannsókn
prófessors Rúnars Vilhjálmssonar
á heilsu og lífsháttum Íslendinga
gefur sterkar vísbendingar um að
gjaldtakan í heilbrigðiskerfinu
hefti aðgengi tiltekinna hópa að
þjónustunni. Niðurstöður hans
sýna að of stór hópur Íslendinga
frestar því að leita sér læknisað-
stoðar, jafnvel þótt hann telji sig
þurfa á slíkri þjónustu að halda.
Stöðugt fleiri nefna kostnað sem
ástæðu þess að þeir leita ekki til
læknis. Við slíkt ástand verður ekki
unað.“
Hún ræddi þá ákvörðun stjórn-
valda að þrjár nýjar heilsugæslu-
stöðvar á höfuðborgarsvæðinu yrðu
reknar af einkaaðilum. „Ég hef ekki
orðið vör við að fólkið í landinu sé að
biðja um aukna einkavæðingu í
heilbrigðiskerfinu og því síður að
það óski eftir að greiða meira fyrir
læknisþjónustuna,“ sagði hún.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útifundur Kröfugöngu verkalýðsins lauk á Ingólfstorgi. Þar tóku Parabólurnar á móti göngufólki og ræðumenn hvöttu fólk til dáða.
Pólitísk kreppa í landinu
Forseti ASÍ segir forsendur samninga bresta ef húsnæðisfrumvörp verði
ekki samþykkt Formaður BSRB gagnrýnir einkavæðingu í heilbrigðiskerfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kröfur Margs konar skilaboð voru á skiltum og voru fánar verkalýðs-
félaga áberandi í kröfugöngunni og á baráttufundi á Ingólfstorgi.
Ögmundur
Jónasson, alþing-
ismaður fyrir
Vinstrihreyf-
inguna – grænt
framboð, verður
ekki í framboði í
næstu alþingis-
kosningum. Hann
greindi frá þessu
á vefsíðu sinni
síðdegis í gær.
„Komið er að því að breyta um um-
hverfi,“ segir Ögmundur. „Uppá-
haldsdagurinn minn, 1. maí, bar-
áttudagur verkalýðsins, þykir mér
góður fyrir þessa ákvörðun. Á þess-
um degi líta menn yfir farinn veg en
fyrst og fremst er horft fram á veg-
inn. Það geri ég fullur tilhlökkunar
um leið og ég þakka öllum þeim sem
hafa stutt mig til verka á þingferli
mínum. Annars er ég ekki alveg
hættur á þingi. Ég stend að sjálf-
sögðu mína vakt til loka kjörtíma-
bilsins, hvenær sem nú ákveðið verð-
ur að láta því ljúka. Þá taka við ný
verkefni. Ég ráðgeri ekki að hætta
að lifa lífinu þótt ég hætti á Alþingi.“
Ögmundur
ekki aftur
í framboði
Kveðst ætla að
breyta um umhverfi
Ögmundur
Jónasson
Slysavarnafélagið
Landsbjörg hefur
ákveðið að blása
til átaks í slysa-
vörnum hjólreiða-
fólks. „Kanntu að
hjóla?“ nefnist
það og hófst í gær
og stendur allan
maímánuð.
Hjólreiðaslys-
um hefur fjölgað
um u.þ.b. 400% á Íslandi síðasta ára-
tug samkvæmt tölum Samgöngu-
stofu. Tugir alvarlegra hjólreiðaslysa
verða ár hvert og varð banaslys í
fyrra. Í tilefni átaksins hjóluðu í gær
80 félagar úr Slysavarnafélaginu
Landsbjörg frá bækistöðvum sínum
að Gróubúð á Grandagarði þar sem
Björgunarsveitin Ársæll og Slysa-
varnadeildin í Reykjavík hafa aðset-
ur. Gefinn hefur verið út bæklingur
þar sem farið er yfir helstu atriði sem
hjólreiðafólk þarf að kunna skil á.
Átak í slysa-
vörnum hjól-
reiðafólks
Hjólreiðar Fara
þarf varlega.
Ragnar Örn Péturs-
son, fyrrverandi
íþróttafulltrúi Reykja-
nesbæjar, lést á Heil-
brigðisstofnun Suður-
nesja síðastliðinn
föstudag, eftir skamm-
vinna baráttu við
krabbamein.
Ragnar var fæddur í
Reykjavík 8. maí 1954
og var því ekki orðinn
62 ára þegar hann lést.
Ragnar Örn var
lærður framreiðslu-
maður og vann við veit-
ingarekstur og var íþrótta-
fréttamaður um tíma. Hann var
íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar í
nær 20 ár. Hann var ötull þátttak-
andi í íþróttastarfi bæjarfélagsins og
var meðal annars í íþróttaráði Kefla-
víkur í 12 ár og formaður Íþrótta-
bandalags Keflavíkur á árunum 1994
til 1998. Hann var einn-
ig fréttaritari RÚV á
Suðurnesjum um ára-
bil.
Ragnar Örn var
varabæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins í
Keflavík og formaður
fulltrúaráðs flokksins.
Hann var formaður
Starfsmannafélags
Suðurnesja og sat þá
jafnframt í stjórn
BSRB. Hann var virk-
ur félagi í Kiwanis og
gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir hreyfinguna.
Hann var umdæmisstjóri Kiwanis á
Íslandi og í Færeyjum 2011-2012.
Ragnar Örn lætur eftir sig eigin-
konu, Sigríði Sigurðardóttur, fjögur
uppkomin börn og 10 barnabörn. Út-
för hans verður gerð frá Keflavíkur-
kirkju næstkomandi miðvikudag.
Andlát
Ragnar Örn Pétursson
íþróttafulltrúi
Norska víkinga-
skipið Drekinn
Haraldur hár-
fagri kom inn til
hafnar í Þórshöfn
í Færeyjum í
gærkvöldi. Skipið
kom í þessum
áfanga frá Leir-
vík á Hjaltlands-
eyjum, en þar
hafði það komið
óvænt við vegna smávægilegra bil-
ana sem áhöfnin varð vör við á leið-
inni frá Haugasundi í Noregi.
Næsti áfangastaður er Ísland.
Upphaflega stóð til að hingað yrði
komið einhvern fyrstu daganna í
maí. Ljóst er að það mun dragast
eitthvað. Ekki er heldur vitað hve-
nær skipið heldur frá Færeyjum,
þar sem leiðindaveður er þar og
veðurspá fyrir næstu daga ekki góð.
Drekinn er stærsta víkingaskip sem
smíðað hefur verið í seinni tíð.
helgi@mbl.is
Drekinn kom-
inn til hafnar
í Færeyjum
Drekinn Næsti
áfangi er Ísland.